Alþýðublaðið - 27.09.1958, Síða 1

Alþýðublaðið - 27.09.1958, Síða 1
XXXIX. árg. Laugardagur 27. sept. 1958 219. tbl. Rœða utanríkisráðherra á allsherjarþinginu: Á MQRGUN sunnudag verður haldnir þrír fundir á vegum Alþýðuflokksins. Af þeim verða tveir almennir fundir á Keyðarfirði kl. 4 e. h. í félagsheimiiinu þar og félagsheimilinu Herðubreið á Seyðisfirði um kvöldið kl. 9. Kæðumenn á þessum fundum verða Gylfi Þ. Gíslason menntamálaráðherra og Benedikt Gröndal alþingismað ur. Þá verður og haídinn fundur með Alþýðuflokks fólki í Árnessýslu í samkomusal Kaupfélagsins á Sel fossi kk 2 e. h. á morgun, sunnudag. Framsögumenn á þeim fundi verða beir Emil Jónsson formaður Alþýðu flokksins og Helgi Sæmundsson ritstjóri. Vopnavaldi hefur aldrei áður verið beitf gegn þjóð, sem færði út fiskveiðilandhelgi ALÞÝÐUBLAÐINU barst . gærkveldi í heild ræða utan- ríkisráðherra, er hann flutti á allslierjarþinginu um landhelgis málin. í lok ræðunnar kvaðst utanríkisráðherra vilja leggja á- herzlu á., að bað væri krafa ríkisstjórnar sinnar, að þegar í stað yrði hætt hernaðaraðgerðum á fslandsmiðum. En slíkum aðgerðum hefur aldrei áður verið beitt gegn neinu ríki, sem hefur einhliða fært út lögsögn sína yfir strandveiðum, sagð Guðmundur. Beitingu vopnavalds í skiptmn þjóða vcrður af hætta (the gun point diplomacy must come to an end), voru lokaorð utanríkisráðherra. Pekmg og Taipeh, föstudag. (NT'B-Aí'P). ,,'NÝJA KÍNA“, fréttastofa kínverskra kommúnista vísaði í dag á bug tillögu Bandaríkja- manna um vopnahlé ó Formósu sundi og lét í ljós, að sendiherra viðræðurnar í Varsjá væru komnar á erfitt stig. Er þetta hið fyrsta ,sem fréttastofan hef ur látið frá sér fara úm við- ræðurnar. Segir í fréttinni, að Bandaríkjamenn séu að reyna að komast burtu frá meginatr- iðum málsins Og hafa gott af hinum almenna stríðsótta. Þá mótmælir fréttastofan þeirri staðhæfingu Bandaríkjamanna, að kínverska „alþýðulýðveldið“ sé að koma fram rétti sínum á sínu eigin landssvæði. Átökin herra þjóðernissinna, að um- við Formósusund nú séu fram- hald borgarastyrjaldarinnar. í Taipeh sagði utanríkisráð- ræður á allshsrjarþingi Sam- einuðu þjóðanna um ástandið við Formósusund væru tilgangs lausar nema því aðeins, að að- ildarríkin væru íús t.l sameig- inlegra átaka gegn árásarmönn unum. HAFNAKBANN ROFIÐ. Flutningaskip þjóðernissinna rufu í dag hafnarbann kommún isía á Quemoy í fyrsta sinn í fjóra daga. Þau nutu verndar amerískra herskipa. Rúmlega 100 tonn af birgðum voru sett á land úr 18 skipum, þrátt fyr- Framhald á 8. síðu. Ræða utanríkisráðherra var löng og ýtarleg. 1 fyrri hluta ræðunnar vék hann að ýmsum alþjóðlegum málum eins og af- vopnunarmálinu, málum nálæg ari Autsurlanda, stofnun her- liðs á vegum SÞ, o. s. frv. Þá minntist ráðherrann á málcfni Alsír og Kýpur sérstaklega og lýsti fylgi íslands við sjálfsá- kvörðunarrétt íbúanna í þess- um löndum. Ennfremur ræddi hann um kynþáttamálin í S.- Afríku og lýsti fylgi íslands við sjálfsákvörðunarrétt íbúanna í þessum löndum, án tillits til iitarháttar. í síðari hluta ræð- unnar ræddi hann aðallega um landhelgismái íslands í sam- bandi við 59. dagsskrármálið, sem fjallar um, að kölluð verði saman ný ráðstefna um réttar- reglur á hafinu. Ráðherrann sagði m. a. orð- rétt: „Meðan viðræður stóðu yfir á síðastliðnu sumri milli íslands og grannþjóða þess, var lögð á það áherzla af öllum aðilum, engu síður þeim sem mótmæltu hinni nýju reglugerð um fisk- veiðilandhelgi íslands, að mjög mikilvægt væri að forðast alla alvarlega árekstra. Ríkisstjórn íslands vill nota þetta tækifæri til að þakka þeim ríkisstjórnum er hafa far- ið að samkvæmt þessu og var- að fiskiskip frá viðkomandi löndum við að stunda veiðar innan fiskveiðilandhelgi ís- lands. Aðeins ein ríkisstjórn, ríkisstjórn Bretlands, kaus að fara aðra leið og hefur hvatt brezka togara til þess að veiða innan tólf mílna markanna og hefur sent fleiri herskip þangað til þess að verja ólöglegar veið- ar togaranna og re'yna að þvinga ríkisstjórn íslands með ofbeldi til þess að fallast á sjón armið Breta í þessum efnum. Þessu hefur íslenzka ríkis- stjórnin mótmælt og ég árétia þessi mótmæli hér. Ég vil í þessu sambandi vekja athygl' á því að eitt af stórveldum Évr- ópu, Sovétríkin, er búið að hafa tólf mílna landhelgi um al1 langt skeið án þess að Bretar hafi sent herskip þangað til að gæta hagsmuna sinna sam,- kvæmt meintum alþjéðalögum og þetta eins á þeim tíma þeg- ar ekkert samkomulag var á Framhald á 5. síðu. Guðmundur I. Guðmundsson utanríkisráðherra Sagði forsætisráðherra í útvarps- ræðu í gærkveldi HEBMANN JÓNASSON, for sætisráðherra flutti útvarps- ræðu í fréttaauka útvarpsins í gærkveldi. Ræddi hann atburði þá er gerðust í fyrradag út af Patrcksfirði. Ráðherrann sagði, að hinn. sjúki brezki maður, er tundur- spiilirinn hefði flutt til Patreks fjarðar, hefði verið svo mikið veikur, að ekki hefði verið tal- ið þorandi að flytja hann aftur um borð í brezka togarann. Því hefði hann lalið rétt að leyfa herskipinu að flytja manninn í land. Um hitt atriði málsins, hvorf. nota átti tækifærið til þess að taka togarann meðan herskipið Framhald á 5. síðu. Togaralöndun AFLI togaranna er góður þessa dagana út af Labrador. Þeir fylla sig þar á skömmum tíma, meðan brezku togar- arnir skafa botninn hér við land.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.