Morgunblaðið - 14.01.1976, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. JANUAR 1976
7
Raforku-
samtenging
landshluta
Gert er rá8 fyrir a8 sy8ri
hluta byggðallnu, þ.e. frá
Andakllsárvirkjun norSur I
Hrútafjörð, Ijúki I vetur.
Lokið er að reisa staura á
verulegum hluta kaflans
frá Hrútafirði að Laxár-
vatni. Á þessu ári er
áformað að Ijúka þeim
kafla, svo og áfanganum
frá Laxárvatni til Varma-
hliðar. Þar verður norður-
linan tengd linunni milli
Varmahlíðar og Akureyr-
ar. Gert er ráð fyrir að
þessum framkvæmdum
Ijúki siðla árs. Yrði þá
hægt að reka linuna milli
Andakils og Akureyrar
með 132 kw spennu með
bráðabirgðatengingu. Þá
er efiir að gera kaflann
milli Grundartanga og
Andakils og hefur verið
reiknað með að það verk
verði unnið árið 1977 og
línan þá að öðru leyti full-
gerð. Sú áætlun verði
sennilega endurskoðuð i
samræmi við þær niður-
stöður, sem fást úr frekari
athugun á timasetningu
framkvæmda að Grundar-
tanga (járnblendiverk-
smiðja).
Hinn 1. nóvember sl.
var áætlaður, áfallinn
kostnaður við lagningu
linunnar talinn 657.8
m.kr. Heildarkostnaður
við sjálfa linulögnina er
áætlaður 1.300 m.kr. Þar
að auki er kostnaður við
spennistöðvar og er þar
innifalið nokkuð af raf-
búnaði fyrir dreifiveitur i
héruðum.
í framhaldi af þessari
tengingu raforkusvæða
sunnan- og norðanlands
mun i athugun tenging
Vestfjarða við byggðalinu
norður og tengilina milli
Kröflu og orkusvæðis
Austfjarða.
Þegar þessar tengingar
eru komnar á verður raf-
orkuöryggi I landinu veru-
legt. Hægt verður að
flytja raforku milli lands-
hluta eftir þörfum. Hefur
það ekki sizt gildi fyrir
iðnaðaruppbyggingu i
landinu og ef náttúruham-
farir hindra raforkufram-
leiðslu orkuvera á jarð-
skjálfta- og eldgosasvæð-
um, þar sem stærstu
orkuverin eru nú staðsett.
Fyrirhuguð virkjun Blöndu
á Norðurlandi vestra sem
og fyrirhuguð stórvirkjun
á Austfjörðum yrðu á
svæðum, sem talin eru ör-
ugg. þ.e. utan hættu-
svæða v. náttúruhamfara.
Reynslan
úr fyrri
þorskastríðum
Það hefur verið sann-
færing þorra fslendinga,
að aðild að Nato væri
veigamikill hlekkur i ör-
yggis- og sjálfstæðismál-
um þjóðarinnar. Það hefur
jafnframt verið trú þeirra,
sem styðst við reynslu úr
fyrri þorskastriðum, að
Nato-aðild hafi tryggt þær
lyktir i átökum við Breta,
sem eftir aðstæðum vóru
viðunpndi. Þetta getur
enn gerzt — ef riki eins
og Bandarikin, Kanada og
Norðmenn, svo nokkur
séu nefnd, skilja sinn vitj-
unartima. En það þarf að
fyrirbyggja skaðann áður
en hann skeður.
Þetta sjónarmið spegl-
ast einkar glöggt i leiðara
hlutlauss landsbyggðar-
blaðs, „Vestfirzka frétta-
blaðsins" Þar segir ma:
„Rikisstjórnin og utanrik-
isráðherra hafa haldið á
málum með nokkurri
festu. Þó hvarflar að
manni að aðstaða íslands
innan Nato hafi ekki verið
nýtt sem skyldi. f þessu
máli gildir ekkert annað
en nota þá aðstöðu, sem
við höfum til þess að ná
árangri, og losna við er-
lenda ránsmenn af is-
lenzku yfirráðasvæði."
Hér kemur vel fram, að
leiðarahöfundur vest-
firzka blaðsins byggir von
sina um framgang hins is-
lenzka málstaðar á að-
gerðum samstarfsþjóða
innan Nato, til að þrýsta
Bretum til að linna ofbeld-
isaðgerðum i okkar garð.
Hér verður engum get-
um að þvi leitt, hvað kann
að hafa gerzt eða er að
gerast að tjaldabaki innan
Nato. Hitt er deginum
Ijósara, að vera okkar i
Nato styrkir aðstöðu okk-
ar á þessum vettvangi
sem öðrum, og leiðir von-
andi til þeirra lykta, sem
við getum við unað. áður
en til alvarlegri tiðinda
dregur. sem haft geta
ófyrirséðar afleiðingar.
Agætur árangur
Guðmundar í Búlgaríu
Guðmundur Sigurjónsson
stórmeistari hefur staðið sig
mjög vel í svæðismótinu í Búlg-
arfu og er nú, eftir 14 umferðir,
með 9 v. í 1.—3. sæti ásamt
þeim Matanovic (Júgóslavíu)
og Georghiu (Rúmeníu). Næst-
ir kona Ermenkov (Búlgaríu)
og Sax (Ungverjal.).
Um daginn birtum við hér i
þættinum skák Guðmundar
gegn Sax úr 3. umferð, og hér
kemur önnur góð sigurskák
hans úr mótinu.
Hvftt: Netzkar (Tékkósl.v.)
Svart: Guðmundur Sigur-
jónsson.
Kóngsindversk vörn-
1. Rf3 — Rf6, 2. g3 — g6, 3. Bg2
— Bg7, 4. 0—0 — 0—0, 5. c4 —
d6, 6. d4 — Rbd7, 7. Rc3 — e5, 8.
e4 — c6, 9. h3 — Db6
(Þessi leikur hefur notið vin-
sælda að undanförnu. Einnig er
leikið hér 9. — exd4).
10. Hel — He8, 11. d5 — c5, 12.
a3 — He7!
eftir JÓN Þ. ÞÓR
(Góður leikur, sem rýmir e8
reitinn fyrir riddaranum. Þeg-
ar kóngssóknin hefst á
hrókurinn að standa á f7).
13. Hbl — Re8, 14. b4 — Db8,
15. Be3 — b6, 16. Dc2 — Rf8,
17. Rd2 — f5, 18. bxc5 — bxc5,
19. Rb3 — Hf7, 20. Bd2 — h5!,
21. Re2 — f4!
(Þetta er auðvitað engin
peðsfórn, þar sem svartur
myndi svara 22. gxf4 með Dh4).
22. Dd3 — g5, 23. Ra5 — Df6,
24. Hb3 — Rg6.
(Svartur er auðsjáanlega á
undan gagnsóknarmöguleikar
hvíts eru litlir.)
25. Rc6 — g4, 26. hxg4 — hxg4.
27. f3 — fxg3, 28. Rxg3 — Dh4,
29. fxg4 — Rf4!
(Mun sterkara en 29. —
Bxg4).
30. Dc3
(Hættulegur reitur, en
drottningin verður að valda 3.
línuna).
30. — Bxg4, 31. Rf5
(Hvítur ákveður að fórna
skiptamun og reyna með því að
draga úr sóknarþunga andstæð-
ingsins).
31. — Bxf5, 32. exf5 — Dxel+,
33. Bxel Re2+, 34. Kh2 —
Rxc3, 35. Bxc3 — Rf6, 36. Ba5
— Bh6 (?)
(Fram til þessa hefur Guð-
mundur teflt skákina af miklu
öryggi, en hér verður honum á í
messunni. Betra var 36. Haf8,
því nú getur hvítur lokað svarta
hrókinn inni á a8).
37. Bd8 — Rg4+, 38. Kgl —
Be3+ 39. Kfl — Hxf5+ 40. Kel
— Hf4,41. Bh3 — He4, 43. Kf 1
(42. Bxg4 — Bg5, ásamt Hxg4
væri sízt betra fyrir hvítan).
42. — Rh2 + , 43. Kg2 — Bf4, 44.
Hb7 — He2+ 45. Khl — Hxd8,
46. Be6+ Kh8, 47. Rxd8 — e4,
48. Rf7+ — Kg7, 49. Rxd6 —
Kg6, 50. Bf5+ — Kf6, 51. Hf7 +
— Ke5, 52. Bxe4?
(Betra var 52. Rxe4 með viss-
um jafnteflismöguleikum).
52. — Rfl, 53. Bg2 — Re3, 54.
Rb5 — Hel + og hvftur gaf.
Sinfóníutónleikar:
Nýtt verk eftir Þorkel
og ástralskur fiðlari
SINFÓNlUHLJÓMSVElT Is-
lands heldur áttundu reglulegu
tónleika sfna f Háskólabfói nk.
fimmtudagskvöld og hefjast þeir
að vanda kl. 20.30. Stjórnandi
verður Karsten Andersen, aðal-
hljómsveitarstjóri, en einleikari
ástralski fiðluleikarinn
Charmian Gadd, er mun leika
fiðlukonsert Mendelssohns. Tón-
leikar þessir hefjast með frum-
flutningi nýs verks eftir Þorkel
Sigurbjörnsson, sem ber heitið
„Albumblatt" og einnig verður
flutt Sinfónía nr. 5 (örlaga-
sinfónían) eftir Beethoven.
Charmian Gadd kom fyrst fram
opinberlega átta ára gömul f
heimalandi sfnu. Hún útskrif-
aðist frá tónlistarskóla f Sydney
1960 og tveimur árum sfðar hlaut
hún fyrstu verðlaun f einleikara-
keppni á vegum ástralska út-
varpsins. Sfðan hefur hún farið
fjölda tónleikaferða um Astralfu,
Evrópu og Bandarfkin sem ein-
leikari eða þátttakandi f kammer-
hljómsveitum, og jafnframt
hefur hún verið fastráðin frá
árinu 1968 sem listrænn ráðgjafi
og leiðbeinandi við Duquese-
tónlistarháskólann f Pittsburgh f
Bandarfkjunum.
Með þessum tónleikum lýkur
fyrra misseri starfsérsins 1976/77
en sfðara misserið hefst með tón-
leikum 29. janúar. Sala áskriftar-
skírteina og endurnýjun er þegar
hafin.
EF ÞAÐ ER FRETT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐINU
Raðhús í skiptum
á Seltjarnarnesi
fyrir 4ra til 5 herb. íbúð með bílskúr, helst í
Vesturbæ. Húsið er 220 fm á tveimur hæðum
með tvöföldum bílskúr. Selst með glerjum,
einangrun, hitalögn og með útihurðum. Tilboð
sendist Mbl. fyrir 20. janúar merkt: Raðhús —
4949.
T oyota
Til sölu eftirtaldar Toyotabifreiðar:
Corolla Station 1 600 1 972
Carína 1973
Carína 1974
Carína 1975
Corona 1967
Corona MK II 1973
Hilux Pick Up 1975
Toyota Umboðið
Nýbýlavegi 10 Kópavogi.
Símar 441 44 og 44259.
Mörg stórfalleg mynstur, sem geta gefið
herberginu yðar gjörbreyttan svip.
Með þessu veggfóðri má klæða j-^fnt loft
og veggi og þér ráðið algerlega í hvaða
litum.
Og stærsti kosturinn við CROWN —
ANAGLYPTA er auðvitað verðið.
FERMETERINN KOSTAR AÐEINS 200
KR.
Vorum að taka fram fyrstu sendingu af
CROWN — ANAGLYPTA
Veggfóöur, sem þér málið
eftir eigin smekk,
eða látið standa ómálað