Morgunblaðið - 10.01.1976, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 10.01.1976, Blaðsíða 28
AUGLÝSINGASÍMINN ER: 22480 tJ|í0ilwWíl^Í^ UGLYSINGASIMINN ER: LAUGARDAGUR 10. JANUAR 1976 „Hann er að reyna að sökkva okkur” Grófar og ítrekaðar til- raunir freigátunnar Leand- er til ásiglinga á Þór Frá Magnúsi Finnssyni, blaðam. Mbl. um borð í Þór. „IIERSKIPIÐ er að koma inn á bakborðshlið okkar. Ilann er að reyna að sökkva okkur. Það er enginn vafi á þvf hvað hann ætlar sér. Hann kemur, hann kemur!! — Allir gæti sfn og haldi sér sem fastast," hrópaði Helgi Hallvarðsson, skipherra, úr brú skips sfns rétt áður en árekstur- inn varð við freigátuna Leander F 109, og um leið glumdu viðvör- unarbjöllur um allt skipið. „Hann er í hliðinni á okkur og dregst aftur með. Gætið ykkar!“ sagði Helgi f ströngum viðvör- unartón til þeirra, sem um borð voru. Það liggur við að blaðamaður Mbl. hafi staðið agndofa af undran yfir offorsi og magnaðri ófyrirleitni freigátuyfirmannsins, en í hugum þeirra, sem á horfðu, gat ekki verið um neitt að ræða annað en ákveðinn ásetning yfir- manna freigátunnar að laska varðskipið og gera það ósjófært. Frábær sjómennska Helga Hallvarðssonar og manna hans kom greinilega í veg fyrir stór- slys. Áreksturinn var fjórtánda ásiglingartilraun Leanders af tuttugu og sú eina sem tókst. Áreksturinn sjálfur var þó engan veginn eins harður og árekstur- inn við Andromedu á miðvikudag, en stjórnborðsbógur herskipsins kom á aftanverða bakborðshlið varðskipsins Þórs. Síðan straukst bógurinn aftur með hliðinni, málning skrapaðist af og ískur skar f eyrum. Þegar herskipið kom siðan að skemmdinni á þyrluþilfari Þórs eftir dráttarbát- inn Lloydsman var þar gálgi eða undirstaða þyrluþilfarsins, sem ekki hafði skemmzt undan þunga Lloydsmans. Þessi gálgi reif bóg herskipsins, og þeir, sem voru aft- ast við þyrluskýli Þórs, sögðust hafa séð, að gat kom í bóg her- skipsins, ofan sjólínu, og fjórar stórar stálplötur í kinnungi þess beygluðust. Því munu skemmd- irnar vera talsverðar á freigát- unni. Areksturinn varð kl. 14.21 059 gráður réttvísandi frá Bjarnarey og í 53ja sjómílna fjarlægð. Stað- ur þessi er aðeins 19 sjómilur f norðaustur frá árekstursstaðnum við Andromedu á miðvikudag. Framhald á bls. 13 Forsætisráðherra: Ákvörðun um aðgerðir að loknum sjóprófum MORGUNBLAÐIÐ sneri sér í gær til Geirs Hall- grímssonar, forsætisráð- herra og leitaði álits hans á atburðunum á fiskimiðunum f gær. For- sætisráðherra sagði: „Ég lít þá atburði, sem gerzt hafa í dag, mjög alvarlegum augum. Akvörðun um frekari að- gerðir verður tekin þegar öll gögn málsins liggja Ijós fyrir og sjó- próf hafa farið fram vegna ásiglingar freigát- unnar Leander á varð- skipið Þór.“ Fastaráð Nato ræðir atburðina á Islands- miðum á mánudaginn FASTARÁÐ Atlantshafsbanda- lagsins mun koma saman til fundar á mánudaginn klukkan 16 að beiðni fslenzkra stjórnvalda, að þvf er Þórður Einarsson blaða- f ulltrúi utanrfkisráðuneytisins tjáði Mbl. í gær. Fastaráðið kem- ur saman til að ræða sfðustu at- burði á Islandsmiðum. Þá tjáði Þórður Morgunblaðinu, að Pétur Thorsteinsson ráðu- neytisstjóri utanríkisráðuneytis- ins myndi væntanlega leggja upp í för sína til höfuðborga NATO- ríkjanna í Evrópu n.k. sunnudag. Fer hann fyrst til Osló, síðan til Kaupmannahafnar og þaðan til Bonn. Um áframhald ferðarinnar er óráðið á þessu stigi. Þá hefur ríkisstjórnin óskað eftir því að Ingvi Ingvarsson sendiherra hjá Sameinuðu þjóðunum og Haraldur Kröyer sendiherra í Washington komi heim til íslands til að undirbúa frekari kynningu á málstað Is- lands vestan hafs. Koma þeir heim um helgina eða strax eftir helgina að sögn Þórðar Einars- sonar. 4,vv4J|§ fi p '4 ■ f 1 ... ... ..—"I Breska freigátan Leander siglir þarna á skut Þórs fyrir austan land f gær, en þar sem höggið kemur er aftasti hluti vélarrúms Þórs. Helgi Hallvarðsson og Friðgeir Olgeirsson, 1. stýrimaður, skoða skemmdirnar. r Iands.“ Þetta sagði Helgi Hall- varðsson, skipherra á varðskip- inu Þór, f viðtalinu við Morgun- blaðið eftir áreksturinn við Leander F 109 úti fyrir Héraðs- flóa f gær. Helgi Hallvarðsson sagði enn- fremur: „Eins og ég sagði f skeyti til höfuðstöðva Land- helgisgæzlunnar þá voru til- raunir freigátunnar gerðar með „Ottast mjög að Þór verði sökkt J J — sagði Helgi Hallvarðsson Frá Magnúsi Finnssyni, blm. Mbl., um borð í Þór. „FREIGÁTAN gerði 13 ásigl- ingartilraunir unz henni tókst f hinni fjórtándu að reka stjórn- borðsbóginn f bakborðshlið okkar. Hún lét þó ekki þar við sitja, heldur reyndi sex sinnum til viðbótar ásiglingu og hætti ekki fyrr en við snerum til miklu offorsi, að það er eins og skipherra hennar hafi haft ný fyrirmæli um gjörsamlega nýjar aðferðir við varðskipin. Framhald á bls. 13

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.