Morgunblaðið - 05.02.1976, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 05.02.1976, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. FEBRUAR 1976 13 Helga Whitmore Svo var það. að ég slóst í hópinn með skólafélögum mínum til að vera við starffræðslu í Imperial College Það gerði ég fyrir orð vinkonu minn- ar, sem langaði til að kynna sér rafeindaverkfræði, en vildi ómögu- lega fara ein með öllum strákunum. Við vorum einu stúlkurnar í hópn- um, en þarna tók ég ákvörðun um að leggja fyrir mig flugvélaverk- fræði Ég var 1 8 ára þegar þetta var Ég sótti um inngöngu í verkfræðiskól- ann í Kingston Þá var að verða sér úti um lærlingsstöðu og hana fékk ég í Hawkers-verksmiðjunum " ,,Fyrsta árið var erfitt,” heldur Helga áfram ,,og á timabili var ég að því komin á gefast upp En kennar- arnir hvöttu mig til að reyna við prófin og þau stóðst ég Eftir það gekk allt eins og i sögu " Ritgerð Helgu til lokaprófs fjallaði um loftræstinu i 1000 farþega flug- vél. „Þær hugmyndir, sem ég gerði grein fyrir i ritgerðinni, hafa enn ekki orðið að veruleika, en samt sem áður hafa þær komið mér að góðu haldi við hönnunarstarfið hjá Hawk- ers. Þegar ég var í skólanum taldi ég, að þörf yrði einhvern tíma fyrir stærri flugvélar til farþegaflutninga en Júmbó-þoturnar Nú held ég hins vegar, að svo stórar flugvélar verði ekki nauðsynlegar, enda þótt hægt sé að smiða þær En þetta er aðeins persónulegt álit mitt," segir Helga „Ég hef gaman af að vinna að smiði herflugvéla, en samt langar mig ennþá meira til að fljúga þeim en að vinna að þeim við teikniborð- ið. Mig langar til að taka þátt i reynsluflugi og vinna við hlið flug- mannanna, sem eiga svo að fljúga þeim þegar þær hafa verið teknar i notkun Mig hefur langað til að gerast flugmaður og mig hefur líka langað til að ganga i þrezka flugherinn Ekki svo að skilja, að ég vildi heldur vera strákur, en mér finnst svo sannarleg, að flugherinn ætti að ráða stúlkur í störf flugmanna Þetta gera þeir í Ameríku, og ég er viss um að stúlkur geta ekki siður stjórn- að flugvélum en smiðað þær," segir Helga Henriette Simenon Georges Simenon 0 Nýlega kom út bók eftir Georges Simenon, sem ber heitið „Bréf til móður minnar". Henriette Simenon lézt árið 1 970, 91 árs að aldri. í bréfinu leitast Simenon við að gera upp sakir við móður sina, og enda þótt sagan sé aðeins sögð frá annarri hliðinni, afhjúpar hún harmleik sem í flest- um öðrum tilvikum fer aldrei út fyrir veggi fjölskyIdunnar. Bréfið hefst á þessum orðum: „Nú eru liðin þrjú og hálft ár frá andláti þínu, en það er kannski fyrst nú sem ég er að byrja að skilja þig." Hann heldur áfram: „Maðan þú lifðir þótti okkur aldrei vænt hvoru um annað. " Simenon rifjar upp ýmis atvik úr uppvexti sínum. Hann minnist þeirrar stundar er honum varð Ijós sú staðreynd að móðir hans vantreysti honum, en þá var hann fimm ára að aldri. Ef Christian, yngri bróðir hans grét, var viðkvæðið jafnan: „Hvað hefurðu nú gert honum?" Mörgum árum síðar virti hún hann fyrir sér með rannsakandi augnaráði, og sagði síðan hugsi: „Christian, það var synd, að það skyldi vera Christian, sem þurfti að deyja." Hugmyndina að bókinni kveðst Simenon hafa fengið er hann sat við dánarbeð móður sinnar. Hann kom viku áður en hún fékk hægt og friðsælt andlát vegna elli. Ekki einu sinni þá gátu þessar striðandi sálir samið um vopnahlé. Hún heilsaði honum með þessum orðum: „Til hvers ert þú kominn, Georges?" í einni bóka sinna, Pedigree, er Henriette Simenon fyrirmynd að sögupersónu Hún birtist þar sem ágjörn, vinnusöm kona gersneydd kimnigáfu. Að lokum fær hún það, sem hana hefur alltaf dreymt um — eiginmann, sem rekur greiðasölu við járnbrautarstöð. Henriette Simenon var þrettánda barnið i röð þrettán systkina. Að sögn sonar sins var hún smáborgari, harðlynd og stolt. Faðir hennar varð eignalaus þegar hún var fimm ára. Hún varð ekkja ung að árum og átti jafnan erfitt uppdráttar. Þrátt fyrir beizkjuna reynir Simenon að láta móður sina njóta sannmælis. Hann kveðst reyna að fyrirgefa með þvi að reyna að skilja, og það er ef til vill meginkostur bókarinnar. Enda þótt móðir hans kunni að hafa verið ófeimin við að lýsa andúð sinni á honum, hefur hann bersýnilega ekki látið hana eiga hjá sér. Þar sem hann virðir hana fyrir sér á dánarbeði skrifar hann: „Þú hefur ekkert elzt i minum augum. Þú hefur alltaf haft þetta horaða andlit, þessa skorpnu húð, þessar munnviprur." Simenon var 17 ára þegar hann skrifaði fyrstu bók sina og skömmu siðar fór hann að styrkja móður sina fjárhagslega. Þetta hefur hún bersýnilega ekki kunnað að meta. þvi að þegar hann var löngu orðinn auðugur maður borgaði hún aftur hvern eyri, og afhenti honum auk þess gullmynt handa barnabörnunum. Hann blygðast sin ekki fyrir að viðurkenna að hann hafi ekki látið myntina ganga til réttra aðila. (Ur Time) „Okkur þótti aldrei vænt hvoru um annað” — segir Simenon í bréfi til móður sinnar undum drykkjarfanga. Þetta er allblandaður kór, þar í til dæmis leikari og lögfræðingur, og þegar við bætast gleðikona og sjó- maður, sem hafa séð og heyrt út á götu, að þarna mundi gott til fanga, má segja, að í stofunni hafi safnast samgn hópur, sem sé ímynd margumrædds islenzks stéttleysis. Og vissulega verður öllum að því,' að þarna er þeim heimilt að tjá sig hömlulaust, eft- ir því sem áhrif BakkUsar gefa kost á. Engir njóta þess þó í jafn ríkum mæli og sjálf hjónin. Þau þykjast hreint ekki sjá hvort ann- an, en hafa valið sér félaga úr hópi gestanna, hún lögfræóing, hann unga stúlku. Og svo bregða þau sér, hvort með sínum útvalda oftar en einu sinni inn í svefn- herbergi. Þannig minnast þau þess á viðeigandi hátt, að fyrir fimmtán árum fóru þau knúin svokölluðu velsæmi, á fund klerks, sem smeygði á þau hjóna- bandshelsinu! Eg hygg mér óhætt að segja, að það, sem höfundurinn vill sagt hafa í þessu leikriti, hafi komið mætavel til skila á Logalandi, og hinn ungi leikstjóri mun og hafa séð þar gleðiiegan og örvandi árangur kunnustu sinnar og rómaðrar elju. Auðvitað hvílir mest í leiknum á hjónunum og dætrum þeirra, en svo sem áður er vikið að er gerð hans þannig að helzt ekki má í nokkru skeika um meðferð hinna litlu hlutverka og þar tel ég að engum í hinum tólf manna hóp hafi fatazt. Ég læt svo hjá líða að nefna nokkur nöfn, því að þótt ég gerði það, væri fólk úti í frá jafnnær um flesta hinna mörgu leikenda. Við höfundinn vildi ég sagt hafa: Bót hefði verið að því að hann hefði dregið saman í færri atriði kynninguna á hjónunum og heimili þeirra í upphafi leiksins. Þá hefðu atriðin ekki orðið eins stuttaraieg og þau eru og hléun- um hefði fækkað. Þau virðist mér og óþarflega og allt að því leiðin- lega löng, sem raunar verður að skrifast á reikning leikstjórans. Framhald á bls. 23 Þórður Jónsson Látrum: Fyrir nokkru eða um áramót barst mér í hendur bréf frá Siglingamálastofnun rikisins, sem ég starði orðlaus á um stund, enda ekkert að segja. Efni bréfsins var neitun um skráningu á litlum báti undir 6 metrum, sem ég hafði beðið um skráningu á. Neitun Siglinga- málastofnunarinnar byggðist á öðru meðfylgjandi bréfi frá hæst- virtu samgöngumálaráðuneyti þar sem tekið er fram að Siglinga- málastofnuninni beri að synja um skráningu á bátum undir 6 metrum. Þá höfum við það, sem barizt höfum fyrir því innan sam- taka Slysavarnafélags Islands að koma þessum minnstu bátum fiskiflotans, og öðrum undir eitt- hvert öryggiseftirlit, en gengið heldur illa vegna fjárskorts Siglingamálastofnunar ríkisins að okkur er tjáð. Þó eru margir af þessum bátum undir 6 m, sem fiskveiðar stunda, skráðir, þvi til þessa hefir ekki verið bannað að skrá þá ef um hefir verið beðið, og Siglinga- málastofnunin gert það, þrátt fyr- ir sinn fjárskort. En það er ekki skylda, og þess vegna fjöldi báta óskráður og utan við öll lög og reglur. Arið 1892 hóf séra Oddur V. Gislason, fyrsti starfskraftur almennra slysavarna við sjó á Is- landi, slysavarnir sínar og skipu- lagningu á öryggisbúnaði opinna báta. Hann réðst í það að gefa út mánaðarblaðið „Sæbjörgu", fyrsta sjómannablað á tslandi, til að útbreiða slysavarnastarfsemi sína og leiðbeiningar til sjómanna. Fyrsta forsíða Sæbjargar var skreytt með heil- síðumynd af tveimur skipbrots- mönnum sem í hafróti flutu á braki úr skipi. Yfirskrift myndar- innar var: „Hjálpa þú oss, herra, vér forgöngum." Ég leyfi mér að hafa sömu yfirskrift að þessu greinarkorni. Allar götur síðan hefir verið eitthvert öryggiseftirlit með smábátaflota okkar, sem vafa- „Hjálpa þú oss, herra, vér for- göngum” laust hefur bjargað mörgum mannslífum á undangengnum ár- um. Allar deildir Slysavarna- félags Islands viðs vegar um land- ið hafa sameinaðar á landsþing- um og aðalfundum félagsins reynt að hafa áhrif á lög og reglu- gerðir til að herða og bæta þetta eftirlit, og vist hefir nokkuð á unnizt. Síðustu árin hefir bar- áttan aðallega staðið um að fá reglugerð yfir báta undir 6 metrum, svo þeir komist einnig undir öryggiseftirlit skipa, og verði að hafa ákveðinn öryggis- búnað við sitt hæfi. Ég veit ekki hvort fólk almennt gerir sér grein fyrir því hversu stór smábátafloti okkar er og hvers virði hann er þjóðinni, en styrkjalítið hefir hann bjargazt. Opnir vélbátar voru 1. janúar 1964 skráðir 1432 talsins samt. 3665 lestir meðalstærð 2,55 lestir. Úr því fer þessum bátum fækkandi, og verða fæstir á þessu tímabili í árslok 1971, þá 1034 bátar, samtals 3246 lestir, meðal- stærð 3,13 lest. Þarna hefir meðal- stærð bátanna aukizt með fækkuninni, sem ekki er óliklegt að stafi meðal annars af því að ekki er skylda að skrá báta undir 6 m og sumir eigendur þeirra ekki mótfallnir því að geta verið með þá fyrir utan öll lög og reglur. Það hefir að visu sína kosti, ef svo má kalla. Á árinu 1972 fer svo þessum bátum aftur að fjölga, og eru þá i árslok 1054 samtals 3313 lestir. Þarna fer sennilega að gæta áhrifa frá aukinni hrognkelsaút- gerð, en bátar af 6 m stærðinni eru víða mjög heppilegir til þeirra veiða, og geta verið eftir byggingarlagi 1,5 lestir eða stærri. I janúarbyrjun 1975 er þessi opni bátafloti orðinn 1087 bátar, 3456 lestir. Upplýsingar um fjölda og heildarlestatölu bátanna eru úr skipaskrám Siglingamálastofn- unar. En smábátafjöldi lands- manna er mun meiri, þar sem hluti hans er hvergi á skrá. Hversu mikill veit enginn, en einn 6 m bátur gæti á einni grásleppuvertíð skilað á land afla- verðmæti fyrir 2—3 milljónir króna, áhöfn tveir menn. Áætla mætti, að áöllum opna bátaflotan- um störfuðu hluta úr árinu eða sumrinu 1,500—2000 sjómenn sé flotinn gerður út. Það er þvi frá mínu sjónarmiði séð mjög harka- leg og í alla staði vafasöm ákvörð- un hjá einu ráðuneyti að svipta verulegan hluta þessa hóps sjómanna réttindum til að fá að vera með bát sinn undir öryggis- eftirliti með einu litlu bréfi eða pennastriki, öryggiseftirliti, sem þeir hljóta þó að eiga rétt til sem aðrir sjómenn og þegnar okkar þjóðfélags, eða hver eru rökin fyrir því að svo sé ekki? En heiðrað samgöngumálaráðu- neyti gerir meira með nefndu bréfi. Það gerir þessum útskúfaða hópi sjómanna að minnsta kosti erfitt og í sumum tilfellum úti- lokað að ná þeim skattfríðindum, sem þeim ber sem sjómönnum, og sem verulega voru aukin á liðnu ári, Þau miðast flest við þann tíma sem sjómaðurinn er skráður á skip, en um skráningu er ekki að ræða á eitthvert fljótandi far, sem ekki er skráð og hefir því ekki þann rétt að kallast „fslenzkt skip“ og nýtur þvi engra þeirra réttinda sem íslenzk skip njóta. En þar vona ég og veit raunar, að hæstvirt samgöngumálaráðu- neyti, eða þeir sem þar ráða málum, eru mér sammála um, að líf eins sjómanns er þjóð okkar og viðkomandi vandafólki jafn dýr- mætt meðan varir, og jafn sár missir þá slokknar, hvort sem sjómaðurinn ferst fyrir slæman öryggisbúnað um borð í skut- togara eða fyrir engan öryggis- búnað á báti undir 6 metrúm. Okkur ber að reyna að koma í veg fyrir hættuna á báðum stöðunum. Því leyfi ég mér hér með að skora á viðkomandi ráðuneyti að afturkalla þetta bréf til siglinga- málastofnunar ríkisins sem fyrir- mæli, svo stofnunin geti eftir sem áður þess vegna skráð umrædda báta ef ttm er beðið. En hæstvirt ráðuneyti ætti að gera betur og gefa út þá reglu- gerð sem í áratugi hefir verið beðið um, reglugérð sem segir fyrir um lágmarks öryggisbúnað báta undir 6 m, gerir þá skráning- arskylda og kemur þeim undir eftirlit siglingamálastofnunar ríkisins Skráningin er og verður að vera grunnurinn undir öll réttindi og öryggisbúnað íslenzkra skipa, þess vegna hafa hundruð kvenna og karla innan samtaka Slysa- varnafélags íslands, sem áður getur, beðið hið háa ráðuneyti um þennan grunn til handa minnstu bátunum, sem sagt reglugerð við þeirra hæfi, og framkvæmd hennar. Það er allt og sumt. Þótt ég sé óánægður með framannefnd bréf og þau hafi valdið mér vonbrigðum þá er ég ánægður með það að fá fyrstu neitunina um skráningu, fyrst um neitun var að ræða. Mun ég einskis láta ófreistað til þess að það mætti einnig verða sú síðasta. Fer vel á því. Fyrsta starf mitt hjá skipaskoðun ríkisins var fyrir 42 árum, en þá var ég beðinn af þeim nöfnunum Ólafi Sveinssyni skipa- skoðunarstjóra og Ólafi Thoroddsen skipst. og skipa- skoðunarmanni I Vatnsdal, tengdaföður mínum, að fara hér um hreppinn til að mæla og skrá 13 smábáta, sem þá voru hér í ,notkun og óskráðir. Flestir þeirra voru undir 6 metrum. Siðan hafa allir bátar hér verið skráðir burt- . séð frá smæð þeirra. Þannig mætti það viðar vera.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.