Morgunblaðið - 14.03.1976, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 14.03.1976, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14, MARZ 1976 3 Hitaveitan: Stöðva verðlagsyfirvöld framkvæmdir í Hafnarfirði? Eftir að leggja hitaveitu í 35% íbúðarhúsnæðis í kaupstaðnum POP-SÝNINGIN. — Pop-sýningin í Listasafni tslands hefur verið vel sótt og vakió mikla athygli. Á sýningunni eru meðal annars sjö myndir eftir Guðmund Erró, og birtist hér mynd af einni þeirra. Island aðili að þremur stórum vörusýningum HORFUR eru á því að engar framkvæmdir verði við hitaveitu- lagnir í Hafnarfirði á þessu ári að óbrevttri gjaldskrá fyrir Hita- veitu Reykjavíkur, er annast þessar framkvæmdir. Forsenda fyrir áframhaldandi framkvæmd- um er leiðrétting á gjaldskrá Hitaveitu Reykjavíkur sem sótt hefur verið um til stjórnvalda, en afgreiðsla ekki fengist á, þrátt fyrir ítrekuð tilmæli hitaveit- unnar og bæjaryfirvalda í Hafn- arfirði. Eftir er að leggja hita- veitu í um 35% íbúðarhúsnæðis í Hafnarfirði. Miðað við núverandi gjaidskrá hitaveitunnar er heita- vatnskostnaður aðeins 25% af olíukostnaði til húshitunar, svo stöðvun hitaveituframkvæmda er mikið f járhagsatriði fyrir við- komandi ibúa í Hafnarfirði, auk þess að vera veigamikið gjald- eyrisatriði fyrir þjóðarbúið. Gatnaframkvæmdir I Hafnarfirði í haust og vetur hafa verið við það miðaðar að hitaveituframkvæmd- ir hæfust þegar er aðstæður leyfa í vor og fjárhagsáætlun kaup- staðarins gerir ráð fvrir 140 m.kr. útgjöldum f þessu skyni í ár. Fáist hinsvegar umbeðin leiðrétt- ing á gjaldskrá Hitaveitu Reykja- víkur eru allar aðstæður fyrir hendi til að Ijúka hitaveitulögn í kaupstaðinn á þessu ári. Þetta kom fram i viðtali Morgunblaðs- ins i gær við Kristinn Ó. Guð- mundsson, bæjarstjóra f Hafnar- fi rði. BRÉF HITAVEITU REYKJAVlKUR Hitaveita Reykjavíkur sendi bæjarstjórn Hafnarfjarðar eftir- farandi bréf, dags. 17. þessa mán- aðar: „Eins og yður er kunnugt hefur enginn árangur orðið af umsókn- um borgarstjórnar Reykjavikur til ráðuneytis um staðfesting hækkaðrar gjaldskrár Hitaveitu Reykjavíkur. Hitaveitan hefur á undanförn- um árum tekið erlend lán til þess að standa undir nýjum fram- kvæmdum, langt umfram það sem áætlað var miðað við heilbrigða gjaldskrá. Hefur hún orðið fyrir störfelldum gengistöpum vegna þessarar lántöku, þannig að siðustu tvö ár hefur hún verið rekin með beinu tapi. Nú er svo komið að fyrirsjáan- legt virðist, að tekjur veitunnar munu ekki standa undir nema hluta þeirra framkvæmda, sem fjárhagsáætlunarfrumvarp frá nóvember 1975 gerði ráð fyrir. Þar var reiknað með því að dreifi- kerfislögn yrði lokið í nágranna- bæjunum miðað við núverandi byggð og samninga milli sveitar- félaganna og Reykjavíkurborgar. Auk þess yrði lokið virkjunar- framkvæmdum nauðsynlegum til þess að sjá öllum dreifikerfis- stækkunum á þessu ári fyrir nægu varmaafli veturinn 1976—77. Með tilvísun til 3. greinar samnings milli Hafnarfjarðar- bæjar og Reykjavíkurborgar frá 1. nóvember 1973, verður því að tilkynna yður, að dreifikerfislögn um í umdæmi yðar verður að fresta um sinn. Þó mun reynt að Framhald á bls. 47 I frétt frá útflutningsmiðstöð iðnaðarins kemur fram að nú þeg- ar hefur þátttaka íslenzkra iðn- fvrirtækja verið ákveðin í þrem- ur stórum vörusýningum erlendis í þessum mánuði. Revnsla undan- farinna ára hefur sýnt að sala, Fleiri Líbýu- menn gripnir Kairó, Trípóli, 13. marz — Reuter EGYPZK yfirvöld hafa handtek- ið fimm manns með líbýsk vega- bréf, sem ráðgerðu skemmdar- verk í Kairó, að því er hið hálfop- inbera dagblað A1 Ahram sagði i dag. Annað Kairóblað, vikublaðið Akhbar el-Yom, sagði að 12 lf- býskir hermenn sem tengdir væru palestínskri skæruliðasveit hefðu verið handteknir á Kairó- flugvelli s.l. sunnudag oa mánu- dag er þeir voru á leið til Baghdad til skemmdarverkastarfsemi þar. sem rekja má til þátttöku í þess- um sýningum, hefur verið góð og fer vaxandi. 1 Dusseldorf hefst sýning 14. marz og stendur til 17. marz. Nefnist hún IGEDO og er aðþjóð- leg tizkusýning. Islenzkir þátttak- endur á þeirri sýningu verða Ála- foss h.f. og Hilda h.f. Þá er sýning í Kaupmannahöfn og stendur hún frá 18. til 21. marz. I þessari sýningu taka sex íslenzkir aðilar þátt og eru það Sambandið, iðnaðardeild, Álafoss h.f., Hilda h.f., Gráfeldur h.f., Steinar Júlíusson feldskeri og Prjónastofa Borgarness. Þriðja sýningin er í Leipzig i Austur-Þýzkaland og eru það Sambandið, búvörudeild, og Sölu- stofnun lagmetisins sem þar sýna vörur sínar. Fyrirtækin, sem kynna vörur sínar á áðurtöldum sýningum hafa flest umboðsmenn sem ann- ast undirbúning og kynningu með íslenzku framleiðendunum. Ljósm. Heimir Stígsson. Steinþór Marinó Gunnarsson sýnir um þessar mundir 45 olíumálverk, lágmyndir og vatnslitamyndir í Iðnaðar- mannahúsinu í Keflavík. Sýningin er opin milli klukkan 16 til 22 um helgina. I fyrra pöntuöu mörg þúsund manns of * seint í Utsýnarferöir . h Veijiö réttu feröina tímanlega í ár Æ \ Veljiö öryggi, gæöi og góöaJBrm ^^^^þjónustu á ha9Stæðu^^^^m verði 9 Ferðaskrifstofart Ferðaskrifstofan Munið Útsýnarkvöldið á Hótel Sögu í kvöld r r. . ....... ....\ Austurstræti 17 Símar 26611 — 20100

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.