Morgunblaðið - 30.12.1975, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 30. DESEMBER 1975
Núpur í Axarfirði:
Sprunga í kring
um íbúðarhúáð
Aframhaldandi jarðsig milli Lyngáss og Veggjarenda
Alvarlegar skemmdir á
freigátunni Andromedu
Yfir 1.000 manna
trún aðarm ann aráð
innan B.S.R.B.
BANDALAG starfsmanna rfkis
og bæja er nú að búa sig undir
aukin umsvif í samningamálum.
Viðræður við fjármálaráðuneytið
um kaup og kjör opinberra starfs-
manna hefjst eftir áramót og
hefur fjármálaráðherra sagt í við-
ræðum við forystumenn BSRB að
hann muni sjálfur að einhverju
leyti taka þátt f viðræðunum.
Bandalagið er nú að koma sér upp
1.000 manna trúnaðarmanna-
kerfi, sem á að verða framtfðar-
kerfi sambandsins og nauðsyn-
legt, að sögn Haralds Steinsþórs-
sonar, til þess að gera félags-
starfið innan BSRB virkara.
Eins og kunnugt er af fréttum
voru samþykkt á Alþingi nýlega
Framhald á bls. 27
SKEMMDIRNAR A ANDRO-
MEDU — Hér sést hluti
skemmdanna á freigátunni eft-
ir áreksturinn við Tý á sunnu-
dagsmorguninn, en um 18
metrar af rekkverki freigát-
unnar skemmdust og undir-
stöður eldflaugapalls. Myndin
er send með loftskeyti frá frei-
gátunni til London og símsend
þaðan til Morgunblaðsins í
gærkveldi.
KYRRT hefur verið á miðum
brezkra togara innan fiskveiðilög-
sögu fslands austur af landinu frá
þvf er áreksturinn varð milli
varðskipsins Týs og freigátunnar
Andromedu árdegis á sunnudag.
Alls voru 28 brezkir togarar að
ólöglegum veiðum í gær, 22 voru
40 mflur austur af Norðfjarðar-
horni og nokkru sunnar var annar
hópur 6 togara. Þrjár freigátur
gættu togaranna, Lowestoft og
Gurkha stærri hópsins, en Andro-
meda togaranna sex.
Samkvæmt upplýsingumf sem
Morgunblaðið fékk í gær frá Hull,
en eru þó óstaðfestar, mun hafa
verið tekin ákvörðun um það að
senda nokkra nýja dráttarbáta á
íslandsmið, sem eru eign brezka
flotans og eiga þessir dráttarbátar
að koma í stað Star-skipanna, sem
dregin voru til baka af miðunum,
er þau þóttu eigi standast slaginn
við varðskipin. Dráttarbátar þess-
ir eru sagðir mjög sterkbyggðir og
henta betur til viðureignar við
varðskipin, þar sem byrðingur
freigátanna er mjög viðkvæmur
og þær byggðar með tiJLliti til
heildarstyrkleika þeirra 'fremur
en mikils átaks á einstaka skips-
hluta. Dráttarbátarnir eru sagðir
ganga 15 hnúta, vera 1.500 rúm-
lestir með 30 manna áhöfn. Frei-
gáturnar verða áfram á miðunum,
þrátt fyrir komu þessara dráttar-
báta.
Eins og áður segir eru freigát-
urnar fremur veikbyggðar til
átaka og samkvæmt upplýsingum
Reuters-fréttastofunnar, sem er
með mann um borð í Andromedu,
urðu talsverðrar skemmdir á frei-
gátunni og meðal annars skekkt-
ust undirstöður eldflaugapalla
hennar. Slíkar skemmdir eru
samkvæmt því sem Mbl. var sagt í
gær, mjög alvarlegar, þar sem
pallar þessir eru mjög nákvæm-
lega stilltir. Skekkist slíkur pall-
ur er ekki unnt að miða rétt, eigi
að skjóta elflaugunum á loft.
Frá atburðunum, er Andro-
meda og Týr skullu saman á mið-
unum á sunnudag, segir svo i frá-
sögn Landhelgisgæzlunnar:
„Sunnudagsmorguninn 28. des-
ember var varðskipið Týr statt 40
sjómílur austur af Norðfjarðar-
horni. Hægviðrivar en talsverður
sjór, um 4ra metra ölduhæð. Á
þessu svæði voru 3 brezkir togar-
ar, allir með veiðarfæri sín uppi,
einnig dráttarbáturinn Lloyds-
man og freigátan Andromeda
(2.400 rúmlestir). Þennan morg-
un flaug Nimrod-njósnaþota yfir
svæðið og einnig var á flugi þyrla
frá freigátunni.
Varðskipið Týr var á beinni
siglingu og var ekki með klipp-
urnar úti. Skömmu eftir klukkan
10.00 sigldi freigátan Andromeda
á mikilli ferð fram með bakborðs-
síðu varðskipsins og þegar hún
hafði siglt varðskipið uppi og var
komin samsíða þvf, beygði hún
skyndilega frá varðskipinu og sló
um leið skutnum utan í bakborðs-
hlið Týs. Aðalhöggið kom á
stafnshlið Týs 1,5 metra frá þil-
Framhald á bls. 27
Skinnastöðum Axarfirði 29. des.
HELDUR dró úr óróanum í Axar-
fjarðarhéraði á laugardag eftir
Iátlausa jarðskjálfta dögum
saman. Fastir kippir voru strjálli
en áður og gætti nú tiltölulega
meira í Axarfirði og Núpasveit en
í Kelduhverfi og hafa sennilega
átt upptök á sprungum ofurlítið
austar en áður. Stöðug skjálfta-
upptök virtust vera í um það bil
15 km fjarlægð frá Skinnastað ef
til vill í norðri og önnur í 5—10
km fjarlægð ef til vill í suðvestri.
Miklar hræringar voru frá því um
kl. þrjú aðfararnótt sunnudags til
kl. 14 um daginn. Svo kom mjög
rólegur kafli fram á aðfararnótt
mánudags, en þá jukust skjálftar
heldur aftur. Stærstu kippirnir
komu Iaust fyrir kl. 11 í morgun,
nokkrir i röð og voru mjög harðir í
Kelduhverfi og Sandinum, svo
fólk féll jafnvel um koll. Veður-
stofan gefur upp að þeir hafi
sennilega verið 10—15 km
sunnan Lindarbrekku, en mér
virtist sá stærsti geta verið
nokkru fjær, eða í allt að 30 km
fjarlægð frá Skinnastað. Síðan i
gær hafa finnanlegir kippir á
Skinnastað verið 1—2 á klukku-
stund, flestir vægir, en á mæli að
meðaltali einn til tveir á minútu.
Þetta mun þó misjafnt eftir svæð-
um. Sumar jarðsprungurnar hjá
Lindarbrekku hafa víkkað
nokkuð síðan á laugardag og þann
dag sagði Erla Bernharðsdóttir
húsfreyja í Ærlækjarseli að
sprunga hefði sézt á mýrunum
milli Ærlækjarsels og Akursels,
allt að 10 sm víð yfir veginn þar á
milli. Aðra sprungu kvað hún
liggja iim hlaðið á bæ sfnum, en
sú var ekki gliðnuð. Árdís Páls-
dóttir húsfreyja á Núpi í Axar-
firði sagði í dag að sprunga væri
komin hringinn í kringum íbúðar-
húsið og sprunga á hlaðinu.
Annars hefur ekki heyrzt um nýj-
ar skemmdir á mannvirkjum, en
margt er ókannað i þeim efnum.
Jarðrask hér virðist mest vera
sprungumyndun og gliðnun á
sumum sprungum. Sig milli
sprungna á um 1 km breiðu belti,
að m.k. 50—60 sm, er mjög greini-
legt á milli Lyngáss og Veggjar-
enda í Kelduhverfi og heldur
áfram að síga. Reynt er að fylla í
hin mörgu skörð þjóðvegarins þar
jafnóðum til þess að gera hann
færan jeppum. Hér voru á ferð í
gær Eysteinn Tryggvason jarð-
eðlisfræðingur og Hjörtur
Tryggvason jarðskjálftafræðing-
ur frá Húsavík og athuguðu
verksummerki í Kelduhverfi.
Veður var heldur óhagstætt og
fóru þeir ekki niður i Sand m.a.
vegna snjógangs og dímmviðris.
Kirkjusókn á Kópaskeri var
ágæt á annan dag jóla þrátt fyrir
þó nokkrar jarðhræringar þar og
þyt í lofti. Sömu sögu er að segja
frá Skinnastað í gær i éljaveðri og
hörðu frosti þótt ókyrrð all mikil
hefði verið um nóttina og
morguninn. Á þeim stöðum þar
sem mest kveður að ókyrrðinni
tekur fólk henni með aðdáunar-
verðri rósemi, að því ég bezt veit.
Séra Sigurvin
Raufarhöfn:
Ball fyrir alla
aldursflokka
HÉR ER nú austanátt og hlýindi
og verið er að undirbúa áramótin.
Barnaböll voru fyrir alla aldurs-
flokka i gær og togarinn er enn
við bryggju. Helzt er hreyfingin í
kringum áramótabálköstinn, sem
að vanda verður æði stór.
— Helgi.
Eldsvoði á
Akureyri:
Stór-
skemmdir
á vélum
trésmíða-
verkstæðis
Akureyri 29. des. — Slökkvilið
Akureyrar var kallað út að
Trésmíðaverkstæði byggingar-
fyrirtækisins Hýbýli h.f. kl.
13.10 í dag. Þar logaði eldur i
spónahrúgu og timburhlaða,
að vísu ekki mikill, en hafði
valdið gífurlegum hita. Eldur-
inn var skjótlega slökktur, en
stórskemmdir höfðu orðið á
vélum, áhöldum og raflögnum
vegna hitans og reykskemmdir
á húsinu sjálfu. Eldsupptök
eru ókunn og ekki hafði verið
unnið á verkstæðinu síðan
fyrir jól og ekki vitað til að
neinn hefði gengið þar um.
—Sv.P.
Happdrætt-
ismiðar úr
300 í 400 kr.
AÐ sögn Jóns Bergsteinssonar
skrifstofustjóra hjá Happdrætti
Háskóla íslands, hefur happ-
drættismiðinn nú hækkað úr 300
kr. i 400 kr. á mánuði þannig að
dýrasti miðinn, trompið sem er
fimmfaldur vinningur, kostar nú
2000 kr. á mánuði. Lægstu
vinningar hjá Happdrætti Hl
hafa nú hækkað úr 5000 kr. i
10.000 kr.
Þá hafa miðar hjá SlBS einnig
hækkað úr 300 kr. í 400 á mánuði
og lægstu vinningar þeirra hafa
einnig hækkað úr 5000 kr. i 10
þús. kr.
Betri markaðshorfur í Japan en í fyrra:
,+Mestu máli skipt-
ir að auka sölu
loðnuhrogna”
„HORFUR á loðnusölur til
Japans eru nú mun hagstæðari
en þær voru á sama tfma í
fyrra, sérstaklega að þvf er
varðar birgðastöðuna,“ sagði
Eyjólfur tsfeld Eyjólfsson,
framkvæmdastjóri Sölumið-
stöðvar hraðfrvstihúsanna í
samtali við Morgunblaðið f
gær, en Eyjólfur er nú
nýkominn frá Japan ásamt
Guðmundi Karlssyni sem þar
starfaði um tfma fyrir SH, en
þeir áttu þær viðræður við
japanska loðnukaupendur.
Eyjólfur sagði i samtalinu við
Mbl, að um áramótin
1974—1975 hefðu legið miklar
birgðir af loðnu hjá vinnslufyr-
irtækjum vegna of mikils inn-
flutings 1974 og samdráttar i
sölu vegna afturkipps í efna-
hagslffinu i kjölfar oliu-
kreppunnar.
„A þessu ári hefur verið
nokkur söluaukning m.a. vegna
samkeppni seljenda við að
losna víð gamlar birgðir, sem
leitt hefur til taprekstrar hjá
ýmsum loðnukaupendum. Hins
vegar er enginn skortur á loðnu
því flestir eiga næga loðnu
þangað til ný framleiðsla
kemur á markaðinn. Þrátt fyrir
þetta eru margir kaupendur
hræddir við að gera bindandi
samninga vegna þess að þeir
óttast offramboð á næsta ári og
að sagan frá 1974 endurtaki sig.
Þetta stafar aðallega af því að
Rússar bjóða nú tvöfalt magn
miðað við það sem þeir seldu til
Eyjólfur Isfeld Eyjólsson
Japans á þessu ári, eða 30 til 35
þús. lestir. Þar sem þessi loðna
er að mestu fryst eins og hún
veiðist, þá svarar þetta til um
15 ti! 17.500 tonna af hrygnu."
Þá sagði Eyjólfur, að Norð-
menn byðu nú 6000 tonn sem að
mestu eru flokkuð 90 til 100
prósent, og svaraði þetta því til
um 5.500 tonna af hrygnu. Þá
væru Japanir sjálfir byrjaðir
- segir Egjólfur
ísfeld Egjólfs-
son framkvœmda-
stjóri SH
veiðar á loðnu við Nýfundna-
land í fyrsta sinn á þessu ári og
hefðu fryst þar um 1000 tonn.
Nú gerðu þeir ráð fyrir að
senda fleiri skip til þessara
veiða á sumri komanda og
frysta þar um 5000 tonn, sem
allt væri hrygna, þar eð þeir
handflokkuðu alla loðnuna um
borð i frystiskipunum. Ef við
vildum selja um 10 þús. tonn
héðan frá íslandi, sem væntan-
lega samsvaraði um 8000 tonn-
um af hrygnu, þá væri framboð-
ið samtals 34 til 36 þús. lestir,
en það magn sem vinnsluaðilar
í Japan gætu gert ráð fyrir að
markaðurinn tæki á móti væri
24 til 30 þús. tonn af hrygnu.“
Eyjólfur var inntur eftir því,
hverjir möguleikar væru á sölu
annarra fiskafurða héðan til
Japans. Sagði hann að of langt
mál væri að rekja einstakar
vörutegundir. I stuttu máli sagt
Framhald á bls. 27