Morgunblaðið - 21.03.1976, Síða 2
2
MOKGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. MARZ 1976
Hótelbygging
á Ólafsfirði
— Verönd í suðrænum
„K(. vonast til að geta hafizt
handa við bygginKU hótels hér á
Olafsfirði í sumar," sagði Trausti
Magnússon veitingamaður á
Olafsfirði, en hann hefur rekið
hótel vfir sumartimann á Olafs-
firði og mötuneyti árið um kring.
„Það vantar orðið tilfinnanlega
hótel hér árið um kring, því út-
gerðin og annað hér kallar á það,“
sagði Trausti.
Búíð er að úthluta lóð undir
hótelið á falh.'gum stað og þar er
reiknað með Ö00 fm byggingu
með 11 tveggja manna herbergj-
um og baði ojí snyrtingu í hverju
herbergi, matsal fyrir 60—70
manns og einnig sagði Tryggvi að
á teikningunni, sem er frá Teikni-
stofunni Oðinstorjji, væri jjert ráð
stíl að sumarlagi
fyrir útiverönd sem verður hituð
upp með afrennslisvatni frá hita-
veitunni. „Þar ætla éj; að reyna
rekstur utan dyra að sumarlagi,
svipað og var á Hressingarskál-
anum - i gamla daga," sagði
Trausti, ,,en það verður byggt
skýli í kring um veröndina."
Traustí kvaðst vonast til að geta
tekið hótelið í notkun sumarið
1977, en hann er búinn að sækja
um lánafyrirgreiðslu til Byggða-
sjóðs og Ferðamálaráðs og hefur
fengið jákvæðar undirtektir. Þá
reiknar hann einnig með að
annast yfir veturinn mötuneyti
fyrir skólabörn í hótelinu, en
bæjaryfirvöld í Olafsfirði hafa
sýnt þessu máli mikinn áhuga að
sögn Trausta.
Vilja heilsurækt-
arhús á Akureyri
HJONIN Úlfur Ragnarsson lækn-
ir og Asta Guóvarðardóttir hafa
sótt um það til bæjarráðs Akur-
evrar að fá að reisa viðbvggingu
vestur úr núverandi iþróttahúss-
byggingaj við Laugagötu fvrir
yogaskólann og þar hvggjast þau
skapa aðstöðu til vogaiðkana.
Leitað hefur verið álits íþrótta-
ráðs Akurevrar og skipulags-
nefndar á beiðninni, en þau hjón
hafa enn ekki fengið svar frá
bæjarvfirvöldum.
Stærð viðbyggingarinnar, sem
þau hjón vilja reisa, er 12x24
metrar. Asta Guðvarðardóttir
Hótel- og veitinga-
skólinn kynntur í dag
NKMKNDUR Hóteí- og veitinga-
skóla Islands munu í dag, sunnu-
dag. halda sýningu til kynningar
á starfsemi skólans, m.a. verður
sýndur undirbúningur og fram-
reiðsla á ýmsum mat og dreift
uppskriftum.
Nemarnír bjóða alla velkomna
og er aðgangur á sýninguna
ókeypis.
Helgi Jónsson.
sagði í viðtali við Mbl. i gær, að
meiningin væri að koma á fót
nokkurs konar heilsurækt, yoga-
skóla og i sambandi við það eiga
að vera gufuböð, vatnsböð, ljósa-
böð og nuddaðstaða. Sagði hún að
gengið hefði illa að fá heppilegt
húsnæði fyrir þessa starfsemi.
„Var okkur síðan bent á þennan
möguleika að ekki hefði verið
lokið við að byggja íþróttahúsið
og stæði þvi hluti af lóðinni eftir
ónotaður."
I sambandi víð þessa byggingu
er svo ætlunin að reka yogaskól-
ann. Hann hefur verið rekinn á
Akureyri i vetur í ófullkomnu
leiguhúsnæði og sagði Asta
Guðvarðardóttir að Akureyringar
hefðu gífurlegan áhuga á þeirri
starfsemi. Hefur þáttt'aka farið
yfir 100 manns, þegar flestir hafa
stundað yogann. Allt stendur og
fellur með því, hvert svar þau
hjónin fá frá bæjaryfirvöldum.
Ljóðakvöld
á Kjarvals-
stöðum
LJÓÐAKVÖLD með tón-
listarívafi verður haldið á
Kjarvalsstöðum í kvöld og
hefst það klukkan 22. Þar
munu koma fram þrjú
brezk Ijóðskáld, sem lesa
munu úr eigin verkum. Á
þessari kvöldskemmtun
munu einnig mörg íslenzk
Ijóðskáld lesa úr verkum
sínum og tónlistarflokkur-
inn Diabolis in Musica
mun leika undir frumsam-
in verk.
Níræður í dag en
stundar samt vinnu
(írindavík 20. mar/_
NIRÆÐUR er í dag, sunnudag,
Helgi Jónsson frá Hraunskoti í
Þórkötlustaðahverfi, nú til
heimilis að Mánagerðí 7 í Grinda-
vík. Helgi er annar elzti karl-
maður í Grindavík. Helgi er við
beztu heilsu og vinnur alla daga
við að fella net og sjá um veiðar-
færi fyrir hraðfrystihús Þórkötlu-
staíta. Má vart á milli sjá hver er
njeiri strákurinn Helgi. eða hinir
ynlð'i félagar hans á , níit^v.jirK:
stæðinu. Helgi lætur engan bil-
bug á sér finna og tjáði tíðinda-
manni blaðsins að hann ætlaði sér
að stunda vinnu enn um hríð ef
heilsan leyfði.
Helgi stundaði sjó á sínum
yngri árum og var lengi formaður
á bátum frá Grindavik. Helgi
verður heima á afmælisdaginn ög
tekur á móti vinum og stórum
hópi afkomenda.
.. .. *•-., oVv<yu",»r«
Sandfell og Albert sjást hér fara út sundið I Grindavlk I gærmorgun. Það er fast sótt þótt brimi.
Ljósm. Guófinnur.
Víða slæmar gæftir hjá vertíðarbátunum:
Stórþorskur á Eyja-
miðum [ Upp í 50 tonn eftir 2 lagnír~|
„ÞAÐ hefur sýnt sig að það er afli þegar gefur á sjó,“ sagði Stefán
Runólfsson framkvæmdastjóri Vinnslustöðvarinnar I Evjum I
samtali við Morgunblaðið I gær þegar við inntum fregna af
aflabrögðum hjá Evjabátum. „Hins vegar,“ sagði Stefán, „er það
góðs viti að aflinn hjá netabátunum er svo til eingöngu stór og
góður þorskur og hann fiskast vlða, hæði austan og vestan Evja og
jafnvel við Drangana þar sem undanfarin ár hefur verið fremur
sviðin jörð.
Aflinn hjá bátunum hefur
verið allt upp í 50 tonn eftir
tvær lagnir, en hæstu bátarnir
eru Þörunn Sveinsdóttir og
Surtsey. Þórunn er nú búin að
landa 300 tonnum.
Vinna hefur verið stöðug hér
f fiskvinnsluhúsunum, unnið
alla daga vikunnar að jafnaði
og kvöldvinna að auki. Menn
vona bara að tíðin fari að gefa
frið.“
Morgunblaðið kannaði afla-
brögð víðar um land.
Egill Jónasson frystihússtjóri
á Hornafirði sagði að þar hefði
afli verið lítill og ógæftir
miklar. „Ótíðin hefur hreint
verið með eindæmum," sagði
Egill. Hann sagði að bátarnir
hefðu aldrei þessu vant komizt
á sjó tvo daga í röð í síðustu
viku. Var vitjað um netin
seinni daginn og aflinn hörmu-
legur, mest 4 tonn í 8 trossur.
Oft hafa netin legið 4—5 daga í
sjó áður en hægt hefur verið að
vitja þeírra og hefur aflinn þá
verið 160—170 lestir hjá 12
bátum. Heildaraflinn á vertíð-
inni er 900 tonn á móti 1300 á
sama tíma í fyrra. „Ennþá eru
eftir einn og hálfur mánuður af
vertíðinni og menn hér eru
ekki búnir að gefa upp alla
von,“ sagði Egill að lokum.
„Þetta virðist ekki ætla að
verða jafngott og undanfarin
ár,“ sagði Helgi Kristjánsson
fréttaritari okkar í Ólafsvik.
Hann sagði að mjög stórstreymt
hefði verið að undanförnu og
það stórlega dregið úr afla því
netin lægju illa í sjó og fiskuðu
ekki. „En nú er að draga úr
straumnum og þá ætti að fara
að fiskast ef einhver fiskur er í
sjónum. Næsta vika ætti að
ráða úrslitum um vertíðina,"
sagði Helgi. Hæsti dagsafli er
nú 20 tonn og hæstu bátar eru
aðeins búnir að fá um 270 tonn
á vertíðinni.
„Þetta er búið að vera heldur
dauft hjá okkur að undan-
förnu," sagði Daníel Haralds-
son á viktinni í Grindavfk. Eins
og annars staðar hafa ógæftir
verið miklar. Heildaraflinn var
um miðjan mánuðinn orðinn
2946 lestir i 553 sjóferðum en
var í fyrra 3572 lestir í 654
sjóferðum. Þarna spila verkföll
og slæm tíð inní. Ennþá vantar
mannskap á suma bátana, að
sögn Daníels. Langflestir
Grindavíkurbáta róa með net.
í Sandgerði var aflinn um
miðjan mánuðinn um 200
lestum meiri en i fyrra, að sögn
Jóns Júliussonar viktarmanns
og fréttaritara Mbl. Ber þess að
geta, að bátar byrjuðu almennt
fyrr á vertíðinni en i fyrra.
Gæftir hafa verið stirðar en afli
verið þokkalegur þegar gefið
hefur, komizt mest í 40 tonn.
Fiskeriið er jafnara en í fyrra
og einstakir bátar skera sig
ekki eins úr með aflamagn og i
fyrra. Bergþór er kominn með
mestan afla, 365 þúsund lestir.
Isafirði 20. marz.
Togararnir hafa verið að
landa hér að undanförnu og
hefur aflínn hjá þeim verið
ágætur upp á síðkastið. Heldur
hefur aflinn þó verið lakari
síðustu daga, en mestur hefur
aflinn verið um 150 tonn á viku.
A Vestfjarðamiðum hefur
rannsóknaskip verið að undan-
förnu til þess að leita að loðnu
og gera kannanir þar að* lút-
andi.
Línubátarnir hafa verið með
sæmilegan afla 5—6 tonn f
róðri. Þá hefur rækjuveiðin
gengið vel núna, en um páska
munu bátarnir stoppa.
1 frystihúsunum er mikil
vinna, oft um helgar og á kvöld-
in, en nú er hafin verkun á
skreið og farið að hengja hana
upp í trönur þannig að það er
reglulega vertíðarlegt um að lit-
Þingeyjarsýsla:
Sveitabæir fá sjálfvirkan síma
Húsavfk 20. mar/„
ÞESSA dagana er verið að tengja
fjölda sveitabæja f Þingeyjar-
sýslu við hið sjálfvirka símakerfi
landsins. Þegar hefur verið tekin
j notkun sjálfvirk .íimstöð í
Reykjahlíð og við hana tengdir
Revkjahlíðarbæirnir, Kísiiþorpið
og Krafla. Sjálfvirkar stöðvar er
verið að opna að Breiðumýri,
Staðarhóli og Reyn, sva að ftestir
bæir í Reykjadal, Aðaldal og
Revkjahverfi komast I sjálfvirkt
sfmasamband á næstu dögum eða
vikum. Hér er alltaf sama.blíðan
dag eftir dag. — Fn-iniriiari.