Morgunblaðið - 10.01.1976, Side 8
8
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. JANÚAR 1976
ÍSAL dró úr fram-
leiðslunni á sl. ári
FRAMLEIÐSLA Islenzka ál-
félagsins varð um 62 þúsund tonn
á sl. ári, að því er Ragnar
Halldórsson, forstjóri tSAL, tjáði
Morgunblaðinu í gær.
Samtals seldi fyrirtækið um
65.600 tonn á árinu og útskipað
Tónleikar á
Sauðárkróki
Sunnudaginn 11. janúar verða
tónleikar i Safnahúsi Skag-
firðinga á Sauðárkróki á vegum
Tónlistarskóla Skagafjarðar og
Tónlistarfélagsins á Sauðárkróki.
Þar koma fram Philip Jenkins,
píanóleikari, og Einar Jóhannes-
son, klarinettleikari.
var um 42.600 tonnum af áli.
Birgðir í árslok voru um 27.900
tonn, en þar af á Alufinance tæp-
lega 26 þúsund tonn, þannig að
ISAL situr aðeins uppi með um 2
þúsund tonn í birgðum.
Arið 1974 var framleiðsla ISAL
um 70 þúsund tonn eða töluvert
meiri en nú, enda var á sl. ári
ákveðið að draga úr framleiðsl-
unni með tilliti til markaðs-
ástands i heiminum. Gert er ráð
fyrir að framleiðslan á þessu ári
verið eitthvað svipuð því sem hún
var f fyrra.
Að sögn Ragnars er verðið enn
lélegt á heimsmarkaði eða undir
kostnaðarverði. Að vfsu hefur
þess orðið lítillega vart í Banda-
ríkjunum að verðið sé að stíga en
í Evrópu gætir þess enn ekki að
verð sé að hækka.
Amma raular í rökkrinu
— hljómplata með lögum
Ingunnar Bjarnadóttur
UT er komin hljómplata með lög-
um eftir Ingunni Bjarnadóttur,
sem dr. Hallgrímur Helgason
hefur raddsett. Hljómplata þessi
nefnist AMMA RAULAR I
RÖKKRINU og var hljóðrituð hjá
Hljóðritun í Hafnarfirði og Ríkis-
útvarpinu. Flytjendur laganna á
plötunni eru bæði einsöngvarar
og kórar.
Kafbátar fá
aðvörun frá
Norðmönnum
Ósló, 8. janúar. AP.
NORSK herskip hafa fengið
fvrirmæli um að skjóta á alla
erlenda kafbáta sem sigla
ólöglega í norskri landhelgi.
Astæðan er sú, að á undan-
förnum árum hefur orðið vart
við óþekkta kafbáta f norskum
fjörðum þótt víðtæk leit að
þeim hafi engan árangur
borið.
Sigríður E. Magnúsdóttir
syngur við undirleik Jónasar
Ingimundarsonar tvö lög á
plötunni við ljóð Jóhannesar úr
Kötlum. Kór Langholtskirkju
flytur þrjú lög á plötunni undir
stjórn Jóns Stefánssonar og Sig-
rún Gestsdóttir syngur þrjú lög
við undirleik Jónasar Ingi-
mundarsonar. Félagar úr
Karlakórnum Fóstbræðrum
flytja tvö lög og Alþýðukórinn
flytur önnur tvö lög undir stjórn
dr. Hallgríms Helgasonar. Flest
lögin á plötunni eru flutt af Eddu-
kórnum undir stjórn Friðriks
Guðna Þórleifssonar, alls 6. Þá
syngur Kristinn Hallsson þrjú lög
við undirleik dr. Hallgríms
Helgasonar.
Almannavarnanefnd
Mývetninga á varðbergi
Björk, Mývatnssveit, 8. janúar.
Almannavarnanefnd Skútustaða-
hrepps kom saman til fundar f
gær. A fundinum var bókað eftir-
farandi:
1) Almannavarnanefnd Skútu-
staðahrepps þakkar Almanna-
varnaráði og starfsmönnum þess
góða samvinnu að undanförnu.
2) Meðan skjálftavirkni er
óeðlileg ákveður almannavarna-
Þjóðr^knis-
þing í
febrúar
ARSÞING Þjóðræknisfélags Is-
lendinga í Vesturheimi verður
haldið í lok febrúar 1976, en ekki
í janúar eins og tíðkast hefur
undanfarin ár. Þingið hefst að
morgni föstudagins 27. febrúar
og stendur þar til síðdegis laugar-
daginn 28. feb. Því verður slitið
með lokasamkomu að kvöldi þess
dags.
Dr. Kris Kristjánsson í Winni-
peg verður heiðursgestur Þjóð-
ræknisfélagsins á þinginu. Dr.
Kristjánsson er formaður Canada
Iceland Foundation, tók við þeirri
stöðu 13. nóv. 1974, þegar aldaraf-
mælisár varanlegs landnáms Is-
lendinga í Vesturheimi var fram-
undan og síst veitti af að hafa
dugandi áhrifamann í forsæti.
nefnd að halda vörnum sínum í
viðbragðsstöðu, þar á meðal verði
jarðýta höfð tiltæk til aðstoðar við
brottflutning og brottflutnings-
áætlun verði haldið við fyrst um
sinn.
3) Farið var yfir og rætt um
starfs- og framkvæmdaáætlun ef
neyðarástand skapast.
4) Nefndin telur brýnt að
kannað verði nánar með gerð
varnargarða gegn hraunrennsli
og hvetur Almannavarnir ríkisins
til að láta yfirfara vatnsdælur
sínar, þannig að þær væru til-
tækar ef þörf yrði á.
5) Almannavarnanefnd leggur
áherzlu á að haldið verði áfram
jarðfræði- og jarðeðlisfræðilegum
athugunum á gossvæðinu við
Leirhnjúk og nágrenni í því skyni
að hægt verði að fylgjast mefr
þeim breytingum sem hætta kann
að stafa af. Æskilegt er að komið
verði á fót samstarfsnefnd
rannsóknaraðila til þess að sam-
hæfa athuganir þeirra, en nefnd-
in gefi Almannavörnum reglu-
lega skýrslu um gang mála.
Nefndin væntir þess að kostnaður
af þessu starfi verði greiddur úr
ríkissjóði.
6) Varðandi framkvæmdir við
Kröfluvirkjun vill Almanna-
varnanefnd Skútustaðahrepps
Ieggja áherzlu á að náin samráð
verði höfð við helztu sérfræðinga
um jarðskjálfta og eldgos
— Kristján
Ferðaskrifstofan Utsýn hefur
skipulagt 150 brottfarir f hóp-
ferðum frá íslandi á þessu ári,
en að sögn Ingólfs Guðbrands-
sonar forstjóra Utsýnar er
reiknað með að hækkun á hóp-
ferðagjöldum nemi um 20% frá
því í fyrra eða um 8—10 þús.
kr. miðað við meðaltalskostnað
á tveggja vikna ferðir hjá Út-
sýn. „Við verðum enn að herða
sultarólina til þess að halda
viðskiptum, en þessi hækkun er
ekki nægjanleg miðað við að á
Spáni er 20% verðbólga og fólk
þekkir stöðuna hér heima. Hins
vegar er rétt að geta þess að
uppselt er að verða á suma
Janúar 1 97«
’ » 2 3
4 5 6 7 8 » 10
11 12 13 14 15 15 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 29 30 31
Myndin sýnir janúarsfðu
dagatals (Jtsýnar.
greiðslu Utsýnar, Austurstræti
17, meðan upplag endist en það
var prentað í 8000 eintökum.
12—13 þús. farþegar s.l. ár
Ingólfur sagði að um
helmingur af 12—13 þús.
viðskiptavinum Utsýnar s.I. ár
hefði ferðazt 1 hópferðum, en
hinn helmingurinn hefði verið
einstaklingar. Sumarferðir Út-
sýnar hefjast með páskaferð 14.
apríl n.k. til Ccsta del Sol og
standa yfir til októberloka, en á
þessu tímabili verða m.a. viku-
legar ferðir til Lignano, Costa
del Sol og Costa Brava. 45 leigu-
flugferðir eru áætlaðar til
„Reikna með 20% hœkkun á
hópferðum til sólarlanda”
Útsýn gefur út dagatal fyrir 1976
gististaði okkar f sumar og ef
miðað er við sama tima í fyrra
þá ér nú meiri hreyfing á pönt-
unum í ferðir til útlanda. S.l. ár
ferðuðust um 12—13 þús.
manns á vegum Utsýnar til
annarra landa og var það um
2000 fleiri viðskiptavinir en ár-
ið 1974 “
Dagatal með ferðaáætlunum
Þessar upplýsingar komu
fram á blaðamannafundi sem
Utsýn boðaði til og kynnti lit-
prentað dagatal sem ferðaskrif-
stofan Utsýn hefur gefið út fyr-
ir árið 1976, og hefur þvi þegar
verið dreift í allstóru upplagi
til viðskiptavina fyrirtækisins.
Dagatalið er prýtt litmyndum
frá vinsælustu sumarleyfis-
stöðum Islendinga einkum frá
Spáni og Italíu.
Ljósmyndir dagatalsins hefur
forstjóri Utsýnar, Ingólfur
Guðbrandsson tekið, lit-
greining var unnin I Prent-
mynd sf., filmuvinna hjá
Korpus h.f. en litprentun
annaðist Prentsmiðjan Oddi.
Dagatalið fæst afhent í af-
sólarlanda með Flugleiðum og
eru það heldur fleiri ferðir en
s.l. ár en Ingólfur kvað veður-
lag hér heima auðsjáanlega
hafa áhrif á farþegafjölda til
sólarlanda. Aðspurður svaraði
Ingólfur því til, að um nýjung f
ferðum væri að ræða f list-
kynningarferð til Italíu í maí.
Kvað hann mikinn áhuga hafa
komið fram á þeirri ferð og
pantanir hreinlega streymdu
inn. I þeirri ferð verður farið f
allar helztu listaborgir Italíu og
fararstjórar verða menn sem
eru kunnugir listum. Iandi og
þjóðlífi Italfu. Auk sólarlanda-
ferða ráðgerir Utsýn um 50
ferðir til Bretlands í sumar og
30—40 til Norðurlanda.
Af 27,7 milljónum þurfti
útgerð Ögra að borga 27
SÖLUR íslenzku togaranna í
Þýzkalandi á sfðustu dögum hafa
vakið mikla athvgli og margir
halda eflaust, að mikill hagnaður
sé fyrir útgerðirnar að láta skipin
sigla með aflann, þegar þetta hátt
verð fæst fvrir fiskinn. Morgun-
blaðið fékk Agúst Einarsson hjá
Landssamhandi fslenzkra útvegs-
manna til að sundurliða allar
greiðslur vegna þessarar sölu.
Kom í Ijós, að af 27.701.245 kr.
sölu voru aðeins eftir um 700 þús.
krónur þegar upp var staðið.
Alls seldi ögri 249.933 tonn, og
fyrir aflann fengust sem fyrr
segir kr. 27.701.245. Af þessari
upphæð þurfti að greiða 4% í
markaðskostnað eða 1.108.050,
löndunarkostnaður nam kr.
646.731, tollar voru 14% eða kr.
3.878.174, annar sölukostnaður í
Þýzkalandi nam kr. 1.551.270.
Samtals þurfti því að greiða í
kostnað í Þýzkalandi kr. 7.184.225
eða 25,9% af brúttóverðmæti afl-
ans.
Þá eru eftir allar beinar greiðsl-
ur til íslenzkra aðila og áhafnar.
Útflutningsgjöld eru 14.175% eða
alls kr. 3.926.651, aflahluti er
27,75% af 54% brúttó eða kr.
4.151.032, aukaaflaverðlaun, en
þau eru 0.3% á skipverja af sölu-
verði umfram 9000 pund, eru kr.
1.917,114, mánaðarkaup og frí-
dagar eru kr. 1.280.208, til líf-
eyrissjóðs fara kr. 653.066, skrán-
ingargjöld og trygging skipverja
Sovézk hergögn
send til Sómalíu
Washington 8. jan. — Reuter
SOVETRlKIN hafa sent tvö eftir-
litsskip sem geta skotið fjarstýrð-
um eldflaugum og a.m.k. 30
skammdrægum eldflaugum til
Sómalíu, að þvi er bandaríski öld-
ungadeildarþingmaðurinn Dewey
Bartlett sagði í gær. Sagði Bart-
iett, að þessar upplýsingar, sem
hann hefði fengið frá varnarmála-
ráðuneytinu í Washington, bættu
alvarlegum þáttum við íhlutun
Sovétríkjanna í Angóla og
Sómalíu.
eru kr. 201.960, olíukostnaður,
5.80 kr. pr. lítra, er kr. 754.000,
veiðarfæri, þ.e. áætlaður kostn-
aður, er kr. 1.187.000. Síðan fer
21% í stofnfjársjóð fiskiskipa eða
kr. 5.817.261. Alls þarf því út-
gerðin að greiða af heildar-
sölunni, sem var kr. 27.701.245,
krónur 27.072.261. Eftir standa
því kr. 628.728 krónur.
I áðurnefndum tölum er trygg-
ing skips og viðhald og annar
kostnaður tekið með í reikn-
inginn, en gert er ráð fyrir, að
viðhald togara sem Ögra kosti
12—15 milljónir króna á ári.
En hver eru laun manna úr
svona söluferð, en með veiðum og
siglingum fram og til baka fara
oft yfir þrjár vikur í veiðiferðina.
Mánaðarkaup háseta er kr.
61.138, í þessari ferð voru afla-
verðlaun kr. 126.401 og aukaafla-
verðlaun kr. 79.879. Samtals urðu
því laun háseta í þessari ferð kr.
267.418 en án orlofs kr. 246.854.
Mánaðarlaun skipstjóra eru kr.
50.240, aflahlutur hans í þetta
skiptið varð kr. 519.066 og auka-
Moskvu 8. janúar — Reuter
MÓÐIR sovézka andófsmannsins
Vladimir Bukovsky hefur skorað
á franska kommúnistaleiðtogann
Georges Marchais í opnu bréfi að
beita sér fyrir því að syni hennar
verði slepp't. Frú Nina Bukovsky
segir í bréfinu, að hún óttist að
sonur sinn lifi ekki af 12 ára
fangelsis-, þrælkunarbúðavist og
útlegð í Síberíu sem hann var
dæmdur til fyrir andsovézka
starfsemi árið 1972.
Hún segir að yfirlýsingar Mar-
chais bendi til þess að flokkur
aflaverðlaun kr. 79.879. Eða alls
kr. 648.885 með orlofi en án þess
kr. 598.989.
Kirkjukór Selfoss
syngur í kirkju
Fíladelfíusafnaðar
SÍÐASTLIÐINN þriðjudag hélt
kirkjukór Selfoss tónleika i Selfoss-
kirkju ásamt 25 kórfélögum úr
sinfóniuhljómsveit áhugamanna i
Reykjavík og einsöngvurunum Sig-
riði E. Magnúsdóttur, Garðari Cortes
og Halldóri Vilhelmssyni. Fluttar
voru kantötur eftir Bach og Buxte-
hude. Húsfyllir var á tónleikunum,
og hefur verið ákveðið að þeir verði
endurteknir i Reykjavik sunnudaginn
11. janúar klukkan 17, f Ffladelfiu-
kirkjunni Hátúni 2.
Hljómsveitin er eins og áður sagði
skipuð 25 hljóðfæraleikurum úr ný-
stofnaðri sinfóníuhljómsveit áhuga-
manna í Reykjavík og þreyttu þeir
frumraun sina á Selfossi s I þriðjudag
og koma nú fram i fyrsta skipti sem
slikir i Reykjavik Kórinn syngur á
islenzku og eru textar þýddir af Óla
Ágústssyni.
hans stefni að virkilegu lýðræði
og „sósíalisma með mannlegu
yfirbragði“, en Marchais tók fyrir
nokkru einarða afstöðu með mál-
stað andófsmannsins Leonid
Plyushch, sem sleppa á úr haldi
nú á föstudag. I bréfinu segir frú
Bukovsky m.a.: „Ef þessar hug-
sjónir sem hverri heiðvirðri
manneskju eru heilagar eru yður
meir en orðin tóm, þá trúi ég því
að þér bregðist svo við þessari
bón minni að þér hefjið upp rödd
yðar og krefjizt þess að syni
mfnum verði sleppt hið bráðasta."
Móðir Bukovskys
biður Marchais
um að liðsinna sér