Tíminn - 18.05.1965, Qupperneq 14
14
TÍMINN
ÞRIÐJUDAGUR 18. mai 1965.
DÓMUR í DAG
MB-Reykjavík, mánudag.
í dag lauk málflutningi fyrir
rétti í Neskaupstað í máli ákæru-
valdsins gegn Leslie Cumby, skip-
stjóra á togaranum Aldershot.
Mun dómur í málinu kveðinn upp
R AMM AGERÐIN
ÁSBRÚ
NJALSGÖTU 62
SÍMI- 1 9 1 08
Málverk
Vatnsrftamyndir
Ljósmyndir
litaðar, af flestum
kaupstöSum landsins
Biblíumyndir
Hinar vinsælu. ISngu
gangamyndir
Rammar
— kúpt gle»
flestar ««fer8ir.
í fyrramálið, þriðjudag. Eins og
áður hefur verið sagt frá hefur
leit að vörpu togarans orðið ár-
angurslaus, og má búast við að
sá sönnunarskortur verði til þess
að ekki reynist unnt að dæma
skipstjórann fyrir ítrekað land-
helgisbrot. Hins vegar er talið
mjög sennilegt, að hann hljóti
fangelsisdóm fyrir mótþróa sinn
við íslenzka löggæzlumenn.
UNGLINGAR TEKNIR . .
Framhald af 2. síðu
í laugina. Þessir piltar hafa allir
komið við sögu hjá rannsóknarlög-
reglunni áður, að því er Njörður
Snæhólm varðstjóri og Leifur
Jónsson rannsóknarlögreglumaður
tjáðu fréttamönnum í dag.
HJÓLBARÐAR
fásfhér
KAUPFELAG
N.-ÞINGEYINGA
KÓPASKERI
HVALAMERKINGAR
Framhald at 1. síðu
af búrhvalnum, og það „gamlir
karlar“. Búrhvalir sem veiðast við
S-Ameríku eru vanalega ipnan við
fjörutíu fet á lengd, en hér veið-
ast þeir frá um fjörutíu og allt
upp í sextíu fet á lengd. Þetta
bendir til þess að karldýrin komi
hingað í norðurhöfin til að una
í ellinní.
Hvalveiðivertíðin byrjar þann
23. maí, þegar allir hvalbátamir
halda úr höfn eftir veturlanga
hvíld.
ENGIR SJÓFLUTNINGAR
Framh aí bls i6
Einna mestan skaða hefur ís-
inn gert þeim, sem ætluðu að
stunda grásleppuveiði og aðra fisk
veiði nú í vor, en apríl og maí-
mánuðir hafa verið beztu veiði-
mánuðirnir undanfarin ár. í þau
fáu skiptí sem hægt hefur verið að
róa hefur veiði verið nóg, og mjög
mikið virzt vera af grásleppu.
Einri 18 tonna bátur fór til Kópa-
skers, og stundar hann nú það-
an gráslepjmveiði, og þrír ára-
bátar voru fluttir þangað á bílum,
og hafa þeír einnig verið gerðir
út á grásleppu með góðum
árangri.
NTB-Svolvær. — Blaðið Lofot
posten segir að vegna lítilla
veiða á vertíðinni í Lofoten
hafi framleiðslufyrirtæki í
Svolvær í Noregi orðið að
kaupa 360 tonn af hrognum frá
íslandi. Segiir blaðið, að hrogn
þessi verði að sjálfsögðu mjög
dýr, en þó sé ódýrara að kaupa
þau frá íslartdi. en að láta
framleiðsluna stöðvast.
LOFTLEIÐADEILAN
Framhald af 1. síðu.
íslenzkra atvinnúflugmanna, að há-
mark vakttíma skyldi verða 12
klukkustundir á sólarhring í stað
þeirra 17, sem farið var eftir til
3. apríl s. 1., er flugmannaverk-
fallið hófst.
Það atvikaðist þannig, að í
þrem tilfellum er flugi var frest-
að vegna 12 tíma reglunnar var
Ingi Kolbeinsson aðstoðarflugmað
ur. Það er nú upplýst, að frestun
þessara þriggja flugferða hafi ver-
ið ákveðin af viðkomandi flugstjór
um, en flugmennirnir allir töldu
sig bundna af ákvörðunum stéttar-
félagsins um styttan' vinnutíma.
Loftleiðir hafa nú ógilt uppsagnar-
bréf það, er Inga Kolbeinssyni var
ritað hinn 14. þ. m.
Samkomulag hefur nú orðið um,
að flugmálastjóri setji reglur um
hámarksflug, vakttíma og lágmarks
hvíldartíma flugmanna á Rolls
Royce 400 flugvélum Loftleiða þar
til um annað kann að semjast, en
báðir aðilar munu hlíta þeim“.
Báðir málsaðilar vísuðu til
fréttatilkynningar þessarar í dag,
þegar leitað var eftir frekari upp-
lýsingum. En út af mismunandi
upplýsingum um fjölda uppsagna
sem komu fram í Tímanum á
sunnudag, er vert að taka fram, að
flugmenn munu hafa talið sig vita,
að fleiri uppsagnir væru á leið-
inni, ef ekki semdist.
SIGLINGAR HAFNAR . . .
hingað. íshrafl er enn inn víð
bæinn, en hefur gisnað mikið og
er talið að skipum sé fært í gegn
núna.
Hér er mjög kalt i veðri í dag
og eins í gær, norðan kuldi og
frost á nóttu-. Sama og ekkert er
farið að votta fyrír gróðri, rétt
aðeins nál í túnum. Sauðburður er
að hefjast og gefa bændur fénu
enn bæði hey og fóðurbæti.
Börnum mínum tengda- og barnabörnum, svo og öll-
um vinum og kunningjum, nær og fjær, sem heiðruðu
mig með heimsóknum. gjöfum og skeytum, á 70 ára af-
mæli minu 13. maí s.l. færi ég mínar ynnilegustu þakkir.
Guð blessi ykkur öll.
Helgi Magnússon
Tungu, Gönguskörðum.
Séra Sigurión Jónsson,
fyrrum sóknarprestur a3 Klrkjubæ á Fljótsdalshéraði,
'ézt þ. 15. maí, að heimill sínu, Básenda 14, Reykjavík.
Anna Sveinsdóftir,
Sindri Sigurjónsson
Fjalarr Siguriónsson,
Frosti Sigurjónsson,
Máni Sigurjónsson,
Vaka Sigurjónsdóttir.
GðSl
BLIKFAXI Á AKUREYRI
Framhald at 16. síðu.
einhver að selja kvaðst hann von-
ast til að starfsmenn félagsins
sætu þar fyrir, enda væru þeir vel
að þeim komnir fyrir trúa þjón-
ustu.
F. í. bauð síðan nokkrum Akur-
eyringum, þar á meðal bæjar-
stjórn, í flugferð með BÍikfaxa.
Var flogið norður fyrir Olafsfjörð
og Siglufjörð og inn yfir Sauðár-
krók og síðan heim aftur. Um há-
degisbilið bauð bæjarstjórn gest-
unum að sunnan til kaffidrykkju
að Hótel KEA. Þar fluttu stuttar
ræður Magnús Guðjónsson bæjar-
stjóri, Jón Sólnes forseti bæjar-
stjórnar, Magnús Jónsson, fjár-
málaráðherra, Somberg fulltrúi
Fokker-verksmiðjanna og Örn O.
Johnson forstjóri. Eftir það var
flogið aftur til Reykjavíkur á tæp-
um 50 mínútum, en talið var, að
flugferðin hefði tekið um hálfa
aðra klukkustund með gömlu
Dakota-vélunum við svipuð veður-
skilyrði.
DRÁTTARVÉLARSLYS
Framhald at 16 síðu
heitinn fjórði skagfirzki bóndinn,
sem bíður bana í dráttarvélaslysi
á tveim árum og þykir mönnum
hér þessi staðreynd eðlilega mjög
uggvænleg.
ERL. SÖLUMENN
Framhald at , slðu
þeir hefðu slíkt leyfi.
Ólafur Jónsson, fulltrúi lög-
reglustjóra, sagði að annar af
þessurti mönnum. hefði komið
til sín í dag Aðspurður sagð-
ist sölumaðurinn hafa leyfi frá
Landsbankanum en það getur
ekki staðizt. þar sem bankinn
veitir engin slík íeyfi Ólafur
sagði að svona sölumenn þyrftu
hér bæði atvinnuleyfi oe verzl
marleyfi sem bessii menn
hafa ekki Hann sagði að hann
myndi tala við þá aftur á morg
un, og rannsaka þá málið nán-
ar og taka ákvörðun um hvort
leyfa skuli bókasöluna.
Blaðið hefur það eftir nokkr
um aðilum að þessir sölumenn
sem hafa verið að „gefa“ 14
binda alfræðiorðabók, væru
ötulir í sölumennsku sinní og
ætti fólk oft erfitt með að
losna við þá. Tímaritasölumenn
irnir sex sem voru hér í fyrra
þóttu einnig frekir, og endaði
framtak þeírra með því að
þeim var bannað að selja
áskriftir hér, enda höfðu þeir
ekkert leyfi.
BARNANÍÐINGUR
Framh af bls 16
fá drengina tvo, sem eru
átta ára gamlir, til að fara
með sér á lögreglustöðina tíl
að rannsaka mál þeirra.
Nokkurn mannsöfnuð hafði
drifið þarna að, því grátur
drengjanna hafði vakið á
þeim athygli. Hafði fólkíð
haldið að hér væru á ferð
inni barnaníðingar, og er
lögregluþjónar komu á vett
vang urðu þeir að beita
valdi til að taka drengina
með sér, því ókunnugt fólk
hafði tekið upp hanzkann
fyrir þá.
Seinna í dag kom svo mað
ur til rannsóknarlögreglunn
ar og kærði yfir þjófnaði
úr bíl sínum, og kom þá í
ljós að þar höfðu átta ára
drengirnir tveir verið að
verki.
BORGARMÁL
Framhald at 5. síðu.
virkjanir. Vitanlega verður að
gæta hófs í verðlagningu raf
orkunnar og fara að öllu með
gát í þeim efnum. Hins vegar
er vandséð,, hvernig við leysum
þann vanda í framtíðinni að
virkjá vatnsföll okkar öðru
vísi en að safna fé til þeirra
framkvæmda, ef við viljum
ekki vera algjörlega ofurseld
ir erlendu fjármagni til þeirra
hluta. Á það má einnig líta,
að við, sem nú erum uppi, njót
um þeirra forréttinda að geta
valið úr ódýrustu og hag-
kvæmustu virkjanirnar en
skiljum hinar eftir fyrir þá,
sem við taka. Því er ekki ósann
gjarnt, þótt við borgum nokk
uð fyrir þessa aðstöðu og létt
um undir með þeim sem á eft-
ir koma.
RAFREIKNIR
Framhald af 3. siðu
deild Háskólans hefur ekki enn
fært sér verulega í nyt tilkomu
reiknisins, en þó hefur búnaðar-
deildin byrjað á því að reikna út
meðaltöl fyrir afurðaeinkunnir og
frjósemi sauðfjár, og fiskideildin
hefur hafið úrvinnslu á síldar-
gögnum. Á vegum bændaskólans
á Hvanneyri hafa verið gerðir út
reikningar í sambandi við úr-
vinnslu á jarðræktartilraunum,
sem framkvæmdar hafa verið þar.
Reiknirinn getur tekið að sér
mun fleiri verkefni, en alls hef-
ur stofnunin hátt á annað hundr
að forskriftir eða kerfi, sem reíkn
irinn getur síðan reiknað eftir.
Nefndi Magnús sem dæmi, að
reiknirínn gæti reiknað út stöð-
ugleika fiskiskipa, og hefði skipa
skoðunarstjóri sýnt þeim mögu-
leika mikla athygli.
Eins og áður segir, hefur stofn
unin lagt mikla áherzlu á að
kenna mönnum notkun rafeinda-
reiknisins, og haldið fimm nám-
skeið í því skyni. Hafa 85 manns
sótt þessi námskeið. aðallega
verkfræðingar og verkfræðinemar
úr verkfræðideild Háskólans. Von-
ir standa til, að slík námskeið
verði fastur liður í verkfræðinámi
við Háskólann. en þau eru nú
við flesta verkfræðiháskóla. Ætlun
in er að hafa síðar námskeið fyr í
ir hagfræðinga, viðskíptafræðinga
og aðra þá, sem vinna við stjórn
un og önnur skyld störf.
Við stofnunina starfa nú þrír
sérfræðingar, Helgi Sigvaldason,
licentíat, Oddur Benediktsson og
dr. Ragnar Ingimarsson.
ÞEIR GLEYMA ....
Framhald af 9. síðu
þrótt, sem býr í Grikkjum. Tyrki
getur reiðzt ofsalega og af litlu
tilefni. Einu sinni voru tveii
þorpsbúar að þrátta á kaffi-
stofu, hvor ætti að borga. Upphæð
in var fáeinar krónur. Þegar ekki
náðist samkomulag, gerði annai
sér lítið fyrir, tók upp hníf og
drap hinn. Ég gætti mín sannar-
lega eftir þennan atburð, að reita
þá ekki til reiði. Þetta fólk hafði
verið skógarhöggsmenn en stofnaS
þetta þorp og stundaði nú akur-
yrkju. Þeir halda sínum siðum,
m.a. hafa þeir engan húsbúnað
nema gólfteppi. Þeir búa í einu
stóru herbergi og þar sofa þeir,
elda mat og taka á móti gestum,
og er allt afar þrifalegt.
Bæjarstjórínn fór
náttfataklæddur í hoð.
— Klæðavenjur þorpsbúa voru
hinar merkustu. Konumar gengu
í víðum, rósóttum buxum, lérefts
blússum og með skýluklúta — þæi
unnu berfættar allan ársins hring
en mennirnir gengu í skóm. Bæjar
stjórinn bjó sig á morgnana í fínu
fötin sín og fór til vinnu. Þegai
hann kom heim á daginn, hafði
hann fataskipti og klæddist nátt-
fötum. Væri honum boðið út, fói
hann þannig klæddur. Margir virt
ust aldrei fara úr náttfötunum.
Andstætt við það, sem við fund-
um í Grilcklandi, fékk fólk að
vera í friði með sín áhugaefni og
einkamál. Þorpsbúar tóku okkui
af mikilli velvild og urðu mjög
hrifnir af Sunnu, dóttur okkar, og
voru okkur boðnar tvær kýr i
skiptum fyrir hana. Nautgripir
eru annars sjaldgæfir, og urðum
við að gefa barninu buffaló-mjólk
að drekka, eftir að brjóstamjólk
þraut. Konur nota ekki bleyjur á
börn sín, en potti er stungið undir
gat á dýnunni og barnið bundið
tryggilega yfir, og fyndist mér að
þetta mætti gjarnan taka til fyr-
irmyndar. HK.
ÆSKULÝÐSSTARFSEMI
Framhald af 3. síðu
veittu verðlaun fyrir, og var Sum-
arliði Vilhjálmsson, bóndi, Ferju-
bakka, sigurvegari. Ritgerðirnar
skyldu fjalla um efnið „Öryggi og
hætta við landbúnaðarstörf“ og
nefndi Sumarliði ritgerð sína
„Verið varkár, varizt slysin“.
Vilhjálmur sagði, að ýmiss kon-
ar starfsemi væri fyrirhuguð í
sumar, en ekki væri endanlega
búið að ganga frá henni. Mun
nefndin halda fjórar skemmtanir
fyrir æskufólk í sumar, en á þeim
skemmtunum er krafizt algers
bindindis, 'snyrtilegs klæðaburðar
og prúðmannlegrar framkomu.
Eru skemmtanir þessar aðallega
fyrir unglinga, og hafa venjulega
vérið mjög vinsælar.
Þá verða haldnar sumarbúðir að
Varmalandi og einnig leiðbeinenda
námskeið þar sem ungu fólki verða
ken.nd ýmiss undirstöðuatriði í
sambandi við leiðbeiningar í frjáls
um íþróttum. Þá munu nokkur
sumarnámskeið fyrirhuguð og er
þegar fullskipað á fyrsta nám-
skeiðið. 'Þessi starfsemi er gerð í
samvinnu við íþróttaskóla Höskuld
ar og Vilhjálms.
Þá er og í athugun ýmis önnur
starfsemi í framtíðinni, t. d. nám-
skeið í ræðumennsku, fundar-
stjórn, ljósmyndagerð, æskulýðs-
tónleikar o. fl. Einnig er í athug-
un á hvorn hátt sé hægt að nýta
félagsheimilin betur og efla starf-
semina í þeim( m. a. í sambandi
við fræðslukvikmyndasýningar og
fleira.