Morgunblaðið - 11.04.1976, Síða 12

Morgunblaðið - 11.04.1976, Síða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. APRlL 1976 |:unn: :] £*<«<****”’«! Im'P^ 5*$**iíd !*•#.* **'*«»< Píj’Wi tevnisl l»»v.*.y i». kí»*> i * ♦ hu*.+ *•$♦ ****n ■ -ssrss \’ • ' " ^**""**^ s-‘- SENDIHERRAHJÓN Bandaríkjanna á tslandi, Dor- othy og Frederick Irving, eru á förum af landi brott, þar sem sendiherrann hefur verið útnefndur aðstoðar- utanríkisráðherra Bandaríkjanna og mun fara með hafréttarmál, umhverfis- og vísindamál. Hérlendis hafa þau dvalizt í 3 ár og 7 mánuði og tekið að eigin sögn miklu ástfóstri við tsland. Þá má þvf segja að talsverður söknuður sé í hugum þeirra, er þau fara nú af landi brott — „þótt auðvitað sé gaman að koma heim á ný“ eins og sendiherrann sagði f stuttu spjalli við Morgunblaðið. Óhætt mun einnig að fullyrða að þau hjón eru með vinsælustu fulltrúum síns lands, sem hér hafa verið, og eru þá engir aðrir lastaðir. „Okkur hefur liöið einstak- lega vel þann tíma, sem viö höfum verið á Islandi," sagði Frederick Irving. „Hér höfum við komizt næst því að fá til- finninguna sem værum við heima af þeim löndum, sem við höfum gist. Islendingar eru frjálst fólk, sem alltaf er hægt að vera hreinskilinn við og það gerir lífið ánægjulegt. ls- lendingar eru áhugasamir um umhverfí sitt og stjórnmál — eins og Bandaríkjamenn — og það er gaman að tala viö þá. Viö þá er unnt að tala um stjórnmál án þess að þeir setji sig á háan hest og segi að maður sé að skipta sér af þeirra eigin mál- um, en auðvitað gætir maður þess sem diplómat að segja ekki of mikið,“ segir sendiherrann og hlær við. F’rú Irving hefur notað frístundir sinar á Islandi til þess að læra íslenzku. Hún sagði blaðamanni Mbl. að kenn- arar sínir hefðu m.a. verið krakkarnir í nágrenni sendi- ráðsins. Og voru þeir góðir kennarar: „Já, þeir eru alveg frábærir. Það góða við krakk- ana er að þeir eru alveg ófeimn- ir við að leiðrétta mig í fram- burði og hika ekki við það. Þau sitja hér umhverfis þetta borð — og sendiherrafrúin bendir á lítið borð í stofunni á heimili þeirra hjóna — og þar fer kennslan fram. Ef ég skil ekki eitthvað, sem þau segja, stinga þau saman nefjum og bera saman bækur sínar áður en út- skýringar eru samþykktar. Hef ég átt margar ánægjulegar stundir með þessum vinum mínum,“ sagði sendiherrafrúin. En hvað hafa sendiherra- hjónin ferðazt um landið? „Við höfum ferðazt mjög víða,“ segir sendiherrafrúin, en sendiherr- ann bætir við: „Konan og börn- in hafa ferðazt mun meira en ég, því að ég er dálítið slæmur í baki.“ „Já við höfum mikið ferðazt og legið jafnan í tjaldi,“ heldur sendiherrafrúin áfram. „Eitt sumarið fórum við um Suðurland, þá um Austurland og eitt sinn um Snæfellsnes. Þá höfum við farið norður og eitt sinn til Isafjarðar. Ég hefi haft sérstakan áhuga á Islandssög- unni og hefur mér þótt einkar skemmtilegt að heimsækja sögustaðina. Fyrsta sumarið fór ég til dæmis um söguslóðir á Suðurlandi, kom í Odda og í Haukadal. I einni tjaldferðinni, óveðursnótt, fauk tjaldið af okkur um klukkan fjögur og urðum við að taka það saman og skríða upp í bílinn. Þá var allt í einu bankað á gluggann í bílnum, Þar var þá komin blá- ókunnur Islendingur úr næsta tjaldi við okkur með kaffibrúsa og bolla. Þetta er sú hlýja og það vinalega viðmót, sem brætt hefur hjörtu okkar gagnvart Islcr.dingum. Ég vcit ekki. hvaða fólk þetta var, og get því ekki þakkað því fyrir nægilega. Lesi þau þetta spjall okkar, biðjum við fyrir kveðjur." Þá barst talið að veðrinu á Islandi. Þau væru víst góðu vön frá Bandaríkjunum. Sendiherr- ann sagði þá að þau kæmu frá Rode Island og þar væri mjög margbreytilegt veðurlag, rétt eins og á Islandi. Sendiherra- frúin skaut því þá að, að maður kynntist ekki öllum veðrabrigð- um þar á 20 mínútum eins og komið gæti fyrir á íslandi. „Nei,“ sagði sendiherrann, „en við erum þó búin að vera nógu lengi á Islandi til þess að geta kvartað yfir veðrinu eins og hverjir aðrir Islendingar. Við gleðjumst líka yfir því, þegar gott er veður og eitt er víst að þegar sólin skín, erum við þegar búin að gleyma um- hleypingunum, rétt eins og þið. Við höfum haft það fyrir sið á hverjum degi — og þeir eru ekki margir dagarnir, sem við höfum misst úr — að ganga einn hring í kringum Tjörnina. Það hefur verið hressandi og skemmtilegt, en stundum hefur verið fjári kalt,“ segir sendi- herrann og hlær við. Ahugamál sendiherrafrúar- innar hafa ekki einskorðazt við sögu Islands og íslenzkuna. Hún hefur einnig haft áhuga á skólamálum, en sjálf er hún kennari að mennt. Hefur hún skoðað skóla og rætt við kenn- ara og einnig hefur hún starfað í kvennasamtökum Rauða , ,Hér höfum vlð komizt næst ]iví að fá tilfimiim»una — að \era heima” Sendiherrahjón Bandarfkj- anna, Dorothy og Frederick Irving, á heimili slnu. Að baki þeim eru myndirnar, sem Irving málaði sjálfur og getið er um I viðtalinu. — Ljósm.: Ol. K. M. krossins og fleiri félögum. „Margir góðir vinir mfnir hafa hjálpað mér mikið og fyrir það verð ég ævinlega þakklát. Þetta hefur allt ýtt undir þá tilfinn- ingu að maður sé heima,“ sagði sendiherrafrúin. Börn sendiherrahjónanna eru þrjú og hafa þau öll stund- að háskólanám í Bandaríkjun- um þessi ár, sem þau hjón hafa verið á Islandi. En til Islands hafa þau komið á sumrin og m.a. unnið hér í fiski á Kirkju- sandi. Elzta barn þeirra, Sue, hefur nýlokið Ph.D.-prófi frá Harvard og er nú ráðgjafi Ribicoffs öldungadeildarþing- manns frá Connecticut. Hún kvæntist nú í febrúarmánuði ungum lögfræðingi. Sonur þeirra Rick er að búa sig undir meistarapróf í þjóðfélagsfræð- um við háskólann í Boston. Hann er væntanlegur til Islands nú í júní, þvi að hinn 5. júní ætlar hann að ganga að eiga dóttur danska sendiherr- ans á íslandi. Gitfc Nielsen. oe verða þau gefin saman í Mos- fellskirkju í Mosfellssveit. Munu sendiherrahjónin þá koma til Islands til þess að verða við brúðkaupið. Yngsta barnið er svo Barbara, sem er á þriðja ári í Wellesley College í Massachusetts. Barbara hefur oftast komið til Islands af þeim börnum og talar dálítið íslenzku. Já, börnin hafa komið á hverju sumri til Islands og ekki nóg með það, heldur hafa vinir og kunningjar komið með þeim. „Svo gestkvæmt hefur verið hér á heimili okkar,“ segir sendiherrann, „að hér hafa menn orðið að sofa í flatsæng á gólfinu, vegna þess að ekki voru til nógu mörg rúm á heimilinu. Ég er sannfærður um að Flugleiðir munu sakna okkar sárt, er við förum héðan, því að þeir eru ófáir farseðlarn- ir, sem þeir hafa selt vegna þessa. Svo er konan mín eigin- lega eins og gangandi ferða- skrifstofa fyrir Island, því að í hvert skipti sem við förum til Bandaríkjanna, rogast hún með mörg kg af túristabæklingum til þess að gefa vinum og kunningjum þar heima,“ og Irving hlær við. En hvað nú um.starf sendi- íierrans hrji'i ng h^Jfí %r'» Islandi? „Þetta hefur fyrir mig verið mjög áhugaverður tími,“ segir Irving sendiherra, „en hann hefur kannski að sama skapi verið erfiður. Hálft þriðja ár fór í samninga um nýjan varnarsamning milli Banda- ríkjanna og Islands. Þetta var mér skemmtileg reynsla og þá einkum vegna þess að allt fór vel að Iokum. I upphafi urðum við sammála um að finna atriði, sem báðar þjóðir hefðu áhuga og ábata af og það var skilning- ur beggja aðila að við ættust tvær sjálfstæðar og fullvalda þjóðir. Þetta var góður grunnur að því samkomulagi, sem síðan náðist.“ „Hefur nýr sendiherra verið útnefndur?" „Nei, ekki enn og liklegast mun taka um mánuð að útnefna hann,“ sagði Irving. „1 fyrstu var það ætlunin að við yrðum hér fram á sumar, en það breyttist svo vegna aukinna anna í því starfi, sem ég tek við og einkum vegna þess að þingið krafðist þess að ég tæki fyrr við stöðunni.“ „Dvölin hér á íslandi hefur kannski stuðlað að útnefning- unni í nýja embættið?" „Hún vissulega gerði það og í staðfestingunni fyrir veitingu •• •-• einmitt sérstaklega tekið fram þetta atriði. Þetta nýja starf mitt fjallar einmitt um fiskveiðar og þá útfærslu fiskveiðilandhelgi Bandarikj- anna. Þetta ásamt því verkefni að koma á öryggiskerfi um allan heim til varnar fram- leiðslu kjarnasprengja eru viðamestu vandamál, sem ég mun fjalla um í nýja embætt- inu. Kjarnorka er einn af orku- gjöfum jarðar, en hún getur einnig birzt í þeirri hræðilegu mynd, sem kjarnorkusprengjur eru. Við ætlum að vinna að því verkefni að fá þjóðir, sem eiga kjarnaofna, til þess að sam- þykkja að framleiða ekki kjarnorkusprengjur. Þá mun- um við einnig vinna að því að auka verndun náttúruauðæfa og berjast gegn mengun um allan heim. Hingað til hafa allt of fá lönd samþykkt Vínarsam- komulagið um bann við fram- leiðslu kjarnorkuvopna, en tak- markið er að fá öll lönd til þess að sameinast um það. Þá má og nefna að undir skrifstofu mína í Washington heyrir einnig samvinna Sovétríkjanna og Bandaríkjanna í geimnum. Á skrifstofunni starfa um 120 manns, þ.á m. vísindalegir ráð- gjafar í fiskveiðimálum, haf- réttarmálum, mengunarmálum og kjarnorkumálum. Auk þess eru sérfræðingar í 25 löndum. Spanna þeir einnig fleiri lönd, þannig að við höfum yfirsýn yfir allan heiminn.“ Heimili sendiherrahjónanna er einkar skemmtilegt. Á ein- um veggnum hanga fjórar litlar olíumyndir, sem rammaðar eru inn í sama rammann. Sendi- herrann segir okkur að þetta sé eftir hann sjálfan. Við spyrjum, hvorl íiiiiíii si'lhvjið iif að mála. „Nei,“ segir Irving, ,,en I fjölskyldu okkar er sá siður, að þegar við gefum hverju öðru jólagjafir, býr maður þær til sjálfur. Eitt árið var ég alveg hugmyndasnauð- ur. Þá fann ég allt í einu olíuliti Framhald á bls. 37 Spjallað við sendiherra- hjón Bandaríkjanna, Dorothy og Frederick Irving, sem eru á förum

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.