Morgunblaðið - 20.02.1976, Síða 11

Morgunblaðið - 20.02.1976, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 20. FEBRÚAR 1976 11 Við löndun á Eskifirði — Ásg. Har. „Mikil blóðgjöf að fá loðnuna ” JON ÖLVERSSON skipstjóri á Magnúsi frá Neskaupsstað var í brúnni á skipi sínu og fylgdist meö löndun. Það var mikið um að vera við höfnina enda biðu margir bátar löndunar eftir metafla sem fékkst þann sólar- hring. — Vertíðin leggst yfirleitt alltaf vel i mig. Maður vonast til að það verði ekki minni afli í ár en í fyrra ef ekki verður stopp. — Við erum búnir að veiða, tja ætli það séu ekki svona 1600 tonn. Þetta er sjötta löndunin. (11. febr.). — Báturinn er 260 tonn. Núna erum við með fullfermi sem við fengum í tveim köstum. — Héðan er um 10 tíma stím á miðin eins og er en loðnan var við Hrollaugseyjarnar. — Við fiskuðum í fyrra um það bil 6.500 tonn á svona tveim mánuðum. — Loðnan hljóp núna í góðar torfur. Það var fyrst í gær- kvöldi sem hún varð veiðanleg í marga daga. Það hefur náttúru- lega verið vont veður en hún hljóp reyndar ekki saman fyrr en í gærkvöldi. — Nótin hjá okkur er 150 faðmar og 44 faðmar á dýpt. Hún er nú orðin gömul. Þetta er bara smá bleðitl. — Loðnuverðið er allt of lágt. Við getum ekki skapað okkur kaup á minni skipunum meðan verðið er svona lágt. — Annars held ég að mann- skapurinn liti umbæturnar á sjóðakerfinu björtum augum, ef allt er tekið til skipta. BRAGI HALLDÓRSSON vinn- ur á pallinum í fiskimjölsverk- smiðjunni á Eskifirði. — Eg er búinn að vera i 20 ár á Eskifirði og kann alveg stór- vel við mig. Það er gott fólk hérna og atvinna hefur verið góð. Það er mikil blóðgjöf fyrir staðinn að fá loðnuna. Það er bara svo lágt kaup að menn þurfa að vinna svo mikla yfir- vinnu að félagslif fer forgörð- um. Menn vinna svo mikið að þeir geta ekki sinnt sinum hugðarefnum sem skyldi. — Og krafa okkar væri sú í dag að við hefðum það gott dag- vinnukaup að við þyrftum ekki að vinna næturvinnu. Atvinnu- reksturinn þyldi það með þvi móti að það kæmu ýmsar leiðréttingar frá stjórnvöldum. — Og sem sagt stjórnvöld mega ekki gleyma verkafólkinu sem er aðaluppistaðan í fram- leiðslugetu landsins. Landið getur ekki borið sig nema verkafólkið sinni framleiðslu- störfunum. — Hér á Eskifirði er nokkuð góð aðstaða til löndunar loðnu. Það er svona miðlungsaðstaða önnur svo sem þróarrými og vinnuaðstaða. Ég get kannski ekki sagt að hún sé fullkomin en hún er ekki verri en annars staðar. — Svo má bæta því við að margir hafa sagt að þetta sé einhver þrifalegasta verk- smiðja á landinu. — Ég vil líka taka fram um landhelgismálið að ég állt að þeir séu allt of linir við að slita stjórnmálasambandi við Breta og segja sig úr NATO. Bretar hafa komið þannig fram við okkur að þeir eiga ekkert gott skilið. Landað á Eskifirði. Ljósm. A.H. Um borð í Norglobal: „Hér er svo miklu hlýrra ” NORGLOBAL hefur nú legið á Reyðarfirði frá því 7. febrúar. Hefur skipið minnkað mjög þá löndunarbið sem farin var að skapast þegar skipið kom á mið- in. Norglobal hefur nú tekið á móti rúm. 16.000 tonnum af loðnu. A síðustu loðnuvertiö var skipið einnig hér við land og tók þá á móti rúm. 14000 tonnum af loðnu. 15. febrúar i fyrra hafði Norglobal tekið á móti rúmlega 15.000 tonnum. Meðalafköst skipsins eru um 1500 tonn á sólarhring og eru það meiri afköst en hjá verk- ast ég öll viðskipti við land gegnum lot'tið. Stýrimennirnir eru mér mjög hjálplegir. Sam- starfið milli mín og þeirra er alveg eins gott og hugsast get- ur. — Mér finnst verulega gam- an að vera kominn í samband við sjómennina aftur eins og á sildarárunum forðum. — Loðnuvertíðin leggst ann- ars bara vel í mig. Tíðin er að vísu ekki eins góð og i fyrra. Þá stoppaði skipið aldrei vegna hráefnaskorts heldur bara þeg- Eileif Johansen skipherra á Norglobal ásamt Ottó W. Magnússyni móttökustjóra um borð í skipinu. Ljósm. Á.H. smiðjunum á Fáskrúðsfirði, Reyðarfirði og Eskifirði til sam- ans. I fyrra lá skipið hluta timans á Reyðarfirði en þegar loðnan fór að færast vestur með landi flutti það sig inn á Hvalfjörð. Það eru fyrirtækin Isbjörn- inn og Hafsild sem leigja skip- ið. Hafa þau um borð sinn full- trúa Ottó W. Magnússon, og er hann jafnframt móttökustjóri. Morgunblaðið brá sér um borð og ræddi við hann um starfið og lifið um borð. — Mér likar mjög vel, mjög vel. Aðbúnaður allur er eins og á hóteli. Svo eru Norðmennirn- ir alveg ágætir, alveg eins og vant er. Það er alltaf gott að vinna með Norðmönnum. Þeir eru alveg sérstaklega góðir menn. — Ég verð hér um borð með- an skipið er hér við land. Starf- ið hjá mér felst í því að taka á móti hráefni um borð. Svo ann- ar verið var að hreinsa einu sinni í viku. — Um borð er allt mjög þrifa- legt, klefarnir snyrtilegir og aðstaða mjög góð. — Samskipti skipsins eru svo til eingöngu við loðnunefnd i Reykjavík sem ég tel þarfasta og bezta nefnd sem sett hefur verið á laggirnar. Það er mjög gott að eiga samskipti við hana. — Loðnunefnd gefur mér upp hvaða bátar koma hér. Eg held að loðnunefnd starfi á mjög heilbrigðum grundvelli. — Ég var um borð í þrjár vikur i fyrra. Þá vorum við tveir Islendingarnir um borð, en nú er ég bara einn. Mikið af áhöfninni sem var i fyrra er enn á skipinu. — Nú vinn ég á meðan að löndun stendur yfir og svo vinn ég bara þegar min er þörf. — Mér fellur þessi vinna mjög vel. Þó fellur mér einnig ágætlega við mína föstu vinnu í landi. Þetta er samt ágæt til- breyting. Eileif Johansen er skipherra á Norglobal. Hann var að vísu ekki með skipið þegar það var hér i fyrra, þá var hann í frii. Hann var þó með skipið þegar það var undan ströndum Mári- taníu, en þar voru nokkrir is- lenzkir bátar með því. Það reyndist nokkrum erfíð- leikum bundið að finna skip- herrann um borð til að spjalla svolitið við hann. Það er heldur ekkert gaman að þurfa að leita að einum manni um borð í svo stóru skipi sem Norglobal er. Það auðveldaði heldur ekki leitina að skipherrann hefur brennandi áhuga á öllu sem fram fer um borð og gat hann því verið upp i verksmiðju niðri í vélarrúmi eða hvar sem var i skipinu. Hann fannst þó að lok- um og tók því ágætlega að spjalla svolítið um skipið og starfsemi þess. — Skipið er 26.000 lestir að stærð, sagði hann, og meðalaf- köst þess eru nálægt 1500 tonn- um á sólarhring. I verksmiðj- unni eru þrjár vélasamstæður. Hægt er að geyma 3.800 tonn af óunnu hráefni um borð og u.þ.b. 8.000 tonn af mjöli. Mjöl- ið er ekki sekkjað um borð í skipinu eins og gert er í landi. — Hægt er að afgreiða þrjá báta í einu. — Um borð er 55 manna áhöfn. Eru það 50 Norðmenn og 5 Spánverjar sem aðstoða bryt- ann. — Ég fer lítið í land, sagði Eileif ennfremur. Einu sam- skiptin sem ég hef við Islend- inga í landi eru að við fáum nýjan fisk og vistir frá þeim. — Þetta er nú stutt ferð, verður e.t.v. tveir mánuðir í mesta lagi. Eg var eitt sinn sjö mánuði á sjó án þess að stíga nokkru sinni á land svo að þetta þykir nú ekki langt. — Siðast vorum við við norð- ur Noreg. Þar var miklu þrengra og erfiðara að athafna sig en hér. Hér er lika miklu hlýrra. Þar vorum við iðulega í 17 til 18 gráða frosti, en hérna er frostið varla nema nokkrar gráður. Um leið og haldið var frá borði var reynt að sannfærast um að hér væri alls ekki svo kalt, eins og skipherrann á Nor- global hafði sagt. Eileif Johan- sen var hins vegar löngu horf- inn inn i verksmiðjuna til að fylgjast nánar með því sem þar fer fram. Á.H.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.