Morgunblaðið - 21.03.1976, Síða 48
\l (il.VSlV.ASIMINN KK:
22480
JWorötinI>Tní>ií>
SUNNUDAGUR 21. MARZ 1976
Búvöru-
verð um
helgina?
GUNNAR Guðbjartsson, for-
maitur Stéttarsambands bænda,
sagðist búast við því, að lokið vrði
útreikninKum á verði lantí-
búnaðarafurða f dafí. Guijnar
sagðist ekki geta sagt, hve
hækkun búvaranna yrði mikil,
þar sem niðurgreiðslur úr ríkis-
sjóði hreyttust og enn hefði heild-
sdluverð ekki verið retknað út.
Finnfremur kvað hann ekki búið
að taka ákvörðun u>n smásölu-
álagninguna. sem breyttist vegna
þess að heildsöluverð hækkar
meira vegna- skerðingar á niður-
greiðslum.
I fyrradag var aðeins til smjör i
landinu, sem nam hálfs dags
neyzlu, 10 tonn. Var skammtaö
1 kg á mann tíl þeirra, sem
komu og keyptu í Osta- og
smjörsölunni. Engin ákvörð-
un hefur verið tekin um hvað
skuli gert til úrlxita á þessu
ástandi. Gunnar kvað mundu
verða fjallað um málið eftir helg-
inaog myndi þá fást hrein afstaða
ríkisstjórnarinnar í málinu, en
hún hefur látið i ljós tregðu á að
leyfa innflutning á smjöri fráSví-
þjóð og Danmórku.
Flugfélagið Víkingur:
Söfnunin
70 millj.
AÐSTANDENDUR Flugfélagsins
Víkings h.f. höfðu í gærdag
safnað um 69 til 70 milljónum
króna, þ.e. þeir sjálfir, starfs-
menn Air Viking höfðu safnað 39
til 40 milljónum, en þeir 30
menn, sem einnig höfðu bundizt
samtökum og gengið síðan til liðs
við starfsfólkið, hafa lofað um 30
milljónum króna.
Arngrímur Jóhannsson, for-
maður stjórnar Flugfélagsins
Víkings, sagði í viðtali við Mbl., að
ljóst væri nú að því 100 milljón
króna takmarki yrði auðveidlega
náð, þar sem frétzt hefði þegar af
hlutafjársöfnunum útí á landi,
þar sem verulegar upphæðir
hefðu safnazt. A þriðjudag verða
opnuð tilboð í flugvélakost Air
Vikíngs hjá skiptaráðandanum og
er búizt við að þá muni flug-
vélarnar losna út úr þrotabúinu.
Arngrímur Jóhannsson sagði í
gær, að félagið myndi ekki bjóða í
flugvélakostinn, heldur myndu
lánadrottnar þrotabúsins gera
það og myndi Flugfélagið Vík-
ingur síðan hefja samningavið-
ræður við þá um kaup á flug-
vélunum. Tveir af stærstu krófu-
höfunum í þrotabúið, Olíufélagið
h.f. og Reginn h.f., sem er eign
Sambands íslenzkra samvinnu-
félaga, eru þegar orðnir hluthafar
í Flugfélaginu Víkingi h.f.
Ljósmynd Friðþjófur
Samkomulag um veiðar Færeyinga:
17.000 tonn á línu - þ ar
af 8.000 tonn af þorski
SAMKOMULAG hefur tek-
izt við Færeyinga um línu-
veiðar þeirra innan 200
mílna fiskveiðiiögsögu ts-
iands og kemur samkomu-
lagið í stað þess, sem féll
úr gildi hinn 13. nóvember
1975. Ársafii Færeyinga
getur samkvæmt sam-
komulaginu orðið allt að
17 þúsund lestir, þar af 8
þúsund lestir af þorski. í
fyrra samkomulagi var
gert ráð fyrir 20 þúsund
lestum, en þar voru engin
ákvæði um þorskafla.
Samkvæmt fréttatil-
kynningu, sem Mbl. barst
í gær frá utanríkisráðu-
neytinu hefur endanleg
undirritun enn ekki far-
»
ið fram, en hún verð-
ur einhvern næstu daga.
Rætt um verkföll á Austfjörðum
EKKI tókst í gær að halda fund vegna verkfallsmálanna á Austfjörð-
um, þar sem Sigfinnur Karlsson, forseti Alþýðusambands Austur-
lands, komst ekki til Revkjavfkur vegna þess að ekki var flogið.
Samkvæmt upplýsingum Torfa Hjartarsonar, sáttasemjara, mun verða
rætt við Sigfinn í dag, en Torfi vildi ekki kalla það fund, þótt rætt væri
við einn mann — Sigfinn.
Astæður fyrir því að Sigfinnur
er kvaddur til Reykjavikur er
ástandið fyrir au.stan, en þar eru I
nú sjómannaverkföll. Samn-
ingarnir sem undirritaðir voru
hinn 1. marz, hafa ekki, verið
bornir undir atkvæði eystra —
aðeins Hornfirðingar hafa til-
kynnt að þeir muni eftir helgi
greiða atkvæði um samkomulagið
og hafa þeir því aflýst verkföll-
um, sem koma áttu til fram-
kvæmda 23. marz. Annars staðar
hófust verkföll 17. og 18. marz.
Framhald á bls. 47
Samkvæmt nýja sam-
komulaginu eru saltfisk-
togurum Færeyinga
bannaðar veiðar innar 200
mílna, en áður hafa 2
togarar haft leyfi til slíkra
veiða. Ekki er tilgreint í
samkomulaginu til hve
langs tíma það gildir, en
það er uppsegjanlegt með 6
mánaða fyrirvara.
\l (.KYSINGASÍMINN ER:
22480
|fl«rí(mit>tflíiit>
Loðnan:
Aflinn
316þús.
lestir
HEILDARLOÐNUAFLINN á ver-
tlðinni var á hádegi í gær orðinn
316,500 lestir. Bátarnir hafa
undanfarna daga verið að veiða í
Faxaflóa og er aflanum að mestu
landað í Faxaflóahöfnum. Sigurð-
ur RE er aflahæsti báturinn,
hefur fengið 12.500 lestir. I öðru
sæti er Guðmundur RE með
11.300 lestir, Grindvíkingur GK
er með 9.200 lestir, Börkur NK
með 8.500 lestir, Eldborg GK með
8.300 lestir og Hilmir SU með
8.200 lestir.
Rétt fyrir miðnætti i fyrrinótt
tilkynnti Sigurður nær fullfermi
af loðnu, 900 lestir. Frá miðnætti i
fyrrinótt til hádegis í gær til-
kynntu 12 skip afla samtals 2900
lestir. Álftafell var með 100 lestir,
Vonin 200, Rauðsey 420, Ljósfari
150, Súlan 500, Magnús260, Flosi
80, Grindvíkingur 450, Bjarni
Ólafsson 350, Keflvíkingur 230,
Huginn 110 og Arsæll 50 lestir.
RcJegt á miðunum
RÓLEGT var á miðunum austur
af landinu í gær. Þar voru 22
brezkir togarar að veiðum á svæð-
inu norðaustur af Hvalbak og að
svæði austnorðaustur af Glett-
inganesi. 11 verndarskip gættu
togaranna, þannig að hvert
verndarskip þurfti ekki að gæta
nema tveggja togara. Tveir
togarar voru að veiðum austur af
Langanesi.
Varðskipin voru á þessum slóð-
um, en um borð í þeim gætti
nokkuð inflúensutilfella.
Fá mikið loðnu-
magn í trollin
Siglufirði 20. marz.
FRÉTTIR hafa borizt af því að
togararnir hafi fengið mikið
loðnumagn f vörpurnar við
Reykjafjarðarál. Hafa þeir
fengið allt að 6 tonn í hali, sem
bendir til að þarna sé töluvert
af loðnu. Dagný var að koma
inn með 115—120 lestir af
góðum fiski, þar af voru 40
tonn f stærsta flokki, yfir 70
sm fiskur og er slíkt afar sjald-
gæft. 1 nótt komu hingað ung-
menni frá Revkjavík til að
taka þátt í unglingamóti f bad-
minton. Ekki var flogið hingað
í gær, og brugðu ungmennin
þá á það ráð að taka rútu
hingað norður. Mótið hefst í
dag. — m.j.