Morgunblaðið - 14.03.1976, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 14.03.1976, Blaðsíða 38
38 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. MARZ 1976 Eiginkona min, andaðist 1 2 marz TORFHILDUR JÓNSDÓTTIR, BólstaSarhlIS 8. Bergþór Ólafsson. SOFFfA FREYGERÐUR ÞORVALDSDÓTTIR, fv. IjósmóBir, Hrafnistu er andaðist i Borgarsjúkrahúsinu. 6 marz verður jarðsungin frá Fossvogskirkju. mánudaginn 1 5. marz kl. 3 Aðstandendur Maðurinn minn. + STEINN ÁRNASON, bifvélavirki. Hjarðarhaga 64, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju mánudaginn 15 marz kl 13 30 F.h. vandamanna, Guðrún R. Guðmundsdóttir. Útför móður okkar KRISTENSU JENSEN Álfheimum 56 verður gerð frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 1 6. mars klukkan 1 5. Torfey Steinsdóttir Kristján Steinsson + Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi ARNÓR ÞORVARÐARSON frá Jófríðarstöðum Hringbraut 55 Hafnarfirði verður jarðsunginn frá Hafnarfjarðarkirkju þriðjudaginn 16 marz kl. 2 e h Sólveig Sigurðardóttir börn, tengdabörn og barnaborn + Jarðarför STEFÁNS GUÐNASONAR frá Karlsskála fer fram frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 1 6 þ m kl 1 3.30. Sigrlður Guðmundsdóttir og synir. + Eiginmaður minn og faðir KRISTJÁN ÓSKAR GUÐMUNDSSON verður jarðsunginn frá Frlkirkjunni þriðjudaginn 16 marz kl. 13 30 e h Blóm vinsamlega afþökkuð Kristfn Jónsdóttir, Sigurjón Kristjánsson. + Þökkum innilega öllum þeim sem með samúð og vinarhug heiðruðu miriningu móður okkar EMMU JÓNSDÓTTUR við andlát hennar og útför Ástrlður Jakobsdóttir Jóhann Jakobsson Jón Jakobsson Bjöm Jakobsson + Við þökkum af alhug öllum hinum mörgu nær og fjær sem auðsýndu okkur vináttu og samúð við fráfall og útför FINNBOGA GUÐMUNDSSONAR, Bárugötu 18, Akranesi Guð blessi ykkur öll GuSrún DiSriksdóttir Guðmundur Finnbogason, Svava Finnbogadóttir. Roswitha Finnbogason, Hróðmar Hjartarson A U S i á Magnús Sœvar Við- arsson — Minning Fæddur 2. desember 1953. Dáinn 7. marz 1976 Á morgun verður Magnús Sævar Viðarsson jarðaður frá Siglufjarðarkirkju. Hann fædd- ist 2. 12. ’53 á Siglufirði, sonur Kolbrúnar Eggertsdóttur og Viðars Magnússonar, elstur fimm systkina og eini sonurinn. Þegar ég, sem þessar línur rita, minnist frænda míns, verður mér efst í huga sú hlédrægni og viðkvæmni, sem ávallt fylgdi honum. Meðan hann var smá- drengur umgekkst ég hann mikið, en svo liðu árin og við hittumst þá sjaldnar. Að lok- inni skólagöngu gerði Magnús sjómennsku að aðalstarfi sínu og stundaði hana jafnan frá Siglufirði. En gömul kynni rifjuðust upp, er hann fyrir tveimur árum kom til Ólafsvík- ur og gerðist skipverji á bát hjá manninum minum, og var þá í heimili hjá okkur þann tima Hann var ekki smádrengur lengur heldur ungur, glæsi- legur maður og sérstakt snyrti- menni. En viðmótið og bliðan sú sama og fyrr. Við áttum stundum tal saman og ræddi hann þá oft um litlu systur sín- ar, Þóru og Rut, með sömu um- hyggju og væri hann faðir þeirra Þær missa nú mikið við fráfall hans. Kolbrún, móðir hans, sem hefur orðið fyrir miklu mótlæti, sér nú á eftir þeim, er hún gat mest stuðst við. En nú sem fyrr er hún sú duglega og sterka. Af stuttri ævi verður ekki sögð stór saga og okkur, sem eftir stöndum, finnst forlögin hafa gripið hér inn i fyrr en skyldi. En þau verða ékki umflúin. Elsku Steinn Ámason bif- vélavirki -Minning Á MORGUN hinn 13. þ.m. fer fram frá Fossvogskapellu útför iiteins Árnasonar bifvélavirkja, til heimilis að Hjarðarhaga 64. Steinn var Eyrbekkingur, sonur hjónanna Kristínar Halldórsdótt- ur og Árna Helgasonar í Akri. Árni er þekktur formaður á Eyr- arbakka og víðar, fyrir farsæla sjósókn um áratugi og býr enn í Akri 91 árs að aldri. Steinn vár fæddur 26. mars 1923 hann ólst upp á Eyrarbakka og mun þar í æsku hafa bundist þeim tryggðum við sæ og sjávar- útveg er héldust æ siðan, þó æfi- störf hans yrðu önnur. Hann fer ungur til náms í bifvélavirkjun á Selfossi og fær meistarabréf í þeirri grein 1953. Steinn giftist eftirlifandi konu sinni Guðrúnu Rögnu Guðmundsdóttur 24. nóv. 1951. Guðrún var þá ekkja eftir fyrri mann sinn, er hún hafði misst, og tók Steinn að sér tvo syni hennar, þá Guðmund og Magnús Mássyni og gekk þeim í föðurstað. Guðrún og Steinn eign- uðust tvo syni, þá Árna skrifstofu- mann hjá Happadrætti Háskólans og Theódór Þór, sem nú stundar nám í Myndlista- og handiðaskóla Islands. 1 litlu vinaiegu timburhúsi á Kaplaskjólsvegi 2 bjó þessi fjöl- skylda framtil ársins 1970. Þar stundaði Steinn iðn sina i vinnu- skúr, sem hann kom sér upp í því augnamiði að geta verið sem mest heima og sinn eigin herra, því það mun hafa látið best. Snemma á þessum árum mun Steinn hafa kennt þess að hann gekk ekki heill til skógar, enda ef til vill aldrei likamlega hraustur. Mun margt hafa þar lagst á eitt að heilsan bilaði, ekki síst langur og oft óreglulegur vinnutími. Menn komu ekki síður seint um kvöld en að morgni, með smábilanir á bilunum sínum, því hjá Steini var + Móðir okkar og tengdamóðir RAGHHEIÐUR HELGADÓTTIR, lést á Sólvangi 10. þ.m. Guðrún Ólafsdóttir. Gunnlaugur Óskarsson. Rlkharður Kristjánsson. + Þökkum innilega auðsýndan vinarhug og samúð vegna fráfalls ÁSTVALDAR EINARSSONAR, rafmagnseftirlitsmanns frí Siglufirði, Emella Gunnarsdóttir, Pállna S. Dúadóttir, Jóhann G. Landmark. + Þökkum innilega auðsýnda samúð og vináttu við andlát og útför RÖGNU HALLDÓRSDÓTTUR Norðurbrún 1. Sérstakar þakkir til lækna og hjúkrunarliðs Landakotsspitala Ellert Ámason Sigrún Ellertsdóttir, Guðlaugur Jóhannesson, Sigurþór Ellertsson, Sigurborg Bragadóttir. tiiXiiiitiniix og barnaborn. frændi, þessi fáu kveðjuorð eru ekki allt, sem ég vildi segja, en litil þakklætisvottur fyrir þær björtu og góðu minningar sem ég á um þig. Ég bið Guð að styrkja foreldra hans og systur og aðra aðstandendur i þeirra miklu sorg. Blessuð sé minning þín. Frænka. allt á sama stað, fagmaðurinn og verkstæðið. En hin smáu viðvik, geta oft verið býsna mörg hand- tök. Það var því ekki einsdæmi að Steinn fyndist „úti í skúr“ þó komið væri miðnætti. Hann mun því oft hafa unnið meira af viija en mætti og þurft að herða sig upp til að standa við verk sem var lofað. Þannig liðu árin og urðu meir og meir barátta við heilsu- leysi sem segja má að hafi verið upp á lif og dauða i heilan áratug eða meir. Urslita barátta stóð svo frá því snemma í nóvember og þar til sunnudaginn 7. mars s.l. að sá er alltaf sigrar í þeirri hríð, dauðinn, greiddi liknarhöggið. Steinn var dagfarsprútt snyrti- menni, dulur tilfinningamaður og góður drengur. Hann hafði yndi af tónlist ekki síst yfir veigum meðal vina sinna, en jafnvel það leyfði heilsan ekki. Við hann á ef til vill það sem Einar Ben. segir: „Vér berum oft létt einsog líntraf hvað aðrir sjá þó leynist helsins eyðandi rót oss i sinni". Steins verður ekki minnst nema um leið sé getið sérstaklega hans ágætu konu. Þó að hún muni allra sýst vilja að sér sé hampað, þá er ómögulegt annað en að geta um þá fórnfýsi og sálarstyrk sem hún hefur sýnt í sambandi við veikindi manns síns. Guðrún mun nú mega að ég hygg, bæði teljast mæðu- og gæfukona. Ég leyfi mér ekki að tíunda atburði langt til baka, hitt er nóg, að fyrr í sömu viku og maður hennar deyr, hendir það reiðarslag Eyrbekkinga að þaðan ferstbáturmeð allri áhöfn. Á þess- um bát var bróðursonur Guðrún- ar. Um leið og öllum aðstandend- um þeirra er fórust er vottuð dýpsta samúð, skulu Guðrúnu færðar innilegustu þakkir frá systkinum og vinum fyrir allan hennar stóra þátt í lífi Steins Árnasonar. Að síðustu hverfa hugir okkar og sameinast heima á Eyrarbakka hjá pabba, afa og langafa, Árna í Akri og biðja honum styrks og Guðsfriðar, þegar hann nú horfir á eftir öðrum syni sinum leggja á djúpið. Kristján Magnússon Afmælis- og minningar- greinar ATHYGLI skal vakin á því, að afmælis- og minningargreinar verða að berast blaðinu með góðum fyrirvara. Þannig verð- ur grein, sem birtast á ( mið- vikudagsblaði, að berast I slð- asta lagi fyrir hádegi á mánu- dag og hliðstætt með grcinar aðra daga. Greinar mega ekki vera 1 sendibréfsformi eða bundnu máli. Þær þurfa að vera véiritaðar og með góðu lfnubili. 1!J

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.