Morgunblaðið - 14.01.1976, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. JANUAR 1976
11
Greinargerð Fjórðungssambands Norðlendinga:
Stjórnsýslumið-
stöðvar í strjálbýli
Flutningur stofnana og stjórnunarþátta í opinberri
þjónustu út á land raunhæfasta leið valddreifingar
Samtök sveitarfélaga í strjálbýli hafa taiið það einn veigamesta þátt
valddreifingar f þjóðfélaginu að færa ýmsar stofnanir og stjórnunar-
þætti f opinberri þjónustu, sem og f fjármálaiegri stjórnun, frá
höfuðborgarsvæðinu til ýmissa byggðarkjarna á landsbyggðinni. Sam-
hliða er vaxandi áhugi á þvf að koma upp stjórnsýslumiðstöðvum f
kaupstöðum og/eða sýslufélögum landsbyggðarinnar, til hagræðingar
og sparnaðar og þæginda fyrir fbúa einstakra byggðarlaga, sem þá
gætu sótt flesta þætti opinberrar heimaþjónustu á einn stað. Fjórð-
ungssamband Norðlendinga vinnur nú að framgangi þessa máls og
hefur falið Framkvæmdastofnun rfkisins áætlunargerð um það f
samráði við heimaaðila. Hér fer á eftir greinargerð FSN um málið.
0 Um stjórnsýslu-
miðstöðvar
,,Á vegum landshlutasamtaka
sveitarfélaga hafa farið fram um-
ræður um með hvaða hætti mætti
örva tiifærslu á þjónustustarf-
semi ut á land og efla þá þjón-
ustustarfsemi, sem fyrir er.
Stefnt hefur verið að því að marg-
ar þjónustu- og stjórnsýslu-
greinar sameinist um htisnæði og
kæmu sér upp sameiginlegri
þjónustu, eftir því sem þörf
krefsL Jafnframt gæti verið til
staðar húsnæði fyrir stofnanir,
sem fluttar eru út á land, t.d.
útibú þeirra, er þurfa að vera í
sem nánustum tengslum við hlið-
stæðar starfsgreinar. Af hálfu
Fjórðungssambands Norð-
lendinga hefur það verið skýr
stefna að beita sér fyrir stjórn-
sýslumiðstöðvum, sem þjónuðu
þéttbýli og héraðssvæðum, en eru
ekki allsherjar stofnanir fyrir
heila landshluta, sem færðu
saman þjónustustarfsemi frá ein-
stökum byggðasvæðum.
Á þessum grundvelli hefur
Fjórðungssambandið leitað eftir
þvf við Framkvæmdastofnun
ríkisins að gerð verði áætlun um
þörfina fyrir stjórnsýslumiðstöðv-
ar í samstarfi við viðkomandi
sveitarfélög. í þjónustukönnun
þeirri, sem Fjórðungssambandið
gerði fyrir fáeinum árum kom í
ljós að mikill áhugi er á slíku
samstarfi. Nú er ljóst að Fram-
kvæmdastofnun ríkisins mun
taka þetta verkefni fyrir í sam-
starfi við heimaaðiia.
0 Til hagræðis
fyrir almenning
Ekki er vafamál að með sam-
starfi um húsnæðisafnot og um
skrifstofuþjónustu geta hinar
ýmsu þjónustugreinar sparað sér
stórfé. Hitt er ekki þýðingar-
minna, að með því að hafa margar
hliðstæðar stofnanir i sambýli
sparar almenningur mikla fyrir-
höfn og tíma við útréttingar. Hitt
er ekki þýðingarminna að félög
og fyrirtæki, sem engin tök hafa á
því að hafa skrifstofuþjónustu
vegna þess að hún væri þeim
einum sér of kostnaðarsöm, geta
með þátttöku sinni í stjórnsýslu-
miðstöð notið þessarar aðstöðu i
samræmi við þarfir í samstarfi
við marga fleiri aðiia. Með
þessum hætti mætti laða að út f
héruðin og byggðalögin þjónustu-
starfsemi, sem ekki fær þrifist
ein sér sem sjáifstæð starfsemi en
getur dafnað ef hún gæti notfært
sér aimenna þjónustustarfsemi
við hliðina á annarri starfsemi, og
styddu þannig hvor aðra og stuðl-
uðu að aukinni þjónustu við al-
menning.
Þannig gætu stjórnsýslumið-
stöðvar myndað net þjónustuein-
inga, sem væri heild, þrátt fyrir
sérgreinda þjónustu ólíkustu
aðila. Þannig skapast heildar-
stofnun, sem i vaxandi mæli fuli-
nægði þjónustuþörfinni og hefði
innan vébanda þá stjórnsýslu er
hæfði fyrir þéttbýli og aðliggj-
andi hérað, en væri mikilvægt
tæki til að auka atvinnuval sér-
menntaðs vinnuafls, sem iðulega
finnur ekki verkefni við sitt hæfi
úti á landi.
0 Þjónustustarfsemi
þýðingarmikill
atvinnuvegur
Þeirri viðbáru er hreyft þegar
leitað er til fjármálastofnana um
fyrirgreiðslu til stjórnsýsiumið-
stöðva að ekki komi lil greina að
lána til bygginga á skrifstofuhús-
næði, því að framleiðslan verði að
sitja fyrir því fjármagni, sem fæst
til dreifbýlisins. Staðreyndin er
hins vegar sú, að vinnuaflstil-
færslan er einmitt frá fram-
leiðsluatvinnuvegum til þjónustu-
greina. Þessi þróun getur haldið
áfram með eðlilegum hætti,
vegna þess að framleiðni fram-
leiðsluatvinnuveganna hefur auk-
ist að sama skapi. Aukin verk-
efnaskipting í þjóðfélaginu hefur
í reynd þýtt það, að vinnuafls-
aukningin er í þjónustugrein-
unum og þar með talin stjórnsýsla
ýmiskonar.
Ein megin orsök byggðarösk-
unar er sú að dreifbýlið hefur
setið eftir um aukningu á mann-
afla í þjónustugreinum. Þróttmik-
ið atvinnulíf krefst aukinna þjón-
ustustarfa á öllum sviðum. Það
skiptir miklu fyrir byggðaþróun-
ina, að sá atvinnuauki, sem fylgir
aukinni þjónustuþörf falli til í
byggðarlögunum eða í nágrenni.
Séu þessi skilyrði ekki fyrir hendi
þurfa heimamenn með ærnum
kostnaði að leita annað um fyrir-
greiðslu. Ekki er vafamál, að í
nútímaþjóðfélagi getur staðsetn-
ing þjónustustarfsemi hreinlega
haft áhrif á hvar fólk vill búa og
þá um leið hvar heppilegt er að
reka framleiðslutækin. Uppbygg-
ing stjórnsýslumiðstöðva er liður
i skipulagsbundnu starfi til að
efla framleiðslubyggðarlögin og
spornat gegn efnahagslegri skipt-
ingu þjóðfélagsins í framleiðslu-
byggðarlög og þjónustukjarna.
0 Stjórnsýslumiðstöðvar
undirstaða
þjónustudreifingar
Sú stefnubreyting hefur orðið
að nú er stefnt á ný að aukinni
dreifingu í þjóðfélaginu á ýmis-
konar þjónustu og ýmsum þáttum
stjórnsýslu. Því hlýtur sú spurn-
ing að vakna með hvaða hætti er
hægt að koma þessari nýskipan á
með hagkvæmustum hætti svo að
þetta verði ekki um of kostnaðar-
samt. Á sviði heildverslunar hafa
23 fyrirtæki í Reykjavík stofnað
með sér samstarfsfyrirtæki Heild
h.f. og komið upp samstarfi á
flestum sviðum skrifstofuþjón-
ustu. Nefndar hafa verið háar
tölur um sparnað þessara fyrir-
tækja. í ljós hefur komið að með
samstarfi þessu hefur skapast
möguleiki til að taka upp nýja
tækni, sem engin skilyrði voru til
þegar fyrirtækin voru sitt í hvoru
horni . Við athugun hefur komið i
ljós að margt má í þessum rekstri
staðfæra fyrir almenna þjónustu-
starfsemi úti í dreifbýlinu.
Þá vantar víða úti um landið
húsnæðismöguleika fyrir þjón-
ustuaðila, sem starfa tímabundið
á stöðunum. Það gæti verið
byrjun á því að flytja inn nýja
þjónustuþætti í byggðarlögin. Það
er ljóst að sveitarfélögin í sam-
starfi við aðra opinbera aðila
verða að hafa forystu um að
mynda samstarfskjarna um
stjórnsýslumiðstöð. Inn í þetta
samstarf þurfa að koma einkaaðil-
ar, sem þurfa á skrifstofuaðstöðu
að halda vegna starfa sinna.
0 Frumkvæði
Dalvíkinga
Lengi hafa verið I athugun á
vegum Fjórðunggsambands Vest-
firðinga að koma upp stjórnsýslu-
miðstöð á Isafirði, sem í nokkru
gæti þjónað öllum Vestfjörðum.
Ekkert hefur orðið enn úr fram-
kvæmdum. Hins vegar er þessum
málum svo langt komið á Dalvík
að þar er hafin smíði stjórnsýslu-
miðstöðvar á vegum kaupstaðar-
ins. Ráðgert er að í byggingunni
verði Sparisjóður Svarfdæla,
bæjarskrifstofur Dalvfkur, bæjar-
fógetaskrifstofur, bókhaldsþjón-
usta, Utgerðarfélag Dalvíkur og
siðar meir umboðsmaður skatt-
stjóra, útibú Vegagerðar og Raf-
magnsveitna ríkisins.
Gert er ráð fyrir að i húsinu
verði sameiginlegur fúndarsalur,
sem jafnframt verði dómssalur.
Þá verður í húsinu sameiginleg
skrifstofuþjónusta og símaþjón-
usta, sem rekin verður annað-
hvort í tengslum við bókhalds-
þjónustuna 'eða bæjarskrif-
stofuna. Þessi þjónusta nái til
símagæslu, vélritunarstarfa, fjöl-
ritunar, Ijósritunar, póstþjónustu,
bankaþjónustu og afgreiðsluþjón-
ustu fyrir einstaka aðila. Stefnt er
að því að tekin verði upp sam-
ræmd þjónusta um reiknings-
færslu, sem allir geta nýtt sér. Þá
verður í húsinu eldtraust skjala-
geymsla og möguleiki er að fela
skrifstofuþjónustu umsjón með
skjalavörzlu. Umfang sameigin-
legrar þjónustu verður ákveðið
eftir því sem reynslan bendir til
að heppilegust sé og einstakir
aðilar telja sig þurfa. Gert er ráð
fyrir að húsnæðið verði í rekstri
Dalvíkurkaupstaðar, og með
eignaraðild annarra aðila, eða í
samstarfi við forleiguaðila í
stjórnsýslumiðstöðinni.
0 Vaxandi áhugi í
Siglufirði og Húsavík
Sumstaðar á landinu hafa verið
byggð svonefnd bæjarhús þ.e.
sameiginlegt húsnæði fyrir starf-
semi viðkomandi sveitarfélags.
Hér er oftast um að ræða húsnæði
fyrir skrifstofur löggæslu,
slökkvilið, fangageymslu og
geymslu. I þessum hópi er ný-
byggingar í Bolungarvík og Höfn
í Hornafirði. 1 þessum byggingum
eru til húsa bæði aðstaða sveitar-
félagsskrifstofu og embættis-
manna ríkisins.
Hér er kominn vísir að stjórn-
sýslumiðstöð, sem eðlilegt er að
útfæra til fleiri þátta. Fyrir
nokkrum árum byggði Húsavíkur-
kaupstaður hús fyrir skrifstofur,
löggæslu, fangaklefa og geymslu.
Þetta húsnæði er orðið of litið.
Möguleikar eru á að byggja tvær
hæðir ofan á þetta hús. Bæjar-
fógetaembættið á Húsavík er i
ónógu húsnæði og svo er um fleiri
þjónustugreinar. Uppi eru hug-
myndir um að kaupa viðbyggt hús
og byggja ofan á bæjarhúsið og
sameina flestar þjónustuskrif-
stofur bæjarins, svo sem bæjar-
skrifstofu og bæjarfógetaskrif-
stofu í eina byggingu, þar sem
mynduð verði stjórnsýslumiðstöð
fyrir Húsavík og Suður-
Þingeyjarsýslu. A Siglufirði var
fyrir nokkrum árum byggð bæjar-
bygging og er aðeins neðsta
hæðin nýtt, sem bókasafn. Nú eru
uppi hugmyndir um að ljúka við
húsið og fá bæjarfógeta inn í
bygginguna og síðan stækka húsið
sem almenna stjórnsýslumiðstöð
fyrir Siglufjörð.
Vfða hafa menn komið auga á
hagkvæmni samstarfs um hús-
næði t.d. er í athugun á Kópaskeri
samstarf milli Samvinnubankans
og héraðsbókasafns um byggingu.
Á Blönduósi er að rísa mikil bók-
hlöðubygging, sem er vísir að
stjórnsýslumiðstöð.
0 Draga verður
úr aðstöðumun
eftir búsetu
Á síðasta Fjórðungsþingi komu
fram ábendingar um að færa
þjónustustarfsemina nær fólkinu.
Hér er einkum átt við hin marg-
víslegu samskipti sýslumanns-
embættanna við almenning, sem
hafa farið mjög vaxandi með til-
komu héraðssjúkrasamlaga og
vaxandi umboðsstarfa. Einnig á
þetta við um framtalsþjónustu frá
skattstofum. sem ekki er eðlilegt
að núverandi umboðsmenn veiti
og því nauðsynlegt að sérhæfðir
starfsmenn annist hver á sínu
svæði. Nú er fyrir dyrum að
dreifa byggingafulltrúum og
bæta þjónustu þeirra. Nauðsyn-
legt er að koma upp bókhalds- og
endurskoðunarþjónustu sem
vfðast. Margt bendir til að sveita-
hreppar þurfi á sameiginlegri
þjónustu að halda. Allt þetta ýtir
undir þörfina á sérstökum stjórn-
sýslumiðstöðvum, þar sem hægt
væri að samhæfa þessa starfsemi
og gefa félagasamtökum. atvinnu-
fyrirtækjum og einkaþjónustu-
aðilum kost á að njóta samstarfs-
ins. Þetta myndi stórlega draga úr
þeim aðstöðumun sem nú er í
þjóðfélaginu til að nýta sér þjón-
ustustarfsemi þess. Jafnframt
gæti þetta orðið verulegur beinn
sparnaður fyrir einstaklinga og
fyrirtæki. Þróun stjórnsýslumið-
stöðva er fyrsti vísirinn að því
sem koma skal. Það er skipuleg
tilfærsla opinberrar þjónustu út
um landið. Það fer mjög eftir
reynslunni af stjórnsýslumið-
stöðvum hvort menn fái trú á því
að veruleg tilfærsla eigi rétt á sér.
0 Stjórnsýslumiö-
stöövar draga úr
búseturöskun
Þegar gerður er samanburður á
því hvert vinnuaflið leitar í þjóð-
félaginu kemur í Ijós miðað við
upplýsingar Þjóðhagsstofnunar
að í þjóðarbúskapnum var opin-
ber þjónusta árið 1973 vinnuafls-
frekasta atvinnugrein þjóðfélags-
ins. Fyrir 10 árum eða 1963 var
almennur iðnaður mannfrekastur
og þar næst verslun og viðskipti,
en opinber þjónusta var í þriðja
sæti. Nú er almennur iðnaður
kominn i þriðja sætið, en versl-
unin heldur sínum hlut í röðinni.
Svonefndar þjónustugreinar þ.e.
verslun og viðskipti, opinber
þjónusta og einkaþjónusta áttu
31.2% í mannafla atvinnugreina
1963 en 1973 var hlutfallið 38.1%.
Á þessu tímabili var aukning
mannára i atvinnugreinum 33%.
I hlut þjónustugreinanna kom
64.5% af aukningu vinnuaflsins.
Þetta svarar til 6 af hverjum 10
mönnum sem leita inn á vinnu-
markaðinn. Af þessari aukningu
fór í opinbera þjónustu um 32.3%
af viðbótar vinnuaflinu.
Sé litið á dreifingu þessa vinnu-
afls milli landshluta kemur í ljós
að Reykjavík er með 62.7% mann-
afla í þjónustugreinum og um
28.7% Reykvikinga lifa á opin-
berri starfsemi, en i Reykjavík
búa rúmlega 39% íbúa landsins.
Dreifing þjónustustarfseminnar
út um landið er byggðanauðsyn
og því er uppbygging stjórnsýslu-
miðstöðvanna liður i baráttu
dreifbýlisins til að rétta við hlut
sinn og skapa meiri aðstöðujöfn-
un i þjóðfélaginu. Þetta er leið i
þeirri baráttu að skapa menntuð-
um starfskröftum skilyrði við sitt
hæfi í heimabyggðum og koma í
veg fyrir atgervisflóttann úr
dreifbýlinu."
STÓRKOSTLEG ÚTSALA HJÁj