Morgunblaðið - 26.03.1976, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 26. MARZ 1976
5
Landsýn og Urval
hefja samvinnu
Feröaskrifstofurnar Landsýn h.f.
og Urval h.f. undirrituðu í gær
samning þar sem ákveðið er að
efna til samvinnu um ferðir til
Júgóslaviu. Mallorca og Ibiza.
Þessi nýbreytni f samvinnu
tveggja eða fleiri ferðaskrifstofa
um einn eða fleiri staði er tilraun
ferðaskrifstofanna til að gefa
fleiri möguleika við val á ferðum
segir í fréttatilkynningu sem af-
hent var á blaðamannafundi
þeirra í gær. Þá hafa ferðaskrif-
stofurnar ákveðið að efnatil sam-
starfs um ferðir til Norðurlanda
og verða vikulegar ferðir til
Kaupmannahafnar, Osló og
Stokkhólms, en þessar ferðir er
Heita vatnið
ekkert ódýrara
á Nesinu
ÞAÐ ER algjör misskilningur að
íhúar á Seltjarnarnesi borgi
lægra verð fyrir hitaveituvatnið
en ibúar í Reykjavfk, sagði Jón H.
Björnsson hitaveitustjóri á Sel-
tjarnarnesi þegar Morgunbiaðið
spurði hann hvort Seltirningar
fengju ódýrara vatn en Revkvik-
ingar.
Að sögn Jóns hefur þessi mis-
skiiningur komið upp undanfarið.
Sá væri munurinn á, að á Sel-
tjarnarnesi væri vatnið selt með
jöfnunargjaldi, þannig að íbúðar-
eigandi borgaði sama verð fyrir
vatnið í júlí og desember, þó svo
að mikill munur væri á vatnsnotk-
un þessara mánaða. Hjá Hitaveitu
Reykjavikur borgaði fólk hins
vegar eftir vatnsnotkun hvers
mánaðar.
einnig hægt að tengja ferðum til
Helsinki.
I þessari samvjnnu verða
farnar 6 ferðir til Júgóslaviu
(Portoroz), 15 ferðir verða farnar
til Malorca og 4 til Ibiza sem er
eyja sunnanvert við Mallorca og
er ný af nálinni á íslenzkum
ferðamarkaði. Samningar hafa
tekist við Flugleiðir um ferðirnar
og er beint flug á alla þessa staði.
Með slikri samvinnu ferðaskrif-
stofanna ætti að nást betri sæta-
nýting í flugvélunum.
Til Júgóslavíu verður flogið til
Ljublijana, höfuðborgar Slóveniu
sem er vestast 7 lýðvelda
Júgóslaviu. I Portoroz er einka-
baðströnd fyrir hvert hótel, sund-
laug og hressingarmiðstöð þar
sem gestir geta fengið alls kyns
meðferð. Þá verður einnig i
Portoroz sérstök skrifstofa þar
sem starfa mun starfsfólk frá
Islandi og Slóveniu.
Á Mallorca og Ibiza verða
einnig sérstakar skrifstofur rekn-
ar af ferðaskrifstofunum þar sem
fslenzkir starfskraftar munu veita
ferðamönnum, fyrirgreiðslu og
þjónustu, selja skoðunarferðir
o.f 1.
Einnig hafa ferðaskrifstofurnar
Landsýn og Urval í hyggju að
efna til vikulegra ferða til
London allt árið en undirbúning-
ur þeirra ferða er skemmra á veg
kominn. Þessar ferðaskrifstofur
stefna þó á enn frekari samvinnu.
Þá hefur ferðaskrifstofan Land-
sýn ákveðið að veita meðlimum
verkalýðsfélaganna svokallaðan
Alþýðuorlofsafslátt af sólarlanda-
ferðum og gildir það einnig fyrir
fjölskyldur þeirra.
ljósm. Mbl. Ol.K.Mag.
Frá blaðamannafundi (Jrvals og Landsýnar í gær. T.f.v. Kjartan Helgason, framkvæmdastjóri Landsýnar,
Óskar Hallgrfmsson formaður Landsýnar og Alþýðuorlofs, Vartýr Hákonarson, stjórnarmaður hjá Urval,
og Steinn Lárusson, framkvæmdastjóri Urvals.
Jörðin — fimmta
fjölfræðibók AB
ALMENNA bókafélagið hefur
gefið út bókina Jörðin og er hún
fimmta bókin f flokki fjölfræði-
bóka AB. Höfundur er Idrisyn
Oliver Evans en hinar fjölmörgu
myndir og teikningar bókarinnar
eru eftir John Smith. Bókin er
160 blaðsfður. Þýðandi er Árni
Böðvarsson, en ritstjóri bóka-
flokksins er Örnólfur Thorlacius.
Þýðandinn skrifar stuttan for-
mála fyrir bókinni, sem skiptist i
eftirtalda kafla: Forsaga og forn-
öld, Miðaldir og endurreisnartím-
inn, Jarðfræðin slítur barnsskón-
um, Rannsóknir og ferðir, Eðli og
myndun bergs, Framfarir í
stjörnufræði, Jarðlagafræði og
steingervingar, Jarðfræðin verð-
ur vísindi, Framfarir i náttúruvís-
indum, Jörðin nú á timum, Nöfn
og atviksorð og Rit um skyld efni.
Setningu annaðist PrentstofaG.
Benediktssonar en bókin var
prentuð og bundin hjá Arnaldo
Mondadori Officine Grafiche i
Verona á ftalíu.
I flokki fjölfræðibóka AB hafa
áður komið út Fánar að fornu og
nýju, Uppruni mannkyns, Forn-
leifafræði og Rafmagnið. Sjötta
bókin í fjölfræðiflokknum verður
Plönturikið.
BORGARINN
• •• í ollri sinni nekt
-10 UM K0HT0RISTS- HRTlUtEG KÚGUNARVEL -3 STEVPUIVIÓT KOMiyiUN-
FöKK 7 ISMANS
Borgarinn
— Nýtt blað
UT er komið í Revkjavik nýtt
blað og ber það heitið Borgarinn.
Blaðinu er dreift i Menntaskólan-
um í Revkjavík, Menntaskólan-
um við Hamrahlfð, Menntaskól-
anum við Tjörnina, Verslunar-
Framhald á bls. 14
Vio höf um ykkur í sigti
HKH-CAUBRl J6AHS
TIZKUVERZLUN UNGA FOLKSINS
sH
AUSTURSTRÆTI22 LAUGAVEG 66 LAUGAVEG 20a
SÍMI FRÁ SKIPTIBOROI 28155