Morgunblaðið - 21.03.1976, Qupperneq 33

Morgunblaðið - 21.03.1976, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. MARZ 1976 33 plötu. Þaö myndi búast viö pop- plötu. í upphafi höföum viö hugsað okkur að láta þessa plötu hljóma sem nokkurs konar kreppuplötu og hafa hana nokkuð gamaldags í gerð. Síðan varð þróunin einfaldlega sú að tónlistin varð sífellt fágaðri og fágaðri. Það var alltaf verið að slípa og slípa. P: Við ræddum nú aldrei beinlínis hvaða stefnu skyldi taka. Ég held að okkur hafi einfaldlega langað til að vinna að ein- hverju, sem við jú gerðum og svona varð það. — Þar sem nú nokkuð er liðið á þetta viðtal, vil ég skjóta hér inn í sárgræti- legri staðreynd um starfs- grundvöll og starfsemi íslenzkra tónlistarmanna. Það er talandi staðreynd um tón- listarmenn hérlendis að hinn leitandi persónuleiki er ekki til meðal þeirra Slíkir tónlistar- nienn sem Pétur Östlund finnast ekki. Þessi alhliða tón- listarmaður sem gétur spilað jafnt rokktónlist sem jass, eins og Pétur Östlund hefur ekki komið fram hérlendis síðan Pétur kvaddi. Pétur gerði líka það sent margir gera ekki hér, hann lærði. M: Pétur þótti það góður rokktrommari á sfnum tíma, að Hollies sýndu honum mikinn áhuga. P: Mér þykir það helvíti mikill galli á gjöf Njarðar hve íslenzkir popptón- listarmenn eru lítið gefnir fyrir að leita fyrir sér. Þeir geta með því að fylgjast með, hlusta á þróaðri tónlist og fylgjast með stefnum, virkjað eigin hug- myndir i tengslum við tónlistir annarra. Ég er ekki að halda því fram að allt sé fengið með því að vera hámenntaður tón- listarskólamaöur. Það er mjög nauðsynlegt að minu áliti fyrir hvern og einn tónlistarmann að fara einn til tvo vetur í tón- listarskóla, þar sem þeir geta komið sér niður á ákveðinn grunn, sem hefja má á hið leit- andi og skapandi líf tónlistar- mannsins. — Það eina sem ég vona er að íslenzkt tónlistarlif eigi allt eftir að breytast ofsa- lega mikið. S: Hvaða möguleika telurðu á breytingum? P: Énga. — M: Eg get sagt ykkur ákveðna nokkuð brjálæðislega staðreynd í þessu máli, sem fyrst og fremst byggist á áfengislöggjöfinni. Byrjaþarf á að breyta áfengislöggjöfinni, að hér komi upp litlir staðir með vínveitingaleyfi, þar sem hægt væri að vera með tónlistarlegar tilraunir. Nákvæmlega þetta gerðu Norðmenn ekki alls fyrir löngu, með umtalsverðum árangri. Þar eru nú farnir að spretta upp jassklúbbar sem laða að sér tónlistarmenn hvaðanæva að úr heiminum. Þetta er þó á ennþá hærra plani i Svíþjóð. Sama er líka að segja um Holland, nema þar er tón- list sú sem leikin er á þessum klúbbum margfalt fjölhreyti- legri, t.d. blús, jass og þungt rokk o.s.frv. — P: Sé íslenzkt tónlistarlíf borið sarnan við hið skandinavíska, þá er ekkert að gerast hér. Það ríkir alger ládeyða, svo mikil að maður hugsar helzt um að hverfa af landi brott hið fyrsta. Það eina sem íslenzkt tónlistarlíf í þeirri mynd sem við störfum i, býður uppá, er að GROTNA niður í ballbransanum og drekkja sér í brennivíni og sukki. — Kannski hið eina jákvæða í þessu öllu saman sé stúdíó- vinnan í Éirðinum. — S: Svona að lokum. hafið þið eitthvað hugsað um að gefa út plötu, sem algerlega væri sniðin að ykkar eigin tónlistarlegu hug- myndum? M: Slík plata ætti ekki möguleika á að seljast. En ákveðinn er ég í því að gefa út eina slíka sem seld verður í brúnum bréfpoka í bóksölu stúdenta. —Einnig hefðum við það gaman að vinna saman við þessa plötu okkar, að önnur plata með frumsömdu efni verður áreiðanlegagerð. HLJÓM- PLÖTU- DÓMUR SBaldur Már j Arngrímsson, P| Magnús m Eiríksson, ■L Björn Björnssori og Pálmi Gunnarsson: Mannakorn. Fálkinn (Parlophone) MOAK 34. Pálmi Gunnarsson: bassi, söngur 0 Magnús Eiríksson: gítar, söngur 0 Baldur Már Arngrímsson: gítar, söngur, mandólín, o.fl. 0 Björn Björns- son: trommur 0 Auk þeirra leikur mikill fjöldi aðstoðar- manna. 0 Þegar hlustað er á Manna- korn vaknar sú spurning hvort ekki hafi orðið einhver mis- skilningur og platan komið út 10 til 15 árum of seint — lögin eru nefnilega flest eins og tíðk- aðist hér áður fyrr. Á plötunni eru 11 lög, öll utan eitt eftir Magnús Eiríksson, og eru flest slagarar og rokkarar af léttara taginu og sáma er að segja um textana, sem einnig eru flestir eftir Magnús Eiriksson. Dæmi um laganöfn: Lilla Jóns, Rón- inn, Komdu í partí, Ö þú, Sjó- mannavísa o.sv.frv. Ef betur er að gáð gætu sumir textanna þó verið hið mesta háð á hina hefð- bundnu slagaratexta, t.d. Sjó- mannavísa og Einbúinn. SJOMANNAVlSA vindur i laufi vor upp í sveit vesælir máfar í æti að leit verbúðin tómlega vingast vid mig en vina ég elska adeins þig eitt er a<> lifaog annað aó þrá æti<> í drauminum þig mun ég sjá á planinu sitjandi prú<)a ásvip er ég prila um bor<) i mitt skip (> Ö Ö Ö sjóveikuræli í ólgandi haf aumingja dallurinn ætlar í kaf ýsur og þorskar einblína á mig en vinaég elskaaóeins þig ég er á sjónum en þú suður i vik sérðu ekki að örlögin æ eru slik að ég verð að fara og kom a á ný og get ekki gert neitt við þvi nú æpir karlinn að kaffið sé kalt andskotans kokkurinn eitraði allt andartakeftir hann a*pir á mig en vina ég elska aðeins þig . . . EINBÚINN ég bý í sveit ásauðfé á beit ogsællegar kýr úti á túni sumarsól heit senn vermir nú reit en samt má ég biða eftir frúnni traktorinn minn reiðhesturinn hundurog dálítið af hænum kraftaverk eitt til oss gæti leitt hýrlega mey burt úr bænum veturinn er erfiður mér svo andskoti fótkaldur stundum ég sæi þig gera eins og mig ylja áþér ta>rnar á hundum þeir segja mér að þeysa af stað þær hiði eftir hóndanum vænum ég hef reynt það veit guð en það er sko puð að þræða öll húsin í bænum Helztu frávik frá áður- nefndum texta og lagagerðum eru þó lögin „Einn, tveir, þrír", „I rúmi og tírna" og „Blúes i G.“ Tvö þau fyrri eru með frum- legri lögum plötunnar (ef frumleg skyldi-kalla) og í flestu vel flutt. 1 „Rúmi og tíma'' kemur m.a. Vilhjálmur Vil- hjálmsson fram sem söngvari, eftir áralangt (og vel þegið) hlé, og syngur nú mun betur en áður — ekki eins uppspennt og tilgerðarlega eins og vani var. „Blues í G“ er svo ekta blúsari, eins og nafnið bendir tii, og ágætlega leikinn, — sérstak- lega af Magnúsi Eiríkssyni git- arleikara og er það einnig hann sem lyftir öðrum lögum plöt- unnar örlítið upp með góðum gítarleik. Um aðra hljóðfæra- leikara er það helzt að segja að yfirleitt eru ekki mikil tilþrif sýnd, en Pálmi Gunnarsson á þó góða kafla i bassaleik. Pálmi sér einnig um söng í flestum lögum, Vilhjálmur Vilhjálms- son í tveimur til viðbótar því sem áður var nefnt, Magnús Eiríksson í tveimur og Baldur Már Arngrimsson i tveimur og í flestum tilfellum' hæfir söngur lagi og texta. Niðurstaðan er svo að plötu þessari er væntanlega ætlað að ná til sem flestra hlustenda og efni hennar þvi haft á þann veg að engum verði um megn að meðtaka það. Sérstaklega virðist þessari plötu þó beint til óskalagaþátta hljóðvarpsins, enda flest boðlegt þar. ISald. J B. UiniflElDMUTM) bÍUbeoKl Bandaríkjunum Stórar plötur (i) a 3 4 5 6 7 9 10 11 K> <7> 34 7 9 7 22 11 12 10 13 31 18 12 14 EAGLES Their Greatest Hits 1971 —1975 PETER FRAMPTON Frampton Comes Alive FLEETWOOD MAC CAROLE KING — Thoroughbred BOB DYLAN — Desire DAVID BOWIE — Station To Station PAUL SIMON Still Crazy After All These Years BAD COMPANY Run With The Pack QUEEN — A Night At The Opera GARY WRIGHT — The Dream Weaver AMERICA History — America's Greatest Hits WAYLON JENNINGS. WILLIE NELSON. JESSI COLTER, TOMPALL GLASER The Outlaws RUFUS FEATURING CHAKA KHAN BEE GEES — Main Course PHOEBE SNOW — Second Childhood EARTH, WIND & FIRE — Gratitude JANIS IAN — Aftertones THEEAGLES One t sse Nights NALJBtTH — Hair Of The Dog THE SALSOUL ORCHESTRA ERIC CARMEN AEROSMITH Toys In The Attic LYNYRD SKYNYRD Gimme Back My Bullets M.U. THE BEST OF JETHRO TULL EMMYLOU HARRIS — Elito Hotel MELISSA MANCHESTER Better Days — Happy Endings LOGGINS 8. MESSINA Native Son FOGHAT — Fool For The City AEROSMITH CHICAGO IX CHICAGO’S GREATEST HITS ELECTRIC LIGHT ORCHESTRA Face The Music TED NUGENT BRASS CONSTRUCTION JOAN BAEZ — From Every Stage PURE PRAIRIE LEAGUE If The Shoe Fits I Sala f yfir 500 þúsund eintökum 13 8 16 14 15 39 15 17 6 16 16 16 17 18 9 18 25 39 19 21 25 20 22 17 21 24 19 22 19 48 23 37 6 24 13 9 25 26 9 26 29 5 27 31 8 28 32 24 29 57 33 30 27 17 31 33 22 32 38 18 33 78 7 34 36 7 35 44 7 (0 m •x <0 u> -X > > <Q •m '5 w) U> m 3 o> a 1° <75 > 1 1 13 2 2 14 3 5 12 4 4 14 5 6 9 6 3 22 7 9 12 8 16 11 9 10 1 1 10 12 7 11 13 7 12 14 13 13 15 15 14 25 6 15 21 12 16 18 15 1 7 28 8 18 8 18 19 22 12 20 20 15 21 23 13 22 24 7 23 26 9 24 7 19 25 37 5 26 30 6 27 27 7 28 32 7 29 11 14 30 31 13 31 38 4 32 19 13 33 36 6 34 34 15 • Sala i yfir Litlar plötur DECEMBER 1963 (Oh What A Night) — Four Seasons ALL BY MYSELF — Eric Carmen DREAM WEAVER — Gary Wright TAKE IT TO THE LIMIT — Eagles LONELY NIGHT (Angel Face) — Captein & Tennille LOVE MACHINE Pt. 1 — Miracles SWEETTHING — Rufus Featuring Chaka Khan 0 DREAM ON -— Aerosmith JUNK FOOD JUNKIE — Larry G roce DISCO LADY — Johnny Taylor MONEY HONEY — Bay City Rollers FANNY (Be Tender With My Love ) — Bee Gees GOLDEN YEARS — David Bowie RIGHT BACK WHERE WE STARTED FROM — Maxine Nightingale ONLY SIXTEEN — Dr Hook DEEP PURPLE — Donny & Marie Osmond LET YOUR LOVE FLOW — Bellamy Brothers LOVE HURTS — Nazareth BOHEMIAN RHAPSODY — Queen SLOW RIDE — Foghat SWEET LOVE — Commodores CUPID — Tony Orlando — Dawn TANGERINE — Salsoul Orchestra THEME FROM „S.W.A.T." — Rhythm Heritage ■ SHOW ME THE WAY — Peter Frampton ACTION — Sweet JUST YOU AND I — Melissa Manchester GOOD HEARTED WOMAN Waylon & Willie 50 WAYS TO LEAVE YOUR LOVER — Paul Simon LOVE IS THE DRUG — Róxy M usic THERE S A KIND OF HUSH (All Over The World) — Carpenters THE WHITE KNIGHT — Gledus Maggard ONLY LOVE IS REAL — Carole King INSEPARABLE — Natalie Cole ■ I ■ I

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.