Morgunblaðið - 31.12.1975, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 31.12.1975, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 31. DESEMBER 1975 43 SJÓNVARP & UTVARP Gluggað í dagskrá hljóðvarps í dag MEÐAL efnis í dagskrá hljóðvarps í dag, gamla- ársdag, er vert að benda á eftirtalda dagskrárliði auk þeirra sem getið er sérstaklega. Klukkan 13 taka frétta- mennirnir Gunnar Ey- þðrsson og Vilhelm G. Kristinsson saman þátt þar sem raktir eru helztu viðburðir á innlendum og erlendum vettvangi á árinu 1975 og bregða upp svipmyndum og röddum úr fréttaaukum. Þessi þáttur tekur hálfan annan tíma. Kristján Eldjárn Hallgrfmur Helgason Geir Hallgrfmsson Klukkan átján er aftan- söngur f Kópavogskirkju, þar sem sr. Árni Pálsson prédikar og þjððlaga- kvöld Jóns Ásgeirssonar og nokkurra félaga i sinfóniuhljómsveitinni hefst kl. 19.20. Klukkan 20 flytur for- sætisráðherra ávarp sitt að venju, sem verður sjónvarpað og útvarpað samtímis. Hljóðvarp á nýársdag „ Ur öldudal” — áramótarevía hljóðvarpsins hefst kl. 20.50 KLEMENZ Jónsson, leik- listarstjóri og leikstjóri áramótagríns hljóðvarps, varðist allra frétta, þegar hann var inntur eftir dagskrárliðnum „Úr öldudal — skammgóður vermir handa útvarps- hlustendum" sem hefst I kvöld kl. 20.50. Hann sagði þó að þátturinn væri í revíuformi, og býsna beinskeytt ádeila á þjóðfélagið. Fréttamaður er sendur út af örkinni I heimsókn í þorpið öldu- dal, þ£>- sem búa átta hálfbræður og er sam- komulagið ekki alltaf upp á það bezta. Út frá þessu er svo grínið spunnið. Fjöldi leikara kemur fram og Carl Billich hefur séð um tónlistar- hlið málsins. Höfundur revíunnar vill ekki láta nafns sins getið að svo komnu, að sögn Klemenz- ar. KLUKKAN þrettán á nýjársdag flytur forseti tslands, dr. Kristján Eld- járn, ávarp í hljóðvarpi og sjónvarpi. Þá er vert að geta þess fyrir þá sem ekki höfðu tök á að hlýða á gamanþátt hljóðvarps á gamlárskvöld, að hann verður endurtekinn kl. 15 á nýjársdag. Klukkan 17 verður barnatfmi undir stjórn Sigríðar Ey- þórsdóttur og kl. 20.25 verður flutt kantata Hall- gríms Helgasonar, „Sandy Bar“, fyrir tenór, kór og hljómsveit. Flytj- endur eru Fílharmoníu- kórinn í Winnipeg og sinfóníuhljómsveit Winnipegborgar. Dr. Hallgrímur flytur inn- gangsorð og óskar Hall- dórsson les samnefnt kvæði, Sandy Bar, eftir Guttorm J. Guttormsson. Kantatan er samin i til- efni 100 ára landnáms ts- lendinga í Manitoba og var frumflutt þar 12. október s.l. Kl. 21.30 er á dagskrá þátturinn Klukkur landsins, þulur Magnús Bjarnfreðsson. Þáttur þessi virðist vera orðin hefð á dagskrá hljóðvarps á nýjársdag og hefur verið fluttur i þeirri sömu gerð allmörg undanfarin ár. „ Við áramóf’ — hugleiðing útmrpsstjóra kl 23.40 KLUKKAN 23.40 flytur Andrés Björnsson, út- varpsstjóri, hugleið- inguna „Við áramót“. Andrés hefur flutt hana á gamlaárskvöldi síðan árið 1967, en Vilhjálmur Þ. Gíslason fyrrverandi útvarpsstjóri hafði áður haft með höndum að flytja „annál ársins“ allt frá árinu 1935 til 1966 eða í meira en þrjátíu ár. Andrés Björnsson sagði að hann hefði nokkuð vikið frá formi því sem hefði verið á þessum flutningi en ekki hefðu aðrir en þeir Vilhjálmur talað af þessu tilefni við áramót. Þessi þáttur er meðal elztu dagskrárliða í útvarpinu, að sögn Andrésar, og í hugum hlustenda er ára- mótahugleiðing Andrés- ar Björnssonar í beinu framhaldi af annáli árs- Arið 1975 umrœðuþáttur á ngársdag kl 1925 Andrés Björnsson ins sem Vilhjálmur flutti árum saman og löngu áður en hann varð út- varpsstjóri. „ÁRIÐ 1975“ heitir þáttur i um- sjá Páls Heiðars Jónssonar sem verður í hljóðvarpi kl. 19.25 á nýjársdag. Þátttakendur verða Jón Sigurðsson, hagrannsókna- stjóri, Halldór Pálsson, búnaðarmálastjóri, Már Elis- son, fiskimálastjóri, og Davíð Scheving Thorsteinsson, for- maður Fél. ísl. iðnrekenda. Munu þeir fjalla almennt um þær atvinnugreinar sem þeir eru i forsvari fyrir og Jón Sigurðsson hagrannsóknastjóri gefur væntanlega yfirlit um hag og stöðu búsins við áramót. Skotið verður inn í þáttinn öðru Páll Heiðar Jónsson efni: leitað hefur verið til fréttastjóra allra dagblaðanna og munu þeir svara einni tvi- þættri spurningu um hver hafi verið frétt ársins á innlendum og erlendum vettvangi og rök- styðja skoðanir sínar i stuttu máli. MÚLAKAFFI ER ALLTAF í LEIÐINNI — MÚLAKAFFI ER ALLTAF1 LEIÐINNI O LU DC LU < * < MULfllCAFFI, V/HALLARMÚLA sendir sínum mörgu viðskiptavinum beztu nýársóskir og þakkar þakkar gamla árið! Fagnið nýju ári með hátíðarmat hjá okkur. OPIÐ FRÁ KL. 9 ÁRDEGIS TIL KL. 9 SÍÐDEGIS. > * > T| m JJ > m m O MÚLAKAFFI ER ALLTAF I LEIÐINNI MULAKAFFI ER ALLTAF I LEIÐINNI

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.