Morgunblaðið - 30.12.1975, Page 11
MORGUNBLAÐIf), ÞRIÐJUDAGUR 30. DESEMBER 1975
11
kallaður burt frá starfi sínu á
bezta skeiði lífsins. En svo varð
mér innanbrjósts þegar andláts-
fregn Aðalsteins barst.
Okkar fyrstu kynni hófust á
skólaárunum í Menntaskólanum,
en þaðan lauk hann stúdentsprófi
1937 og stundaði tækninám í
Þýzkalandi til 1939.
Skildu þá leiðir í bili, en svo átti
ég þvi láni að fagna að verða
samstarfsmaður hans hátt á
þriðja áratug og síðustu árin var
samstarf okkar mjög náið og
ánægjulegt sökum mannkosta
Aðalsteins. Síðustu mánuðina
gekk hann ekki heill til skógar, en
hann lét lítið á því bera og
stundaði störf sin þrátt fyrir það
af mikilli kostgæfni og áhuga.
Kom þar fram hin mikla lifsgleði,
sem hann hafði til að bera, svo
öllum leið vel í návist hans.
Aðalsteinn helgaði Pósti og
síma alla starfskrafta sína á lífs-
leiðinni. Hann var hreinskiptinn
við starfsfólk og laginn og út-
sjónarsamur við að koma öllu til
betri vegar. Komu þessir eigin-
leikar honum að góðu haldi I
margþættum vandamálum í sam-
bandi við starfsmannahald, en á
þeim vettvangi starfaði hann um
margra ára skeið, eða þar til
honum var falið eitt af æðstu
embættum Pósts og síma, starf
ritsímastjóra og síðar umdæmis-
stjóra Pósts og síma í Reykjavík.
Ekki breytti það dagfari hans,
þótt hann tæki við þessum
ábyrgðarmiklu störfum. Hann var
ævinlega hinn ljúfi og góðviljaði
Aðalsteinn, sem allir báru virð-
ingu fyrir og þótti gott að leita til.
Aðalsteinn tók mikinn og
virkan þátt i félagsmálum innan
stofnunarinnar, átti lengi sæti í
stjórn Félags islenzkra sima-
manna og var um skeið formaður
í félagi forstjóra Pósts og sima, og
annar af ritstjórum póst- og sima-
tíðinda, og átti sæti í starfsmanna-
ráði Landssímans.
Utan stofnunarinnar átti hann
einnig mörg hugðarefni svo sem i
íþróttum og einnig var hann
virkur félagi í Frimúrararegl-
unni.
Þá naut fjölskylda hans í ríkum
mæli hans góðu eiginleika og mér
er sérstaklega minnisstætt atvik
frá liðnu sumri, þegar hann fór
ásamt konu sinni í ferðalg til út-
landa og kom heim hress og
elju og góðvild til alls þess, sem
lifsanda dregur.
Við vorum aðeins 14 ára þegar
fundum okkar bar fyrst saman í
skátahreyfingunni. Einhvern
veginn orsakaðist það svo, að við
drógumst hver að öðrum, með
vaxandi vinfengi, þótt áhugamál
okkar færu ekki að jafnaði
saman. Hann hallaðist að sundi og
golfíþróttinni, en ég að jökla- og
hálendisferðum. Það breytti engu
um það að einlæg tryggð og vin-
átta hélst með okkur og fjölskyld-
um okkar í vaxandi mæli. — Ég
hef ekki aðra skýringu á því en þá
að manngildi Jóns var mjög
mikið. Hann var hlýr og traustur
félagi og hógvær I allri fram-
göngu. Göfuglyndi var aðalsmerki
hans fyrir þá sem kynntust
honum náið, og þeir einir geta
misst sem eitthvað hafa átt.
Ég felli mig ekki við það, hve
dimmt mér er I huga á þessari
helgu nótt, þegar ljósberans hátíð
gengur í garð og fleiri hjörtu slá
af góðvild óg gleði en oftast
endranær. Ef til vill er það fyrst
og fremst vanþroski minn og
eigingirni, sem þvl valda? Ef til
vill á ég að gleðjast fyrir hans
hönd yfir því að hafa fengið farar-
leyfi til mikilvægari sólarlanda
en þeirra, sem við íslendingar
sækjum að jafnaði heim? Ef til
vill er það brostinn hlekkur í trú-
festi minni við guðdóminn, sem
veldur því að ég harma þennan
góða dreng, I stað þess að gleðjast
yfir vistaskiptum hans.
Hvað sem því Iíður, þá verður
það ekki umflúið af hinu mann-
lega að bera söknuð í barmi við
gröf látins vinar.
Ég bið almættið að annast
þennan góða vin minn og allt, sem
honum var kært. Það eru hljóm-
þýðir ómar, sem berast út yfir
gröf og dauða, við að snerta
strengi minninganna um þennan
hugljúfa mann.
Sigurður S. Waage.
ánægður og sáttur við tilveruna
og vongóður um framtíðina. En
örlögin verða ekki umflúin og
veikindin síðustu vikurnar bar
hann af karlmennsku og með
æðruleysi.
Minningarnar éru margar og
góðar, og margir munu sakna
hans, en sárastur er þó söknuður
fjölskyldunnar.
Votta ég eiginkonu hans Asu
Norberg og dætrunum þremur,
tengdasonum og barnabörnum
innilega samúð og bið Guð að
blessa minningu hans.
Jón Skúlason.
Flestir eldri Reykvíkingar
muna gömlu Gróðrarstöðina sem
Einar Helgason garðyrkjustjóri
stofnaði á sínum tíma. Aðalsteinn
Norberg, eða Steini frændi, eins
og við systkinin kölluðum hann,
var fóstursonur afa okkar og
ömmu Einars Helgasonar og
Kristínar Guðmundsdóttur i
Gróðrarstöðinni. Okkar fyrstu
minningar eru tengdar honum að
meira eða minna leyti. Við minn-
umst allra heimsóknanna og þess
fagnaðar sem koma hans vakti
ætíð meðal okkar og þá ekki sízt
hjá ömmu og frænku, Guðrúnu
Helgadóttur, sem bókstaflega átti
í honum hvert bein. Svo liðu árin
og gamla fólkið og heimilisvinirn-
ir, sem höfðu myndað þennan
stóra fjölskylduhring, týndu töl-
unni. Og þegar faðir okkar Eirfk-
ur Einarsson lézt fyrir 6 árum
síðan var Steini bróðir hans eigin-
lega sá eini eftir af þessari gömlu
fjölskyldu. Kom andlát hans því
sem reiðarslag. Hann sem var að-
eins 58 ára og átti svo mikið að
lifa fyrir. Þvi vil ég fyrir hönd
okkar allra úr Gróðrarstöðinni,
þakka honum fyrir allt og allt og
kveðja með ljóðlínum, sem ortar
voru við lát föður hans Einars
Helgasonar:
Framhald á bls. 27
V
*
Feröist á eígín bíl um Evrópu
FÆREYJAFERJAN „SMYRILL"
SUMARÁÆTLUN 1976
ÍSLAND/FÆREYJAR/SKOTLAND/ NOREGUR v.v.
Seyðisfj. Laugard.
Þórshöfn Sunnud.
Scrabster Mónud.
Þórshöfn Þriðjud.
Þórshöfn Miðvikud.
Bergen Fimmtud.
Þórshöfn Föstud.
Seyðisfj. Laugard.
FARGJÖLD: (per person, ö
— Fæði ekki innifalið —
FULLORÐNIR:
Þilfar ...................
Hvíldarstóll .............
6/12 manna klefi .........
3/4 manna klefi...........
2 manna klefi ............
FARARTÆKI:
Bifreiðar ...............
Stærri bifr. að 6 mtr....
Hver meter umfram
6 metr...................
Hjólhýsi að 5 mtr........
Farangursvagnar .........
Mótorhjól ...............
Reiðhjól ................
Komut. Brottf.t. 1
10 11 12 13 14 15
20:00 12/6 19/6 26/6 3/7 10/7 17/7 24/7 31/7 7/8 14/8 21/8 28/8 4/9 11/9
13:00 23:00 13/6 20/6 27/6 4/7 11/7 18/7 25/7 1/8 8/8 15/8 22/8 29/8 5/9 12/9
13:00 16:00 14/6 21/6 28/6 5/7 12/7 19/7 26/7 2/8 9/8 16/8 23/8 30/8 6/9 13/9
06:00 15/6 22/6 29/6 6/7 13/7 20/7 27/7 3/8 10/8 17/8 24/8 31/8 7/9 14/9
13:00 9/6 16/6 23/6 30/6 7/7 14/7 21/7 28/7 4/8 11/8 18/8 25/8 1/9 8/9
12:00 15:00 10/6 17/6 24/6 1/7 8/7 15 /7 22/7 29/7 5/8 12/8 19/8 26/8 2/9 9/9
17:00 24:00 11/6 18/6 25/6 2/7 9/7 16/7 23/7 30/7 6/8 13/8 20/8 27/8 3/9 10/9
17:00 12/6 19/6 26/6 3/7 10/7 17/7 24/7 31/7 7/8 14/8 21/8 28/8 4/9 11/9
nur leið, fsl. kr.)
Seyðisfj. Seyðisfj. Seyðisfj.
Þórshöfn Scrabster Bergen
8.200.— 12.800.— 14.300.—
9.600.— 14-600,— 16.000.—
11.100.— 16.300,— 17.700.—
12.200.— 18.000,— 19.500—
13.800,— 20.400,— 21.800,—
5.400.— 7-600,— 8.700,—
7.700.— 11.400,— 12.500.—
BO'RN:
7—15 óra, 50%.6 óra og yngri 10%
enda taki bau ekki stól/koju
Hópar: A m.k. 15 manns 90%
Allir tímar eru staöartímar.
Verö miöast viö gengisskráningu
20. október 1975.
1.400. —
5.400. —
2.900,—
1.400. —
600,—
2.200.—
7.600,—
4-400.—
2.200,—
1.100.—
2.200-
8.700,
4.400,
2.200,
1.100,
FEROASKFUFSTOFAN
URVAL
Eimskipafélagshúsinu simi 26900