Morgunblaðið - 14.01.1976, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. JANÚAR 1976
21
fclk í
fréttum
+ Eftirfarandi frásögn
er lauslega þýdd úr
dönsku blaði og er höfð
eftir bandarískri konu,
Constance Bernstein,
sem gift er dönskum
„víkingi44. Þau hjónin
hafa tvö undanfarin ár
eytt vetrarfríi sínu við
skíðaiðkanir, í síðara
skiptið við tilhlýðilegar
aðstæður — þó ekki
gengi það alveg snurðu-
laust:
Eftir art hafa lifað af fyrri
skíðaferðina okkar, og búa þó I
tjaldi allan tímann, sór ég þess
dýran eið, að í þeirri næstu
skvldi ég aldrei fá nóg af því að
svamla I heitu rennandi vatni,
sofa f dúnmjúku rúmi og borða
með hníf og gaffli. Og svo dró
ég sauðþráan vfkinginn minn
með mér inn á ferðaskrifstofu
(hann gekk með þá grillu f
höfðinu að allra skemmtilegast
væri að búa f snjóhúsi) og við
pöntuðum dýrustu skíðaferðina
til Saalbach f Austurrfki.
t þetta sinn var ég á heima-
velli og lék á als oddi — á
dýrasta hótelinu f bænum, —
hvílfk dásemd. Eigandinn
hafði farið f eigin persónu til
Lundúna og keypt eftirlfkingar
af húsgögnum og skrautmun-
um frá Viktorfutímanum. Og
ekki dugði minna en Viktorfa
gamla héngi tignarlega inn-
römmuð uppi á vegg f barnum
og fvlgdist vökulum augum
BO'BB & BO
að mafa )
EÍNN) 3
íK ENN U_J ^
Mœjorka skíðamanna
með þvf, að allt færi nú sóma-
samlega fram. Henni hefur
áreiðanlega ekki fundizt viðeig-
andi að fólk skvldi striplast
svona fvrir framan nefið á
henni, hálfnakið eða sveipað í
handklæði, þegar bezt lét. En
auðvitað vissi hún ekki, að mað-
ur varð að fara í gegnum bar-
inn til þess að komast fram á
baðherbergi, það var eina leið-
in þangað. — Það leiðinlega við
Dani er að þeir eru svo gjör-
snevddir þokka! sagði konan
sem átti hótelið við mig kvöld
eitt. Þarna átti hún áreiðanlega
við skfðamennskuna, hugsaði
ég; eða hafði hún séð hvað ég
var klaufsk við að ná sundur
rúnstvkkinu mínu við morgun
verðarborðið ... eða hafði
henni borizt það til evrna að við
svæfum á gólfinu fvrir opnum
dvrum og með alla glugga upp
á gátt? En hvernig átti ég að
útskýra það fvrir konunni, að
vfkingurinn minn væri ennþá
með það á heilanum, að hann
byggi f tjaldi. Hún hélt áfram:
— ... og fólk tekur ekki einu
sinni tillit til þess, að ég hef
lagt blátt bann við þvf að það
drekki á herbergjunum.
— Nú, þarna kom það. Hún
hafði séð tómu wiskýflöskurn-
ar okkar f skápnum, hugsaði ég,
um leið og hún hélt áfram: —
Sjáðu bara, um leið og Danirnir
eru búnir að borga lyftukortin,
þá er eins og þeir séu orðnir
algerlega uppiskroppa með
peninga, og ég sé þá sárasjald-
an á barnum eða í nætur-
klúbbnum á hótelinu. Hún and-
varpaði: — Það er allur par-
dómur úr þessum ferðamönn-
um nú orðið ...
Eg var að hugsa um að skjóta
þeirri spurningu inn f, hvort
hún væri e.t.v. að mælast til
þess, að ég klæddist viktorf-
önskum skfðabuxum, þegar
hún talaði um þokka og par-
dóm. En hún var ekki af baki
dottin: — og þó að Svfarnir
drekki mcira og séu sfkvart-
andi vfir matnum, þá er meiri
þokki vfir klæðaburði þeirra og
þeir eru betri skfðamenn en
Danir.
t næstu skíðaferð okkar
hjóna ætla ég að hressa upp á
þokkann hjá mér og skipta á
stuttbuxunum mfnum og
draumfögrum skíðabúningi —
taka wiskýflöskuna með mér út
í skfðabrckkuna og verða
þokkafull.
vos-/2 * >y
UWD
— Námslánin
Framhald af bls. 19
að 50—70% af útlánuðu fé skilist í
raungildi aftur til sjóðsins, verði þessar
tillögur að veruleika Er það ekki lægra
hlutfall en aðrar tillögur myndu skila
og sennilega eru vandfundin þau lán í
islensku þjóðfélagi sem betri heimta er
á
Þegar þessar tillögur voru mótaðar,
mörkuðu þær nokkur þáttaskil f lána-
málum Þær mættu strax harðri and-
stöðu margra námsmanna, og þótti
sumum sem hér væri slæleg kjarabar-
átta á ferð, þar sem fallist væri á
heildarherðingu endurgreiðslna, en
öðrum var greinilega í nöp við þau
jafnréttissjónarmið sem þar komu
fram
Siðan hefur nokkuð dofnað yfir and-
stöðunni Menn hafa linast í þvi að
heimta sömu hagstæðu kjörin og nú
eru, sumpart vegna þess að þeir sjá,
hve illa er stætt á því með tilliti til
væntanlegra hátekna sumra mennta-
manna, sumpart vegna hins eindregna
vilja rikisvaldsins að herða heildar-
endurgreiðslur Þó er enn hægt að
finna menn sem eru andsnúnir því að
taka mismikið í endurgreiðslur af
mönnum, eftir þvi hvaða tekjur þeir
hafa að námi loknu Slíkir menn eru
hlynntir launamismun, en vilja þó ekki
taka tillit til hans við ákvörðun endur-
greiðslna, og er grein formanns Vöku i
nýútkomnu Vökublaði gott dæmi um
þetta sjónarmið
Stjórn Vöku hefur samið tillögur um
endurgreiðslur, og einnig hafa tekið
sig til tveir af forystumönnum þess
félags og gert enn aðrar tillögur Þá má
telja vist að fjölmargir einkum meðal
námsmanna erlendis, vilja halda fast í
þá stefnu að halda beri núverandi
hagstæðum kjörum
Mikill meirihluti námsmanna hefur
þó tekið afstöðu með tillögum SHÍ Má
þar nefna meirihluta stúdenta við H í ,
nær öll önnur námsmannasamtök á
íslandi og töluverðan hluta náms-
manna erlendis. Á ráðstefnu náms-
mannasamtakanna 22. — 23 nóv sl
var þessi stefna samþykkt með yfir-
gnæfandi meirihluta og telst hún þvi
stefna islenskra námsmanna. Hefur
Kjarabaráttunefnd námsmanna gert
þessar tillögur að sínum
Kjartan og Eiríkur
Tveir forystumenn Vöku, Kjartan
Gunnarsson og Eirikur Þorgeirsson,
kynntu i Morgunblaðinu 21 • nóvem-
ber tillögur sinar um „nýskipan náms-
aðstoðar". í stuttu máli gera þær ráð
fyrir að allir námsmenn hljóti styrk,
sem samsvari 2 5 þúsund á hvern
námsmánuð nú Jafnframt verði tekið
nokkuð — en óverulegt — tillit til
aðstæðna námsmanns, þ e fjölskyldu-
stærðar og tekna Þessu til viðbótar
geta allir fengið lán upp að fullri fjár
þörf og verði þau verðtryggð Við
endurgreiðslur þeirra verði ekki farið
eftir ákveðnum reglum varðandi
greiðslugetu, heldur aðeins möguleiki
á einstaklingsbundnum tilslökunum
Þessar tillögur ganga út frá þeirri
staðreynd að allir sem um málið hafa
fjallað, bæði þingmenn og forystu-
menn námsmanna, telja eðlilegt að
hluti námsaðstoðar skilist ríkinu aldrei
Þennan styrk vilja þeir félagar festa
þannig i sessi, að hann verði jafn há
upphæð til allra námsmanna
Námsmenn hafa almennt ekki fallist
á þessar tillögur Kjartans og Eiriks
Menn hafa bent á að þetta fyrirkomu-
lag kæmi þeim best sem litla fjárþörf
hafa. Það eru atriði eins og miklar
tekjur, aðstoð úr foreldrahúsum og
engin börn, sem valda því að fjárþörf
verður litil Bent hefur verið á, að
menn í góðri þjóðfélagslegri aðstöðu
muni geta látið sér nægja að hirða
styrkinn, jafnvel án þess að þurfa raun-
verulega á honum að halda Hins
vegar verði námsmenn með mikla fjár-
þörf, þ e. án styrks úr foreldrahúsum,
með miðlungstekjur eða minna og með
börn á framfæri að taka mikið visitölu-
bundið lán Það getur síðan alltaf gerst
að slikir menn lendi i tiltölulega lágum
tekjuflokki að námi loknu og endur-
greiðslur verði þeim þung byrði
Það er Ijóst að það munar ekki miklu
á tillögum Kjarabaráttuncfndar og Ei-
ríks og Kjartans, hvað snertir þá
greiðslubyrði sem lenda mundi á ríkis-
sjóði Hins vegar munar miklu hvar
hún mundi lenda meðal námsmanna.
Samkvæmt tillögum Kjarabaráttu-
nefndar lendir hún hjá þeim sem hafa
lágar tekjur að námi loknu og hafa þvi
ekki haft fjárhagslegan ábata af námi
sínu, en hjá Kjartani og Eiriki dreifist
hún meðal allra námsmanna, án tillits
til þarfa þeirra meðan á námi stendur
og án tillits til tekna þeirra að námi
loknu.
Tillögur Ellerts
Ellert Schram, þingmaður og fulltrúi
í nefnd um endurskoðun námslána,
hefur nú sett fram tillögur um nýskipan
námslána. í stuttu máli gera þær ráð
fyrir tvískiptingu lána Námsmönnum
verður gefinn kostur á lánum, sem
nema ákveðinni, fastri upphæð eða
helmingi af meðalumframfjárþörf, og
verði vextir af þeim 4/5 af útlána-
vöxtum banka Síðan geti menn tekið
vísitölubundin lán til að fylla upp í
einstaklingsbundna fjárþörf Lánin
endurgreiðist með jöfnum afborgunum
á 20 árum, þó nemi afborgunin aldrei
meiru en 10% heildartekna
Það er erfitt að meta, hve mikið
muni skilast í ríkissjóði i raungildi skv.
þessum tillögum í fyrsta lagi er óvist
um þróun útlánavaxta banka, saman-
borið við verðbólgu en sú þróun
ræður úrslitum um það hve mikið
skilast af fyrri lánum í öðru lagi er
óvist, hve 10% þakið mun skerða
endurgreiðslur mikið og i þriðja lagi er
vandséð að hve miklu leyti menn yrðu
borgunarmenn fyrir þeim endurgreiðsl-
um sem þeim yrði gert að standa
undir. Er hæpið að áætla að lánakerfi
Ellerts mundi færa Lánasjóði meiri
endurgreiðslur en kerfi Kjarabaráttu-
nefndar
Hitt skiptir meira máli að þessar
endurgreiðslur munu leggjast mjög
óréttlátlega á menn Maðurinn með
mestu fjárþörfina á meðan á námi
stendur, þarf að taka mestan hluta af
láni sinu með fullum vísitöluvöxtum, á
meðan sá sem nýtur aðstoðar aðstand-
enda getur sleppt þvi algerlega að taka
þann hluta lánsins Öll lán munu síðan
rýrna að e-u leyti þar til þau ,ri
endurgreidd, og mun það auðviioj
koma hátekjumanninum vel, en þau
munu hins vegar ekki rýrna meira en
svo að þau yrðu lágtekjumönnum
byrði
Að lokum
Þess ber vandlega að gæta, að
námslán eru ekki lán i venjulegum
skilningi Þau eru tæki til jöfnunar á
aðstöðu og jafnframt viðurkenning á
því vinnuframlagi sem nám er Þannig
mætti álykta að námslaun væru rök-
réttari en námslán En, eins og áður er
vikið að, leiðir nám oft til þess að
menn hljóta hærri laun en þeir sem
ekki hafa lokið námi Því hefur náms-
mönnum, eins og flestum öðrum, þótt
eðlilegt að námsmenn skuli endur-
greiða námsaðstoðma Það er hins
vegar staðreynd, sem ekki verður
gengið fram hjá, að mikill launamunur
ríkir meðal langskólagenginna manna
eftir stéttum og starfsgreinum, án þess
að þar liggi endilega til grundvallar
þjóðhagslegt mikilvægi viðkomandi
starfa Það má lita svo á, að þar sem
langskólagengnir menn hafa tiltölulega
lágar tekjur, hafi nám þeirra ekki orðið
þeim til fjárhagslegs ábata, án þess að
nokkuð samræmi þurfi að vera við það
gagn sem þjóðfélagið hefur af mennt-
un mannsins. Því gildir ekki áðurnefnd
röksemd fyrir lánum i stað launa
Tillögur Ellerts, Kjartans og Eiríks og
stjórnar Vöku ganga allar fram hjá
þessum grundvallandi staðreyndum
um kjör námsmanna og mennta-
manna Það er gjörsamlega litið fram
hjá þvi, að nám leiðir ekki alltaf til
fjárhagslegs ábata, en hlýtur þó ávallt
að teljast þjóðfélaginu ávinriingur
nema í undantekningartilvikum Nái
t d tillögur Ellerts fram að ganga, leiða
þær til þess, að námsmaður, sem
verður að taka fullt námslán, neyðist til
að velja sér nám, sem gefur eitthvað i
aðra hönd siðarmeir Sá sem getur
notið aðstoðar frá foreldrum þarf ekki
um slíkt að hugsa. Því væri um að
ræða bæði stórhættulega stýringu á
námsvali og stórt skref frá því marki
sem er jöfnun á aðstöðu til náms.
Niðurstaða mín er þvi sú, að ekki
hafi komið fram aðrar hugmyndir en
tillögur Kjarabaráttunefndar, sem bæði
séu i samræmi við upphaflegan tilgang
námslána og tryggi veruleg skil á
endurgreiðslum þeirra Ég hlýt að líta á
aðrar tillögur, sem hér hafa verið rakt-
ar, sem stórhættulegar og skref aftur á
bak i sögu opinberrar námsaðstoðar á
íslandi
Að lokum vil ég þó minna á það, að
spurningin um framtíðarskipun opin-
berrar námsaðstoða" á íslandi má alls
ekki verða til þess að það gleymist að
námsmenn þurfa lika að éta á þessum
vetn Það er höfuðkrafa islenskra
námsmanna um þessar mundir að
opinber námsaðstoð verði ekki skert
frá þvi sem verið hefur
Gestur Guðmundsson
formaður stúdentaraðs H.í.