Morgunblaðið - 31.12.1975, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 31. DESEMBER 1975
53
VELVAKAIMDI
Velvakandi svarar I síma 10-100
kl. 14—15, frá mánudegi til föstu-
dags.
0 „Blessað“
kvennaárið
Engum getum þarf að þvf að(
leiða, að það er karlmaður, sem
skrifar eftirfarandi bréf:
„Kæri Velvakandi.
Þú manst sennilega ekki eftir
því, en ég skrifaði þér bréf sfðast-
liðið sumar þar sem ég sagði farir
mfnar ekki sléttar f sambandi við
blessað kvennaárið — já, „bless-
að“ getum við sagt núna, þegar
það er senn á enda runnið.
Eins og þú vafalaust veizt var á
þessu kvennaári sérstök kvenna-
vika og f þeirri viku sérstakur
kvennadagur. Þann dag lokaði ég
mig inni. A fundardaginn mikla
lá ég í tjaldi inni á Kili — þótti
öruggara að vera vel utan borgar-
markanna.
En nú fer sól hækkandi, og það
í fleira en einum skilningi —
kvennaárinu er að ljúka. Ég er
þegar kominn f hálfgerða sælu
vfmu, og ekki minnkaði gleði mín,
þegar ég gerði mér ljóst, hvaða ár
það er, sem við tekur. Eða hafið
þið hugleitt það, góðir hálsar —
það er árið 197SEX.
Já, hvflíkir dýrðardagar hljóta
að vera framundan. — Kvenna-
árið skal svo sannarlega vera
grafið og gleymt.
Karl.“
Við skulum vona, að blessaður
maðurinn verði ekki fyrir von-
brigðum með nýja árið.
0 Flugeldar
og brennuæði
Sveinn Jónsson skrifar:
„Velvakandi góður.
Nú er runnin upp hinn árlegi
brennu- og flugeldafarganstími.
Frá þvf að ég var barn hefur mér
þótt gaman að horfa á ljósadýrð-
ina um áramótin, en eftir því sem
mér hefur aukizt vit og þroski
hefur mér farið að blöskra með-
ferðin á þessum hættulegu hlut-
um. Mér finnst ekki nærri nógu
mikið eftirlit haft með þvf hverjir
fá þessi sprengiefni f hendur,
enda slasast fjöldi manns af þessu
á hverju ári. Þarf reyndar enginn
að búazt við öðru þegar sprengi-
efni eru sett f hendur á börnum
og óvitum. Eftirlit með áramóta-
brennum hefur þó stóraukizt á
siðari árum og má nú heita í góðu
lagi, öfugt við það sem áður var,
þegar hlaðinn var bálköstur á
öðru hverju götuhorni.
Fyrir jólin fór ég niður í bæ til
að verzla. Þetta var á Þorláks-
messu og alls staðar var ös út úr
dyrum. I verzlunarhúsi f miðbæn-
um var á ferðinni hópur unglings-
XJrengja, sem gerðu þvflfkan usla,
að mesta furða var að ekki hlauzt
slys af. Þeir skemmtu sér við að
Bvsouth og svfnahírðirinn
höfðu verið einir heima á bænum
vegna þess að unga frökenin,
Sweeting að nafni, hafði fengið
frí og farið til Sewingburv að
hlýða á fyrirlestur f búnaðar-
skólanum. Klukkan hálf eitt
höfðu þeir snætt hádegisverð f
eldhúsinu og m,úínn hafði mallað
frú Creavey sem kom þangað frá
Flagford á hverjum degi til að
elda mat og gera hreint. Kortér
yfir eitt höfðu þeir iokið snæðingi
og þá hafði svfnahirðirinn beðið
Bvsouth að koma með sér að Ifta á
gyltu.
Klukkan þrjú kom Dravcott og
Edwards heim og hústjórínn fór
að fást við bókhald og fleira.
Edwards sem hafði meðal annars
það verk að sjá um garðinn, fór að
slá blettinn kringum húsið.
Drayeott sagðfst að vfsu ekki hafa
haft augun á manninum allan
tfmann, en hann hefði hevrt f
sláttuvélinni næsta klukku-
tfmann að minnsta kosti.
Klukkan hálf fjögur kom svfna-
hrirðirinn Travnor aftur og
truflaði Draycott og bað hann
ásjár vegna ástands gvltunnar.
Sfðan kom I Ijós að hún var búin
að gjóta fimm grísum, en svo
fleygja reyksprengjum og púður-
kerlingum inn f verzlanirnar, —
helzt þar sem flest var fólkið.
Afgreiðslufólkið reiddist að
vonum þessum ófriðarseggjum,
yióskiptavinirnir urðu hvekktir,
en blessuð smábörnin grétu af
ótta.
Þetta var ljótur leikur, en við
hverju er að búast þegar verzlanir
eru fullar af þessum ófögnuði og
iðjulaus skólaæskan þarf að hafa
ofan af fyrir sér? Að sjálfsögðu
var enginn lögregluþjónn f
nágrenninu til að taka i lurginn á
þessum pörupiltum.
Ég er þeirrar skoðunar, að ekki
eigi að selja annað en flugelda,
blys og stjörnuljós, og þá aðeins
til þeirra, sem náð hafa tvítugs-
aldri og verða að teljast ábyrgir
aðilar.
Svefnn Jónsson."
Sem betur fer hefur ekki nema
mjög Iítill hluti skólaæskunnar
þennan sérkennilega skemmtana-
smekk, en að sjálfsögðu þyrfti að
stemma stigu við óvarlegri
meðferð þessara sprengiefna.
0 Áramóta-
loforðin
A tfmamótum veltum við þvf
fyrir okkur hvað framtfðin beri f
skauti sér um leið og við lítum til
baka. Þá er ekki ósennilegt að
menn spyrji sjálfa sig hvernig
tekizt hafi að halda gefin fyrir-
heit á liðna árinu, og hvort taki
þvf að fara út á sömu braut um
þessi áramót og hin sfðustu.
Við fréttum af manni einum,
sem hét þvf um sfðustu áramót, að
hann myndi hætta að spila f happ-
drættinu sfnu, ef hann ynni ekki
stóran vinning á árinu. Þessu
lýsti hann yfir f votta viðurvist og
var nú eftir að vita hvernig færi.
Þegar komið var fram í desember
og aðeins var eftir að draga einu
sinni á árinu hafði hann ekki
fengið svo mikið sem einn
smávinning .og var nú orðinn úr-
kula vonar. En svo kom að þvf að
forsjónin tók f taumana og hann
fékk sinn væna vinning — álit-
lega fjárupphæð, þótt ekki væri
um að ræða tugi milljóna. Nú er
náunginn heldur en ekki
stafffrugur og er eins og útspýtt
hundskinn i öllum miðasölum til
að ná sér f einhverja vissa seriu.
Þarf ekki að taka fram, að mikið
hefði verið frá honum tekið, hefði
hann ekki haldið áfram happ-
drættisstússinu. Svona getur
stundum borgað sig að steyta
hnefa framan i forsjónina.
0 Öll ár kvennaár
Kvenskörungur nokkur, sem er
rauðsokka með meiru, hafði sam-
band við Velvakanda. Hún sagðist
hafa orðið þess vör, að fólk væri
að gera sér grillur út af þvf, að nú
væri kvennaárið á enda og yrði
málstaðurinn ekki ræddur miklu
meira. Hún sagði: „Þetta er mesti
misskilningur, því að við, sem
höfum gert þetta að okkar
hjartans máli, erum ekkert farnar
að þreytast, og ég veit um margar,
sem hafa fullan hug á þvf, að
héðan i frá verði öll ár kvennaár.
Mætti jafnvel fara að miða tfma-
tal við þetta að einhverju leyti og
taka fram, hvort atburðir hafi átt
sér stað fyrir eða eftir fyrsta
kvennaárið."
Þá er það á hreinu.
Velvakandi óskar lesendum sín-
um farsældar á komandi ári og
þakkar samskiptin á þvi, sem nú
er á enda.
HÖGNI HREKKVÍSI
©1975
McNiughl
Syndicutc, Inc.
C3QM
Var flamingóinn að garga?
Söngkonan
Joni Adams
ásamt hljómsveit Hermans
Wedgewijs skemmta. Hljóm-
sveit Birgis Gunnlaugssonar
leikur fyrir dansi til kl. 2.
Borðapantanir
í símum
52502 og 51810
9 hOTIiiP -k *
35 sólarlandaferðir
Vinningar í happdrætti Blaksambands íslands
eru 35 sólarlandaferðir. Þú getur unnið 5 ferðir
á aðeins einn miða, vegna þess að dregið
verður 4 sinnum, 5. janúar, 15. janúar, 15.
febrúar og 15. marz n.k. Miðana þarf ekki að
endurnýja.
Félag
matreiðslumanna
sendir öllum landsmönnum
óskir um gleðilegt nýar.
Flugeldamarkaður
í Skipasundi 51
Opið alla daga 9—22 og á gamlársdag 9-
15.
Fjölskyldupokar, flugeldar, blys, stormeldspýt-
ur ofl. Sími 37090. Vélhjólaverzlun Hannesar
Ólafssonar.
Vefnaðarvöruverslunin
Grundarstíg 2
Óskum öllum viðskiptavinum okkar gleðilegs
nýs árs. Þökkum viðskiptin á árinu.
SIGGA V/C5GA £ AiLVE^AU