Morgunblaðið - 14.01.1976, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. JANUAR 1976
15
Krakkarnir að koma f mat f skófaathvarfið f Austurbæjarskólanum. Fvrir aftan þau standa skólastjór-
inn, Hjalti Jónasson, Sigrfður Sumarliðadóttir, sem er tengiliður milli sálfræðideildanna og skólaat-
hvarfanna, og húsmóðirin Bára Björnsdóttir.
kenna þeim, sögðu kennar-
arnir og húsfreyjan í athvarf-
inu. — Hér læra þau að
umgangast aðra og hætta að
draga sig út úr, ef það er
vandamálið. Við vinnum allt
saman hér, bætir Bára við.
Kennararnir hjálpa mér og
krakkarnir lika. Þau þvo upp,
smyrja brauð, leggja á borðið
o.fl.
Það sýnir kannski best hve
mikil þörf var fyrir athvörf í
skólum, að bórnin, sem sum
áttu í erfiðleikum með að
mæta í skóla, koma strax
klukkan átta í athvarfið, þó
þau eigi ekki að mæta í skóla
fyrr en klukkan eitt. Önnur
koma þar við um leið og þau
fara i skólann klukkan átta,
þó ekki sé til þess ætlast. Og
þau vilja dvelja til klukkan
fimm, þegar lokað er. Eins
sækja aðrir krakkar allmikið á
um að fá að koma En þetta
er að sjálfsögðu ekki almennt
Litið inn í skólaathvarf
Eitt af þremur í borginni
í þremur skólum í
Reykjavíkurborg er nú
annað árið i röð starfrækt
svokallað skólaathvarf.
Þetta góða gamla orð at-
hvarf lýsir mjög vel hvers
konar staður þetta er og
hvers þar er að leita. í orða-
bók Blöndals er orðið skýrt
með danska orðinu „til-
flugt" og sagt að þar sé
hægt að leita hælis eða fá
stuðning og hjálp. Þetta
gera einmitt börnin, sem
eru i athvörfunum við
skólana þrjá, Fellaskóla,
Austurbæjarskóla og Mela-
skóla. Vist i athvarfi er
ákveðin af skólastjórum í
samráði við skólasál-
fræðingana, þegar þörf
þykir, og er hugsað sem
fyrirbyggjandi starf, þ.e. að
taka á vandanum áður en
hann verður meiri og
erfiðari. Og þessi skólaat-
hvörf hafa þegar gefist
ákaflega vel.
— Þetta er bezta framtak,
sem fræðsluyfirvöld hafa
gert, síðan ég byrjaði að
kenna, sagði Hjalti Jónas-
son, skólastjóri Austurbæjar-
skólans, er við litum inn í
athvarfið þar, sem er til húsa
i syðri álmunni, þar sem áður
var skólastjóraíbúð. Hjalti
kvaðst hafa verið svolitið tor-
trygginn á þetta, þegar það
byrjaði i fyrrahaust, en hann
hefði fljótt séð að það er
mjög gott og nauðsynlegt.
Kvaðst hann vilja taka djúpt í
árinni við að hrósa fræðslu-
stjórn fyrir þetta framtak. At-
hvörf þyrftu bara að vera við
hvern skóla i framtíðinni —
Og auðvitað byggist þetta á
þvi hvilíkt afbragðsfólk hefur
verið hér i athvarfinu, bætti
hann við.
>— Það hefur ekki komið
eitt einasta barn í athvarf,
sem ekki hefur haft gott af að
vera þar, bætti Sigríður
Sumarliðadóttir við, en hún
starfar sem tengiliður milli
athvarfanna og sálfræðideild-
anna og hefur mikla þekk-
ingu á ýmsum vandamálum
skólabarna i Reykjavík.
Við litum um hádegið inn i
athvarfið í Austurbæjar-
skólanum, því þá eru flest
börnin á staðnum. Kennar-
arnir, sem skipta með sér að
vera í athvarfinu og hjálpa
með lexíur og starf, þeir Ólaf-
ur Hólm og Guðmundur Sig-
hvatsson, voru þar báðir og
auðvitað húsmóðirin, Bára
hér venjulega við, sagði hún
eins og afsakandi
En það er ekki bara matur,
sem veittur er i athvarfinu og
sem þörf er fyrir. Það er hlýja
og stoð. — Við reynum að
gera það fyrir börnin, sem
gert er á góðu heimili, veita
þeim hlýju, ala þau upp og
dagheimili eða mötuneyti,
heldur eingöngu fyrir þau
börn, sem skólastjóri og sál-
fræðingurinn telja að þurfi á
athvarfi að halda. Ástæðurn-
ar geta verið margvíslegar,
erfiðleikar á heimilunum, að-
lögunarerfiðleikar barnsins
og fleira. En athvarfið er
Krakkarnir læra lexfurnar sfnar f athvarfinu undir umsjá kennara eða dunda við annað, þegar það er
búið.
Björnsdóttir. Börnin voru
ýmist að koma úr skóla eða
fara í skólann. En þau borða
öll saman i athvarfinu um
hádegið. Þau sem eru á
morgnana í skóla, dvelja svo
síðdegis í athvarfinu, fá hjálp
með lexíurnar sínar og una
sér við verkefni til klukkan
fimm. En þau börn sem fara í
skólann eftir hádegi, koma
að morgninum klukkan 8, fá
morgunverð og dvelja fram
að hádegi. í hvorum hópi eru
8 börn, á aldrinum 7 til 13
ára. Fleira er þó oft í mat hjá
Báru, því stöku börn úr
hjálparbekkjunum, sem
koma lengra að og komast
ekki heim til sin i hádeginu,
fá þar hádegismat suma
daga, geta þá orðið upp í 22
við borðið Eins kemur Bára
yfirleitt 1 5 minútur yfir átta,
til að geta gefið þeim börn-
um, sem eru að fara í
kennslustund eitthvað áður
en þau byrja. — Mér finnst
ekki hægt annað. Þau koma
hugsað sem fyrirbyggjandi
aðferð, til að grípa inn í strax
ef bólar á vanda. Þarna fá
börnin félagslega og tilfinn-
ingalega heppilegan bak-
hjarl.
Þetta er einn liðurinn í all-
viðtæku hjálparstarfi, sem
fræðslustjórn Reykjavikur
hefur að undanförnu verið að
byggja upp. Skipa fyrirbyggj-
andi aðgerðir sívaxandi sess
þar og létta um leið af með-
ferðarheimilunum síðar.
Enda öll hjálp erfiðari og
dýrari með vaxandi og rót-
grónari vanda. Félagsleg að-
stoð við börn er sexþætt í
fræðslukerfinu Hjálparbekkir
eru í skólunum fyrir þá sem
erfitt eiga í námi í svo-
nefndri athvarfsiðju aðstoða
kennararnir nemendur i sér-
stökum tímum í skólunum
við hliðina á venjulegri
kennslu Er það annars eðlis
en athvörfin, sem hér var
lýst en i athvarfinu er oftast
um skammtimadvöl að ræða.
Séu erfiðleikarnir meiri en
þetta og skólasálfræðingarnir
telja ástæðu til, er rekið
heimili fyrir börn með ýmiss
konar sérvanda í Bjarkarhlíð.
Og meðferðarheimili í
Laugarásnum, þegar grípa
þarf til enn róttækari ráð-
stafana. Þá er Geðdeild
barnaspítala Hringsins við
Dalbraut fyrir börn með geð-
rænan vanda, sem er enn
annars eðlis. Skólaathvörfin
eru í skólunum sjálfum og
árlegur starfstími sá sami og
skólanna. Eins og skóladag-
heimilanna, sem líka eiga að
uppfylla aðra þörf, þ.e. dag-
vistun, þar sem foreldrar eru
ekki heima á daginn.
Þegar okkur bar að garði,
var uppi fótur og fit í skóla-
dagheimilinu i Austurbæjar-
skólanum. Keypt höfðu verið
leikföng, sem mjög hafði
skort og allir hópuðust í kring
um kennarana. Krakkarnir
settust að púsluspilum, sem
eru þeirrar náttúru, að kenna
um leið og leikið er nöfn á
fuglum og.dýrum á islenzku
og ensku, því kennararnir
reyna að blanda saman
fræðslu og margs konar leik
og iðju. Ekki gafst þó tími til
annars en að skoða þessi
leikföng i hádeginu, en síðan
voru þau lögð til hliðar til
betri tíma Og allir krakkarn-
ir, sem spurðir voru, sögðu
að þarna væri voða gott að
vera. — E.Pá
Ljósm Frióþ.jófur
Máltfðinni er að Ijúka. Kennararnir Guðmundur Sighvatsson og Ólafur Hólm sitja við borðsendann of
Bára ber á borð.