Morgunblaðið - 14.01.1976, Page 26
26
Morg vnbla^
^ÍÐVíKUDAGUR 14. JANÚAR 1976
LEIKMðMIl BOÐIÐ ÖKEYPIS
HdSMfil, BIFREIÐ OG LANA-
FYRIfiGREIDSLA FYRIR Afi
SEGJA SKILIÐ VIO ÍBV-LIBIB
— ÞVl ER ekki að leyna að það er
gífurlegur urgur f mönnum hér
vegna tilrauna einstakra liða til
þess að ná leikmönnum frá okk-
ur, sagði Hermann Jónsson for-
maður Knattspyrnuráðs tBV f
viðtali við Morgunblaðið f gær. —
Alvarlegast er þó að okkar áliti,
að það skuli vera stjórnarmaður f
KSl sem á þarna m.a. hlut að
máli, en hann hefur haft sam-
band við leikmenn hér fyrir
ákveðið félag og gert þeim gylli-
boð, vildu þeir ganga til liðs við
það. Við urðum varir við það f
fyrra, þegar við féllum f 2. deild
að ýmsir gátu ekki dulið ánægju
sfna vfir þvf, en við höfðum satt
Örn Óskarsson
að segja gert okkur vonir um að
vera látnir f friði með mannskap-
inn, sagði Hermann.
Það munu fyrst og fremst vera
tveir leikmenn Vestmannaeyja-
liðsins sem mörg félög sækjast
mikið eftir. Eru það þeir Ólafur
Sigurvinsson og örn Óskarsson.
Þá mun einnig hafa verið rætt við
nokkra aðra leikmenn ÍBV-
liðsins, og þess freistað að fá þá til
þess að hafa félagaskipti.
— Leikmönnunum eru boðin
gull og grænir skógar, sagði Her-
mann í viðtalinu við Morgunblað-
ið. — Þannig hljóðar t.d. eitt til-
boðið upp á ókeypis afnot af íbúð,
Ólafur Sigurvinsson
bifreið og lánafyrirgreiðslu í
bönkum, ef viðkomandi þyrfti á
því að halda. Þetta álítum við
mjög alvarlegt mál þegar svo er
komið þá er ekki langt skrefið út f
atvinnumennskuna, en sem kunn-
ugt er þá samræmist hún ennþá
ekki reglum Iþróttasambands Is-
lands.
Hermann kvaðst vona að leik-
mennirnir færu ekki, — ég veit
reyndar nokkurn veginn að annar
þeirra sem mest hefur verið látið
utan í ætlar sér alls ekki að fara.
Þá sagði Hermann að hann vissi
enn ekki til þess að neinn þeirra
leikmanna sem lék með IBV-
liðinu í fyrra ætlaði sér að hætta,
en það myndi skýrast betur þegar
æfingar hæfust. ÍBV-liðið hefur
enn ekki ráðið sér þjálfara og
sagði Hermann að það yrði senni-
lega ekki gert fyrr en eftir árs-
þing IBV sem haldið yrði í febrú-
ar. — Mér virðist mikill hugur f
strákunum og þeir ætla sér ekki
að vera nema þetta eina ár í 2.
deildinni, sagði Hermann.
Þegar Hermann var spurður að
því hvort nokkuð hefði komið til
tals að skipta IBV-Iiðinu og keppa
framvegis undir merkum Þórs
og Týs, sagði hann að raddir
hefðu heyrst um það eftir fallið í
2. deild í fyrrasumar, en þær
væru nú löngu hljóðnaðar. — Ég
tel því ákaflega ólíklegt að það
verði gert, sagði Hermann, —
enda hefur samkomulagið milli
félaganna alltaf verið einstaklega
gott.
Þrír úrslitaleikir í
Laugardalshöll í kvöld
1 KVÖLD fara fram í Laugardals-
höllinni tveir mjög þýðingarmikl-
ir leikir f 1. deildar keppni Is-
landsmótsins f handknattleik
karla, og sennilega úrslitaleikur-
STAÐAN
Staóan f 1. deildar keppni fslandsmótsins f
handknattleik karla, fyrir leikina f kvöld, er
þannig:
Valur 7 5 1 1 135:103 11
FH 8 5 0 3 174:156 10
Haukar 9 4 2 3 168:156 9
Fram 8 3 1 3 126:125 8
Vfkingur 8 4 0 4 165:166 8
Þróttur 9 3 2 4 167:177 8
Armann 8 2 1 5 131:170 5
Grótta 7 2 0 5 121:134 4
Markhæstu leíkmenn í deildinni eru:
Friðrik Frióriksson, Þrótti 55
Páll Björgvinsson, Vfkingi 52
Höróur Sigmarsson, Haukum 47
Þórarínn Rangarsson, FH 40
inn f 1. deildar keppni kvenna f
handknattleik. Liðin sem eigast
við f 1. deild karla eru Armann og
Grótta annars vegar og Valur og
Fram hins vegar og f 1. deild
kvenna leiða Valur og Fram sam-
an hesta sfna.
Leikur Vals og Fram í kvenna-
flokki hefst kl. 19.15 og eins og
jafnan þegar þessi lið mætast má
búast við mjög tvísýnum og
skemmtilegum leik. Er þess
skemmst að minnast að -þegar
þessi félög mættust í úrslitaleik
Reykjavíkurmeistaramótsins á
dögunum var jafntefli eftir
venjulegan leiktíma, en í fram-
lengingunni tókst Valsstúlkunum
að vinna sigur. Óneitanlega eru
Valsstúlkurnar sigurstranglegri í
leiknum í kvöld, en árangur
þeirra hefur verið með ágætum
að undanförnu, og nægir þar að
nefna til hina miklu keppni sem
þær veittu einu bezta kvennaliði á
Norðurlöndum, HG, í Evrópubik-
arkeppninni á dögunum.
Leikur Armanns og Gróttu sem
hefst kl. 20.15 er baráttan á botn-
inum í deildinni. Eins og er
standa Ármenningar þar heldur
betur að vígi, eru með einu stigi
meira en Grótta. En slakur Ieikur
Ármenninga á móti FH á sunnu-
dagskvöldið bendir til þess að lið-
ið eigi við ýmis vandamál að etja,
og víst er að það verður að leika
betur en það gerði þá til þess að
sigra Gróttu. Það lið sem tapar
leiknum í kvöld stendur óneitan-
lega illa að vfgi í deildinni, og má
því búast við að leikmenn beggja
liða leggi sig alla fram.
Leikur Vals og Fram hefst kl.
21.30. Valsmenn standa nú lang-
bezt að vígi í deildinni, og spurn-
ingin í leiknum í kvöld er fyrst og
fremst sú, hvort Fram tekst að
koma í veg fyrir að Valsmenn nái
slíkri forystu í mótinu, að þeir
verði komnir með aðra höndina á
Islandsbikarinn. Framsigur í
leiknum í kvöld myndi opna stöð-
urra í mótinu nokkuð, þótt Vals-
menn stæðu þar reyndar bezt að
vígi eftir sem áður.
Lét hendur skipta eftir
tapleik í3. deildinni
ÞAÐ er ekki síður fjör og spenna
í 3. deild íslandsmótsins í hand-
knattleik heldur en í 1. og 2.
deild, og óhætt er að fullyrða að
nokkur liðanna sem skipa deild
þessa gefa 2. deildar liðunum lítið
eftir. Að öllum líkindum mun
slagurinn um sigur í Suðurlands-
riðlinum standa milli HK úr
Kópavogi, Stjörnunnar úr Garða-
hreppi og Aftureldingar úr Mos-
fellssveit, en Skagamenn eiga
einnig möguleika á að blanda sér í
þá baráttu.
Um helgina fóru fram tveir
leikir í deildinni. Fyrst léku IiK
og Akranes í hinu nýja og glæsi-
lega fþróttahúsi Skagamanna og
fóru leikar svo, að HK sigraði f
leiknum 20—18. Fékk Kópavogs-
liðið litla hvíld, þar sem það
þurfti að leika við Stjörnuna á
sunnudaginn. Sá leikur var næsta
sögulegur. Lyktaði honum með
sigri Stjörnunnar 20—19 og var
sigurmarkið skorað þegar örfáar
sekúndur voru til leiksloka. Rann
berserksgangur á einn leikmanna
HK-liðsins við mótlæti þetta og lét
hann hendur skipta. Sló einn leik-
manna Stjörnunnar, sparkaði i
annan og hrinti þjálfaranum.
Munu dómarar leiksins gefa
skýrslu um mál þetta, en sem
kunnugt er þá er engin aganefnd
starfandi innan HSI og því óséð
hvort hann muni hljóta refsingu
fyrir þetta tiltæki sitt.
Oppsal lenti í erfiðleikum
NORSKU bikarmeistararnir I handknattleik, Oppsal. lentu í
miklum erfiðleikum f fvrri leík sfnum við belgfsku bikarmeist-
arana Seraing um sfðustu helgi. tlrslit leiksins urðu 11—9 sigur
Norðmannanna, og kom það mjög á óvart hvað Belgfumennirnir
veittu þeim mikla keppni, en sem kunnugt er þá hefur hand-
knattleíkur til þessa ekki verið hátt skrifaður f Belgfu. Staðan í
hálfleik var 5—4 fvrir Belgfumennina, eftir að þeir höfðu
komizt f 4—1 um miðjan hálfleikinn. Oppsal náði fvrst forvstu á
tölunni 8—7 og hafði eftir það forystu f leiknum. Mörk norska
liðsins skoruðu: Allan Gjerde 4, Kristen Grislingaas 2, Terje
Andersen 2, og Jan Berg 2. Maður leíksins var þó öðrum fremur
markvörður norska liðsins, Pál Bye, sem varði frábærlega vel í
leiknum og bjargaði hreinlega sigrinum fvrir norska liðið.
Norðmenn segja að vörn belgfska liðsins hafi verið mjög góð
og yfirleitt kunnátta þess langtum meiri en þeir áttu von á.
Belgfumennirnir komust f aðra umferð keppninnar með þvf að
sigra ensku meistarana samtals með 79 mörkum gegn 24, en
Oppsal líðið sló FH-inga út f fyrstu umferð, svo sem kunnugt er.
Piero Gros í íorjstu
EFTIR skfðamót sfðustu helgar stendur stigakeppni heímsbik-
arkeppninnar þannig að Piero Gros frá Italfu er með forvstu og
hefur hann hlotíð 120 stig. 1 öðru sæti eru Ingemar Stenmark
frá Svíþjóð og Franz Klammer frá Austurrfki, báðir með 106
stig, en röð næstu manna er sfðan sem hér segir: Gustavo
Thoeni, ttalfu, 72 stig, Herbert Plank, Italíu, 71 stig, Philippe
Roux, Sviss, 63 stig, Hans Hinterseer, Austurrfki, 58 stig,
Bernard Russi, Sviss, og Fausto Radici, ttalfu. hafa 44 stig. Jim
Hunter, Kanada, er með 33 stig, Christian Neureuther, V-
Þýzkalandi, 30 stig, Ernst Good, Sviss, 28 stig og með 25 stig eru
Engelhard Pargaetzt, Sviss og Ken Read frá Kanada.
Adamson fer frá Burnley
JIMMY Adamson hefur látið af störfum sem framkvæmdastjóri
enska 1. deíldar liðsins Burnlev, eftir nálega 30 ára störf fvrir
félagið. Engin ástæða var gefin upp fvrir þvf að Adamson
hverfur frá félaginu, en vitað er, að óánægja hefur verið með
störf hans að undanförnu, en slfkt vill oft verða þegar illa
gengur, en sem kunnugt er þá er Burnley nú við botninn í 1.
deildar keppninni og hefur aðeins unnið fjóra leiki á þessu
keppnístfmabili. Adamson hóf feril sinn hjá Burnley árið 1947,
er hann var leikmaður með félaginu, og var hann m.a. f liðinu
sem lék til úrslita um bikarmeistaratitilinn árið 1962. Sem
framkvæmdastjóri hefur hann verið hjá Burnley I sex ár.
Vlarkhæsíir í Englandi
EFTIRTALDIR leikmenn eru nú markhæstir f ensku knatt-
spyrnunni:
1. DEILD: MÖRK
Ted MacDougall, Norwich 20
Dennis Tueart, Manehester City 18
John Ducan, Tottenham Hotspur 17
Alan Gowling, Newcastle 17
Peter Noble, Burnley 15
Dunacan McKenzie, Leeds 14
2. DEILD:
Derek Hales, Charlton 15
Paul Cheeslev, Brístol Citv J4
I 3. deild er Fred Binney úr Brighton markhæstur með 17
mörk og f 4. deild er Ronnie Moore úr Tranmere markhæstur
með 26 mörk og þar er Brendan O’Callaghan úr Doncaster í
öðru sæti með 20 mörk.
Mmenn sigrnðu í Sviss
NORÐMENN sigruðu örugglega í 4x10 kílómetra skfðagöngu
sem fram fór f Le Brassus í Sviss um helgina, og var það mest að
þakka frábærri frammistöðu Magne Mvrmo sem gekk enda-
sprettinn fvrir Norðmenn og náði langbeztum tfma allra kepp-
endanna. Tfmi norsku sveitarinnar var 2:08,52,6 klst. og f henni
auk Mvrmo voru þeir Lars-Erik Eriksen, Tore Gullen og Ovvind
Sandholt. Þessir menn eiga að keppa fvrir Norðmenn í boð-
göngu á Olvmpfuleikunum í Innsbruck og er norska sveitin
talin mjög sigurstrangleg þar.
1 öðru sæti í keppninni f Le Brassus varð sveit Sviss sem gekk
á samtals 2:09,06,0 klst. en f sveitinni voru Franz Renggli, Edi
Hauser, Albert Giger og Alfred Kælin. Sveit Italíu varð f þriðja
sæti á 2:12,20,1 klst., B-sveit Sviss f fjórða sæti á 2:13,06,0 kist.
og f fimmta sa‘ti varð sveit Frakklands á 2:13,47.4 klst.
Kovacs fer til Rnmeníu
RÚMENSKI knattspyrnuþjálfarinn Kovacs, sem á sfnum tfma
gerði hollenzka knattspvrnufélagið Ajax að stórveldi, og tók
síðan við þjálfun franska knattspvrnulandsliðsins, hefur nú
snúið aftur heim til Rúmenfu, þar sem hann mun taka við
þjálfun landsliðs Rúmena. Fær Kovaes þar ærið að starfa þar
sem gengi rúmenska liðsins hefur ekki verið mikið að undan-
förnu. Liðið náði ekki að komast í úrslit f Evrópubikarkeppni
landsliða og tapaði sfðan fyrsta leik sínum í Olympíuundan-
keppninni 0—4 fyrir Frakklandi.
Ekki mun hafa verið mikil ánægja með Kovacs sem landsliðs-
þjálfara f Frakklandi, og einkum og sér f lagi var hann harðlega
gagnrýndur eftir jafnteflísleik Frakka við tslendinga hér á
Laugardalsvellinum f fyrravor.