Morgunblaðið - 14.01.1976, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. JANUAR 1976
27
— Stórtjón á mannvirkjum
Sléituheiði
c:.
ÍUL3 ÁUY
ír Lundey á!
A'N'DI <6V" '‘"’OÚheið.i |J
/Méðinthðfði/
0:512'
O Tgris
^CJ
* O'
i ; ''fía'krrsstnAi r
Svarti flöturinn sýnir upptök skjálftans um 12 km suðvestur af
Kópaskeri. Krossinn vfsar ð Presthóia en þar er gamail gígur sem fólk
taldi sig sjá að hefði splundrast.
Framhald af bls. 1
I kaupfélagi Norður-Þing-
eyinga er Almannavarnanefnd að
störfum, auk nokkurra kvenna og
um 30 karla, sem enn eru við
skyldustörf i þorpinu. Þar hittum
við að máli Friðrik Jónsson, odd-
vita Presthólahrepps, en Kópa-
sker er í þeim hreppi, og spurðum
hann nánar um ástandið í sveitar-
félaginu. Friðrik sagði: „Staðan
er mjög óljós, eins og nú er. Við
lítum á þetta sem ólag hafi riðið
yfir bátinn, en við gefumst ekki
upp. Við byrjum strax að skipu-
leggja uppbygginguna. Það er
óljóst hversu mikið tjónið hefur
orðið, en það skiptir tugum, ef
ekki yfir hundruðum milljóna
króna. Ef litið er á íbúðarhúsin í
bænum, er vafasamt að 3 hús séu
íbúðarhæf lengur. Mörg ný hús
hafa sprungið illa, veggir þeirra
hafa rifnað, jafnframt því sem
jörðin sprakk. í mörgum húsanna
eru rifur 1—3 sm á breidd. Segja
má að meirihluti húsanna i bæn-
um hafi skemmzt meira eða
minna.“
JÖRÐIN RIFIN OG TÆTT
Friðrik var spurður að því
hvort búið væri að kanna nánar
verksummerki í jarðveginum í
kring. „Jörðin er óskaplega rifin
og tætt,“ svaraði hann, „og liggja
sprungurnar þvers og kruss. Það
hefur rifnað upp úr klaka, jörðin
misgengið og sigið 15—25 sm.
Misgengið á bryggjunni er líklega
30—40 sm."
Friðrik var spurður, hvar hann
hefði sjálfur verið, er jarðskjálft-
inn reið yfir og hver viðbrögð
hans og þorpsbúa hefðu verið.
„Það greip að sjálfsögðu mikill
ótti um sig, og menn hlupu út úr
húsum og út á götur um leið og
skjálftans varð vart. Sjálfur
starfa ég hjá véladeild Kaupfé-
lagsins og var staddur þar á tröpp-
um, þegar kippurinn reið yfir.
Hann kastaði mér upp að vegg
með hillum, þar sem voru alls
konar rör og rær, og ég hálf grófst
í þessu drasli, sem hrundi yfir
mig. Þegar ég komst á fætur,
hljóp ég strax út eins og aðrir til
að athuga, hvort einhver hús
hefðu hrunið, því að manni kom
ekki annað til hugar, og til að
kanna hvort einhvers staðar
hefðu orðið slys á fólki. Vissulega
létti manni, þegar það virtist ljóst
að ekkert manntjón hefði orðið,
og þá fór ég beint niður í kaupfé-
lagshús, þar sem ég vissi að al-
mannavarnanefnd mundi koma
saman. Við höfðum aðeins hafið
undirbúning að áætlun vegna
hinna miklu hamfara i nágrenni
við okkur undanfarið. Við feng-
um strax fréttir af því, að vatn
gusaðist niður úr fjallinu, og voru
þegar í stað sendir menn til að
skrúfa fyrir vatnsveituna. Þá
höfðum við þegar samband við
Almannavarnaráð í Reykjavík og
fengum þær fréttir, að Guðjón
vPetersen, framkvæmdastjóri Al-
mannavarna, væri þá staddur á
Húsavik og hann kom svo hingað
seinna i dag. Við höfðum hjá okk-
ur skrá yfir alla bíla og einnig
bíla með talsstöðvum, og hófum
þegar undirbúning að því að
flytja á brott konur og börn úr
þorpinu, enda margt af fólkinu
hrætt og óhugur í mönnum, auk
þeirrar tilfinningar að þessum
ósköpum sé ekki lokið.
Við fengum skilaboð um sím-
stöðina frá bóndanum á Kata-
stöðum, Ingimundi Pálssyni, þar
sem hann bað um aðstoð vegna
þess að útihús hefðu hrunið yfir
búfénað. Voru sendir nokkrir
ungir menn til að aðstoða hann,
en Ingimundur missti þarna 6
kindur og likur eru taldar á því að
lóga verði fleiri vegna meiðsla.
Haft var samband við Raufar-
höfn og Húsavík og björgunar-
sveitir frá þessum stöðum, en veg-
urinn var illfær vegna veðurs.
Var byrjað að opna veginn milli
Raufarhafnar og Kópaskers, og
tæki send til að halda veginum
milli Kópaskers og Húsavikur
opnum. Lagði fyrsta fólkið af stað
héðan um þrjú leytið, og var
brottflutningnum að mestu lokið
um kvöldmatarleytið. Gripu kon-
ur það nauðsynlegasta með sér,
klæddu börn sín og fóru. Af þeim,
sem fluttir hafa verið á brott, eru
17 i Leirhöfn, 14 i Miðtúni, 11 á
Raufarhöfn, 40 á Húsavík og svo
nokkrir á öðrum stöðum."
Kópaskersbúar, sem eftir voru,
notuðu dagsbirtuna til að kanna
skemmdir, eins og unnt var en
erfitt er að fara um þorpið vegna
mikils skafrennings og roks.
Við spurðum Friðrik hvað hann
teldi nú brýnast að gera þyrfti og
hann sagði: „Almannavarna-
nefnd kemur saman til fundar kl.
10.30 í fyrramálið, þar sem starfið
verður skipulagt og verkefnum
skipt, en efst á lista hjá okkur er
að huga að vatnsveitunni, þvf að
ekki er dropi af vatni í þorpinu,
og höfum við fengið vatn úr
Ljósafossi, sem hér var að taka
kjöt til útflutnings, þegar þetta
reið yfir. Þá þarf að huga að
skemmdum í frystihúsinu, en þar
eru ammonfaksrör, fara yfir
húsin og gera við þau, sem eru
tiltölulega lítið skemmd, og koma
í veg fyrir frekari skemmdir.
Við höfum kannað dýpið í
mynni hafnarinnar og virðist það
ekki hafa breytzt. Síðan þarf auð-
vitað að huga að öllum skemmd-
unum í íbúðarhúsum — innan-
stokksmunum og öðru slíku — og
kanna jarðrask"
Guðjón Petersen, framkvæmda-
stjóri Almannavarna, var staddur
á Húsavík á leið f Kelduhverfið
þegar hann fékk fregnirnar af
hamförunum á Kópaskeri, eins og
fyrr getur. Guðjón sagði í örstuttu
spjalli, að heimamenn á Kópa-
skeri hefðu staðið með miklum
dugnaði að áætlun sinni um brott-
flutning fólksins. Hann sagði, að í
dag yrði hafist handa um skipu-
lagningu á starfinu, Almanna-
varnir rfkissins héldu fund í
Reykjavík og væntanlegir væru
menn frá Viðlagatryggingu ríkis-
ins til að meta skemmdir og tjón,
og þá væru einnig væntanlegir
menn til að kanna öryggi húsa á
staðnum. Guðjón Petersen var
spurður um hverjum augum hann
liti þessar hamfarir. Hann sagði:
„Ég hef alltaf talið jarðskjálfta
miklu alvarlegri og hættulegri
náttúruhamfarir en eldgos og hér
hefur verið um mikinn jarð-
skjálfta að ræða.“
JARÐSKJALFTINN
Samkvæmt upplýsingum Páls
Einarssonar jarðeðlisfræðings á
Raunvfsindastofnuninni, kom
þessi öflugi kippur um kl. 1.30 I
gær og sló hann út alla mæla,
þannig að erfitt reyndist að mæla
hann nákvæmlega, en áætlað að
hanp væri á bilinu 5.5 til 6 sam-
kvæmt Richterskvarða. Fannst
kippurinn um allt norðanvert
landið — allt frá Búðaradal að
vestan og til Reyðarfjarðar að
austan. A Siglufirði varð hann til
að mynda mjög snarpur, þannig
að sprungur komu í bæjarskrif-
stofuhúsið þar. Kippurinn kom
einnig fram á mælum viða erlend-
is, og samkvæmt upplýsingum
Ragnars Stefánssonar jarð-
skjálftafræðings má ætla að þær
mælingar séu því nákvæmari eft-
ir því sem fjarlægðin frá upptök-
unum er meiri. I Sviþjóð mældist
þessi kippur 6.3 á Richter-kvarða
og taldi Ragnar þann styrkleika
ekki fjarri lagi, svo að þetta er
með almestu skjálftum sem hér
hefur komið í byggð.
Orðið hafði vart við snarpa
kippi í Axarfirði i fyrrinótt — kl.
4.34 kom til að mynda kippur er
mældist 4.8 stig og annar kom um
5.03 sem mældist um 4.2. Eftir
skjálftann mikla i gær fundust
miklar jarðhræringar og meðan
blaðamaður Morgunblaðsins á
Kópaskeri var að sima frétt sína
var stöðugur órói og snarpir jarð-
skjálftakippir komu með litlu
millibili.
Fólk sem flúði til Húsavíkur
átti leið fram hjá lóninu við Prest-
hóla og virtist þeim sem gamall
gigur er þar er hefði sprungið.
Morgunblaðið náði einnig símtali
við Jón Ölafsson, skipstjóra á
Ljósafossi, sem er i höfninni og
kvað hann menn um borð í skip-
inu hafa orðið greinilega vara við
skjálftann, þar eð likast hefði
verið sem flóðbylgja lenti á skip-
inu og það kastaðist upp að
bryggjunni. Megn brennisteins-
fýla hefði fylgt kippnum. Þá kvað
hann bryggjuna vera mjög illa
farna.
— Búast við
Framhald af bls. 28
sem kunnugt er, enda upptökin
það langt frá landi.
Eysteinn Tryggvason sagði að
þessi snarpi jarðskjálftui i gær
hefði komið töluvert á óvart en
þróun af þessu tagi væri þó ekki
alveg óþekkt. „Ég hef reynt
svipað áður, því að ég get nefnt
það að skömmu eftir að ég fór að
vinna á veðurstofunni, þá kom
mikil jarskjálftahrina norður i
hafi. Hún virtist liðin hjá að
mestu eftir viku eða svo en þá
kom allt í einu kippur sem var
miklu meiri en hinir fyrri á sömu
slóðum. Svo að þetta er ekki eins-
dæmi og þess er skemmst að
minnast, að það korh svipað fyrir í
Borgarfirðinum í fyrra."
Eysteinn kvað þennan skjálfta
þó miklu snarpari en menn hefðu
átt von á. „Að því er mér virðist
er að gerast þarna hið sama og i
Borgarfirði i fyrra, þar sem kom
snörp jarðskjálftahrina , sem stóð
í nokkrar vikur en með einum
einstökum skjálfta sem er miklu
stærri en hinir, en hann á upptök
sín dálítið annars staðar. Sprung-
an er að rifna áfram frá því sem
hafði slitnað áður og i þessu
tilfelli lengist hún norður. Jarð-
skjálfti hefur áður ekki komið
svona norðarlega og hann myndi
ekki hafa orðið svona stór ef hann
hefði átt upptök sin á sömu
slóðum og þeir sem á undan eru
gengnir. Upptakasvæði þessa
skjálfta i gær er i beinu áfram-
haldi af Gjástykkissprungu-
kerfinu en aðeins norðar en áður
hefur sprungið."
Eysteinn taldi sennilegast að úr
þessu færi jarðskjálftahrinan að
deyja út og ekki kæmu aðrir
skjálftar af þessari stærð. „Maður
getur þó ekki verið viss um það,
og hættan liggur i því að sprung-
an haidi áfram að rifna ennþá
lengra norður. En ég tel þó að
fenginni reynslu af jarðskjálftum
hér, að það sé fremur lítil hætta á
því. Annars hefur þetta verið
grunsamlega stöðugt. Ég heyri
líka ndrðan frá Húsavík að þar
hafi verið mjög mikið um smátitr-
ing frá þvi snemma i morgun. Það
kom allsnarpur skjálfti fyrr í
morgun (4.8 á Richter kl. 4.34).
Eftir það hafi ókyrrð aukist mjög
og komið fram u.þ.b. stöðugur
órói á jarðskjálftamælinum."
Órói af þessu tagi er oft undan-
fari eða samfara gosum, en Ey-
steinn taldi afar ósennilegt að gos
kæmi á þessum slóðum ~„ég þori
næstum því að leggja líf mitt að
veði að svo verði ekki, en maður
getur þó aldrei verið alveg viss.“
Eysteinn sagði ennfremur, að
það væri venjan að í kjölfar svo
snarps jarðskjálfta sem þessa
mætti gera ráð fyrir verulegum
jarðhræringum í vikur og jafnvel
mánuði en að öllum jafnaði væru
þeir miklu minni — algengt væri
að næstu kippirnir væru að stærð
einni einingu minni en hinn
snarpasti. Eg tel því, að þess megi
vænta að á Kópaskeri verði menn
varir við allsnarpa kippi áfram nú
fyrst um sinn.
Samkvæmt upplýsingum Veð-
urstofunnar varð á mælum þar í
gær vart við 3—4 skjálfta sem
reyndust vera yfir 4 stig.
— Eins og
að steyta
Framhald af bls. 28
skjálftans. Auðunn lýsti þessu
fyrir okkur á eftirfarandi hátt:
„Við vorum að klára hádegis-
matinn frammi í lúkar og vor-
um að toga á 80 faðma dýpi.
Allt í einu virtist okkur hrein-
lega sem báturinn steytti á
skeri, því að það kom högg á
hann og annað mun meira; þó
var rétt hægt að greina höggin í
sundur. Þegar við þustum upp
á dekk, blasti við okkur undar-
leg ölduhreyfing, sem líktist
því einna helzt að við værum i
grautarpotti. Við furðuðum
okkur á þessu, en gátum ekki
gert okkur grein fyrir því sem
hafði gerzt þarna fyrr en við
vorum kallaðir upp í talstöðinni
og beðnir að koma þegar að
landi.“
Eins og frá var sagt i Morgun-
blaðinu 1 gær, heimsóttu
Morgunblaðsmenn Jón Ólason,
bónda að Skógum í Öxarfirði, í
gær, en þar ógnaði mikill vöxt-
ur í kíl við bæjarhúsin bæði
gripa- og íbúðarhúsi og hafði
Jón bóndi þau orð við Morgun-
blaðið, að kfllinn myndi leggja
jörðina í eyði ef ekki linnti lát-
um. í dag flúði Jón bóndi og allt
heimilisfólkið að Skógum hús
sin og fé var rekið á brott og
flutt að Ærlækjarseli. Sjálfur
fór Jón að Hafrafellstungu
ásamt heimilisfólki sinu og þar
náðum við sem snöggvast sam-
bandi við hann undir miðnætti
i gær.
„Þetta var hræðilegur
skjálfti," sagði Jón, „og svo
stórkostlegar náttúruhamfarir
að það var vart stætt. Vatnið
hélt áfram að vaxa og hafði
algjörlega umlukið f járhúsið og
hlöðuna. Það tókst að ræsa
kilinn fram til sjávar, en mikil
hætta er á að frárennslið
stöðvist vegna sjávarfalla svo
að það var ekki um annað að
gera fyrir okkur en að fara.“
— Aldo Moro
Framhald af bls. 1
ræðislegrar samsteypustjórnar,
„i samræmi við kröfur timans",
eins og hann orðaði það.
Hann kvaðst óska eftir þátt-
töku sósialista við myndun
slikrar stjórnar, en lagði jafn-
framt áherzlu á að skýr mörk
yrðu að vera á milli stjórnar og
stjórnarandstöðu.
Þessi ummæli eru talin vera
skirskotun til kröfu sósfalista
um að tillit verði tekið til
kommúnistaflokksins við
myndun stjörnar, en þeirri
kröfu hefur flokkur Aldo Mor-
os, kristilegi demókrataflokk-
urinn hafnað eindregið.
Á morgun mun Aldo Moro
ræða við leiðtoga stjórnmála-
flokkanna i því skyni að ná
samstöðu um málefnasamning
nýrrar rikisstjórnar.
— Viðlaga-
trygging
Framhald af bls. 28
Að sögn Ásgeirs er tiltekið í
lögum Viðlagatryggingu Islands,
að hún greiði tjón vegna jarð-
skjálfta, eldgosa, snjóflóða,
skriðufalla og flóða sem orsakast
af náttúruhamförum. Tekna er
aflað á þann hátt, að vátrygginga-
félög, sem selja brunatryggingu
innheimta með iðgjaldi sérstakt
gjald til Viðlagatryggingarinnar,
og er gjaldið o,25 promill af verð-
mæti eignarinnar sem tryggð er.
Það fé sem þannig fæst er svo
notað til að greiða tjón svo langt
sem það nær, en auk þess eru
keyptar endurtryggingar erlendis
Ásgeir sagði, að tjón á fasteign-
um og lausafjármunum fólks yrði
bætt og fasteignir væru bættar
samkvæmt brunabótariti. Hann
bjóst við því að byrjað yrði að
meta tjónið strax og jarðskjálfta-
hrinurnar væru yfirstaðnar
nyrðra.
— Hvassviðrið
Framhald af bls. 2
vegna hálkunnar og roksins. I
sumum bilanna beið fólk eftir því
að veðrið batnaði svo það gæti
haldið áfram ferð sinni. Ekki er
vitað um nein meiriháttar óhöpp,
nema hvað klukkan rúmlega 16 i
gær varð árekstur milli fólksbíls
og rútubíls í svokallaðri Grænás-
brekku við Njarðvík og slasaðist
amerísk kona sem var í bílnum
talsvert, hlaut fótbrot og hand-
leggsbrot. Nokkru áður hafði rúta
farið út af veginum á þessum » '
en slys urðu ekki.
í veðrinu í gær spilltust vegir
mjög viða, norðanlands, sunnan
og austan.
Allt innanlandsflug lá niðri f
gær vegna veðursins og miili-
landaflug var i molum. Eru tvær
flugvélar Flugfélags tslands
veðurtepptar i Bretlandi, en þær
eru væntanlegar til landsins um
hádegisbil í dag. 13. janúar virðist
síður en svo vera happadagur
Flugfélags íslands, en á þessum
degi í fyrra brann flugskýli
félagsins á Reykjavíkurflugvelli.
— Fundur OAU
Framhald af bls. 13
engin samstaða náðist að sögn
Reuter. Þá virðast fréttamenn á
þeirri skoðun að eftir þennan
árangurslausa leiðtogafund sem
miklar vonir voru bundnar við,
hafi staða Einingarsamtakanna
veikzt stórkostlega.
Idi Amin, forseti samtakanna,
talaði þó digurbarkalega er hann
lagði upp frá Addis Abeba i dag
og sagði við fréttamenn: „Ég er
yfir mig sæll yfir því hvernig mál-
in enduðu. Við höfum komizt að
ýmiss konar samkomulagi og full-
ur skilningur ríkt millum okkar
allra.“
Annað hljóð var í strokknum
hjá ýmsum öðrum fulltrúum á
fundinum og talsmaður OAU,
Peter Onu, sagði: „Það var
hörmulegt að fundurinn skyldi
ekki bera árangur eða að minnsta
kosti geta fallizt á vopnahlé en
vonandi tekst samtökunum að
leysa vandamálið í náinni fram-
tíð.“
Sérfræðingar ýmsir sögðu að
niðurstaðan væri ósigur fyrir
MPLA sem hafði lagt á það ofur-
kapp að öðlast viðurkenningu
Einingarsamtakanna. Það voru
Tanzania og Sómalía sem styðja
MPLA eindregið, er hvöttu mjög
til að fundurinn yrði haldinn.
Jafntefli
Guðmundar
og Bronstein
GUÐMUNDUR Sigurjóns-
son stórmeistari gerði
jafntefli við sovézka stór-
meistarann David Bron-
stein í 14. umferð
Hastingsskákmótsins í
gærkvöldi. Guðmundur
hafði hvítt og varð skákin
19 leikir.