Morgunblaðið - 31.12.1975, Blaðsíða 6
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 31. DESEMBER 1975
Hvað segja stjörnurnar um nýja árið?
AUK þess að vera kvennaár, þá hefur árið 1975 tvfmælalaust verið ár
þorsksins og landhelginnar. Og nú þegar kvennaárið er að baki hlýtui
þorskurinn að hafa algjöran forgang. Þess vegna báðum við Halldói
Pétursson um að teikna andlitsmyndir nokkurra manna, sem komið
hafa við sögu landhelgismálsins og sjávarútvegsins yfirleitt. Hér er
um að ræða nokkra þeirra, sem aðgerðir f landhelgismálum hafa hvflt
á fyrst og fremst, skipherra Landhelgisgæzlunnar, samningamenn og
útgerðarmenn.
Hvort stjörnuspáin kemur þeim að notum f landhelgismálinu skal
ósagt látið, en ekki ætti hún að spilla fyrir, þvf boðskapurinn miðast
fyrst og fremst við að láta ekki deigan sfga.
Hrútsmerki:
Gunnar H. Olafsson
Allt bendir til þess að árið 1976 verði markvert fyrir margra hluta
sakir. Sviptingar verða talsverðar I Iffi þfnu, en þegar á heildina er
litið verða þcr flestar til góðs, ef ekki strax, þá þegar frá Ifður. Þú
ert svo lukkulega gerður, að þér veitist auðvelt að gleyma erfiðleik-
unum þegar þeir eru að baki, og þessi eiginleiki kemur þér að góðu
haldi á hinu nýja ári. Fyrri hluta ársins ettir þú að varast að taka
ákvarðanir f fljðtreði; þá eru Ifkur á að þér fatist flugið. Janúar og
febrúar eru að flestu leyti hagstæðir mánuðir. Rómantfkin segir til
sfn og þú ættir ekki að láta tækifærin ónotuð. Marzmánuður verður
fremur erfiður, og þá er mikilsvert að hafa vaðið fyrir neðan sig. Þér
hættir til að taka hlutina nokkuð geyst og ef þú ferð ekki vel með
þig, er hætta á þvf að heilsufarið verði ekki sem bezt er Ifða tekur á
vorið. Þú þarft að eíla áhrif þfn á vinnustað, en þar reynir verulega
á kænsku þfna og varfærni, ef árangurinn á ekki að vera þveröfugur
við það sem ætlast er til. Sfðari hluta ársins kynnist þú persónu sem
á eftir að hafa mikil áhrif á einkalff þitt, hvort sem þér Ifkar betur
eða verr. Varastu að blanda tilfinningamálum f starf þitt.
Nautsmerki:
Bjarni Helgason
Arið byrjar ekki rétt vel hjá nautinu. Hendur þfnar eru bundnar
að verulegu leyti og annrfki mikið, án þess að árangurinn verði f
samræmi við það. Þú ættir að hafa gætur á eigum þfnum, þvf að
horfur eru að einhvers konar tapi. Astandið batnar strax f febrúar,
þá eru áhrif stjarnanna hagstæðari en áður. Gættu þess að láta ekki
einkalffið Ifða fyrir framagirni þfna. Þú ættir ennfremur að hafa
gætur á tungu þinni — hreinskilni er góðra gjalda verð, en hún má
ekki ganga út í öfgar. Þú þarft að gæta að heilsufarinu og gæta
sérstaklega hófs f mat og drykk. I aprfl eða byrjun maf stendurðu
andspænis þvf að taka örlagarfka ákvörðun. Þar skaltu skoða hug
þinn vel og haga þér eftir eigin sannfæringu, og blanda ekki öðrum f
málið. Maf er bezti mánuður ársins. Þá virðist verða fullkomið
jafnvægi f Iffi þfnu, — bæði tilfinníngalega og hvað starfsvettvang
áhrærir. f júlf og ágúst hefurðu f mörg horn að Ifta og Ifkur eru á
miklu skemmtanalffi. Þegar Ifður á haustið fara ástamálin að hafa
veruleg áhrif á Iff þitt, en ekki er vfst að allt verði það til heilla. I
árslok er hætta á breytingum á heimilishögum, sennilega f sam-
bandi við ástamál.
Tvíburar:
Helgi Hallvarðsson
Þú getur litið til nýja ársins með bjartsýni. Starfsþrek og Iffsgleði
setur svip sinn á fyrstu mánuði ársins, en varaðu þig á ráðlegging-
um annarra. Þær eru trúlega gefnar f góðri trú, en þú ættir fyrst og
fremst að treysta eigin dómgreind. Þér hættir til að hafa of mörg
járn f eldinum f einu, en það ættirðu umfram allt að varast, a.m.k.
fram f maf, þvf að annars er hætta á þvf að þú missir stjórn á
hlutunum og sitjir uppi með tvær hendur tómar. Júnf er hagstæð-
asti mánuður ársins. Þá gengur þér betur en nokkru sinni að
notfæra þér persónutofrana, og þá fer Ifka að rætast heldur betur úr
fjármálunum. Um Jónsmessuleytið er útlit fyrir sérstakt lán f
ástamálum. en viðbúið er að sú dýrð standi ekki lengi. Júlf og ágúst
eru sérlega hagstæðir f fjárhagslegu tilliti enda er eins gott að
jafnvægi komist á f þeim efnum fyrir haustið. Þá eykst annrfki þitt
verulega og þú hefur lítinn tfma til að sinna veraldlegum áhyggju-
efnum. Þér hættir til að ætla þér of mikið og f október færðu að
komast að þvf fullkeyptu, nema þú hægir á ferðinni. Þú ættir að
varast eyðslusemi f árslok, því að annars kemurðu þér í sömu
klfpuna og þú ert nýbúinn að losa þig úr.
Krabbamerki:
Guðmundur Kjærnested skipherra
Fftir ánægjulegt og viðburóarfkt tfmabil að undanförnu kemstu
að þvf f ársbyrjun, að til er nokkuð, sem heítir skuldadagar
fallvaltleiki gæfunnar. Þú skalt samt ekki láta hugfallast þvf að f lok
mánaðarins er strax farið að rætast úr, ef þú gerir viðhlftandi
ráðstafanir. Láttu smámuni ekki fara um of f taugarnar á þér fyrstu
tvo mánuði ársins, en f marz virðast mestu erfiðleikarnir að bakí.
Fjölskylda þfn krefst þolinmæði og fyrirhafnar fram á vorið,
sérstaklega þeir sem eldri eru. Gullin tækifæri gefast f aprfl og maf
og þú þarft aðeins að hafa rænu á að grfpa þau. Þú lætur umhverfið
hafa of mikil áhrif á Iff þitt, — sérstaklega er þetta áberandi f maf.
Sumarið verður ánægjulegur tfmi. Þá gefst góður tfmi til hvfldar og
skemmtana, en f ágúst eykst annrfkið aftur, sérstaklega hvað
fjármálunum viðkemur. Þú kemst að raun um aukna fjárþörf. t
október ferðu að hafa betri tfma til að sinna heimili þfnu og
fjölskyldu og sfðustu mánuðir ársins verða ánægjulegasti tfmi
ársins. Þá fer erfiðið að bera árangur — einnig eru horfur á óvæntu
happi.
Ljónsmerki:
Matthlas Bjarnason
Janúar og febrúar verða rólegur tími, en afar ánægjulegur. Þér
gefst góður tfmi til að sinna hugðarefnum þfnum, og jafnt á heimili
sem vinnustað eru horfur eins og bezt verður á kosið. t marz þarftu
hins vegar að leggja talsvert hart að þér við vinnu, en það er erfiði,
sem margborgar sig, þvf að árangurinn lætur ekki á sér standa.
Aprfl og maf verða viðburðarfkif mánuðir. Ahrifin eru hagstæð að
flestu leyti, en þú þarft að gæta stillingar f samskiptum við félaga
þfna og fjölskyldu, þvf að ýmsum þykir nóg um stjórnsemi þfna og
ósveigjanleika. Fram f júlf verður óvissuástand á flestum sviðum og
þú ættir að hafa sem hægast um þig á meðan. Þegar Ifður að hausti
fer að komast regla á hlutina og þér ætti að gefast tóm til að
skipuleggja tfma þinn betur en áður. I október leikur flest f lyndi,
en þó er trúlegt, að þú hafir f of mörgu að snúast. Þú ættir að taka til
alvarlegrar fhugunar hvort ekki sé ráð að minnka aðeins umsvifin,
þannig að árangur af erfiðinu verði betri en ella. Astamálin verða
einkar ánægjuleg sfðasta ársfjórðunginn, en þú ættir ekki að taka
það of alvarlega. Fjárhagurinn verður með bezta móti, en gættu þess
samt að eyða ekki of miklu.
Meyjarmerki:
Einar Ágústsson
Þér hættir til að láta Iftilsigld óánægjuefni spilla gleði þinni, og
þrátt fyrir velgengni á flestum sviðum gæti ergelsi yfir smáatriðum
verið þér fjötur um fót fyrstu tvo mánuði nýja ársins. Þótt gott sé að
hafa vaðið fyrir neðan sig f peningamálum, þá er engin ástæða til að
láta hugfallast þótt stundum blási f mót. f marz og aprfl hlaðast
Verkefnin upp, en þér tekst þó að anna þvf sem ætlazt er til af þér. I
maf má segja að allt sé á ferð og flugi hjá þér, enda láta launin ekki
á sér standa. Þú færð svalað framagirni þinni að verulegu leyti, en
gættu þess samt að ofmetnast ekki. Þú ættii Ifka að hafa f huga, að
það er ekki alltaf hægt að gera sömu kröfur til annarra og sjálfs sfn.
Fram eftir sumri verðurðu önnum kafinn, en f ágúst gefst tækifæri
til að njóta ávaxtanna. Yfirleitt virðist ástandið batna á flestum
sviðum eftir þvf sem Ifður á árið, en bezti tfminn er tvfmælaiaust f
ágúst og septemher. Þú þarft ekki að bera kvfðboga fyrir auraleysi á
þessu ári, þvf að fjárhagurinn styrkist stöðugt vegna stöðugrar og
ötullar viðleitni.
Vogarmerki:
Guðmundur H. Garðarsson
I janúar verður hugur þinn venju fremur bundinn við heimili og
fjölskyldu. Þú ættir að fara varlega f ástamálunum fyrri hluta
ársins, þvf að ekki er allt gull sem glóir. t marz gefst þér Iftill tfmi f
eigin þágu. Þá þarftu á öllu þfnu starfsþreki og útsjónarsemi að
halda, og f viðkvæmum og mikilvægum málum liggja hættur alls
staðar f leyni. Þrátt fyrir það er allt útlit fyrir farsælar lyktir mála,
ef þú gætir vel að þér og lætur aðra ekki hræra f þér. Það er svo ekki
fyrr en f júnf, að þú getur farið að slaka á, en sumarið verður sérlega
ánægjulegt. Þú ættir að hugsa betur um heilsu þfna, þvf að það er of
seint að byrgja brunninn þegar barnið er dottið ofan f. Trúlegt er,
að f haust lendir þú f töluverðum fjárhagserfiðleikum og verðir að
mæta óvæntum útgjöldum. Þér eykst sjálfsöryggi eftir þvf sem Ifður
á árið og trúlega lendir þú f a.m.k. einu ástarævintýri. Þegar Ifður að
lokum ársins eykst annrfki þitt mjög og Ifkur benda til að þú verðir
talsvert á ferðinni. Þér tekst að treysta sambönd þfn og kynnast
áhrifamiklu fólki. Gættu þess samt vandlega að vanrækja ekki
gamla vini, sem þrátt fyrir allt eru þér meira virði en nýir.
Sporðdreki:
Guðmundur Jörundsson
Þú ert fullur tortryggni við upphaf nýja ársins — býst sennilega
við öðru elns og þvf sem að baki er. Þú ættir að temja þér meiri
nægjusemi og bjartsýni f stað þess að einblfna f sffellu á það, sem
miður fer. Gerðu ekki of miklar kröfur til fjölskyldu þinnar — það
er ekki vfst að þú getir alltaf haft tögl og hagldir. Gefðu þér betri
tfma til að rækja vináttutengsl, en taktu engar meiriháttar ákvarð-
anir þar til Ifða tekur á vorið. Marz verður viðburðarfkur og
skemmtilegur mánuður. Farðu varlega f samskíptum við hitt kynið
— frjálsræði er ekki gott nema í hófi. Þú verður önnum kafinn f
aprfl og eru horfur á þvf að þú verðir eitthvað á faraldsfæti. Maf
gæti annað hvort orðið bezti mánuður ársins eða sá versti —
Ifkurnar vega salt — og það er undir þér sjálfum komið hvert
útfallið verður. Gættu þess umfram allt að hafa stjórn á skapi þfnu,
sérstaklega þegar yfirmenn þfnir eiga f hlut. Júnf, júlf og ágúst
verða annasamir mánuðir og þá þarftu venju fremur að reiða þig á
aðstoð annarra. Þú þarft sannarlega að halda á spöðunum, en þrátt
fyrir erfiðleika berðu úr býtum það, sem þú setur þér. Sfðustu þrjá
mánuði ársins virðist lánið ætla að leika við þig, og þegar árið er að
enda gefur að Ifta prýðisárangur.
Bogamaður:
Geir Hallgrímsson
Arið byrjar ijómandi vel, ta'kifærin berast þér ð fcribandi, en þú
ættir ekki að flana að neinu. Leggðu meiri rækt við listræna
hæfileika þfna og reyndu að auðga anda þinn. Þú þarft að hyggja
betur að f jármálunum en áður, þótt ekki verði séð, að nein hætta sé
á ferðum. Aprfl verður áreiðanlega skemmtilegasti mánuður ársins,
en gættu þess samt að láta skyldurnar ekki sitja á hakanum. Það
kemur þér f koll sfðar. Maf verður annasamur og þreytandi mánuð-
ur, og þú ættir að reyna að leysa vandamálin jafnóðum, eða áður en
þau vaxa þér yfir höfuð. Taugarnar verða ekki f sem beztu lagi f
júnf, en kapp er jafnan bezt með forsjá. Júlf og ágúst verða sérlega
hagstæðir f peningamálum og þú ættir að nota tækifærið til að
fjárfesta meðan tækifæri gefst. Starf þitt krefst mikils tfma f
september og október. Þú færð óvænt tækifæri til að láta að þér
kveða og þú skalt ekki vera feiminn við að gera það. Nokkurt útlit er
fyrir breytingar á starfshögum þfnum, en taktu samt engar ákvarð-
anir nema að vel athuguðu máli. Tvo sfðustu mánuði ársins hefurðu
heppnina með þér, — þú munt hrærast f rómantfsku andrúmslofti
— sérstaklega sfðustu vikur ársins.
Steingeit:
Gunnar Thoroddsen
Þér tekst að koma flestum áhugamálum þfnum fram f ársbyrjun.
Þú nýtur aðstoðar annarra, en gleymdu ekki að endurgjalda greiða-
semina. Fjármálin eru þó allerfið viðfangs og verða það fram eftir
ári. Láttu ekkert tækifæri ónotað til að koma þeirn á réttan kjöl. Þú
þarft á öllu þfnu starfsþreki að halda fram eftir vori, en þá hægist
heldur um. Vertu ekki ragur við að fela samstarfsmönnum þfnum
mikilvæg verkefni og gefðu þér tfma til að hlusta á tillögur þeirra
og ræða þær. Notaðu sumarið til að sinna fjölskyldu þinnl og vinum,
þvf að annrfkið eykst enn á ný þegar hausta tekur. Verkefnin
hrannast upp og þér finnst freistandi að bægja þeim frá þér f eitt
skipti fyrir öll og leita á önnur mið. Með smábreytingum og
hagræðingu hér og þar geturðu þó sigrazt á erfiðleikunum og
stendur þá mun betur að vfgi en áður. Félags- og skemmtanalffið
tekur talsvert af tfma þfnum f nóvember og desember, enda eru vel
að þvf kominn að njóta Iffsins. Astamálin þróast nokkuð á annan veg
en þú átt von á, en á þvf sviði er góðs að vænta, sérstaklega f
desember. Gefðu þér tfma til að sinna áhugamálum þfnum og rækta
listræna hæfileika þfna.
Vatnsberi Sigurjön Hannesson
Þú hefur þörf fyrir ró og einveru eftir eril sfðustu vikna. Þennan
tfma ættirðu að nota til að athuga þinn gang og gera áætlanir fyrir
framtfðina. t febrúar ættirðu svo að fara að huga að framkvæmdum.
Trúlega verðurðu fyrir óvæntu happi, sem verður til þess að þér
tekst að koma fjármálunum f lag að mestu leyti. Það verður þó ekki
til frambúðar, og þú þarft að gera nýjar ráðstafanir í marz eða aprfl.
Fram í júnf gætir verulegs óróleika f umhverfi þfnu. Þetta er
nokkuð, sem þú ræður ekki við, en með þvf að taka hlutunum af
æðruleysi ætti það ekki að bitna svo mjög á þér. Sfðan taka hjólin að
snúast og sumarmánuðirnir bera f skauti sér ýmiskonar ánægjulega
atburði. Skemmtanalffið gæti orðið nokkuð æðisgengið, en gættu
þess að halda þvf innan skynsamlegra marka. I ágúst eru Ifkur á
mikilvægri breytingu á högum þfnum. Þrátt fyrir hið ómetanlega
sjálfstæði kemstu að þvf að maður er manns gaman — hvort sem um
er að ræða heima fyrir eða f starfi. Farðu varlega f samskiptum
þfnum við yfirboðara þfna f ágúst og október. Reyndu að haga
málum þannig, að þú fáir betri tfma til að sinna sérlegum áhugamál-
um þfnum, sem setið hafa á hakanum að undanförnu. I árslok vinnur
þú Ifklega fullnaðarsigur f stórmáli, sem lengi hefur verið á döfinni.
Fiskamerki Sigurður Þ. Árnason
Þú ættir að leggja áherzlu á að bæta samskipti þfn við náungann
og notfæra þér góðvild vina þinna. Marz er einkar bagstæður
mánuður f flestu tilliti og það er um að gera að færa sér tækifærin f
nyt. Astamálin taka óvænta og ánægjulega stefnu f marz. Aprfl
verður mjög annasamur, jafnt heima fyrir sem á vinnustað. Þú
verður þess áskynja, að einhver stendur f vegi fyrir þér, en með
lagni ætti þér að takast að ryðja þeirri hindrun úr vegi, svo Iftið ber
á. Þegar á allt er litið hefur þú báðar hendur fullar árið, en alveg
sérstaklega f vor og fyrri hluta sumars. I júlf gefst þér gott tækifæri
til hvfldar og skemmtunar. Þú ættir að helga þennan tfma fjöl-
skyldulffinu. I júlfmánuði eru talsverðar Ifkur á ástarævintýri, en
trúlega ristir það ekki djúpt. Þfnir nánustu munu taka mestan tfma
þinn f september, en þú skalt gæta þess að láta þá ekki misnota
góðsemi þfna. Horfur eru á ferðalögum sfðustu þrjá mánuði ársins
og trúlega færðu markverð tfðindi, sem skipta þig verulegu máli. I
nóvember og desember verður mikið um að vera, þú kynníst nýju
fólki og verður mikið innan um fólk. Jólamánuðurinn verður
sérlega ánægjulegur, en þó ættirðu aðgæta hófs f skemmtunum.
\
*