Morgunblaðið - 14.01.1976, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14, JANUAR 1976
5
Axafjarðar-
skjálftinn
með snörpustu kippum er hér koma
JARÐSKJÁLFTI sá er fannst I
Axarfirði I gær var svipaður
að stærð og skjálfti sá sem olli
sem mestum skemmdum á Dal-
vfk 1934 eða um 5,5—6 á
Richterkvarða.
Samkvæmt Jarðfræði Þor-
leifs Einarssonar hafa stærstu
jarðskjálftar, sem hérlendis
hafa fundist frá þvf að mæling-
ar hófust árið 1927, verið sem
hér segir: Hinn 23ja júlf árið
1929 f grennd við Reykjavík
um 6 og 'á að stvrkleika; hinn 2.
júnf 1934 við Dalvfk — um 6'Á
að styrkleika, hinn 27 marz
1963 á Málmeyjargrunni — um
7 stig og 5. desember 1968 vest-
an Krfsuvfkur um 7 stig á
Richterskvarða. Suðurlands-
skjálftarnir er verða að meðal-
tali einu sinni á öld, eru enn
stærri og segir Þorleifur að
jarðskjálftarnir þar 26. ágúst
til 6. september árið 1896 hafi
sennilega verið um 6,5 stig.
Mesti jarðskjálfti sem mælzt
hefur f heiminum, varð f Chile
árið 1960 og var stærðin um 8,9
stig.
í bók sinni gerir Þorleifur
nánari grein fyrir þvi hvernig
styrkleiki jarðskjálfta sé mæld-
ur. Hann bendir á að styrkleiki
jarðskjálfta segi fremur lítið
um orku er leysist úr læðingi i
upptökum. „Þegar mælingar
hófust um síðustu aldamót,
kom einnig fljótlega í ljós, að
margra jarðskjálfta, sem komu
glöggt fram á mælum, gætti lítt
eða varð ekki vart. Voru það
einkum jarðskjálftar, sem áttu
upptök sín á botni úthafanna.
Var þvi tekið að meta stærð
jarðskjálfta eftir útslagi á jarð-
skjálftalínum. Stærð jarð-
skjálfta eftir útslagi á jarð-
skjálftalínum. Stærð jarð-
skjálfta (magnituda = M) er nú
skýrgreind sem lógarithmi af
mældu útslagi en stærðin segir
til um mestu orku skjálftans í
upptökum. I samræmi við þetta
eru jarðskjálftar nú flokkaðir
eftir svokölluðum Richter-
kvarða frá 1 upp í 8,9, en aukn-
ing um eitt stig táknar 100 föld-
un orku. Stærðin 1 samsvarar
titringi af umferð, brimöldu við
Þá segir Þorleifur að sam-
kvæmt rituðum heimildum hafi
orðið hér á landi slðustu átta
aldirnar nær 50 jarðskjálftar,
sem hafi verið svo sterkir að
bæir hrundu. Samkvæmt
reynslu af Dalvíkurskjálftan-
um 1934 muni styrkleiki
þessara jarðskjálfta hafa verið
5,5—7 á Richterkvarða. Þor-
leifur segir, að íslenzkir torf-
bæir hafi verið heldur illa
gerðir með tilliti til jarð-
skjálfta, einkum hafi þökum
verið hætt vegna þyngdar.
I jarðskjálftum hér á landi hafi
nokkrum sinnumorðið mann
tjón og alls muni um 100 manns
hafa farizt í jarðskjálftunum á
Suðurlandi, svo vitað sé. I jarð-
skjálftunum á Suðurlandsund-
irlendinu 14. — 16. ágúst 1784
hafi fallið 69 bæir í Árnessýslu,
en 23 á Rangárvöllum og varð
það þrem mönnum að bana. 1
Skálholti féllu t.d. flest bæjar-
hús og skólinn, og hann eftir
það fluttur til Reykjavíkur.
Dómkirkjan stóð hins vegar en
hún var úr timbri. 1 jarðskjálft-
unum 1896 á Suðurlandi féll
161 bær og urðu þeir 4 mönnum
að bana. Hörðustu kippanna
varð vart um nær allt land.
Skriður og stórgrýti féllu víða
úr fjöllum um Suðurland og
sprungur mynduðust í jarðveg.
Miklar breytingar urðu og á
hverasvæðunum í Hveragerði,
og í Haukadal, svo sem oft
hefur verið 1 jarðskjálftum,
Það sem af er þessari öld varð
mest tjón i Dalvíkurskjálft-
anum 1934 en í honum fór
þorpið þar mjög illa. Slys urðu
ekki á fólki enda vildi það til
happs að hann varð um miðjan
dag. Þorleifur bendir á að enda
þótt jarðskjálftar séu fremur
tíðir á Islandi séu harðir
skjálftar fremur sjaldgæfir og
sökum strjálbýlis hafi mann-
tjón orðið fremur litið. Þá segir
hann að við jarðskjálfta hafi
einstöku sinnum orðið breyt-
ingar á landslagi hér á landi að
mönnum ásjáandi. Nefnir
hann, að árið 1789 hafi sigið
spildan milli Almannagjár og
Hrafnagjár um 60 sm og vatnið
gekk sem því nam á land. Varð
það átylla til að leggja niður
þinghald á Þingvöllum. Við
stóra jarðskjálfta erlendis
hefur stundum orðið gifurlegt
jarðrask og nefnir Þorleifur
Alaskaskjálftann 1964 en kvik-
mynd af þeim hamförum mátti
sjá í brezkum sjónvarpsþætti
um landrekskenninguna, sem
hér var sýndur ekki alls fyrir
löngu. í þeim skjálfta misgekk
spilda sem er stærri en Island
og mest nam lyftingin um 7
metrum austan við
skjálftamiðjuna (Prince
William Sound) en sigið var
álíka mikið vestan hennar.
Myndin sýnir jarðskjálftamiðjur á og við tsland. Skjálftar minni að styrkleika en 5 eru flestir mældir
árin 1956—62 en 5—6 eftir 1910 en þeim er hafa 6 eða meira eru einnig teknir Suðurlandsskjálftarnir
1784 og 1896. (Kortið er úr Jarðfræði Þorleifs Einarssonar sem til er vitnað f greininni)
Efri mvndin sýnir rústir bæjarins að Selfossi, en hann hrundi f jarðskjálftanum 1896. (Þorvaldur
Thoroddsen 1900)
Vilja endur-
reisn biskups-
stóls á Hólum
Mælifelli, 13. jan.
EFTIRFARANDI tillaga
var borin upp og samþykkt
samhljóða .á almennum
safnaðarfundi, sem hald-
inn var í Víðimýrarsókn í
Glaumbæjarprestakalli
nýlega.
„Safnaðarfundur í Viðimýrar-
sókn haldinn í Miðgarði sunnu-
daginn 14. desember 1975 lýsir
eindregnum stuðningi sínum við
þær hugmyndir, sem fram hafa
komið um endurreisn biskups-
stólsins á Hólum i Hjaltadal.
Fundurinn skorar á Norðlend-
inga að standa einhuga að þessu
máli og hrinda þvi i framkvæmd
hið allra fyrsta."
Öhætt er að fullyrða að nú er
mikill hugur i Norðiendingum i
þessu gamla baráttumáli er loks
virðist sennilegt að verði til lykta
leitt fyrir forgöngu kirkjumála-
ráðherra, sem vakti vonir manna i
þessu efni svo að um munaði á
síðasta kirkjuþingi. Sfra Ágúst.
Útivist með ferð
út í tunglsljósið
UTIVIST ráðgerir að fara í kvöld-
ferð n.k. laugardagskvöld i
nágrenni Lækjarbotna. Gengið
verður með blys nokkurn hluta
leiðarinnar og sungnir álfa-
söngvar.
Stjörnuspekingur sýnir og skýr-
ir stjörnur og stjörnumerki.
Tunglið er fullt þetta kvöld og
tækifærið valið til að gefa fólki
kost á að koma út fyrir borgina og
njóta töfra vetrarnæturinnar
undir fullu tungli, tindrandi
stjörnum og bragandi norðurljós-
um.
Handhæg blys verða seld í
bilunum og kosta þau 150 kr.
Börn í fylgd með fullorðnum fá
frítt.
Þeir sem vilja geta farið á
skauta eða skíði ef þeir hafa þau
með. Einnig verður farið í leiki.
Verió vel búin í frostinu og hafið
sjónauka með, til stjörnuskoðun-
ar.
Farið verður frá Umferðarmið-
stöðinni að vestan verðu kl. 8 og
komið aftur um miðnætti.
Allir eru velkomnir út i tungls-
ljósið með Utivist. (— Frá Úti-
vist)
Aformað að setja
legstein á leiði
Símonar Dalaskálds
Mælifelli. 1 3 jan
Á ÞESSUM vetri eru 60 ár liðin frá
dauða Símonar Dalaskálds. Hann
var jarðsunginn i Goðdölum i verstu
stórhrið og fylgdu þvi fáir. Aldrei
hefur verið settur legsteinn á leiði
þessa sérstæða og merkilega manns.
Nú hefur Sveinbjörn Beintemsson á
Dragháisi gengist fyrir þvi, að bauta-
steinn verði reistur á leiði Simonar i
Goðdalskirkjugarði. en hann og fleiri
kvæðamenn vilja sýna mmmngu
rimnaskáldsins virðingu Hafa þeir
Jóhann Briem listmálari valið stein og
á aðeins að standa á honum Símon
Dalaskáld Verður steininum vel tekið
hér I sveit og ætlunm að efna til
minmngarathafnar i Goðdölum i júni
þegar honum hefur verið komið fyrir
Að sjálfsögðu kostar steinnmn nokkurt
fé og er þeim sem eitthvað vilja styrkja
þetta málefm bent á að senda má
framlög til undirritaðs Síra Ágúst.
RlSfl-
í Sigtúni fimmtudaginn 15. janúar
Forsala aðgöngumiða í
hljóðfæraverzlun Poul Bernburg
og Víkurbæ, Keflavík.
Spilaðar verða 18. umferðir
Stórglæsilegt úrval vinninga — 3 sólarlandaferðir með Úrval
— Húsgögn — Skartgripir — Urmull af Kenwood heimilistækjum
Heildarverðmæti vinninga 1/2 milljón króna
Knattspyrnudeild Ármanns.