Morgunblaðið - 26.03.1976, Síða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 26. MARZ 1976
TONLEIKAR yngri deildar Tónlistarskólans I Reykjavík verða
haldnir f Austurbæjarbfói á morgun og hefjast kl. 2.30. Þar munu
koma fram 19 ungir tónlistarmcnn og flytja verk meistara frá ýmsum
tfmum.
Hefjast viðræður
við B.S.R.B. á ný?
VIÐRÆÐUR milli samninga-
nefndar Bandalags starfsmanna
ríkis og bæja og samningancfnd-
ar rikisins um samningsréttar-
málin og nyjan kjarasamning fvr-
ir opinbera starfsmenn hafa legið
niðri um tíma, en í gær stóðu
vonir til að viðra-ðum vrði haldið
áfram, að því er Haraldur Stein-
þórsson framkv.stj. BSRB sagði.
Tímann, sem liðið hefur^ hefur
BSRB notað til þess að halda
fundi um samningsmálin víða um
land. Allir þessir fundir sam-
þvkkja ályktanirnar og hafa
nokkrar þegar hir/.t í. fréttum
Morgunblaðsins.
Aðalfundur Starfsmannafélags
Hafnarfjarðarkaupstaðar var
haldinn síðastliðinn miðvikudag.
Fundurinn harmaði þann aftur-
kipp, sem komið hefur í samn-
ingsréttarmálið og skorar á ríkis-
stjórnina að standa við þær tilliig-
ur sem samninganefnd fjármála-
ráðuneytisins hefur lagt fram.
Jafnframt krefst fundurinn þess
að tekið verði tillit til ábendinga
BSRB um endurskoðunarrétt að-
alkjarasamnings. Siðan segir i
Alyktuninni: „Til að forðast þær
hörmulegu afleiðingar sem kunna
Guðmundur
teflir við 7
stórmeistara
MORGUNBLAÐID hefur áður
skýrt frá þvi að Guðmundur
Sigurjónsson stórmeistari muni í
næsta mánuði tefla á mjög sterku
móti i Las Palmas, en á þessu
móti tefldi Friðrik Olafsson tvö
undanfarin ár.
Nú hafa borizt fregnir af því við
hverja Guðmundur teflir á mót-
inu ög keppa þar auk hans sjö
stórmeistarar, nokkrir alþjóðlegir
meistarar og titillausir skákmenn
eða alls 16. Stórmeistararnir eru:
Geller, Sovétríkjunum, Porthisch
Ungverjalandi, Larsen Dan-
mörku, Hubner V-Þýzkalandi,
Byrne Bandaríkjunum, Georghiu
Rúmeníu og Tseshkovsky Sovét-
ríkjunuin.
Minningarathöfn
um Þorstein
M. Jónsson
Akureyri. 25 mar/.
1 DAG fór fraiií í gagnfræðaskól-
anum á Akureyri minningarat-
höfn um Þor : in M. Jónsson
fyrrverandi skólastjéra. Athöfnin
hófst með alme; num söng, en síð-
an fiutti Sverrir Pálsson skóla-
stjóri minnir airæðu. Viðstaddir
athöfnina. au' "i menda og kenn-
ara skólans. voru fyrrverandi
samstarfsmenn Þorsteins, er látið
hafa af störfum si. t:ir
að leiða af því, ef samkomufag
næst ekki fyrir næstkomandi
mánaðamót, þá leggur fundurinn
rika áherzlu á, að hinn naumi
tímí, sem til stefnu er verði notað-
ur til hins itrasta."
Þá hefur einnig borizt ályktun
frá fundi kennara i Kópavogi og
Kjósarsýslu, sem haldinn var að
Hótel Esju hinn 22. marz. Fund-
urinn krefst þess að opinberir
starfsmenn fái undanbragðalaust
sama samningsrétt og sömu að-
stöðu til að semja um kjör sin og
aðrir launþegar í landinu og verði
fe'lld úr gildi núverandi ákvæði
um Kjaradóm. Lýsir fundurinn
fyllstu andúð sinni og andstöðu
gegn því athæfi stjórnvalda —
eins og það er orðað — að bregða
ta>ti fyrir þær tilraunir til sam-
komulags um þessi mál, sem virt-
ust ve! á veg komnar. Fundurinn
skorar á stjórn BSRB að beita sér
fyrir hverjum þeim aðgerðum,
sem líklegastar kunna að vera til
að koma þessum sjálfsögðu mann-
réttindum opinberra starfsmanna
í höfn og heitir i því sambandi á
öflugan stuðning allra stéttarfé-
laga kennara.
Loks hefur borizt ályktun fund-
ar opinberra starfsmanna á Akur-
eyri sem haldinn var á vegum
BSRB og Starfsmannafélags
Akureyrar. Lýsti fundurinn
stuöningi við stefnu og störf
BSRB í samningsréttarmáli opin-
berra starfsmanna og undrast þau
vinnubrögð rikisstjórnar að falla
frá áður framkomnum tillögum
samninganefndar sinnar í þessu
máli. Telur fundurinn BSRB hafa
sýnt fullan samningsvilja í máli
þessu og tekid fullt tillit til örygg-
isþjónustu og heilsugæzlu i þvi
sambandi. Fundurínn skorar á
stjórnvöld að endurskoða afstöðu
sína og vinda bráðan bug að
samningum, bæði um samnings-
rétt og kjaramál opinberra starfs-
manna Komi ekki fram viðun-
andi viðbrögð — segir í alyktun-
inni — i þcssum efnum, hlýtur
BSRB að íhuga vel öll úrræði til
að knýja á um úrslit. I því sam-
bandi bendii fundurínn á skoð-
anakönnun BSRB frá siðastliðnu
hausti, sem visbendingu um vilja
félagsmanna í þessum efnum.
— Pólýfónkórinn
Framhald af bls. 3
ana og mundi koma mönnum að
betri notum sem hestarétt?"
Þrátt fyrir þessa afstöðu
listahátíðar verður verkið flutt
um páskana og fólki gefst þá
kostur á að kanna sjálft hvort
verkið hefði verið boðlegt á
listahátíö eða ekki.
Hins vegar má geta þess að
nú hugleiðir kórinn boð um að
flytja H-moll messuna í nokkr-
um stórborgum ítalíu í sumar í
staðinn, en það eru borgirnar
Feneyjar, Florenz, Trieste,
Udine og Milanó."
Pólýfónkórinn hefur orðið
talsverða þjálfun í að koma
fram á erlendum tónlistarhátíð-
um eins og kunnugt er og þegar
í fyrstu utanlandsferð sinni
árið 1961 var kórinn fenginn til
að syngja við opnum Cam-
bridge musik festival og hlaut
lofsamlega dóma. Hann fór
einnig með góð ummæli í vega-
nesti því um svipað leyti hafði
Bodan Woditcsko lýst því yfir
að hann teldi kórinn vel til þess 1
fallinn að koma fram á erlend-
um tónlistarhátiðum. Þá var
Pólýfónkórinn valinn til þess
árið 1965 að syngja við opnun
hinnar stóru sönghátíðar
Europa Cantat i Belgiu að við-
stöddum 5000 áheyrendum.
— Meiri verð-
hækkanir.....................
Framhald af bls. 32
ríkisstjórnin hefur horfið frá
nauðsynlegu aðhaldi i verðlags-
málum jafnskjótt og kjara-
samningar höfðu tekizt.
Ennfremur telur hún stórlega
vítavert að verðhækkanirnar eru
yfirleitt miklum mun meiri en
spár Þjóðhagsstofnunar og Hag-
stofu Islands gerðu ráð fyrir
meðan kjarasamningar stóðu yfir,
en þær spár voru að verulegu
leyti forsenda samninganna.
Miðstjórnin telur þá stefnu
ríkisstjórnarinnar í verðlagsmál-
um, sem verðhækkana
ákvarðanirnar sýna, vera beina
árás á lífskjör almennings og auk
þess háskalega fyrir efnahags-
þróunina i heild. Krefst mið-
stjórnin þvi þess, að þessar
ákvarðanir verði endurskoðaðar
þegar í stað og upp verði tekin
virk aðhaldsstefna í verðlags-
málunum."
— Neitafréttum
Framhald af bls. 1
væri hvort nokkur þessara hug-
myndayrði reynd.
llmmæli Frydenlunds
Jafnframt sagði Knut Fryden-
lund, utanrikisráðherra Norð-
manna í viðtali við Bergens
Tidende í dag að Norðmenn hefðu
sagt að þeir mundu gera „allt sem
þeir gætu" til þess að stuðla að
því að lausn fyndist.
„En ég hef það á tilfinning-
unní," sagði Frydenlund, „að
þetta sé deila sem Islendingar séu
þjálfaðir í að meðhöndla og að
utanaðkomandi ríki geti því að-
eins lagt eitthvað að mörkum að
íslendingar telji það þjóna nokkr-
um tilgangi."
„En menn geta ekki upp á sitt
eindæmi blandað sér í deiluna,"
sagði F’rydenlund.
— Ný reglugerð
Framhald af bls. 2
kolmunna skal vera 16 mm. Þetta
ákvæði er nýtt og sett til sam-
ræmis við samþykkt Norðaustur-
Atlantshafsnefndarinnar.
II. KLÆÐING BOTNVÖRPU
OG FLOTVÖRPU.
Reglur þær, um klæðningu
varpna, sem hér verður gerð
grein fyrir, eru settartil samræm-
is við samþykkt Norðaustur-
Atlantshafsnefndarinnar og taka
gildi 1. apríl n.k.
Botnvörpu og fiotvörpu er að-
eins heimilt að klæða með eftir-
greindum hætti:
a) festa má undir botnvörpu og
flotvörpu segldúk, net eða annaó
efni í þvi skyni að forða eða draga
úr sliti, þó þannig, að þessir slit-
varar eða hlifar séu aðeins festar
að framan og á hliðunum við pok-
ann.
b) festa má við poka botnvörpu
og flotvörpu netbút úr sama efni
og pokinn er gerður úr. Möskvar
netbútsins skulu rúmlega helm-
ingi stærri en möskvar pokans, og
skal netbúturinn festur við pok-
ann að framan, á hliðunum og
aftan þannig, að hver möskvi net-
bútsins falli saman við fjóra
möskva pokans. Er hér um svo-
nefnda „pólska klæðningu" að
ræða.
c) við veiöar á rækju, spærlingi,
loðnu og kolmunna er heimilt að
nota styrktarpoka úr sverara
garni en pokinn er sjálfur gerður
úr. Lágmarksmöskvastærð slíks
styrktarpoka skal vera 80 mm.
— Hattersley
Framhald af bls. 1
Hann sagði að einnig væri
ljóst að Bretar mundu ekki
sætta sig við þá 12 mílna einka-
lögsögu sem Efnahagsbanda-
lagið hefur stungið upp á.
Hann sagði að brezka stjórn-
in mundi gera það sem i henn-
ar valdi stæði til að tryggja
lögsögu sem yrði einhvers
staðar þar á milli.
— Franjieh
Framhald af bls. 1
kvöld að sögn útvarps vinstri-
manna.
Palestínski skæruliðaleið-
toginn Yasser Arafat er á för-
um til Damaskus ásamt sendi-
nefnd að sögn Beirút-
útvarpsins. Verið getur að
hann reyni að miðla málum í
deilum sem hafa risið milli
Junblatt og Sýrlendinga og
stuðla þannig að samkomulagi
umvopnahlé.
Arafat tók þátt í fundi sem
Junblatt hélt með öðrum
palestfnskum leiðtogum og
leiðtogum vinstrimanna en
sagði áður en hann hófst að
hann hafnaði vopnahléi. Hann
sagði að menn sem flýðu eins
og Franjieh ættu ekki von á
góðu.
Flokkur falangista sagði í
kvöld að 17.000 manns hefðu
boðizt til að ganga í flokkinn.
Ef það er rétt mun félagatalan
um það bil tvöfaldast.
-- Sprengjuhótun
Framhald af bls. 1
vegna hringinganna og afhenti
önnur „geysihörð mótmæli" í dag.
Þar sém varað var við því að
hótanirnar gætu haft alvarleg
áhrif á sambúð ríkjanna. Rússar
hafa sjálfir fjórum sinnum mót-
mælt atburðum í New York íþess-
um mánuði, meðal annars árás
leyniskyttu á aðsetur sovézku
sendinefndarinnar hjá Sam-
einuðu þjóðunum og sprengingu í
skrifstofum ríkisflugfélagsins
Aeroflot. Mótmæli voru einnig af-
hent i Sovézka sendiráðinu í
Washington í dag.
I mótmælum sínum í gær
kvaðst bandaríska sendiráðið
þegar hafa harmað atburðina í
New York en bætti því við að það
teldi ekki atburðina i Moskvu
„jákvætt svar".
Sendiráðið sagði enn fremur í
orðsendingu sinni að um 50
starfsmenn þess hefðu verið
áreittir með símhringingum frá
fólki sem kallaði sig „nágranna"
eða „verkamann" og að þessar
hringingar væru ekki óskipulagð-
ar.
Nöfn útlendinga eru ekki skráð
í símaskrá Moskvu og upplýsinga
er ekki hægt að afla um símanúm-
er þeirra. Stundum hefur verið
hringt í diplómata í þann mund
sem þeir hafa komið heim til sin
og það virðist gefa til kynna að
nákvæmlega sé fylgzt með ferðum
þeirra
Maðurinn sem varaði við
sprengingunni í dag hringdi sex
mínútur eftir 12 og spurði eftir
„yfirmanni" á lýtalausri ensku.
Honum var gefið samband við
landgönguliða sem var á verði á
sjöundu hæð þar sem Walter
Stoessel sendiherra og aðrir hátt-
settir starfsmenn hafa skrifstof-
ur. Maðurinn sagði að tveggja
kilóa sprengja mundi springa kl.
12.27 á jarðhæðinni.
Um 50 starfsmenn á neðstu
hæðunum þar á meðal rússneskir,
og börn úr leikskóla í kjallaran-
um voru flutt úr byggingunni í
varúðarskyni.
— Segir banka
Framhald af bls. 15
ið fyrir innan tíðar. Krafa Will-
iams á hendur Lloyds er ekki
nema eitt þúsund sterlingspund,
en gæti gefið ákveðið fordæmi ef
hún verður tekin til greina og
hefur hann þá í hyggju að ráðast
fram gegn öðrum bönkum.
Williams er fyrrverandi banka-
starfsmaður og gaf út bók árið
1954 sem hét „The Electronic Off-
ice“ og segir hann að i þessari bók
lýsi hann merkjakerfi því sem
brezkir bankar hafi síðar tekið
upp. Hann hefur ekki sótt um
einkaleyfi og segir ástæðuna fyrir
þvi vera að slíkt sé aðeins veitt til
sautján ára en hann vilji fá full-
an höfundarrétt og hafi öll gögn i
höndunum til að sanna mál sitt.
— Jenkins
Framhald af bls. 1
urinn og þjóðin vildu skjótt svar
við því hver yrði næsti forsætis-
ráðherra og hann vildi ekki draga
keppnina á langinn.
Healey gefur kost á sér í
annarri atkvæðagreiðslunni en
búizt er við að Callaghan fái mest-
allt fylgi Jenkins. Þorri hófsamra
flokksmanna virðast vilja stöðva
Foot og eini maðurinn sem virðist
geta það er Callaghan sem talið er
að mundi fylgja svipaðri stefnu
og Wilson.
Stuðningsmenn Foots voru sigri
hrósandi eftir úrslitin í dag og
einn þeirra, Arthur Latham,
sagði: „Foot fær atkvæði Benns
og hefur einnig sýnt að hann get-
ur tryggt sér stuðning utan raða
hins vinstrisinnaða Tribune-hóps,
sem venjulega nýtur stuðnings 70
þingmanna.
Sumir eru i nokkrum vafa um
hvort úrslit fást í annarri at-
kvæðagreiðslu þar sem Healey
heldur áfram, en þar með fengju
Bretar ekki forsætisráðherra fyrr
en 5. apríl þegar fjárlög verða
lögð fram. Healey gæti virzt yngri
og djarfari leiðtogi en Callaghan
og vinsældir hans hafa aukizt i
Bretlandi þótt vinstrimenn séu
hatrammir andstæðingar hans
þar sem hann er harður í horn að
taka.
Þó er almennt álitið að Callag-
han sé liklegastur og flestir eru
enn þeirrar skoðunar að hann
verði fjórði forsætisráðherra
Verkamannaflokksins.
— Sjónvarp
Framhald af bls. 11
börn úr Barnamúsíkskólan-
um og hljómsveit.
Síðast á dagskrá á gamlárv
dag 1970.
19.00 Enska knattspyrnan
11 lé
20.00 Fréttir og veður
20.25 Auglýsingar og dagskrá
20.35 Kjördæmin keppa
2. þáttur. Reykjavík:Vestur-
land
Lið Revkjavíkur: Berg-
steinn Jónsson, sagnfræð-
ingur, Sigurður I.índal, pró-
fessor, og Vilhjálmur Lúð-
víksson, eðlisfræðingur.
Lið Vesturlands: Sr. Hjalti
Guðmundsson, Stvkkis-
hólmi, Jón Þ. Björnsson,
kennari, Borgarnesi, og sr.
Jón Einarsson, Saurbæ á
Hvalf jarðarströnd.
1 hléi svngur Arni Helgason
frá Stykkishólmi frumsamið
ljóð, „A fögru kvöldi I
sveit“, við undirleik Grettis
Björnssonar.
Stjórnandi er Jón Asgeirs-
son, en dómari Ingibjörg
Guðmundsdóttir. Stjórn
upptöku Tage Ammendrup.
21.00 Læknir til sjós
Breskur gamanmvndaflokk-
ur.
Drós er dánumanns vndi
Þýðandi Stefán Jökulsson.
21.25 Hroki og hleypidómar
(Pride and Prejudice)
Bandarisk biómynd frá
árinu 1940, byggð á sögu
eftir Jane Austen. Handritið
sömdu Aldous Huxley og
Jane Murfin.
Aðalhlutverk Laurence
Olivier ogGreer Garson.
Mvndin gerist í smábæ á
Englandi. Bennett-hjónin
eiga fimm gjafvaxta dætur,
og móður þeirra er mjög í
mun að gifta þær.
Þýðandi Dóra Hafsteins-
dóttir.
23.30 Dagskrárlok