Morgunblaðið - 26.03.1976, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 26. MARZ 1976
31
Stórleikir í næstu nm-
ferð bikarkeppni H.S.Í.
DREGIÐ hefur verið um það
hvaða lið mætast í næstu umferð
Bikarkeppni Handknattleikssam-
bands íslands og er þar um að
ræóa undanúrslit í kvennaflokki
og 2. flokki karla og átta liða
úrslit i meistaraflokki karla.
Reyndar er ekki öllum leikjum
fyrri umferðanna lokið, og því
ekki með öllu ljóst hvaða lið það
verða sem leiða saman hesta sína
í næstu umferð. Þeir leikir sem
eftir eru í meistaraflokki karla
eru milli KR og Breiðabliks og
Fram og KA. Sigurvegari í fyrr-
nefnda leiknum á að leika við IR
og sigurvegari í siðarnefnda
leiknum á að leika við FH. Má
líklegt téljast aó Framarar beri
sigurorð af KA, jafnvel þótt vitað
sé að Akureyrarliðið er erfitt
heim að sækja, og verði það Fram
og FH sem mætast í átta-liða úr-
slitunum er óhætt að gera þvi
skóna að þar verði um skemmti-
lega og harða baráttu að ræða.
Auk þeirra liða sem nefnd hafa
verið leika Víkingur og Grótta og
Valur og Fylkir eða Týr frá Vest-
mannaeyjum saman i átta liða úr-
slitunum. Má ætla að það verði
Víkingur og Valur sem koma frá
þeim leikjum sem sigurvegarar.
í kvennakeppninni leika saman
Fram og FH og Víkingur og Ar-
mann, og má slá því föstu að leik-
ur Fram og FH verður hinn at-
hyglisverðasti. Framstúlkurnar
stefna nú að tvöföldum sigri, i
íslandsmótinu og í bikarkeppn-
inni, en FH-stúlkurnar hafa sýnt
það í vetur að þær eru til alls
líklegar, og vilja örugglega gjarn-
an flytja bikar þann, sem nú verð-
ur keppt um, í fyrsta sinn til
Hafnarfjarðar.
í 2. flokki karla leika samah
Breiðablik og FH og Fylkir eða
Haukar og KR.
Leikið í 3. deildinni
KEPPNI i 3. deild íslandsmótsins í
handknattleik verður fram haldið um
helgina og þá leikið I riðli þeim er
skipaður er utanbæjarfélögum.
Verður leikið I Laugardalshötlinni á
föstudag og laugardag og hugsan-
legt er að úrslitaleikur deildarinnar
fari svo fram n.k. mánudag. í riðli
þeim er hér um ræðir leika lið
Leifturs, UIA, ÍBÍ og Dalvíkur og
verður þarna um að ræða seinni
umferðina. Hafði ísafjarðarliðið
forystu eftir fyrri hluta keppninnar.
Það lið sem sigrar í riðli þessum
leikur siðan við Stjörnuna til úrslita í
deildinni, og sem fyrr qreinir kann
svo að fara að sá leikur verði n.k.
mánudag.
Leikjafyrirkomulag 3. deildarinnar
nú um helgina verður þannig að i
kvöld kl. 20.45 leika i Laugardals-
höllinni Leiftur og UÍA og kl. 22.00
leika ÍBÍ og Dalvik. Á morgun kl.
16.30 leika i Laugardalshöllinni Dal
vík og Leiftur og kl. 17.45 leika þar
UIA og ÍBÍ. Á sunnudag fara svo
fram tveir leikir i Ásgarði i Görðum.
Þar leika kl. 17.30* lið ÍBÍ og
Leifturs og síðan lið Dalvikur og
UÍA.
Kna ttspyrnupunktar
MYND þessi var tekin á Siglufirði um sfðustu helgi er þar áttust við lið
TBR og TBS. Það er hinn efnilegi TBR-leikmaður, Ottð Guðjónsson
sem þarna slær badmintonholtann.
B-lið TBR í forustu
Í FYRRAKVÖLD fór fram vin-
áttulandsleikur i knattspyrnu
milli Sovétríkjanna og Búlgaríu
og var leikið í Sofia. Urslit urðu
þau að Sovétmenn sigruðu með
þremur mörkum gegn engu, eftir
að staðan hafði verið 1—0 i hálf-
leik. Mörk Sovétmanna skoruðu:
Onishchenko, Minauev og
Blokhin.
Franska unglingalandsliðið í
knattspyrnu sigraði unglingalið
Möltu með einu marki gegn engu
í leik liðanna sem fram fór í Metz
í Frakklandi i fyrrakvöld, en leik-
ur þessi var liður í UEFA-
bikarkeppni unglinga. Frakkar
unnu fyrri leikinn sem fram fór á
Möltu 3—1 og komast því í loka-
keppnina sem fram fer í Ung-
verjalandi í mai.
Rúmenía sigraði Frakkland
1—0 i leik liðanna i undankeppni
Olympíuleikanna í knattspyrnu
sem fram fór í Búkarest í fyrra-
kvöld.
Spánverjar hafa tryggt sér rétt
til þess að leika í lokakeppni
Ólympíuleikanna í knattspyrnu.
Gerðu þeir markalaust jafntefli
Miklatúnshlaup
FYRSTA Miklatúnshlaup
Ármanns á þessum vetri fer fram
n.k. laugardag og hefst kl. 14.00.
Hefst hlaupið á sama stað og und-
anfarin ár og verður með svipuðu
sniði og áður. Keppt verður í
drengja- og stúlknaflokkum.
Skiðamótí
Hveradölum
Skíðamót fyrir börn 12 ára og
yngri fer fram við Skíðaskálann i
Hveradölum laugardaginn 27.
marz og hefst það kl. 14.00.Nafna-
kall fer fram kl. 13.00. Skíðafélag
Reykjavíkur sér um mótið.
við Tyrki i leik sem fram fór i
Adana í Tyrklandi í fyrrakvöld.
Notuðu Spánverjar atvinnumenn
sína í leik þessum, en forráða-
menn tyrkneska liðsins lýstu því
yfir að leik loknum, að þeir
myndu ekki kæra Spánverjana
fyrir það.
Austur-Þýzkaland sigraði Aust-
urríki með tveimur mörkum gegn
engu í leik liðanna i undankeppni
Ólympíuleikanna í knattspyrnu
sem fram fór í Vín í fyrrakvöld.
Staðan í hálfleik var 1—0. Mörk
Austur-Þýzkalands gerður þeir
Riediger og Löwe.
Argentína sigraði Pólland 2—1
f vináttulandsleik í knattspyrnu
sem fram fór i Varsjá i fyrra-
kvöld. Öll mörkin voru skoruð í
seinni hálfleik. Urðu Pólverjar
fyrri til að skora og var þar
Kmiecik að verki, en Scott jafnaði
fljótlega fyrir Argentínumenn og
Mario Kempes skoraði síðan sig-
urmarkið með skalla
Hollendingar sigruðu Ira 1—0 i
leik liðanna i bikarkeppni UEFA
fyrir unglingalandslið, en leikið'
var í Breda i Hollandi i fyrra-
kvöld. Mark Hollendinganna
skoraði Wouters.
Það sem af er vikunni hafa eft-
irtaldir leikir farið fram i knattspyrnunni: í brezku
England 1. deild: Derby — Stoke 1 — 1
England 2. deild: Bolton — Blackburn 0—1
Charlton — Orient 1 — 1
Sunderl. — Bristol City 1 — 1
England 3. deild: Aldershot — Peterbor. 1—0
Sheff. Wed.—Chesterfield 1—3
Colchester — Millwall 0—1
Halifax — Southend 1—0
Undanúrslit Bikarkeppni Wales:
Cester — Cardiff 0—0
Hereford — Shrewsbury 1—1
ÞRJÚ lið hafa nú unnið sér
rétt til þess að taka þátt í
úrslitakeppni í neðri-
flokknum f liðakeppni
Badmintonssambands ts-
lands. Eru það B-lið KR og
TBS og lið íþróttabanda-
lags Akraness. Sigruðu lið
þessi í sfnum riðlum og
keppa sfðan sín á milli um
sæti f efri flokkunum.
I 1. riðli í neðri flokknum léku
lið Vals, Badmintonfélag Hafnar-
fjarðar, C-lið TBR og B-lið KR.
Urðu úrslit þau að B-lið KR
sigraði. Hlaut 3 stig fyrir 3 leiki
og vinningatala liðsins var 27:12.
C-lið TBR varð í öðru sæti með 2
stig fyrir 3 leiki og vinningatöl-
una 23:16. Lið Vals varð í þriðja
sæti með 1 stig fyrir 3 leiki og
vinningatöluna 19:20 og lið BH
varð í fjörða sæti, hlaut ekki stig,
en vinningatalan var 9:30.
Fimm lið kepptu i öðrum riðli.
Þar sigraði ÍA sem hlaut 4 stig og
var með vinningatöluna 45:7. C-
lið KR varð í öðru sæti með 3 stig
og vinningatöluna 27:25. 1 þriðja
sæti varð lið Vikings með 2 stig og
vinningatöluna 22:30. Gerpla varð
í fjóröa sæti með sömu stigatölu
og sömu vinninga og Víkingur, en
UMFN varð í fimmta sæti, hlaut
ekki stig og vinningatala liðsins
var 14:38.
1 þriðja riðlinum voru aðeins
tvö lið, B-lið TBS og lið frá
Akureyri. Sigraði Siglufjarðarlið-
ið með 8 vinningum gegn 5.
I efri flokknum er slaðan sú, aö
B-lið TBR hefur þar forystu með
3 stig og vinningatöluna 26:13.
A-lið TBR er i öðru sæti með 2
stig og vinningatöluna 18:21. KR-
ingar eru i þriðja sæti, hafa ekki
hlotið stig, en vinningatala þeirra
er 17:22 og í fjórða sæti er svo
A-lið TBS sem hefur leikið einn
leik, ekki fengið stig, en vinn-
ingarnir eru 4:9.
íþróttamiðstöð I.S.Í.
Laugarvatni
Frestur til að skila umsóknum um dvöl i íþrótta-
miðstöð I.S.I., Laugarvatni á n.k. sumri, rennur
út n.k. mánudag.
Reykjavík26. marz 1976
íþróttasamband íslands.
Heiðursleikur Joe Kinnears:
Brighton — Tottenham 1—6
Mikið úrval af flaueli og
terelyne ný komið
Einnig mynstrað bómullarefni
Ármúla 1A. Húsgagna og heimilisd S-86-112
Matvörudeild S-86-111, Vefnaðarv.d S-86 113
&