Morgunblaðið - 10.01.1976, Side 3

Morgunblaðið - 10.01.1976, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. JANUAR 1976 3 Ljóst að um ásetnings- aðgerðir er að ræða Rees um áreksturinn Hann sagði: gær. „Það virðist nú staðfest, a.m.k. í þessu tilfelli, að þær kærur, sem íslenzka ríkisstjórn- in hefur borið á brezka flotann, eru á rökum reistar. Mér er nú ljóst, að stundum að minnsta kosti, er um ásetningsaðgerðir að ræða. Þegar freigáturnar verja togarana á þennan hátt vil ég þó ekki fullyrða að stjórn- endur þeirra séu ákveðnir í að skaða varðskipin og gera þau ósjóhæf. Ég veit það ekki. En af þvl sem ég varð vitni að í dag, virðist mér, að ástandið á miðuúum hér við ísland sé svo alvarlegt og hættulegt, að það geti stefnt mannslífum í voða. — segir Norman Rees, fréttamað- ur ITN, eftir ásiglinguna á Þór Frá Magnúsi Finnssyni, blm. Mbl. um borð i Þór. Brezkir fréttamenn frá sjón- varpsstöðinni ITN, Inde- pendent Television News, hafa verið með varðskipinu Þór frá þvf á sunnudag. Þegar áreksturinn við Andromedu varð á miðvikudag misstu þeir af árekstrinum, þar sem þeir voru svo illa staðsettir á skip- inu, þegar ásiglingin varð, að Norman Rees, sem er fyrirliði þeirra þriggja, og sá er skrifar frá atburðunum, sá hann ekki einu sinni. En Bretarnir voru heppnari i þetta sinn. Þeir hafa nú myndað ásiglinguna og að- dragandann og verða myndirn- ar sýndar í Bretlandi I dag. Blaðamaður Mbl. um borð í Þór átti stutt spjall við Norman Mér virðist því sem brezki flot- inn verði að endurskoða nauð- synlegar verndaraðgerðir sínar og ég vil bæta því við, að brezk- ir togarasjómenn þurfa að eiga skilið að fá vernd — hina beztu, sem unnt er að veita þeim svo að þeir geti unnið starf sitt óhindraðir og óáreittir fyrir varðskipum íslendinga." ,,Það sem er erfiðast í þessu máli er að finna leið til að ná þessu takmarki svo að öryggi allra viðkomandi sé tryggt. Það, sem óhjákvæmilegt er nú, er að þeir, sem viðriðnir eru þessi átök, komist i andlegt jafnvægi, en það gæti vonandi orðið til þess, að unnt yrði að leysa þessa deilu — það yrði báðum aðilum fyrir beztu,“ sagði Norman Rees. Aðmírállinn á flugi yfír Þór Frá Mike Smartt í Hull. TROUP aðmfráll, yfirmaður flotaaðgerða Breta á tslands- miðum, kveðst ekki hafa séð árekstur varðskipsins Þórs og freigátunnar Leander þótt hann hafi verið á flugi nálægt þeim um svipað leyti og áreksturinn varð. Aðmírálnum var sagt frá árekstrinum í talstöð og kom á staðinn um það bil þremur mínútum síðar. Þá höfðu skipin fjarlægzt hvort annað og Troup kveðst hafa séð nokkrar skemmdir á Leander en engar á Þór þótt svo væri að skilja á yfirmanni freigátunnar að varðskipið hefði laskazt. Troup aðmiráll kvaðst bera fyllsta traust til Taits skip- herra, yfirmanns brezku frei- gátanna. Hann sagði að hann væri mjög reyndur sjómaður og kvaðst vera ánægður með hvernig hann framfylgdi skip- unum sínum. Aðmírállinn kvaðst enn frem- ur viss um að áreksturinn stafaði af reynsluleysi íslenzku skipherranna — þeir hefðu ekki reynslu i að sigla á mikilli ferð innan um fleiri skip og nálægt þeim, reynsla af sog- áhrifum og siglingu við slik skilyrði væri þeim framandi. Troup aðmfráll var að þvi spurður hvort einhver breyting yrði á stefnu hans eða fyrir- mælum hans til yfirmannanna á freigátunum vegna ástands- ins og yfirlýsinga islendinga um yfirvofandi stjórnmálaslit en sagði að svo yrði ekki. Leander skellur utan f Þór. Freigátan Leander kemur öslandi upp að bakborðssíðu Þórs Myndin er tekin við ásiglinguna þar sem aðeins seiling er á milli skipanna og sjórinn gusast upp á milli þeirra.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.