Morgunblaðið - 14.12.1975, Side 39

Morgunblaðið - 14.12.1975, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. DESEMBER 1975 39 — Samningar Framhald af bls. 40 og gjaldeyriseftirlitið fengi upp- lýsingar frá þeim að vanda. Málin stæðu þannig nú, að skýrslur ferðaskrifstofanna hefðu borizt og komið hefði í ljós, að auk þess, sem sum af hótelum Flugleiða hefðu reynzt of dýr, væri líka éitt eða tvö hótel, sem Sunna hefði samið, við, of dýr, til þess að hægt væri að nota þau samkvæmt gjaldeyrislöggjöfinni. — 25 ríkis- stofnanir Framhald af bls. 40 stofnanaflutning — eins og segir f tillögum nefndarinnar. Nefndin gerir að tillögu sinni, að flutn- ingsráðið verði skipað 7 mönnum (eins og nefndin sjálf), sem kosn- ir yrðu hlutfallskosningu af sam- einuðu alþingi. Erlendis, þar sem stofnana- flutningur hefur átt sér stað, hef- ur sérstök mótstaða verið meðal starfsfólks stofnananna og hefur það skapað erfiðleika á fram- kvæmd. Nefndin leggur til að þessu atriði verði sérstakur gaum- ur gefinn, svo að starfsfólk verði ekki fyrir þungum efnahagsleg- um búsifjum vegna flutnings stofnunar og þvf gert auðveldara að yfirstíga aðra erfiðleika, sem kunna að verða samfara flutningi. í því efni bendir nefndin á 8 atriði, sem m.a. fela í sér, að starfsfólki verði gefinn kostur á að íhuga vandlega, hvort það vill flytjast með stofnuninni og verði þvi gefinn frestur frá sex mánuð- um til 2ja ára til þess. A umhugs- unartíma verði efnt til kynnis- ferða til nýrra heimkynna. Starfs- fólki verði veittur ferðastyrkur, svo að það geti að kostnaðarlausu fylgt stofnuninni og fyrirgreiðsla vegna húsnæðis og að það verði jafngott eða betra en húsnæði gamla staðarins. Um ákveðinn tíma eftir flutning fái starfsfólk ferðastyrki til að heimsækja fjöl- skyldur og vini og við staðarval stofnunar skal hafa hliðsjón af menntunaraðstöðu og almennum þjónustumöguleikum til þess að flutningur raski ekki eða valdi breytingum á lífsvenjum. Þá verði við flutning stofnana að taka tillit til sérstakra ástæðna einstakra starfsmanna, vilji starfsmaður ekki flytjast með stofnun sinni. Vegna þess að Reykjavík er höfuðborg íslands lftur nefndin svo á að aðalstjórnarstofnanir eigi að vera í Reykjavík og nokkrar aðrar stjórnarstofnanir. Eftirtald- ar stofnanir hafi óbreyttan að- setursstað: Forseti Islands, AI- þingi, Stjórnarráð, Hæstiréttur, Seðlabanki íslands, Þjóðhags- stofnun, Flugmálastjórn Sak- sóknaraembættið, Ríkisskatt- stjóraembættið og Landlæknis- embættið. Þá eru nefndar nokkr- ar stofnanir, sem nefndin leggur til að verði áfram í Reykjavík vegna þess, að flutningur þeirra myndi ekki hafa áhrif á þróunar- möguleika byggðarlaga: Iðn- þróunarnefnd, Rannsóknaráð ríkisins, Áfengisvarnaráð, Barna- verndarráð, Endurhæfingaráð, Ferðamálaráð, Iðnfræðsluráð, Menntamálaráð — ásamt Menn- ingarsjóði og Bókaútgáfu Menn- ingarsjóðs, Náttúruverndarráð, Umferðarráð, Verðlagsráð sjávar- útvegsins, Skilorðseftirlit ríkis- ins, Tryggingaeftirlit, Yfirdýra- læknisembættið. Einnig leggur nefndin til að eftirtaldar stofnanir verði áfram í Reykjavík: Fiskimálasjóður, Fisk- veiðasjóður Islands, Iðnrekstrar- sjóður, Iðnþróunarsjóður, Ldna- sjóður íslenzkra námsmanna, Tryggingasjóður fiskiskipa, Við- lagasjóður, Blóðbankinn, Skrif- stofa ríkisspítalanna, IJtflutnings- miðstöð iðnaðarins, Blindraskól- inn, Fóstruskóli Islands, Hótel-og veitingaskóli Islands, Heyrna- leysingjaskólinn, Ljósmæðraskóli Islands, Röntgentæknaskólinn og Þroskaþjálfaraskólinn. Þá eru nefnd ýmis fyrirtæki, sem ekki er unnt að flytja vegna fjárfestinga f Reykjavik og eru þar nefndar eftirtaldar stofnanir: Veðurstofa íslands, Aburðarverksmiðja ríkis- ins, Lyfjaverzlun rfkisins, Lands- smiðjan. Ríkisprentsmiðjan Gutenberg, Sala varnarliðseigna og Sjómælingar Islands. Nefndin leggur til að stofnanir tengdar Iandbúnaði verði fluttar til Borgarfjarðarhéraðs: Búnaðar- félag Islands ásamt Búreikninga- stofu landbúnaðarins, Fram- leiðsluráð landbúnaðarins, Land- nám ríkisins, Rannsóknastofnun landbúnaðarins, Sauðfjárveiki- varnir, Veiðimálastofnunin og Veiðistjóraembættið. Þá leggur nefndin til að Rafmagnsveitur ríkisins verði fluttar á Selfoss- svæðið og einnig að þangað flytj- ist Orkustofnun, Jarðboranir rfkisins og Jarðvarmaveitur ríkis- ins og Gufuboranir ríkisins og Reykjavíkurborgar. Einnig vill nefndin flytja aðalskrifstofu Landsvirkjunar til Selfosssvæðis- ins. I skýrslunni segir, að Akureyri sé nú jafnstór bær og Reykjavík var þegar Háskóli Islands var stofnsettur og vill flytja á Eyja- fjarðarsvæðið: Kennaraháskóla Islands, Æfinga- og tilraunaskól- ann, Húsmæðrakennaraskólann, Tækniskóla Islands, og verkfræði- deild Háskóla Islands. Nefndin gerir að tillögu sinni að Fisk- vinnsluskólinn verðu fluttur til ísafjarðarsvæðisins, þar sem hann gæti vaxið í tengslum við aðrar menntastofnanir og alhliða vinnslu á öllum helztu tegundum íslenzkra sjávarafurða, Nefndin leggur til að Biskups- embættið ásamt Hjálparstofnun kirkjunnar verði flutt á Selfoss- svæðið, þar sem sögulegar hefðir mæli með þeirri staðsetningu. Landhelgisgæzluna vill nefndin flytja á Suðurnesjasvæðið, en tvö útibú Gæzlunnar verði stofnuð, annað á Isafjarðarsvæði, en hitt á Austfjarðasvæði. Tillögur nefnd- arinnar lúta að þvf að Land- mælingar Islands flytjist til Aust- fjarðasvæðisins. Skógrækt rikis- ins á samkvæmt tillögunum að flytjast til Austfjarðasvæðisins og tengjast skógræktarstarfseminni, sem þar fer fram — þá líklegast á Hallormsstað. Þá er talsverður hluti skýrslu nefndarinnar um deildaflutning stofnana og er það of viðamikið mál til þess að það verði allt tf- undað í stuttri blaðafrétt. Sem fylgiskjal við tillögur nefndar- innar lætur hún fylgja frumvarp til laga um Flutningsráð ríkis- stofnana. I nefndinni, sem vann álitið, voru eftirtaidir menn: Ólafur Ragnar Grfmsson, formaður, Bjarni Einarsson, Helgi Seljan, Jón Baldvin Hannibalsson, Magnús Gíslason, Magnús E. Guðjónsson, og Sigfinnur Sigurðs- son. Nefdarálitið er að stærð eins og Simaskráin. Kjarasamningar: Nýr fundur á þriðjudag SAMNINGAFUNDI nefnda ASl og vinnuveitenda með sáttasemj- ara f gær lauk kl. 12,30, en hann hófst kl. 10. Annar fundur hefur verið boðaður á þriðjudag kl. 2. Að sögn Torfa Hjartarsonar sátta- semjara voru málin reifuð á fundinum f gær, en Torfi kvað samninganefndirnar mjög fjöl- mennar, eða um 50 menn alls f báðum nefndunum. Aðspurður svaraði Torfi því til, að miklu þægilegra væri að hafa fámennar samninganefndir og gengi oft betur að vinna málin. „En þetta hefur verið svona stundum," sagði Torfi, „og oft er Ifka reynt að taka minni nefndir út úr stðru nefndunum.“ Islenzkar klj ómplötur í Karnabæ á kasettum i fraill stctpur Áfram stelpur I Leik fanga landi Millilending MEGAS millilcnding Yerzlið þar sem hljómplötuúrvalið er mest Gefið Islenska hljómplötu í jólagjöf siminadg

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.