Morgunblaðið - 05.02.1976, Side 23

Morgunblaðið - 05.02.1976, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. FEBRÚAR 1976 23 — Guðm. G. Hagalín Framhald af bls. ir Ýmsir munu hneykslast á skírnarathöfninni sakir þess hve tiltölulega náið er þar fylgt alkunnum kirkjulegum texta, en höfundurinn hefur einmitt viljað sýna í hve æpandi misræmi slík trúar- og helgiathöfn er við það allsherjar menningar- og áhuga- leysi um flest, sem er ríkjandi á heimilinu og meðal þess fólks sem kemst í snertingu við það. Leiknum var tekið með ágætum leikendur, ieikstjóri og höfundur hylltir í leikslok með langvarandi lófataki. Þegar svo upp hafði verið staðið. lagði ég evrun við máli manna, og það sem ég heyrði af munni vel greindra manna var á þessa leið: „Þetta er lífið. Þetta er bara hversdagslífið... Heimilislífið er svona ákaflega víða. Því verður ekki neitað, — því miður.“ Þetta lét ömurlega i eyrum mínum, og mér varð hugsað til þessa erindis úr Hulduljóðum Jónasar Hallgrímssonar: Að fræða? Hver mun hirða hér um fræði? Heimskinginn gerir sig að vana- þræl. Gleymd eru lýðnum landsins fornu kvæði, leirburðarstagl og holtaþokuvæl fyllir nú breiða byggð með aumlegt þvaður. Útför + REBEKKURUNÓLFSDÓTTUR Reynigrund 33, Kópavogi - er andaðist 30 janúar, fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn 6. febr. kl. 3. Kristín Skaptadóttir Kristján Olsen Erna Olsen Gunnar Guðnason og aðrir vandamenn. + Faðir minn, tengdafaðir og afi, BERGVIN EINAR JÓHANNSSON, verður jarðsunginn föstudaginn 6 febrúar frá Hafnarfjarðarkirkju kl 2 Sigurlaug J. Bergvinsdóttir, Sveinn Simonarsonar og barnabörn. + Þökkum af alhug samúð og vinsemd við andlát og jarðarför bróður okkar MATTHÍASAR MATTHÍASSONAR, frá Grímsey Systkini hins látna. + Alúðarþakkir fyrir auðsýnda vináttu og samúð við andlát JÓNS B. JÓNSSONAR, Espigerði 2. Hulda Kristjánsdóttir, Guðrún M. Jónsdóttir, Guðmundur Kr. Tómasson. + Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og jarðarför EINARS B. VESTMANN, Vesturgötu 92, Akranesi. Maria Einarsdóttir og börnin. + Þökkum inmlega auðsýnda samúð og vináttu við andlát móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, ÞÓRBJARGAR JÓNSDÓTTUR Ásvallagötu 29 Hulda Karlsdóttir Heinrich Karlsson Hörður Karlsson Þórir Karlsson börn og barnabörn Svanur Steindórsson Henrietta Karlsson Hjördís Bjarnadóttir Kristrún Malmquist + Við þökkum af alhug þá miklu vináttu og samúð, sem okkur var sýnd við andlát og útför móður okkar. GRÓU M JÓNSDÓTTUR. Sérstakar þakkir sendum við starfsfólki og vistmönnum Elli- og hjúkrunarheimilinu Grund og bróður minum Böðvari þakka ég alla hjálp og lipurð. Guð blessi ykkur öll. Astriður Eyjólfsdóttir, Bóðvar Eyjólfsson, Þórður Eyjólfsson, Fanney Guðmundsdóttir, og barnabörn. Bragðdaufa rímu kveður vesall maður. Hvort höfum við svo í allri vel- sældinni og þægindunum „gengið til góðs götuna fram eftir veg?“ — ef það er rétt, sem kvað við i eyrum mínum frá fleiri en einum og fleiri en tveimur greindum og hugsandi mönnum, körlum og konum, eftir leiksýninguna á Logalandi? Mýrum í Reykholtsdal. 26.—27. janúar1976 Guðmundur Gfslason Hagalín úllaraskreytlngar btómouol Gróðurhúsið v/Sigtun simi 36770 Hver selur hvað? Þegar þú þarft aö afla þér upplýsinga um hver hafi umboð fyrir ákveöna vöru eða selji hana þá er svarið aö finna í "ÍSLENSK FYRIRTÆKI” sem birtir skrá yfir umboðsmenn, vöruflokka og þjónustu sem íslensk fyrir- tæki bjóða upp á. Sláið upp i ”ÍSLENSK FYRIRTÆKI” og finniö svarið. FÆST HJÁ ÚTGEFANDA. | kJ|i|' li HLjK i !|1 Sf- |j! 1111 IHr^ i|li|| S| Útgefandi. FRJÁLST FRAMTAK hf. Laugavegi 178 - Símar . 82300 82302 AUGLÝSINGASIMINN ER: 22480 JR*rjjunbI«í>it> Skora á stjórnvöld að hækka ekki verð á bensíni Blaðinu hefur borizt eftirfarandi frá Félagi islenzkra bifreiðaeigenda: FYRIR verðlagsráði mun liggja umsókn frá olíuinnflytjendum um 4 króna hækkun á bensinlitra vegna erlendra hækkana Stjórn Félags íslenzkra bifreiðaeig- enda skorar af því tilefni á stjórnvöld að halda hækkunum á eldsneyti bif- reiða í lágmarki, enda er það viður- kennt. að eldsneytishækkanir flutn- ingatækja eru einn mesti verðbólgu- valdur hér á landi Full ástæða er til að benda á, að nálægt helmingur 'þessarar boðuðu hækkunar mun ekki mæta erlendri verðhækkun, heldur renna i rikissjóð sem auknar tollatekjur og söluskatts tekjur Slíkt hið sama hefur gerst við fyrri hækkanir bensíns, að nálægt helmingur hækkunarinnar hefur runnið til ríkissjóðs Fram hefur komið frumvarp á Al- þingi um breytingu á tollalögum, þannig að eldsneyti verði tcllað með magntolli i stað verðtolls, en með því móti mundu tollatekjur ríkisins ekki aukast sjálfkrafa vegna erlendra verð- hækkana, og þannig yrði hafður hemill á verðbólguáhrifum olíuhækkana Þetta frumvarp hefur ekki náð fram að ganga Einnig er full ástæða til að benda enn einu sinni á, að 16 krónur af verði hvers bensinlítra rennur sem sérskattur til Vegasjóðs. en síðan er þessi sér skattur aukinn með söluskatti um kr 3.20 Þannig hefur ríkið um árabil innheimt söluskatt af skattlagningu sinni. rétt á sama hátt og fjármálaráðu neytið drýgði tekjur sinar á komandi sumri með þvi að bæta söluskatti ofan á tekjuskatt Stjórn F í B er Ijóst að erlendar verðhækkanir verða ekki umflúnar. en telur sig hér hafa bent á fullnægjandi leiðir til að mæta erlendum verðhækk- unum án þess þær komi fram í hækk- uðu útsöluverði, ef ríkisvaldið vill Framhald á bls. 18 NOTAÐAR DRÁTTARVÉLAR VÉLABORG Sundaborg — Klettagörðum 1. Sími 86680. URSUS C 355 60 hö. árg. 1 974 keyrð 1 55 klst. í góðu lagi verð 400.000,- Int. Farmall 30 hö. árg. 1 959 í góðu lagi verð 200.000,- Deutz 32 hö árg. 1 965 í góðu lagi verð 300.000,- Ursus C-355 60 hö. árg. 1 973 í góðu lagi verð 500.000.- Massey Ferguson hö. árg. 1963. Góð dekk verð 300.000,- Zeteor47 hö. 4718 árg. 1972 keyrð 1400 klst i góðu lagi verð 450.000. Mallorkaferðir 1975 ENDURFUNDIR GRÍSAVEIZLA í Þjóðleikhúskjallaranum kl. 19.30 Far- þegar 1975 og gestir þeirra sumaráætlun 1976 kynnt. 8.febrúar 13.febrúar Farþegar í ferðum 24. marz — 21. maí — 6. júní — 20. júní Farþegar í ferðum 4. júlí — 18. júlí -— 1. ágúst 15.febrúar Farþegar í ferðum 15. ágúst — 22. ágúst — 29. ágúst 22. febrúar Farþegar i ferðum 5. sept. — 12. sept. — 26. sept. — 10. okt. Borðapantanir á skrifstofunni

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.