Tíminn - 18.05.1965, Síða 13
ÞRIÐJUDAGUR 18. maí 1965.
ÍÞRÓTTIR TfMINN • ÍÞRÓTTIR
13
ALF—Reykjavík. — KR hafði heppnina með sér gegn
Fram í Reykjavíkurmótinu í knattspyrnu í gærkvöldi og sigr-
aði með 1:0, en mest allan tímann var Fram beri aðilinn og
70% af leiknum fór fram á vallarhelmingi KR. En það eru
mörkin sem gilda, þess vegna fór KR með bæði stigin og mæt
ir fyrir bragðið Val í aukaleik um Rvíkurmeistaratign, en
þesöi tvö félög eru jöfn og efst með 7 stig.
Eina mark KR í leiknum skoraði Ellert Schram úr víta-
spyrnu, sem Baldur Þórðarson dómari dæmdi réttilega, þegar
Sigurður Einarsson, h. bakvörður Fram, brá sínum fyrrver-
andi leikfélaga, Baldvin Baldvinssyni, sem var kominn í
dauðafæri upp við Fram-markið.
Fram mætti með „uppstokkaða1'
framlínu í þessum leik og sýndi
nú án efa sinn bezta leik í mót
ítiu. Nú komu þeir inn í fram-
línuna Helgi Númason og Baldur
Scheving og settu allt annan blæ
á liðið. Framlínan var virk mest
allan tímann, þrátt fyrir að ekki
tækist henni að skora, en hvað
eftir annað dundu hörkuskot á
KR-markið, sem Heimir varði vel.
Það var aðeins 20 fyrstu mínúturn
ar, sem leikurinn var tiltölulega
jafn. Eftír það lá alltaf meira á
KR-markinu og KR-ingar voru
heppnir að fá ekki á sig a. m. k.
2 mörk.
Eina mark leiksins varð með
þeim hætti, að Ólafur Ólafsson, v.
framvörður Fram, missti knöttinn
fyrir fætur Baldvins, miðherja
KR, sem ekki var lengi að átta
sig og bruna upp að Frammark-
inu. Sigurður Einarsson var einn
til varnar utan markvarðar og
hann tók það til bragðs að bregða
Baldvin u. þ. b., sem hann var
að leggja knöttinn fyrir sig og
skjóta á markið. Dómurinn gat
ekki orðið nema á einn veg, víta-
spyrna. Þetta skeði á 4. mín, s.h.
Fram gerði harða hríð að KR-
markinu allan síðarí hálfleikinn.
Á 13. mín. á Baldur Scheving
hörkuskot, sem fer rétt fram-
hjá. Og mín. síðar á Helgi fallegt
skot ,sem smaug við stöng. Á
20. mín átti Hallgrímur skot,
Víkingur var ekki nein hindrun
fyrir Valsmenn í Reyjqavíkurmót
inu í knattspyrnu á sunnudags-
kvöld, en Valur vann leikinn með
5:0 eftir að hafa haft yfir í hálf
leik 1:0. Valsmenn voru ekki á
skotskónum í fyrri hálfleik, en
fundu sig betur í síðari hálfleikn
um og þá komu mörkin eins og af
færibandi.
Dómari í leiknum var Sveinn
Kristjánsson.
sem hafnaði í stöng. Það var
greinilegt, að knötturinn vildi ekki
í netíð!
KR átti sín tækifæri, en þau
voru ekki eins mörg né hættuleg.
Hættulegasta tækifærið var á síð
ustu mín, þegar Baldvin komst
einn innfyrir, en Hallkell mark
vörður bjargaði fallega.
Þessí sigur KR var mjög óverð
skuldaður.Fram lék betur og sýndi
jákvæðari sóknarleik, sem byggð
ist mikið á spili upp kantana, en
þaðan var knötturinn sendur fyrir.
KR byggði hins vegar mikið upp
á langsendingum fram miðjuna,
sem er mjög tilviljunarkennd
knattspyrna. Þrátt fyrir þennan
sigur sinn, verður KR að horfast
í augu við það, að liðið er ekkí
gott og sú knattspyrna, sem það
hefur sýnt í Rvíkurmótinu
skammt í fslandsmóti.
Sohram er ég hræddur um,
ið færi fyrir liðinu. Ellért
vinnandi í framvarðarstöðu og
stöðvar margar sóknarlotur. Hins
vegar er skarð Ellerts í fram-
línunni ófyllt. Er ekki næsta skref
ið hjá KR að setja Ellert í inn
herjastöðu og fá Svein Jónsson,
sem leikið hefur með góðum
árangri í 1. flokki, inn í fram-
varðarstöðu? Mér sýnist KR ekki
hafa efni á því að missa leikmenn
eins og Svein, Gunnar Guðmanns
son og Hörð úr liðinu — a.m.k.
ekki alla í eínu.
Fram-liðið, eins og það lék í
gærkvöldi, þarf ekki að örvænta
í íslandsmótinu. Liðinu hefur ver
ið spáð falli en ekki er nein á-
stæða til að láta það hræða sig.
Helgi Númason var skemmtileg
asti leikmaður vallarins í gær-
kvöldi og Hreinn Elliðason mið-
herjastöðu er vaxandi leikmaður.
Aftasta vörnin, Guðjón, Sig.
Friðriksson og Sigurður Einarsson
kom vel frá leiknum.
Dómari var Baldur Þórðarson,
eins og fyrr segir, og dæmdi vel.
Jón Þ. Ólafsson bendir á hæðina — 2.10 metra — en siálfur er Jón
1.94 metrar á hæð. Myndina tók GE fyrlr utan 'Hamars-húslð< en þar
vinnur Jón á 4. hæð hjá Fiskmati ríkisins.
Enska landsliðið í knatt-
spyrnu lék gegn Svíþjóð í
Gautaborg s.l. sunnudag og
sigraði með 2:1, en í hálfleik
var staðan 1:1. Má geta þess,
að þetta er fyrsti sigur Eng-
lands gegn Svíþjóð á sænskri
grund í 28 ár. Einnig má geta
þess, að þetta er fyrsti ósigur
Svía á heimavelli í 3 ár.
Leikurinn þótt fremur lélegur.
Enska liðið var betri aðilinJi og
hefði átt að hafa yfir í hálfleik.
England skoraði fyrsta mark leiks
ins á 18. mín. og var Allen Ball
að verki. Sjö mínútum fyrir hlé
jafnaði Leif Ericson fyrir Svíþjóð.
Sigurmark Englands skoraði svo
Connelly á 28. mínútu síðari hálf-
— Enska liðið var skipað
þessum möriuum: Banks, Cohen,
Wilson, Stiles, Jack, Charlton,
Moore, Paine, Ball, Jones, East
ham og Connelly.
Ensku blöðin voru ekki hrifin
af leiknum og hafa gert harða
hríð að Alf Ramsey, þjálfara liðs
ins. Virðast Englendingar ekki
eins vel undirbúnir fyrir loka-
keppni heimsmeistarakeppninnar,
sem háð verður í Englandi næsta
sumar, og þeir áætluðu. Að vísu
hafa þeir unnið ágæta sigra, en
hafa ekki fundið kjölfestu í lið-
ið ennþá, einkum hvað sóknar-
menn snertir.
Nýtt íslandsmet Jóns Þ. Ólafssonar — 2.10 m.
EITT BEZTA HÁSTÖKKS-
AFREK í HEIMINUM I ÁR
Alf — Reykjavík, mámidag.
Jón Þ. Ólafsson setti glæsilegt
íslandsmet i hástökki utanhúss s.
j 1. laugardag. Jón. stökk 2.10 metra
en gamla metið, sem hann átti
! sjálfur, var 2.06 metrar. Jón setti
! ísla'jidsmetið á innanfélagsmóti
ÍR, sem háð var á Melavellinum.
Þetta afrek Jóns er mjög gott og
eitt bezta hástökksafrek i heim
Akureyringar unnu l>rótt tvívegis
Meistaraflokkur Þróttar fór ílþann fyrri 3:1 en síðari leikinnií 1. deild í sumar, þótt ástæðu-
keppnisför til Akureyrar um helgj6:l. Einhver forföli munu hafajlaust sé að vera með of mikla
ina og lék tvo leiki við 1. deildar verið i liði Þróttar en annars ; bjartsýni
lið Akureyrar. Svo fóru leikar, aðjsýndu Akureyringar ágæta leiki j Myndina aö ofan tok HS og
Akureyringar unnu báða leikina.'og lofar frammistaða þeirra góðu sjást Akureyringar skora.
inum í ár. Jón hefur stokkið
hærra en 2.10 metra, en íslands-
met hans innanhúss er 2.11 metr
ar.
— Eg bjóst satt að segja ekki
við því, að ég myndi ná að stökkva i
þessa hæð svona snemma á sumr
i>nu, sagði Jón, þegar ég ræddi
lítillega við hann í dag. Og hann
bætti við: — Eg hef nefnilega
æft lítið í vetur, en þv> má þó
bæta við, að mér finnst ég vera
miklu léttari og frískari eni í
fyrrasumar, en þá hrélnlega of-
gerði ég mér við æfingar.
— Telurðu sem sé helztu ástæð
una fyrir því, að þú vannst þetta
afrek, að þú kemur óþreyttur til
keppni?
— Já, og einnig það, að nú er
komin svampdýna til sögunnar,
sem ekki hefur verið notuð áður
við keppni hérlendis. Þegar ég
stökk þessa hæð á laugardaginn
var það ekki við gömlu gryfjuna
á Melavellinum, heldur fyrir aft
an syðra markið á grasinu. Þar
vann ég góðan punkt/þar sem gras
ið lét ekki eftir. Það er mikill
munur að stökkva undir þessum
kringumstæðum — og alveg sama
hvernig maður kemur niður! Eg
hugsa gott til glóðarinnar í sum
ar og vona, að ég geti bætt metið,
— takmarkið er 2.15 metrar.
Jón átti mjög góðar tilraunir á
laugardaginn. Veður var mjög
heppilegt til keppni, lítilsháttar
gola og sólskin. Hann byrjaði á
1.80 og fór léttilega yfir í fyrstu
tilraun. Þá reyndi hann við 1.91
m og fór yfir þá hæð strax — og
sömu sögu var að segja, þegar
hann reyndi við 1.99 og 2.03, hann
fór yfir í fyrstu tilraun.
Þá var kominn tími til að reyna
við nýtt fslandsmet, 2,07 metra,
og fór Jón yfir þá hæð í fyrstu
tilraun. Næst var hækkað í 2.10
metra og felldi hann í fyrstu til-
raun, en flaug yfir í þeirri næstu.
Að lokum var reyn.t við 2.13 m.
en Jón felldi í fyrstu tilrau« og
reyndi ekki aftur.
Þetta afrek Jóns er mjög gott, og
eins og fyrr segir, eitt bezta há-
stökksafrek í heiminum í ár. Hef
ur t.d. hæst verið stokkið í Banda
ríkjunum 2.14 m í ár.
Þeir félagar í Ungmennafélag
inu Víkverja piltar eða stúlkur,
sem áhuga hafa fyrir að keppa í
starfsíþróttum á vegum Víkverja
á Landsmóti UMFÍ, að Laugar-
vatni 1. júlí í sumar, snúi sér til
formanns félagsins Halldórs Þor-
steinssonar sími 41126, sem gefur
nánari upplýsingar. — Ókeypis
undirbúningsnámskeið fyrir þátt
takendur. (Frá Umf. Víkverja.)
Aukaleikur um
Rvíkurtitilinn
KR vann Fram í gærkvöldi 1 :0
England vann
Svíþjóð 2:1