Morgunblaðið - 05.02.1976, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. FEBRUAR 1976
Litli dreng-
urinn á gjör-
gæzludeild
LITLI drengurinn, sém
féll út um glugga á 2.
hæð húss við Kárastíg í
fyrradag, liggur nú á
gjörgæzludeild Borgar-
spítalans. Hann hlaut
slæmt höfuðkúpubrot.
Loðnuverð
enn ókomið
YFIRNEFND Verðlagsráðs
sjávarútvegsins hélt í gær
fund um loðnuverðið. Sam-
komulag tókst ekki, og hefur
annar fundur verið ákveðinn í
dag klukkan 17. Loðnuverðið
var 3,50 krónur hvert kg. fram
til 1. febrúar s.I. Það verð sem
nú er þingað um á að gilda frá
þeim tfma. Er því ekkert verð
á þeirri loðnu, sem bátarnir
eru nú að veiða.
Torfi
ófundinn
EKKERT hefur spurst
til Torfa Jónssonar fyrr-
verandi stjórnarráðs-
fulltrúa, sem hvarf á
eynni Tenerife í desem-
bermánuði s.l. Mikil leit
hefur verið gerð að
Torfa, sem er 73 ára
gamall og grennslast
hefur verið fyrir um
ferðir hans en ekkert
það hefur komið fram,
sem gæti bent til þess
hvar hann er nú niður-
kominn.
Bíll fauk
Siglufirði, 4. febrúar.
ÞAÐ OHAPP vildi til í Fljót-
um í dag, að Reykjavfkurbif-
reið af station-gerð fauk út af
veginum við Gautlönd. Hér er
asahláka og sunnan rok, en í
þeirri átt, getur verið mjög
sviptivindasamt f Fljótunum.
Skuttogarinn Dagný er nú að
landa 50 lestum af fiski, sem
skipið fékk f 6 daga veiðiferð á
Norðurlandsmiðum. — m.j.
Fótbrotn-
aði í um-
ferðarslysi
Akureyri 3. febr.
15 ára piltur fótbrotnaði
í dag í umferðarslysi,
sem varð á mótum Hjalt-
eyrargötu og Gránu-
félagsgötu. Slysið varð
um kl. 13 þegar pilturinn
var að fara til vinnu
sinnar og ók norður
Hjalteyrargötu. Jeppa-
bíll kom á móti honum
og beygði í veg fyrir
hann austur Gránu-
félagsgötu. Sv. p.
Óbreytt
verð á rækju
og hörpudiski
BLAÐINU barst eftirfarandi
tilkynning frá Verðlagsráði
sjávarútvegsins.
Verðlagsráð sjávarútvegsins
ákvað á fundi í gær, að lág-
marksverð það á rækju og
hörpudiski, sem gilti f janúar
sbr. tilkynningar ráðsins nr. 2
og 3/1976, skuii gilda áfram
dagana 1. til 15. febrúar 1976.
i
Ljðm.. Friðþjófur.
Við höfnina
Skurðgröfur
skemmdar fyrir
hundruð þúsunda
SKEMMDARVERK voru
unnin á þremur skurð-
gröfum við Suðurhóla i
Breiðholti um síðustu
helgi. Gengu skemmdar-
vargarnir hreinlega
berserksgang, brutu allar
rúður í gröfunum, öll ljós
og mæla og sitthvað fleira.
Eru gröfurnar enn
óstarfhæfar eftir þessa
miður skemmtilegu með-
ferð. Tjón eigandans skipt-
ir hundruðum þúsunda.
Talið er liklegt að þarna
hafi unglingar verið að
verki.
Gísli Árni aflahæstur
SAMKVÆMT fyrstu
loðnuskýrslu Fiskifélags
Isiands á loðnuvertíð 1976
er vitað að 61 skip voru
búin að fá einhvern afla
s.l. laugardagskvöld og þá
var heildaraflinn frá
byrjun vertíðar orðinn
samtals 54.809 lestir.
Fyrstu ioðnuna á vertíðinni
fékk m/s Eldborg GK 13, hinn 16.
jan. s.l. í flotvörpu og veiddist
loðnan um 50 sml. norður af
Langanesi, skipstjóri Gunnar
Hermannsson.
í fyrra fékk ms Börkur NK 122
frá Neskaupstað fyrstu loðnuna
gemIiniI
„. . . maður verður hálfkjána-
legur — að klippa 1 miðjum
viðræðum við . . . Halló,
Reykjavfk?"
hinn 11. jan. um 60 sml. ANA af
Langanesi. Á sama tíma i fyrra
var vitað um 84 skip er fengið
höfðu einhvern afla og þá var
heildaraflinn orðinn samtals
47.887 lestir.
Loðnu hefur verið landað á 14
stöðum og mest landað á Seyðis-
firði eða samtals 13.487 lestir.
Aflahæsta skipið í vikulokin
var m/s Gisli Árni RE 375, skip-
stjóri Eggert Gíslason, eða sam-
tals 2597 lestir.
Meðfylgjandi er skýrsla yfir
þau skip er fengið hafa yfir 1000
lestir:
Gísli Árni RE 2597 lestir, Eld-
borg GK 2485 lestir,Guðmundur
RE 2358 lestir, Pétur Jónsson RE
2331 lestir, Gullberg VE 1972
lestir, Ásberg RE 1772 lestir,
Hákon ÞH 1745 lestir, Örn KE
1728 lestir, Sigurður RE 1644
lestir, Óskar Magnússon Ak 1612
lestir, Árni Sigurður AK 1567
lestir, Hrafn GK 1492 lestir,
Þorsteinn RE 1471 lestir, Loftur
Baldvinsson EA 1415 lestir, Börk-
ur NK 1377 lestir, Huginn VE
1311 lestir, Helga Guðmunds-
dóttir BA 1218 lestir, Albert GK
1207 Iestir, Súlan EA 1180 lestir,
Reykjavorg RE 1154 lestir, Harpa
RE 1105 lestir, Jón Finnsson GK
1092 Iestir, Grindvíkingur GK
1091 lestir, Rauðsey AK 1067
lestir og Helga II RE 1062.
Eru það tilmæli rann-
sóknarlögreglunnar að
allir þeir sem einhverjar
upplýsingar geta gefið um
það hverjir valdir séu að
skemmdarverkunum hafi
strax samband við rann-
sóknarlögregluna.
„Ása Sólveig” fékk
dræmar viðtökur í Noregi
Norska sjónvarpið sýndi nýlega
sjónvarpsleikritið „EIsa“ eftir
Ásu Sólveigu. Leikritið fjallar
sem kunnugt er um hjónin Elsu
og Axel, en sérstaklega þau
vandamál sem Elsa á við að stríða.
Hún hafði áður tekið virkan þátt í
að byggja upp fyrirtæki þeirra
hjóna, en nú stjórnar húsbóndinn
því einn. Elsa situr hins vegar ein
og yfirgefin heima og finnst hún
vera til lítils gagns eftir að börnin
eru flogin úr hreiðrinu.
Flest stærstu norsku dagblað-
anna birtu fremur harða gagn-
rýni um leikritió. Telja þau efni
leikritsins í rauninni áhugavert
Atvinnuglæpur að
ganga 1 stéttarfélag
— segir Björn Guðmundsson, for-
maður FÍA um Vængjamálið
ÞAÐ FER nú svona um mann hálfgerður kuldahrollur, þegar aftur-
göngur 19. aldarinnar birtast nú á síðari hluta hinnar 20. 1 sambandi
við verkalýðsmál,“ sagði Björn Guðmundsson, formaður félags
fslen/.kra atvinnuflugmanna, er Mbl. spurði hann 1 gær álits á upp-
sögnum 8 flugmanna hjá flugfélaginu Vængjum, sem skýrt var frá í
Mbl í gær.
Björn sagði að FÍA hefði skrif-
að Vængjum bréf fyrir jólin og
tilkynnt að mennirnir væru
gengnir í félagið, sem óskaði eftir
viðræðum við flugfélagið. Þessu
bréfi var ekki svarað og sendi þá
FÍA þetta samningsuppkast.
Menn yrðu að líta á að kröfur eru
kröfur en ekki gerður kjarasamn-
ingur — sagði Björn, en Vængir
hafa ekki svo mikið sem sýnt lit á
að tala við okkur.
Björn sagði ennfremur að flug-
mennirnir hjá Vængjum hefðu
ekki eingöngu flogið vélunum,
heldur hefðu þeir einnig þurft að
draga vélarnar út og inn I flug-
skýli, þeir hafi þurft að hlaða þær
Framhald á bls. 19
Sjómennirnir
vilja flotavernd
SAMKVÆMT upplýsingum Jóns
Olgeirssonar, ræðismanns Islands
í Grimsby, líta togarasjómenn
þar, svo og fjölskyldur þeirra,
þannig á ástandið á lslands-
miðum eftir viðræðurnar f
London, að flotinn eigi strax að
koma á vettvang til varnar togur-
unum.
— Þessar uppsagnir, sagði
Björn, eru fyrst og fremst komnar
til vegna þess að mennirnir gengu
í stéttarfélag flugmanna og mér
er ekki kunnugt um aðra menn í
þessu þjóðfélagi, sem eru ekki
stéttarfélagsbundnir. Það virðist
vera einhvers konar atvinnuglæp-
ur að ganga í stéttarfélag.
og eiga erindi til fólks, en efnis-
tök fjarri því að vera góð. Gagn-
rýnandi VG telur höfundinn hafa
verið „merkilega gamaldags og
stifan“ í efnistökum. Afleiðingin
verði sú, að leikritið sé ekki nægi-
Iega trúverðugt. Aftenposten
segir, að „það hafi verið þunnir
hlutir frá Islandi á skjánum f
gær“. Dagblaðið tekur mun
vægari afstöðu og lýsir mest sögu-
þræðinum en lengst gengur Ar-
beiderbladet, sem telur leikritið
vart hafa verið sýningarhæft og
því hið eina rétta að það hefði
verið sent ósýnt tii baka.
Framhald á bls. 19
Styrkleiki skákmanna árið 1975 reiknaður út:
Friðrik og Guðmundur
hækkuðu báðir í stigum
UM StÐUSTU áramót var reiknaður út styrkleiki helstu
skákmanna heimsins en slfkt er gert um hver áramót. Er
þetta gert eftir ákveónu kerfi, sem kennl er við Elo og er
tillit tekið til frammistöðu skákmannanna á skákmótum
undanfarið ár. Morgunblaðið hefur aflað sér útreikning-
anna um sfðustu áramót og kemur 1 ljós, að báðir
fslenzku stórmeistararnir, Friðrik Olafsson og Guð-
mundur Sigurjónsson hafa hækkað 1 stigum og Guð-
mundur verulega og Ifklega meira rn nokkur annar
stórmeistari. Friðrik hefur nú 2550 stig 1 stað 2535 áður
og Guðmundur cr með 2530 stig en hafði 2475 stig áður.
Ef litið er á lista yfir styrkleika skákmannanna kemur í
ljós, að 76 stórmeistarar hafa 2500 stig og þar yfir. Telst
Friðrik vera í 23.—26. sæti en Guðmundur telst vera í
41—47. sæti. Stigahæstur á skránni er heimsmeistarinn
Karpov með 2695 stig en þess má geta hér, að Bobby
Fischer var kominn vel yfir 2700 stig en hann hefur ekki
teflt síðan 1972 og er styrkleiki hans ekki lengur reikn-
aður út. Næstur Karpov kemur Kortsnoj með 2670 stig,
Petrosjan hefur 2635 stig, Spasskí 2630 stig, Larsen og
Portich 2625 stig, Ljubojevic, Geller og Mecking 2620
stig, Smejkal og Tal 2615 stig og Hoert 2600 stig.
Mjög margir íslenzkir skákmenn eru nefndir á list-
anum og næst Friðrik og Guðmundi koma Björn Þor-
steinsson og Ingvar Ásmundsson með 2415 stig.
Friðrik
Guðmundur