Morgunblaðið - 26.03.1976, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 26. MARZ 1976
15
r _
Utvegur Breta
heimtar aðstoð
London, 25. marz AP. Reuter.
ASSOCIATED Fisheries, sem
kallar sig stærstu togaraútgerð
Evrópu, krafðist þess í dag að
Fred Peart, landbúnaðar- og
sjávarútvegsráðherra Breta,
markaði heilsteypta stefnu í
sjávarútvegsmáium.
Útgerðin segir að vegna stefnu-
leysis stjórnarinnar hafi orðið að
leggja mörgum togurum á
skömmum tíma, mörgum hafnar-
mannvirkjum verið lokað fvrir
fullt og allt, margir verkamenn
misst atvinnuna og þjóðin orðið
fyrir miklu fjárhagst jóni.
Tap Associated Fisheries á
síðasta fjárhagsári sem lauk 30.
september í fyrra nam 2.026.000
(668.5 milljónum ísl. kr.) áður en
skattar höfðu verið frádregnir en
veltan var rúmlega 77 milljón
pund (25.4 milljarðar isl.kr.).
„Við erum óðum að nálgast
það stig að getu okkar til að ná
bata verða þröngar skorður sett-
ar. . .“ sagði formaður útgerðar-
fyrirtækisins, P.M. Tapscott.
„Ef við verðum að leggja fleiri
skipum og skerða þar með veiði-
getu okkar til frambúðar. Til
verður að koma alger og róttæk
breyting áöllum fiskiskipaflotan-
um sem stundar veiðar fjarri
heimamiðum...“
Hluthafarnir hvöttu Peart fiski-
málaráðherra til að veita „tafar-
lausa aðstoð til að binda enda á
tortimingu fiskiðnaðarins þar til
langtíma ákvarðanir hefðu verið
teknar."
Uppfinningamaður í Bretlandi
Segir banka skulda
sér 170 milljarða
VELSKUR kaupsýslumaður, Ric-
hard Williams að nafni, hefur
lýst yfir þvi að hann telji að
brezkir bankar skuldi honum um
það bil 500 inillj. sterlingspunda
eða um 170 milljarða króna að
minnsta kosti og segir að upphæð-
in gæti verið hærri ef grannt sé
skoðað. Williams sem fann upp
og hannaði farskrártölvu þá sem
British Airways notar, segir að
hann hafi einnig fundið upp kerfi
til að lesa á númeraðar ávísanir
með tölvu, en það hefði í för með
sér að svar fæst jafnóðum frá
viðkomandi innstæðubanka um
hvort innstæðasé á reikningnum.
Hann segir að ekki sé ósann-
gjarnt að hann fái í sinn hlut eitt
pens fyrir hvert ávísanaeyðublað
og út frá þvi hefur hann reiknað
út töluna 500 milljónir sterlings-
punda. Hann sagði aðspurður að
hann sæktist út af fyrir sig ekki
eftir peningunum sem slikum
heldur þyrfti hann að fá almenna
og greidda viðurkenningu fyrir
þessari uppfinningu sinni. Hann
kvaðst hafa í mörg ár fylgst náið
Grænlending-
ar hafa áhyggj-
ur af veiðum
V-Þjóðverja
Kaupmannahöfn, 25. marz.
Einkaskeyti til Mbl. frá Lars
Olsen.
FORSVARSMENN hinnar
Konunglegu Grænlandsverzlunar
í Godtháb á Grænlandi óttast að
þorskastríðið við Island hafi al-
varlegar afleiðingar fyrir fisk-
veiðar á Grænlandsmiðum. Hefur
verið óskað eftir því við togara
Grænlandsverzlunarinnar að þeir
hafi auga með hinum stóru vest-
ur-þýzku togurum sem eru á
miðunum vestur af Godtháb. Er
mál manna að þar fari fram ung-
fiskveiðar í stórum stíl. Vestur-
Þjóðverjar hafa byrjað veiðar
þarna eftir að veiðitakmarkanirn-
ar við Island tóku gildi. Togararn-
ir sem eru tiu til tólf talsins eru
þrjú-fjögur þúsund tonn og eru
byggðir til vinnslu fiskmjöls.
Ungþorsk má nýta í því augna-
miði.
Danska fiskimálaráðuneytió
mun nú reifa málið við vestur-
þýzk stjórnvöld, en tekið er fram
að ekki er um að ræða ólöglegar
veiðar, þar sem veiðarnar eru
stundaðar á alþjóðlegum haf-
svæðum.
með ávísunum sem látnar séu
fara i gegnum það kerfi sem hann
hafi átt hugmyndina að. Hann
hafi sent viðkomandi bönkum
réttmæta reikninga fyrir vikið en
þar sem þeir hafi ekki verið
greiddir hafi hann gefið út stefnu
fyrir brot á höfundalögum gegn
Lloyds banka og verður málið tek-
Framhald á bls. 18
Ingmar Bergman
Hœtt við málshöfðun
á hendur Bergman
Stokkhólmi, 25. marz. Reuter.
AKVEÐIÐ hefur verið að ekki
skuli höfða mál á hendur
sænska leikstjóranum Ingmar
Bergman vegna skattamála, að
því er saksóknarinn i málinu
sagði í dag. Bergman var tekinn
til yfirheyrslu i janúarlok og
inntur eftir skýringum á
greiðslum til hans að upphæð
um 523 þúsund sænskum krón-
um, sem talið er að honum hafi
verið greiddar árið 1970 af Per-
sona films, en það hefur aðset-
ur i Sviss. Bergman var grunað-
ur um að hafa engan skatt
greitt af fénu.
Sérfræðingar í skattamálum
munu halda áfram að kanna
skattamál leikstjórans, en
ástæðan fyrir því að ákæran á
hendur honum var niður felld
var að sögn saksóknarans i mál-
inu, að engin ástæða væri til að
ætla að saknæmar forsendur
væru fyrir hendi.
Ingmar Bergman var að æfa
Dauðadans Strindbergs við
Konunglega ieikhúsið í Stokk-
hólmi, þegai- tveir lögreglu-
menn, óeinkennisklæddir,
komu á vettvangog lásu honum
ákæruna um skattsvik og fóru
siðan á braut með hann.
Þremur dögum siðar var hann
lagður inn á sjúkrahús og sögðu
vinir hans að hann hefði fengið
taugaáfall vegna harkalegra að-
fara lögreglunnar. Hann fór
ekki af sjúkrahúsinu fyrr en í
síðustu viku.
Ford:
Washington, 25. marz. NTB.
AP.
GERALD Ford Bandarikjaforseti
fór þess á leit við þingið í gær-
kvöldi að veitt yrði 135 milljón
dollara fjárveiting tii að hægt
yrði að bólusetja alla borgara
Bandarikjanna við inflúensuvfr-
us — svínavírusi svokölluðum —
sem stungið hefur sér niður í
herstöð í New Jersey í Bandarfkj-
unum og mun vera sams konar
vfrus og spánska veikin, sem geis-
aði árin 1918 —1919 og kostaði
um 20 milljónir manna Hfið.
Ford kvaddi til fundar við sig
27 visindamenn til að ræða þetta
mál og að þeim viðræðum loknum
lagði hann beiðni sína fyrir þing-
ið. Hvatti hann til að bólusetning-
in verði framkvæmd i september
og október í haust, og að öllum
tiltækum ráðum yrði beitt til að
koma i veg fyrir faraldur, en ekki
er talin yfirvofandi hætta á að svo
stöddu, að slikur faraldur brjótist
út.
1 spönsku veikinni lézt um hálf
milljón manna i Bandarikjunum.
I AP-fréttum segir að það
myndi kosta bandarisku stjórnina
um það bil 100—140 millj. dollara
að framleiða nægilegt bóluefni og
koma því í hendur lækna fyrir
haustið. Lyfjaframleiðslufyrir-
tæki hafa lagt mjög hart að heil-
brigðisyfirvöldum að gefa svar
um hvað væri ætlunin að gera,
þar sem mjög yrði þá að auka
framleiðsluna. Nú framleiða fyr-
irtækin um 20 millj. skammta
bóluefnis árlega sem notað er
gegn almennri innflúensu en það
bóluefni er gersamlega gagns-
laust gegn svinavírusi.
Þá bárust þær fréttir frá Lond-
on að þar munu heilbrigðisyfir-
völd fylgjast mjög gaumgæfilega
með framvindu mála, og er ekki
óliklegt að kunngerður verði ein-
hvers konar ráðstafanir i Bret-
landi til að framleiða bóluefni við
virusi þessum.
Norska
gæzlan
styrkt
Ósló. 25. marz. NTB.
NORSKA stjórnin hefur sam-
þykkt að landvarnaráðuneytið
taki á leigu fjóra stóra togara eða
nótaskip, ef til víll verksmiðju-
skip til eftirlitsstarfa til að efla
gæzlu norsku íiskveiðilögsögunn-
ar að sögn Rolf Hansen land-
varnaráðherra i viðtali við
Arbeiderbladet.
Ráðuneytið stefnir að þvi að
taka skipin á leigu frá 7. janúar
1977 vegna útfærslu norsku fisk-
veiðiiögsögu nn ar.
Hann sagði að skipin yrðu not-
uð til eftirlitsstarfa þar til ný
gæzluskip hefðu verið smiðuð,
sennilega á árunum 1980—85.
Skipin verða búin léttum vopn-
um.
ViD fjárveitingu til bólu-
efnis gegn svínavírusi
Chicago Tribune:
Þvermóðska
Breta leiðir
af sér átök
1 BANDARlSKA blaðinu Chicago
Tribune birtist fvrir stuttu for-
ystugrein um landhelgisdeilu Is-
lendinga og Breta. Þar segir m.a.
„Fiskveiðideilan milli lslands og
Bretlands er komin á alvarlegt
stig. Islendingar hafa rofið
stjórnmálasamband við Breta —
og er það í fyrsta skipti sem slíkt
gerist milii tveggja aðildarþjóða
Atlantshafbandalagsins í 26 ára
sögu þess. Þetta er ógnun ekki
aðeins við bandalagið. heldur
einnig gagnvart öryggi Banda-
ríkjanna og Evrópu sem eiga mik-
ið undir hinni þýðingarmiklu
stöð I Keflavík, en í því kemur
fram aðalframlag Islands til Atl-
antshafsbandalagsins. tslending-
ar stigu þetta örlagaríka skref
vegna þess að Bretar neituðu að
samþvkkja einhliða útfærslu is-
lendinga í 200 mílur í sl. október-
mánuði." Sfðan segir að brezka
utanríkisráðunevtið hafi skýrt
frá að ósveigjanleiki Breta bvgg-
ist m.a. á þeim atriðum að tsland
hafi brotið f bága við samþvkkt
Alþjóðadómstólsins f Haag með
því að færa út einhliða. „Þetta er
satt,“ segir blaðið, „en lslending-
ar hafa hoðist til að leita eftir
samkomulagi um deiluna á Haf-
réttarráðstefnu Sameinuðu þjóð-
anna í New York.“ Þá segir blaðið
að Bretar hafi um langa hríð veitt
á miðunum við lsland,“ og það er
ein af ástæðunum fyrir þvf að
þorskstofninn ogýmsir aðrir fisk-
stofnar hafa rýrnað svo mjög.“
Þá bendir blaðið á að i Bret-
landi séu um milljón verkamenn
Framhald á bls. 14
Misjöfn viðbrögð við reiðilestri Solzhenitsyns:
Hugsjón hans er
að verða þráhyggja
London, 25. marz. Reuter.
Einkaskeyti til Mbl. frá AP.
UMMÆLI Alexanders
Solzhenitsyns um Breta í sjón-
varpsviðtalinu i gærkvöldi
fengu misjafnar undirtektir í
brezkum blöðum f morgun og
einkenndust yfirleitt af
hneykslan eða sárindum.
I forystugrein Daily Mirror
segir: Alexander Solzhenitsyn
er maður með háa hugsjón sem
er að verða þráhyggja. Hann
lýsir Bretlandi svo að það
standi neðar en Úganda og
Rúmenía Atlantshafsbandalag-
ið sé spilaborg. Vesturlönd séu
í rústum. Hvað er það sem þessi
rússneski milljónamæringur-
inn býst við af okkur? Vill hann
allsherjar herkvaðningu og
hervæðingu? Vill hann frelsis-
strið til að frelsa þjóðir
Tékkóslóvakiu og Ungverja-
lands frá sovézkum yfirráðum?
Er hann þeirrar skoðunar að
Bretland, Frakkland og Italia
ættu að banna kommúnista-
flokka sina? Bjóst hann við að
sjá bandariska hermenn á
harðahlaupum um Angola?
Solzhenitsyn er orðinn spámað-
Framhald á bls. 14
Solzhenitsvn