Morgunblaðið - 20.02.1976, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 20. FEBRUAR 1976
21
félk f
fréttum
Einkona
— tvö andlil
Marisa Berenson f bananastuði
Folies-Bergére.
eins og Jóseffna Baker á
Marisa Berenson f hlutverki aðalskonunnar f kvikmyndinni
„Barry Lyndon“, sem Stanley Kubrick gerði eftir sögu William
M. Thackerarys. Myndin fjallar um sjálfstortfmingu og sögu-
sviðið er Irland, Þýskaland og England 18. aldar. Fjölmargar
þekktar pecsónur koma við sögu og samtfma málverk eru dregin
fram. Gifysileg vinna var lögð í rannsóknir, áður en myndataka
hófst, m.a. varðandi klæðnað fólks á þessum tíma. Myndin þykir
afburða fögur og vel gerð. Framleiðendur eru Warner Brothers.
BO BB & BO
+ Myndin hér til hliðar birtist
f tfskublaðinu Vouge og er úr
myndröð, þar sem leikkonan og
fyrirsætan Marisa Berenson
líkir eftir ýmsum frægum og
sérkennilegum konum — m.a.
hinni óviðjafnanlegu Jóseffnu
Baker, sem hún nær óneitan-
lega nokkuð vel. Ilún er þarna f
bananaskýlu eins og Jóseffna
klæddist forðum, er hún
skemmti á Folies-Bergére í
Parfs á 3. áratugnum (litla
myndin). Föl húð Marfsu var
lituð með brúnu maki, áður en
hún setti sig f stellingar og hún
bar svarta hárkollu. Það er
ótvfræður 'meistarabragur á
handverki Ijósmyndarans,
Richard Avedon. Ilann notaði
„jóseffnska" hljómlist f vinnu-
stofu sinni á Manhattan til þcss
að auðvelda fyrirsætunni að
hita sig upp. „Jóscffna Baker
dansaði oft dans, sem hún
kallaði apadansinn," segir
Marisa. „Hún kom fram á
sviðið og Ifkti eftir hreyfingum
apa, hljóp um og skrækti. Og
þetta reyndi ég að apa eftir
henni.“ Mynd þessi af Marisu
Berenson f gervi Jóseffnu
Baker er skemmtileg andstæða
þeirrar Marisu, sem fer með
hlutverk hinnar bresku 18. ald-
ar aðalskonu f kvikmynd
Stanley Kubricks, „Barry
Lyndon“, eins og sjá má á neðri
mvndinni hértil vinstri.
(Time Vogue)
Sidney Poitier, eini óskarsverð-
launahafinn f hópi blökku-
manna (Liljur vallarins)
kvæiitist 23. janúar s.l.
kanadfsku leikkonunni Joanna
Shimkus. Þetta er annað hjóna-
band hans, en hennar fyrsta.
Þau hafa búið saman sfðan
1968 og eiga tvær dætur saman,
4ra og 2ja ára.
SIOUX CITY Iowa — 11. febr.
Charles Knowles frá Kingsley i
Iowa, sem er 100 ára gamall,
gckk undir ökupróf 31. janúar
s.l. — en féll. Má hann reyrta
við prófið öðru sinni fyrir 20.
febrúar. Knowles segir að hann
aki vild sfna heima f héraði,
meðan birtu njóti á daginn.
Batiksýning
í Stofunni
SIGRUN Jónsdóttir hefur nú
opnað sýningu á yfir 100 verk-
um i Stofunni, Kirkjustræti 11.
Eru á sýningunni einkum
batikverk og glergluggar en
einnig vefnaður. Mun Sigrún
halda utan innan skamms og
halda sýningu á verkum sínum
í New York i boði Scandinavian
Foundation i New York.
A sýningunni er m.a. mynd
sem Sigrún sýndi á sýningu hjá
UNESCO og hlaut þar sérstaka
heiðursviðurkenningu. I þeirri
sýningu tóku listamenn 63ja
landa þátt og voru tvö verk frá
hverjum listamanni en fjögur
verk Sigrúnar voru sýnd þar.
Sýningin verður opin frá kl.
9—6 virka daga og fram á
þriðjudag n.k.
Sigrún Jónsdóttir við verkið
sem fékk heiðursviðurkenn-
ingu á UNESCO.
Fornihvammur:
Hýsti 30 manns
í 3 sólarhringa
— I óveðrinu hér um helgina
tepptist bæði Holtavörðuheiðin
og Hellishrvggurinn hér fvrir
neðan, svo að hér stöðvuðust við
gistihýsið alls 12 bílar, stórir og
smáir,“ sagði Hafsteinn Olafsson,
veitingamaður í Fornahvammi,
þegar við ræddum við hann f gær.
Að sögn Hafsteins voru alls um
30 manns i þessum bílum og varð
fólkið að halda kyrru fyrir í
Fornahvammi í þrjá sólarhringa
eða þar til á mánudag, þegar leið-
in var opnuð á ný.
Ríkið á Fornahvamm, en það
lýtur umsjá Vegagerðar ríkisins,
og sagði Hafsteinn, að hann héldi
fistihúsinu nú opnu i trássi við
vilja Vegamálastjóra, sem teldi
ekki ástæðu til að hafa húsið
starfandi á þessum árstíma. Sagði
Hafsteinn, að þetta væri í þriðja
sinn, sem fólk tepptist með þess-
um hætti i töluverðan tíma við
Fornahvamm, og taldi algjörlega
óverjandi að loka húsinu fyrir
vegfarendum á erfiðasta tíma árs-
ins.
Mikil spjöll
voru unnin á
bamaheimili
AÐFARARNOTT mánudags
fékk barnaheimilið Bakkaborg
í Breiðholti heimsókn heldur
óskemmtilegra náunga. Brutu
þeir upp hurð, fóru inn f
heimilið og frömdu þar stór-
kostleg spjiill. Var heimilið af
þessum sökum hálf óstarfhæft
f gær og vöggustofa þess alveg
lokuð.
Svo virðist sem skemmdar-
vargarnir hafi fyrst lagt leið
sína í eldhúsið. Þar var mat-
vælum hent út um allt, m.a.
eggjum um alla veggi. Lakk-
málningu í öllum regnbogans
litum var helt niður á gólfin og
málningin troðin um allt
húsið. Þá var dót barnanna
rifið niður og eyðilagt. Loks
voru unnar skemmdir á
húsmunum, m.a. á skrifstofu
heimilisins. Nemur tjónið
undruðum þúsunda, því það er
allt eins vist að skipta þurfi
um dúka á gólfum.
Aðförin svipar þarna til
innbrots sem framið var f
kjallara Breiðholtsskóla
nóttina áður, þar hefur skáta-
félagið Urðakettir aðstöðu.
Engu var stolið en miklar
skemmdir unnar með exi.
Rannsóknarlögreglan hefur
mál þessi til meðferðar.
Smáfiskadrápið í Reykja-
fjarðarál orðum aukið
Hafrannsóknastofnunin hefur
fengið nánari tölur um landaðan
afla úr Reykjafjarðarál, þar sem
kemur í ljós að fyrstu fregnir sem
stofnunin fékk um skiptingu afl-
ans í stærðir hafa verið ýktar, að
sögn Jóns Jórtssonar, forstöðu-
manns stofnunarinnar. Hins
vegar kvað hann þess að geta að
þarna væri um landaðan afla að
ræða og ekki lægi því fyrir hversu
miklu hefði verið kastað.
Olafur Pálsson, fiskifræðingur,
mældi þennan afla úr togurum
sem lönduðu á Siglufirði úr
Re.vkjafjarðarál. Var Ölafur á
Hafþóri, sem sendur var strax á
þetta svæði en komst aldrei
lengra en til Siglufjarðar vegna
óveðurs. Veiðinni í Reykja-
fjarðarál er hins vegar lokið nú.
Samkvæmt mælingum Ölafs er
aflasamsetningin svo sem hér
segir: Undir 42 sm voru 0,6%
aflans, 45,6% voru af stærðinni
43—54 sm, 40,8% af stærðinni
55—70 sm en 13% voru yfir 70
sm. Þannig voru alls um 18%
aflans undir 50 sm og eftir þvi
sem Ólafur sagði var þarna mest
um 4ra ára fisk að ræða. Jón
sagði, að samkvæmt þessum töl-
um væri ekkert athugavert við
samsetningu aflans.