Morgunblaðið - 26.03.1976, Blaðsíða 3
MORGL'XBLAÐIÐ. FÖSTL’DAGL R 26. MARZ 1976
3
Hvað segja menn um yfirlýsingu Solzhenitsyns:
Y firlýsingin sýn-
ir, hve málið vek-
ur mikla athygli
meðalþeirra sem
frelsi unna
MORGUNBLAÐIÐ leitaði í
gær til nokkurra manna til
þess að spyrja þá um við-
brögð þeirra við forsíðufrétt
Mbl. i gær, þar sem skýrt
var frá ummælum Alex-
anders Solzhenitsyns —
hins rússneska rithöfundar,
er viðtal var haft við BBC í
fyrrakvöld. Þar sagði
Solzhenitsyn Bretum til
syndanna og tók m.a.
breytni þeirra gagnvart
Íslendingum sem dæmi um
niðurlægingu þeirra á
alþjóðavettvangi. Svör
mannanna, sem leitað var
til, fara hér á eftir, en tekið
skal fram að ætlunin var að
ræða við fleiri, en þvi miður
náðist ekki til allra sem
blaðið hafði hug á að ræða
við, þar á meðal dómsmála-
ráðherra og yfirmann land-
helgisgæzlunnar, Ólaf
Jóhannesson.
HALLDÓR LAXNESS rit
höfundur sagði, er hann var
spurður um yfirlýsingu Alex-
anders Solzhenitsyn, að
hann tæki undir þessa yfir-
lýsingu hins rússneska rithöf-
undar. Hann sagðist þó ekki
endilega gera það, vegna
þess að þar væri Solzhenit-
syn, sem hlut ætti að máli,
en hins vegar sagði Halldór
að allir heiðarlegir menn,
hvar sem væru í heiminum,
hlytu að skrifa undir slíka
yfirlýsingu. Það segði sig
sjálft. Þá var Halldór Laxness
spurður hvort hann teldi
þessa yfirlýsingu mikilvæga
fyrir málstað íslands. Hann
sagðist ekkert geta um það
sagt.
GYLFI Þ. GÍSLASON
alþingismaður sagði er hann
var spurður sömu spurninga.
Ilalldór
Laxncvs
IVIatthlas
Bjarnason
Cvlfi Þ.
(ífslason
Maj;nús Torfi
Olafsson
,,Ég tel þessi ummæli, sem
höfð eru eftir Solzhenitsyn úr
viðtali hans við brezka út-
varpið vera stórkostlega at-
hyglisverð og fagna því mjög
að hann hefur augsýnilega
skilning á réttmæti islenzks
málstaðar í fiskveiðideilunni
við Breta. Ég efast ekki um
að þau munu hafa áhrif í
Bretlandi og víðar, slíks álits,
sem hann nýtur sem einn af
helztu andans mönnum sam-
tiðar okkar
Mér finnst ýmislegt annað
sem hann sagði i þessu við-
tali og hefur raunar sagt og
skrifað i önnur skipti um
nauðsyn breyttra lifsviðhorfa
og breytts lifsgæðamats i
vestrænum löndum vera
mjög athyglisvert. Ég held að
sú skoðun hans sé rétt, að
þau gæði, sem lýðræðið og
frelsi á að færa okkur, séu i
nokkurri hættu, ef við höld-
um ekki betur vöku okkar á
ýmsum sviðum en við höfum
gert og gerum."
MATTHÍAS BJARNA
SON sjávarútvegsráðherra
sagði er Morgunblaðið bar
spurningarnar undir hann:
,,Ég tel alveg tvímælalaust
þessa yfirlýsingu rithöfundar-
ins mikilvæga fyrir málstað
íslands. Hún sýnir hve mikla
athygli landhelgismálið vek-
ur meðal allra þeirra, sem
frelsi unna. Er það mjög
áberandi, hvernig brezka
ríkisstjórnin er gagnrýnd fyrir
framkomu sína gagnvart ís-
lendingum Maður verður
meir var við það með
hverjum degi sem liður að
þeim fjölgar og ekki sizt
meðal Breta sjálfra, sem telja
það til skammar fyrir sina
ríkisstjórn að ráðast á þennan
hátt gegn vopnlausri þjóð
Þó hefur tekið út yfir allt er
Bretar tóku þá ákvörðun, að
veiða mestallan fisk, sem
þeir sækja hingað á íslands-
mið, á friðuðum svæðum.
Skilur það jafnvel eftir meiri
sárindi en sjálf herskipaihlut-
unin."
MAGNÚS TORFI
ÓLAGSSON alþingismaður
svaraði spurningu blaðsins:
,,Það er hverju orði
sannara hjá Solzhenitsyn, að
beiting flotavalds á íslands-
miðum er atferli, sem verður
metið brezkum stjórnvöldum
til minnkunar i bráð og
lengd. Hræddur er ég samt
um að meira þurfi til, að
brezka stjórnin sjái að sér í
þessu efni, en ummæli hins
rússneska útlagaskálds i út-
varpsviðtali í London Til að
mynda hefur mér flogið i hug
að það gæti ráðið töluverðu
um afstöðu brezkrar rikis-
stjórnar i landhelgisdeilunni,
hvort það verður heldur
Michael Foot eða James
Callaghan, sem tekur við for-
sætisráðherraembætti af Wil-
son að viku liðinni."
H-moll messunni
hafnað á listahátíð
Pólýfónkórinn æfir nú H-moll messu Bachs af full-
um krafti fyrir tónleika um páskana, undir stjórn
Ingólfs Guðbrandssonar en í kórnum eru um 145
söngvarar. Tónleikarnir verða í Háskólabíói 15. og
16. aprfl. Hljómsveitin sem Ieika mun með kórnum
er skipuð hljóðfæraleikurum úr Kammersveit
Reykjavíkur, Sinfóníuhljómsveit tslands og einnig
munu nokkrir hljóðfæraleikarar erlendis frá koma
til liðs fyrir flutning þessa kunna verks Bachs sem
margir telja hátind tónlistar hans. Konscrtmeistari
verður Rut Ingólfsdóttir fiðluleikari.
Pólýfónkórnum boðið að
flytja verkið á Ítalíu
Pólýfónkórinn á æfingu f Vogaskóla.
Pólýfónkórinn bauö listahá-
tíð í Reykjavík að flytja H-moll
messuna án þóknunar til kórs-
ins og var þá jafnframt miðað
við að heimskunnir erlendir
söngvarar kæmu til liðs við kór-
inn. Listahátfðin hefur hins
vegar hafnað boði Pólýfónkórs-
ins á þeirri forsendu að stefna
hátíðarinnar sé sú að flytja
jafnan nýtt og ferskt efni eins
og segir í bréfi frá fram-
kvæmdastjórn hátiðarinnar og
þvi væri endurflutningur á H-
moll messunni brot á fyrri
stefnu L.H.
Hins vegar hefur Pólýfón-
kórnum verið boðið að flytja
H-moll messuna á ttalíu í
sumar í nokkrum stórborgum
Italíu á tónlistarhátíðum þar og
hugleiðir kórinn nú það boð.
Við ræddum við Ingólf Guð-
brandsson söngstjóra um
vætnanlegan flutning Pólýfón-
kórsins á H-moll messunni og
spurðum hann fyrst hvað hann
vildi segja um þessa afstöðu
listahátíðar.
,,Við sem erum í Polýfón-
kórnum teljum að listahátið sé
mikilsvert framtak til eflingar
listastarfsemi í landinu sé skyn-
samlega að hátiðinni staðið,“
sagði Ingólfur," en fyrst og
fremst þarf að miða hana við að
efla íslenzka liststarfsemi,
þannig aö hún verði islenzk
hátíð, en ekki einungis borin
uppi af erlendum stórstjörnum.
Með þátttöku í listahátiðinni
fæst viðmiðun við hið beztaá
alþjóðavettvangi og það á þvi
að brýna íslenzkt listafólk til
dáða og meiri kröfu i túlkun
sinni, en það verður náttúru-
lega ekki ef islenzkt listafólk er
látið sitja úti i kuldanum.
Annað verk en H-moll mess-
una tel ég ekki hæfa betur til
flutnings á tónlistarhátíð, þvi
hátíðlegra verk verður naumast
fundið, enda allur búningur
verksins með sérstökum
hátíðar- og glæsibrag frá hendi
höfundar. Ég vitna i Halldór
Laxness þar sem hann i
Brekkukotsannál lætur Garðar
Hólm segja:
„Ef sannað verður með
náttúrufræði eða sagnfræði,
éða jafnvel fyrir rétti, að upp-
risan sé ekki nema miðlúngi vel
vitnisföst, — ætlarðu þá að
hafna H-mol! messunni? Viltu
loka Péturskirkjunni af þvi það
hafi komið uppúr dúrnum að
hún er jarteikn rángra lifsskoð-
Kramhald á hls. 18