Morgunblaðið - 26.03.1976, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, KÖSTUDAGUR 26. MARZ 1976
HÚSEIGNIRNAR að Austurstræti 8, sem eru í eigu
tsafoldarprentsmiðju h.f., hafa verið auglýstar til
sölu. Verða þær seldar vegnar skipulagsbreytinga
hjá fyrirtækinu. Að sögn Ólafs B. Thors, stjórnar-
formanns Ísafoldarprentsmiðju, standa nú yfir
skipulagsbreytingar í rekstri fyrirtækisins, sem er
mjög stórt. Kvað hann óráðið hvað yrði um bóka-
verzlunina í Austurstræti. Að öðru leyti gat Ólafur ekki upplýst nánar hvaða
breytingar verða á rekstri fyrirtækisins. Á næsta ári, 1977, eru liðin 100 ár frá því
að Björn Jónsson stofnsetti Ísafoldarprentsmiðju h.f.
Isafold
til sölu
Lítil stúlka fékk
skot í lærið
MINNSTU munaði að stórslvs
vrði í Hafnarfirði i fvrradag,
þegar 9 ára drengur var að fikta
við byssu með þeim afleiðingum
að skot hljóp úr byssunni og i
læri 7 ára stúlku, en auk þess
voru í herberginu tvær 4 ára
stúlkur. Litla stúlkan var flutt á
slysadeild Borgarspítalans og að
lokinni aðgerð fékk hún að fara
heim til sin. Var það álit lækna að
miðað við aðstæður hefði hún
vart getað sloppið betur.
Atburðurinn gerðist um klukk-
an 17.30 á miðvikudaginn. Börnin
voru ein heima i húsinu. Var
drengurinn að fikta með riffil,
sem faðir hans geymdi inn i
klæðaskáp en þetta hafði dreng-
urinn gert i nokkur skipti. 1 þetta
skipti gekk hann feti lengra, því
hann fór einnig að fikta við skot,
sem faðir hans geymdi á sama
stað. Setti hann þau í byssuna og
tók síðan í gikkinn með fyrr-
greindum afleiðingum.
Sveinn Björnsson rannsóknar-
lögreglustjóri í Hafnarfirði sagði
við Morgupblaðið í gær, að það
væri aldrei nógsamlega brýnt
fyrir fólki að fara varlega með
skotvopn og meðferð vopna og
skotfæra í umræddu tilviki væri
vítaverð. Slíkt ætti aldrei að
geyma þar sem börn næðu til.
Nú eiga möskvar að stækka:
Ný reglugerð um möskva-
stærð í botn- og flotvörpu
SJ AVARÚTVKGSRAÐUNKYT-
IÐ hefur nú gefið út nýja reglu-
gerð um möskvastærðir botn-
vörpu og flotavörpu, sem á að
taka gildi 1. apríl n.k. Reglugerð
þessi er sett samkvæmt tillögum
fiskveiðilaganefndar og llafrann-
sóknastofnunarinnar og að fengn-
um umsiignum ýmissa hagsmuna-
aðila.
Hér á eftir birtast helztu
ákvæði reglugerðar þi-ssarar.
Athugasemd
frá mennta-
málaráðherra
MORUUNBLAÐINU barst I gær
vfirlýsing frá Vilhjálmi Hjálm-
arssyni menntamálaráðherra
vegna skrifa um dóm í máli dr.
Braga Jósepssonar gegn mennta-
málaráðuneytinu. Yfirlýsingin er
svohljóðandi:
Vegna endurtekinna fullyrð-
inga dr. Braga Jósepssonar, sem
birst hafa í dagblöðum, um að
uppsögn hans úr starfi deildar-
stjóra i menntamálaráðuneytinu,
hafi verið byggð á röngum upplýs-
ingum frá ráðuneytisstjóranum,
skal þetta rifjað upp.
I fréttatilkynningu frá mennta-
málaráðherra, dags 13. desember
1974, er getið um ástæður fyrir
uppsögninni. Eru eingöngu til-
færð atvik, sem áttu sér stað eftir
stjórnarskiptin 1974 og aðeins
vitnað til ummæla dr. Braga Jós-
epssonar sjálfs. Allt tal um að
uppsögnin hafi verið byggð á
röngum upplýsingum er því
markleysa.
Fleiri missagnir eru í því sem
blöð hafa eftír Braga Jósepssynir
en þær skipta minnu.
I. LÁGMARKS
MOSKVARSTÆRÐÍR.
A) Botnvarpa og flotvarpa.
Lágmarksstærð möskva i poka
botnvörpu og flotvörpu skal vera
155 mm. Avallt skulu a.m.k. öft-
ustu 8 metrar vörpunnar vera
gerðir úr 155 mm. riðli.
Lágmarksstærð möskva í öðrum
hlutum botnvörpu og flotvörpu er
135 mm. Ennfremur verður heim-
ilt að nota 135 mm. riðil í poka á
tilgreindum karfasvæðum sbr.
hjálagt kort.
Sá aðlögunartími er veittur í
reglugerð þessari, að heimilt er að
nota botnvörpunet með lágmarks-
möskvastærðinni 120 mm til 15.
maí 1976 og heimilt er að nota 135
mm riðii í poka til 31. desember
1976. Varðandí flotvörpu er veitt-
ur lengri aðlögunartími á 120 mm,
eða til 15. maí 1977, þó þannig að
eftir 31. desember 1976 verður
poki vörpunnar að vera gerður úr
155 mm riðli.
b) Lágmarksmöskvastærð
rækjuvörpu og humarvörpu
verður óbreytt. 1 vængjum rækju-
vörpunnar er lágmarksstærðin 45
mm og 36 mm í öðrum hlutum
hennar. í humarvörpu er lág-
marksmöskvastærðin 80 mm.
c) Lágmarksstærð möskva botn-
Reykjanes-
kjördæmi
AÐALFUNDUR Kjördæmisráðs
Sjálfstæðisflokksins í Revkjanes-
kjördæmi hefst kl. 10.00 iGrinda-
vik í fvrramálið, laugardag.
Stjórn kjördæmisráðsins biður
kjörna fulltrúa, sem ekki geta
mætt, að boða varafulltrúa sína.
Að loknum aðalfundarstörfum
verða umræður um prófkjör og
prófkjörsreglur, kjördæmaskip-
un og atkvæðisrétt og framvindu
islenzkra stjórnmála.
vörpu og flotvörpu, sem notaðar
eru til veiða spærlings, loðnu og
Framhald á bls. 18
Verðið gerir
Bretum
erfitt fyrir
BREZKU togararnir halda sig
enn undan Austfjörðum, en
síðustu 3—4 dagana hafa þeir
lítið sem ekkert getað verið á
veiðum vegna veðurs.
Að sögn Péturs Sigurðssonar
forstjóra, Landhelgisgæzlunn-
ar, hafa togararnir verið á
miklu flökti síðustu daga.
Veður á Austfjarðamiðum hef-
ur verið slíkt að varðskipin og
flugvél Landhelgisgæzlunnar
hafa lítið getað fylgst með
ferðum togaranna Þó er vitað
að þeir sigla fram og aftur i
von um að veðrið sé betra á
einum stað en öðrum, sagði
hann.
Dýrmætu
úri stolið
DYRMÆTU úri var fyrir
skömmu stolið í anddyri Voga-
skóla. Ur þetta sem er af gerð-
inni Omega Constellation, er
metið á 170 þúsund krónur.
Þeir, sem geta veitt upplýsing-
ar um þjófnað þennan eru
beðnir að láta rannsóknar-
lögregluna vita. Góðum
fundarlaunum er heitið.
Sífelld ótíð'
Þorlákshöfn 25. mar/.
HER hefur verið einstök ótíð
og slæmar gæftir það sem af er
þessari vetrarvertíð. A land
hafa borizt miðað við 22. marz:
Bolfiskur 4379 tonn og 320
kg., loðna 8153 tonn, 750 kg.
Samtals eru þetta 12.533 tonn
og 70 kg. Bolfiskaflinn er 500
tonnum minni en hann var í
fyrra miðað við sama tíma og
loðnuaflinn er allt að helmingi
minni. Þorskur kom fyrr á
miðin nú en í fyrra eða strax
eftir verkfallið, sem gerði eins
og allir vita dálaglegt strik i
reikninginn. Aflahæsti bátur
hér er Friðrik Sigurðsson með
477 tonn tæp. —RaRnheiður.
Afengismagnið
langt yfir
leyfileg mörk
NIÐURSTÖÐUR liggja nú fyr-
ir á áfengismagninu í blóði
Svíans, sem ók á piltana tvo á
Laugavegi um síðustu helgi.
Reyndist áfengismagnið vera
langt yfir leyfileg hámörk.
Þegar Morgunblaðið spurð-
ist fyrir um líðan piltanna i
gær, var því tjáð að hún væri
óbreytt. Þeir liggja báðir með-
vitundarlausir og i lífshættu á
gjörgæzludeild Borgarspítal-
ans.
Fundur með
sjómönnum og
útvegsmönnum
SAMNINGAFUNDUR hófst í gær
hjá sáttasemjara ríkisins með sjó-
mönnum og útvegsmöonum á
Austfjörðum. Hófst fundurinn
klukkan 17. Þá var einnig i gær
fundur með fulltrúum Sjómanna-
sambands íslands og Farmanna
og fiskimannasambandi Islands
annars vegar og fulltrúum skipa-
félaganna hins vegar. Litið mark-
vert mun hafagerzt á fundunum.
Hávaðinn þreytandi en
ekki hættulegur heyrn
— segir Erlingur Þorsteinsson yfirlæknir um tækið í fangelsinu á Akranesi
UPPLYST hefur verið, að tæki þau, sem skýrt var frá f blaðinu f gær að
bönnuð hafi verið f fangelsum landsins, voru f fangelsinu á Akranesi
og á Höfn á Hornafirði. I tækinu á Höfn heyrðist aðeins lágt suð og
aðeins þegar það var f gangi en á Akranesi var hægt að framkalla
meiri hávaða í fangaklefum, þó ekki hátfðnitóna eins og kom fram f
frétt frá Islenzkri réttarvernd. Tækið f fangelsinu á Akranesi gat gefið
frá sér 8—200« riða tfðni en samkvæmt upplýsingum Erlings Þor-
steinssonar yfirlæknis heyrnadeildar Heilsuverndarstöðvarinnar, er
ekki talað um hátlðni fyrr en komið er upp fyrir 6000 rið.
Erlingur sagði í samtalinu við
Morgunblaðið að tiðnin 800—2000
rið væri venjulegt talmál og ekki
skaðlegt heyrn manna. Einnig
væri 80 decibila hljóðstyrkur
hættulaus heyrn manna, en tækið
á Akranesi var gert fyrir slíkan
styrk. „Hitt er svo annað mál,“
sagði Erlingur, „að slíkur hávaði
getur orðið mjög þreytandi til
lengdar, sérstaklega ef hann er
breytilegur. “
Morgunblaðið ræddi í gær við
Stefán Bjarnason yfirlögreglu-
þjón á Akranesi. Hann kvaðst
vilja taka það skýrt fram, að lög-
reglan á Akranesi hefði ekki
pantað þennan útbúnað á kalltæk-
in í fangahúsinu og lögreglumenn
hefðu verið mjög undrandi þegar
hann kom. Hitt væri rétt, að þegar
verið var að innrétta fangelsið í
fyrrasumar hefðu lögreglumenn
verið að ræða um að slikt tæki til
að róa fanga væri á Hornafirði, og
væri ekki ónýtt að fá eitt slíkt.
Vel mætti vera að sá aðili sem sá
um að panta kallkerfið í fanga-
klefana hafi heyrt þessar umræð-
ur og pantað slíkan útbúnað með.
Stefán sagði að útbúnaðurinn
hefði verið meira og minna bilað-
ur síðan hann var settur upp í júlí
í fyrra Kvaðst Stefán hafa verið
óánægður með þetta kerfi og ver-
iðbúinnað skipa svo fyrir að það
yrði tekið úr sambandi þegar yfir-
völd ákváðu að banna notkun
þess. Stefán sagði að tækið hefði
aðeins 2—3 sinnum verið reynt á
föngum. Þar af hefði hann einu
sinni reynt það á drukknum og
óróasömum fanga í u.þ.b. 3 minút-
ur en engin breyting hefði orðið á
manninum. Aftur á móti hefði
hann allur róast þegar honum var
gefið kaffi.
Þá ræddi Morgunblaðið við Þór-
mund Sigurbjarnarson hjá
Hljómi hf, en hann smíðaði tækið.
Sagði hann að kallkerfið hefði á
sínum tíma verið pantað með slík-
um hljóðgjafa, sem að framan
greinir. Var sú beiðni afgreidd
eins og hver önnur. Minnti Þór-
mund að rafvirkjameistarinn,
sem sá um raflagnir í fangahúsið
hefði lagt inn pöntunina.
Morgunblaðinu tókst ekki að ná
tali af rafvirkjameistaranum í
gærkvöldi.