Morgunblaðið - 05.02.1976, Side 15

Morgunblaðið - 05.02.1976, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. FEBRUAR 1976 15 arinnar og í þágu heims- friðarins.“ Þá sagði Kissinger. „I Angóla hefur það sannazt í fyrsta skipti að Sovétmenn fara með herlið langar leiðir til að koma til valda stjórn, sem er þeim þóknanleg, og þetta er í fyrsta skipti, sem Bandaríkin láta undir höfuð leggjast að bregðast við hernaðar- íhlutun Sovétríkjanna utan áhrifasvæðis þeirra." Þá sagði ráðherrann: ,,Ekkert ríki skyldi treysta því, að Banda- rikjamenn láti afskiptalaust það athæfi að herdeildir og gífurlegar vopnabirgðir séu sendar til að koma á minnihlutaríkisstjórn- um.“ Níð um Kína í Sovét- sjónvarpi Moskvu, 3. febr. — Reuter. SOVÉZKA sjónvarpið sýndi í kvöld fræðslumynd um Kína. Kvikmyndin heitir „Hinum megin við vegg óttans“ og er þar brugðið upp svipmyndum úr lífi hinnar kúguðu þjóðar, sem hefur orðið áróðri leiðtog- anna að bráð. I myndinni eru höfð viðtöl við fólk, sem á að hafa flúið undan óstjórn Maós. Þá eru í myndinni atriði frá landamærum Kína og Sovét- rikjanna og sýndar féttamynd- ir frá átökunum á bökkum Ussúrífljóst fyrir nokkrum ár- um, og sýnd er handtaka kín- versks njósnara, sem er að reyna að komast yfir landa- mærin i skjóli nætur. Flestir Kínverjanna, sem fram koma í myndinni, eru sagðir fyrrvér- andi flokksleiðtogar, verka- menn, hermenn og rauðir varðliðar. I myndinni eru and- lit þeirra hulin, og er það sagt vera til þess að hiífa ættingj- um þeirra, sem enn eru í Kína. Höfundar myndarinnar eru tveir — Sovétmaður og Kin- verji. I formála er þvi haldið fram, að kínverska þjóðin sé í raun og sannleika vinveitt Sovétríkjunum og þess sé ekki langt að bíða að kínversku leið- togarnir og stefna þeirra liði undir lok. Um 3000 manns urðu heimilislausir þegar fátækrahverfi í Hong Kong brann til kaldra kola s.l. laugardag. Um 500 fjölskyldur áttu heima í hverfinu, sem gereyði- lagðist á þremur klukkustundum. Argentína: Sex nýir ráðherrar á hálfum mánuði Kissinger: Buenos Aires, 3. febr. — Reuter. Cafiero efnahagsmála- ráðherra og Ruckauf verkalýðsmálaráðherra báðust lausnar í dag, og hefur Maria Estella Peron tekið erindi þeirra til greina, að því er blaðafull- trúi hennar hefur tilkynnt. Um leið var gefin út til- kynning um, að við efna- hagsmálaráðherraembætti tæki Emilio Mondelli, yfir- maður aðalbanka landsins og Miguel Unamuo, forseti borgarráðs í Buenos Aires og leiðtogi samtaka banka- manna, tæki við stjórn verkalýðsmála. Frá þvl um miðjan janúar s.l. hefur forsetinn skipt um sex af átta ráðherrum I stjórn sinni. Mondelli verður fimmti efnahags- málaráðherra Mariu Estellu Peron frá því að hún tók við völd- um fyrir einu og hálfu ári. Verðbólga I Argentínu varð 334% á árinu 1975. Stuðnings- menn Mondellis halda því fram, að aðalorsök þess að mistekizt hafi að halda verðbólgunni niðri sé sú, að stjórnmálamenn hafi ekki veitt Mondelli nægilegan stuðning. „Líðum ekkí frekari íhlutun San Francisco, 4. febr. — Reuter. HENRY Kissinger, utan- ríkisráðherra Bandaríkj- anna, lýsti því yfir í dag, að Bandaríkin myndu ekki líða aðgerðir á borð við íhlutun Sovétríkjanna í eins og í Angóla Angóla í framtíðinni. Um leið átaldi hann Banda- rikjaþing fyrir að hindra stefnu stjórnarinnar í framkvæmd. cisco og sagði m.a.. „Þingið og framkvæmdavaldið verða að koma sér saman um þetta mál, í þágu þjóð- Kissinger lét þessi orð falla á fundi í San Fran- ERLENT Marchais gagnrýnir Sovét harðlega á landsfundi franskra kommúnista París 4. febr. — Reuter — AP. 1 setningarræðu sinni á lands- fundi franska kommúnistaflokks- ins I París I dag gagnrýndi Georges Marchais, leiðtogi flokks- ins harðlega kúgun og óréttlæti I Sovétríkjunum. Þessi gagnrýni er talin eiga rætur sínar að rekja m.a. til vitnisburðar Leonid Plyuschch um vist hans í geð- veikrahæli í Sovétríkjunum á fundi með fréttamönnum í gær. I setningarræðunni lýsti Marchais stuðningi við lýðræðis- legar kosningar og hafnaði hug- myndinni um „alræði öreiganra", sem hefur verið lögð til grund- vallar kenningum kommúnismans frá upphafi. Við setningu fundarins voru fulltrúar allra kommúnistaflokka veraldar, nema frá Kína og Al- baníu, en frönsku fulltrúarnir eru um 1700 að tölu. Meðal er- lendu fulltrúanna er Andrei Kirilenko, ritari miðstjórn'ar sovézka kommúnistaflokksins og náinn samstarfsmaður Brezhnevs flokksleiðtoga. 1 ræðu sinni sagði Marchais m.a.: Við getum ekki samþykkt að kommúnistahugsjónin sé svert með óréttlátum og óréttlætan- legum aðgerðum. Siíkar aðgerðir eru engan veginn óhjákvæmileg afleiðing sósíalisma." Þá ásakaði hann sovézk yfirvöid um að hafa gengið „hinn breiða veg kúgunar og valdbéitingar“, eins og hann orðaði það. Marchais lagði þó áherzlu á, að þessa gagnrýni mætti ekki skilja svo, að flokkur hans hafnaði sam- starfi við sovézka kommúnista í „baráttunni við heimsvaldastefn- una.“ Hann gagnrýndi Vestur- lönd og sagði: „Þau kalla sig „hinn frjálsa heim“, en þetta er heimur Pinochets, íranskeisara, kynþáttahaturs í Bandaríkjunum og aðskilnaóarstefnu í Suður- Afríku." 10 fórust í húsbruna í New York New York, 4. febr. — AP. TÍU manns, þar af sjö börn, létu lífið þegar kviknaði í sex hæða íbúðarhúsi í New York um hádegisbilió í dag. Að sögn sjónarvotta breiddist eldurinn út með leifturhraða og björg- uðust margir íbúar hússins með því að binda saman rekkjuvoðir og renna sér niður á jafnsléttu. Slökkviliðsmenn hafa upp- lýst, að flestir hinna látnu hafi látist af reykeitrun. Tíu af þeim, sem björguðust, voru fluttir í sjúkrahús. Patty Hearst í röntgen- myndatöku San Francisco, 3. febr. — Reuter. AÐ KRÖFU verjanda Patriciu Hearst úrskurðaði alríkis- dómari í dag, að röntgenmynd- ir skyldu teknar af höfði sak- borningsins. Talið er, að með röntgen- myndunum hyggist verjand- inn sanna, að Patricia hafi beðið varanlegt tjón þegar „Symbionesfski frelsisherinn" rændi henni í febrúarmánuði 1974. Ítalía: Búizt við úrslitum í dag Róm, 4. febrúar. — Reuter. Leiðtogar sósíalista á Italfu, sem nú virðast hafa stjórnar- myndun f hendi sér, frestuðu f dag ákvörðun til morguns um þátttöku í stjðrn undir forsæti Aldo Moros. Að loknum tveggja klukku- stunda fundi ritara sósialista- flokksins, Francesco de Martino, og Aldo Moros var tilkynnt að endanleg úrslit um stjórnarmyndunartilraunir Iyrðu tilkynnt að loknum form- legum fundi leiðtoganna á U morgun. \ Martino var að því spurður I"1 hvort nokkrar horfur væru á því að Moro tækist stjórnar- myndun og svaraði hann þá: „Að sjálfsögðu eru horfur á í þvi.“ Ákvörðun sósíalista er talin * velta á því hvort þeir fallast á i tillögur Aldo Moros um endur- skipulagningu iðnaðarins og ■ leiðir, sem hann hefur bent á til að draga úr atvinnuleysi, en á Italíu er tala atvinnulausra nú komin upp í 1.2 miiljónir. Frainhald á bls. 19

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.