Morgunblaðið - 30.12.1975, Side 8
8
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 30. DESEMBER 1975
í tilefni kvennaárs
UMSJÓN: Bergljót Halldórsdóttir, Björg Einarsdóttir, Erna Ragnarsdóttir,
Lilja Ólafsdóttir.
9, í upphaf i var
Gamla testamentið
Sköpun konunnar.
„Og Drottinn Guð sagði: Eigi
er það gott, að maðurinn sé
einsamall; ég vil gjöra honum
meðhjálp við hans hæfi. Og
maðurinn gaf nafn öllum
fénaðinum og fuglum loftsins
og öllum dýrum merkurinnar;
en meðhjálp fyrir mann fann
hann enga við sitt hæfi. Þá lét
Drottinn Guð fastan svefn falla
á manninn; og er hann var
sofnaður tók hann eitt af rifj-
um hans og fyllti aftur með
hoidi. Og Drottinn Guð mynd-
aði konu af rifinu, er hann
hafði tekið úr manninum, og
leiddi hana til mannsins. Þá
sagði maðurinn: Þetta er loks
bein af mínum beinum og hold
af mínu holdi; hún skal karl-
ynja kallast, af því að hún er af
karimanni tekin.“
I. Mós. 2 kap.
Konan leiddi syndina
vfir manninn
og skal refsað:
„En við konuna sagði hann:
Mikla mun ég gjöra þjáningu
þfna, er þú verður barnshaf-
andi; með þraut skalt þú börn
fæða, og þó hafa löngun til
manns þíns, en hann skal
drottnayfir þér.“
I. Mós. 3. kap.
Tfunda boðorðið.
(Um eignarétt s.s. á húsdýr-
um (konum, uxum) o.fl.)
„Þú skalt ekki girnast konu
náunga þíns, ekki þræl hans
eða ambátt, ekki uxa hans eða
asna, né nokkuð það, sem ná-
ungi þinn á.“
II. Mós. 20. kap.
Sonur eða dóttir.
Um sængurkonur.
„Og drottinn talaði við Móse
og sagði: Tala þú til Israels-
manna og seg: Þegar kona
verður léttari og elur svein-
barn, þá skal hún vera óhrein
sjö daga; skal hún vera óhrein,
ems og þá daga, sem hún er
saurug af klæðaföllum. Og á
áttunda degi skal umskera hold
yfirhúðar hans. En konan skal
halda sér heima þrjátfu og þrjá
daga, meðan á blóðhreinsun-
inni stenóur; hún skal ekkert
heilagt snerta og eigi inn í
helgidón-mn koma, unz hreins-
unardagar hennar eru úti. En
ef hún elur meybarn þá skal
hún vera óhrein hálfan mánuð,
sem þá er hún saurug af klæða-
föllum, og hún skal halda sér
heima sextíu og sex daga,
meðan á blóðhreinsuninni
stendur."
III. Mós. 12. kap.
Slæmt fordæmi.
(Ahasverus konungur hélt á
þriðja ríkisári sfnu veizlu öllu
fólki, sem var í borginni Susan:
Vasti drottning hans hélt og
konum veizlu í höll, er konung-
ur átti. En á sjöunda degi, þá er
konungur var hreifur af víni
bauð hann að sækja drottningu,
til þess að hann gæti sýnt feg-
urð hennar:)
„En Vasti drottning vildi
ekki koma eftir boði konungs,
er hirðmennirnir fluttu. Þá
reiddist konungur ákaflega, og
heiftin brann honum í
brjósti“...
....Þá sagði Memúkan í
áheyrn konungs og höfðingj-
anna: Vasti drotning hefir
ekki einungis brotið á móti kon-
unginum, heldur einnig á móti
öllum höfðingjunum og öllum
þjóðunum, sem búa í öllum
skattlöndum Ahasverusar kon-
ungs. Því að athæfi drotningar
mun berast út til allra kvenna
og gjöra eiginmenn þeirra
fyrirlitlega í augum þeirra, er
sagt verður: Ahasverus kon-
ungur bauð að leiða Vasti
drotningu fyrir sig, en hún
kom ekki. Og þegar í dag munu
hefðarfrúr Persa og Meda, þær
er frétt hafa athæfi drotn-
ingar, segja þetta öllum höfð-
ingjum konungs, og mun það
valda fullnógri fyrirlitningu og
reiði. Ef konungi þóknast svo,
þá láti hann konungleg boð út
ganga og sé það ritað í lög Persa
og Meda, svo að því verði ekki
breytt, að Vasti skuli ekki
framar koma fyrir auglit
Ahasverusar konungs, og
konunglega tign hennar gefi
konungur annarri, sem er betri
en hún. Þegar nú úrskurður
konungs, er hann kveður upp,
verður kunnur um allt ríki
hans, sem er mjög stórt, þá
munu allar konur sýna
mönnum sínum virðingu, bæði
háum og lágum. Þessi tillaga
geðjaðist bæði konunginum og
höfðingjunum, og konungur fór
að ráðum Memúkans. Og hann
sendi bréf til allra skattlanda
konungs í sérhvert land eftir
skrift þess lands og til sér-
hverrar þjóðar á hennar tungu
að hver maður skyldi húsbóndi
á sfnu heimili og mæla allt það
er honum Ifkaði."
Esterarbók 1. kap.
„Og i þvf bili komu lærisveinar hans og undruðust, að hann var að tala við
konu. Þó sagði enginn: Hvað viltu? eða: Hvað ertu að tala við hana?“
Jóh. 4. kap.
Nýja testamentið
I AUGUM JESUVORU
KONUR LÍKA MENN:
„Og eins og var á dögum
Nóa, svo mun og verða á
dögum mannssonarins.
Menn átu, drukku,
kvæntust og giftust allt
til þess dags, er Nói gekk
inn í örkina.“
Lúk. 17. kap.
VIÐHORF PALS
POSTULA:
„Konur skulu þegja á
safnaðarsamkomunum,
því að ekki er þeim leyft
að tala, heldur skulu þær
vera undirgefnar, eins
og líka lögmálið segir.
En ef þær vilja fræðast
um eitthvað, þá skulu
þær spyrja eiginmenn
sína heima. Því að það er
ósæmilegt fyrir konu að
tala á safnaðarsamkomu.
— Eða er Guðs orð út-
gengið frá yður? Eða er
það komið til yðar
einna?“
I. Kor. 14. kap.
„En hvað sem því líður,
þá skuluð þér hver um
sig elska eiginkonu sína,
að sínu leyti eins og
sjálfan sig, en konan
skal óttast mann sinn.“
Efesubr. 5. kap.
„Konan á að læra í kyrr-
þey, í allri undirgefni;
en ekki leyfi ég konu að
kenna eða taka sér vald
yfir manninum, heldur á
hún að vera kyrrlát, því
að Adam var fyrst
myndaður, síðan Eva; og
Adam lét ekki tælast, en
konan lét að fullu tælast
og gjörðist brotleg; en
hún mun fyrir barn-
getnaðinn hólpin verða,
ef þær standa stöðugar í
trú og kærleika og
helgun, samfara hóg-
læti.“ I. Tím. 2. kap.
Viðhorf
ýmissa
kirkjufeðra
til kvenna
Tertullianus (um 160—230
e.Kr.):
„Kona, þú ert filið Satans.
Fyrir þina sök dó Kristur, þvi
ættir þú ætíð að íklæðast
sorgarklæðum. Þú eyðileggur
mynd Guðs í manninum."
Heilagur Clemens frá
Alexandrfu (um 200 e.Kr.):
„Sérhver kona ætti að vera
full blygðunar einungis vegna
vitundarinnar um að vera
kona.“
Cyprianus, biskup f Karþago
(á 3. öld e.Kr.):
„Konurnar eru englar
Satans. Þær leiða yður gegnum
hlið Himnaríkis að bakdyrum
Vítis. Allar konur bera merki
djöfulsins á lfkama sínum."
Heilagur Jóhannes frá
Antiokkiu (347—407 e.Kr.):
„Konan er hættulegust allra
dýra.“
Tómas Aquinas
(1227—1274):
„Konan er fljótsprottið ill-
gresi, ófullkominn maður.
Líkami hennar nær fyrr fullum
þroska vegna þess að hann er
minna virði og náttúran leggur
minni rækt við hann. Konurnar
eru í heiminn bornar til þess að
vera að eilifu undir oki herra
sins og meistara, þar sem hann
skal hafa valdið vegna þeirra
yfirburða á öllum sviðum sem
náttúran hefur gefið honum."