Morgunblaðið - 11.04.1976, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. APRIL 1976
17
I»etta gerdist líka ....
Guðsmaðurinn og gullið
Klerkur, hálsbindaframleiSandi og bústjórinn á minkabúi eru nú fyrir
rétti I Varsjá sakaSir um að hafa smyglað óbætanlegum listaverkum
vestur fyrir tjald, tekið greiðslu í gulli og smyglað þvf síðan til baka til
Póllands. Mál þeirra hefur verið í rannsókn um þriggja ára skeið og alls
eru þremenningarnir taldir hafa komið 103 málverkum og öðrum lista-
verkum úr landi og þegið fyrir þau og annað „tilfallandi" þýfi hvorki
meira né minna en tólf tonn af gulli! Klerkurinn er talinn hafa verið
iðnastur við kolann og raunar ekki vílað fyrir sér að dunda líka við sölu á
fölsuðum listavérkum. Þá á hann ennfremur að hafa feðrað tvíbura og er
það einn liður ákærunnar á hendur honum, þó að ekki komi fram, hvernig
það megi varða við lög.
Pólitík og pgndingar
Lögregla Smlth stjórnarinnar { Rhodeslu heldur nú yfir 1200 pólitiskum
föngum { fangelsum sinum og þar af einum sjö hundruB, sem hvorki hafa
verið opinberlega ðkærSir né leiddir fyrir rótt. Amnesty International
upplýsir að í örvæntingu sinni beiti yfirvöld þama nú pyndingum sem
„kerfisbundnum, sjálfsögð-
um hlut". Amnesty fullyrSir
ennfremur, að hin ólöglega
stjórn Smiths hafi á undan-
fömum tiu árum látið
hengja yfir 60 blökkumenn
fyrir „andófsstarfsemi" af
ýmsu tagi. Fulltrúar stjórn-
valda hétu þvi a8 visu opin-
berlega í desember 1974
að hætta að beita
hengingarólinni sem póli-
tisku vopni. En loforðið
dugði skammt og böðlarnir
hafa aftur fengið nóg að
starfa.
Skrúfað fgrir í Chile
Stjómvöld I Chile létu um siðastliðin mánaðamót loka útvarpsstöð einni
i Santiago fyrir að útvarpa „umdeilanlegum" fréttum sem gætu haft
„óæskileg áhrif á lög og reglu. verðlag og efnahagslegt jafnvægi."
Útvarpsstöð þessi er i eigu kristilegra demokrata, sem nú hafa „gert hlé á
starfsemi sinni", eins og það heitir nú opinberlega á þessum slóðum
þegar flokkar hafa verið bannfærðir. Og hvað hafði stöðin nú brotið af
sér, sem gæti haft jafn voveiflegar afleiðingar og stjórnvöld fullyrða? Jú,
hún hafði i fréttasendingu dirfst að gefa I skyn, að i landinu riki alvarlegur
sykurskortur!
r
Abatasamar mannaveiðar
Tuttugu og einn maður var i höndum italskra mannræningja við síðustu
talningu, þar á meðal einn af þingmönnum kristilegra demókrata, sem
hefur verið saknað siðan 4. nóvember. Allar likur eru þó taldar á að tiu
hinna týndu séu látnir, þótt lausnargjald þeirra hafi i sumum tilvikum
þegar verið greitt. — Mannrán er orðin hin arðvænlegasta „atvinnu-
grein" á ítalíu. Sextiu og fimm var rænt þar svo vitað sé á siðastliðnu ári
og lausnargjaldið fyrir þá, sem heimtir voru lifandi, nam að minnsta kosti
hálfum fjórða milljarða króna. Yfirvöld hugleiða nú að gera hvað þau geta
til þess að beita sér fyrir banni við greiðslum til mannræningjanna og telja
það einustu leiðina til þess að komast fyrir þennan faraldur. Lög eru þegar
til, sem beita mætti i þessu skyni, en aðferðin er umdeild sem vonlegt er.
Hún getur af augljósum ástæðum samsvarað dauðadómi yfir hinu
saklausa fórnarlambi.
r
Arar illa í Sovét
Sovétmenn sýnast hafa gripið til „kapitalistiskra" aðferða til þess að
bjarga því sem bjargað verður i sambandi við uppskeruhorfur hjá þeim i
ár, sem eru enn hinar iskyggilegustu. i Georgiu, þar sem landbúnaður
stendur alla jafna með mestum blóma i Sovétrikjunum, sýnist nú vist. að
uppskeran verði langt undir meðallagi, eftir einn harðasta vetur sem
menn muna á þessum slóðum. — Eduard Shevardnadze, aðalritari
flokksins i Georgiu, ræðir I þessu sambandi um „óskaplegar" horfur i
sumum héruðunum. Að vanda er talað um að embættismenn verði að
beita meiri „aga", þótt það sé vandséð. hvernig það megi bliðka
veðurguðina. En að auki er i ráði að gripa til aðferða „frjálsa framtaks-
ins", nefnilega að greiða landbúnaðarverkamönnum launabætur ef þeir
standi sig nú.
Okristilegt hugarfar?
Forystulið kirkjunnar á Bretlandi hefur vaxandi áhyggjur af þvi hve
stórlega hefur dregið þar úr sölu á kristilegum blöðum og timaritum.
Samkvæmt opinberum skýrslum hefur lesendum tíu stærstu vikuritanna,
sem fjalla um kirkjuleg málefni, fækkað um þriðjung á siðastliðnum tíu
árum. Sömu sögu er að segja af mðnaðarritum og dagblöðum þeirra
kirkjumanna. Dæmi er tekið af Church Times, sem er áhrifamesta blaðið
þeirra og það kunnasta. Upplagið var 60.000 eintök 1965. en er nú
komið niður i 46.000.
Geimskot og glappaskot
Talsmenn bandarísku leyniþjónust-
unnar hafa opinberlega látið þá skoðun
í Ijós, að geimferðaáætlun Sovétmanna
sé nú nánast „i rúst" eftir mikil og
margskonar áföll sem dunið hafi yfir á
siðustu mánuðum. Leyniþjónustan
þykist meðal annars vita með vissu
hvernig hvert geimskotið af öðru þeirra
Sovétmanna hafi mistekist. Ein af
leiðingin er sú. segja CIA-menn enn, að sovéskir visindamenn virðast i
bráð hafa gefist upp á því að gera það eftir Bandarikjamönnum að senda
mannað far til tunglsins.
Sitt lítið af hverju
Sextiu og fjögra ára gömul bóndakona bresk var fyrir skemmstu dregin
fyrir rétt og sökuð um býsna óvenjulegt athæfi. Hún hafði semsagt
auglýst eftir uppgjafarhermanni í þvi augnamiði að fá hann fyrir þóknun
til þess að lúskra á bónda stnum... Árshátið slökkviliðsmanna i bæ einum
I Júgóslavíu varð dálitið endaslepp þegar kviknaði i húsinu þar sem
skemmtunin fór tram. Slökkvilið nágrannabæjarins Subotica var kvatt á
vettvang og réð niðurlögum eldsins. . . Tónlistardeilu tveggja nábýlis-
manna i Wimbledon í Englandi er nú lokið með því, að John nokkrum
Livington, sem býr á neðri hæðinni, hefur verið harðbannað með dómi að
þeyta lúðurinn sinn i húsinu. Það var fjölskyldan á efri hæðinni sem
stefndi, og aumingja Livington var að auki dæmdur til að greiða
málskostnað beggja aðila — litlar 660.000 krónur!
PLÁGUR
Sveitamenn í Kentucky og Tennessee i Banda-
ríkjunum eiga í örvæntingafullri baráttu við fugla.
Er ekki enn svnt, hvorir muni hafa betur. Fuglarn-
ir eru svartþrestir mestan part. Þeir flykkjast að
bæjum, éta korn af ökrum bænda og sýkja búpen-
ing. Skipta fuglarnir mörgum milljónum. Bændur
hafa reynt að drepa þá í stórum stíl, en fuglarnir
eiga sér öfluga bandamenn þar sem eru náttúru- og
dýraverndarmenn, og hefur heldur hallað á bænd-
ur í stríðinu fram að þessu. Bændur eru náttúru-
verndarmönnum auðvitað ævareiðir fyrir vikið.
Þess má geta, að náttúruverndararnir eru borgar-
búar.
Bændur segja sem svo, að því
yrði trúlega vel tekið, eða hitt þó
heldur, ef þeir heimtuðu, að nátt-
úruverndarmennirnir hættu að
drepa rotturnar heima hjá sér.
Fuglarnir háfast við í furuskóg-
um i Kentucky og Tennessee vest-
anverðum. Er haldið, að þeir séu
einar 80 milljónir talsins. Þeir
eyða ekki einungis ökrum, eins og
fyrr var sagr, heldur dreifa þeir
lungnasjúkdómi hvar, sem þeir
fara, svo og sýki nokkurri, sem
fer í svín og strádrepur þau. Mikil
svínarækt er á þessum slóðum og
hafa sumir bændur. misst allan
svínastofn sinn af völdum fugl-
anna.
Fuglunum fjölgar heldur en
hitt. Bæði hafa fuglavinir staðið í
málaferlum og rekið mikinn áróð-
ur þeim til varnar, og svo hafa
fuglarnir llka reynzt ótrúlega líf-
seigir. Ýmsar morðaðferðir hafa
verið reyndar á þeim. 1 fyrra sett-
ust u.þ.b. fimm milljónir fugla að
utan við Fort Campbell í Ken-
tucky. Eftir mikið málastapp við fuglavini fékkst
leyfi til þess að úða eitri nokkru yfir fuglana úr
þyrlum. Atti eitrið að leysa upp fituna, sem fugl-
arnir hafa sér til skjóls og þeir síðan að drepast af
kulda. En til þess þurfti að rigna, svo að fitunni
skolaði af fuglunum. Leið nú og beið, en aldrei
rigpdi. Þá var það tekið til bragðs að dæla vatni úr
brunaslöngum yfir fuglana í trjánum. Drapst
talsvert af fuglum. En hinir voru ekki af
baki dottnir. Þeir komu aftur ári seinna og voru
nú sýnu fleiri. Þá komu þeir að vlsu ekki
til Fort Cempbeil — heldur settust að
fyrir utan næsta bæ, Hopkinsville. Ibúarnir
I Hopkinsville urðu skelfingu lostnir.
Ætluðu þeir að fara á stúfana og úða fuglana og
þeim. En þá ruku fuglavinir upp til handa og fóta
og fengu því framgengt, að Náttúruverndarráð
bannaði, aó fuglarnir yrðu úðaðir. Hopkinsville-
menn stofnuðu þá sjóð til útrýmingar fuglum og
auglýstu eftir skynsamlegum og áhrifaríkum fugla-
drápsaðferðum.
Tillögur tók óðara að drífa að. Þær voru misjafn-
lega skynsamlegar, eins og vænta mátti; báru marg-
ar þvi vitni, að fuglarnir höfðu valdið Hopkinsville-
búum miklu hugarvíli.Ein var á þá leið að hleypa
rafstraumi I trén, þar sem fugl-
arnir höfðust við. Einhver lagði
til, að gömlum bílum yrði lagt hér
og þar um skóginn, vélarnar látn-
ar ganga og fuglarnir kæfðir
þannig með útblásturslofti. Einn
lagði til, að fuglarnir yrðu veiddir
og soðnir niður I dósir. Aðrir
lögðu til, að keramikköttum, gúm-
snákum og pappírsuglum yrði
dreift um skóginn. Loks var feng-
inn sérfræðingur. Hann kom með
einhvers konar fuglaorgel, sem
gaf frá sér græðilega óhljóð. Atti
það að skjóta fuglunum þviHkan
skelk I bringu, að þeir létu niður
hjá sér og færu og kæmu aldrei
aftur.
Fyrir þetta vildi sérfræð-
ingurinn fá 10 þúsund dollara
(rúm 1700 þús ísl. kr.). Því miður
kom á daginn, að fuglarnir kunnu
vel að meta tónlistina og sátu þeir
sem fastast. Næst var einhverju
klístri úðað á trén. Attu fuglarnir
að festast I þvi og drepast á
skömmum tíma. En fuglarnir fest-
ust ekki við fuglalimið, þótt þeir sætu fast eftir sem
áður. Loks var Hopkinsvillebúum nóg boðið. Þeir
buðu út jarðýtuher og ruddu skóginn, þar sem
fugiarnir bjuggu. Það dugði. Enginn fugl drapst
þó. Þeir flugu bara upp og tóku strikið til næsta
bæjar . . .
En nú eftir áramótin rofaði svolítið til fyrir
sveitamönnunum. Öldungadeildarþingmenn Ken-
tucky og Tennessee fengu því framgengt i janúar,
að frumvarp var samþykkt um þaó, að úða máetti
eitri yfir fugla, þar sem sérstök hætta þætti stafa af
þeim. En hver veit nema fuglarnir sjái við því.. ?
—WAYNE KING.
Hinn ódrepandi
(og óalandi)
svartþröstur
Þær eru margar tegundirnar
af svartþrestinum að fjöl-
fræðibækur herma, en þessi
kvað vera algengust vestur í
Bandaríkjunum.
VIGBUNAÐURI
Alltaf fleygir tækninni fram og ekki sízt í hergagnaiðnaði. Búast
má við stórfelldum breytingum í hernaði áður en langt um líður.
Bæði Rússar og Bandaríkjamenn vinna kappsamlega að smíði
nýrra vopna, miklu nákvæmari og öflugri, en þeirra, sem áður
þekktust. Tækni^ramfarir hafa jafnan verið nokkru örari í vísinda-
skáldsögum en vopnasmiðjunum En nú eru vopnasmiðirnir að ná
skáldsagnahöfundunum Langt er frá þvi, að skáldsagnahöfundar
fundu upp byssu, sem skaut „dauðageisla' Það kom í Ijós, að
svona geisli var til i raun og veru,
Það var lasergeislinn. Þegar hann
fannst var ekki fullljóst til hvers
hann væri nýtur Fljótt varð þó vist,
að ýmislegt gagn mátti hafa af
honum. Laserinn getur sent frá sér mikinn hita af mikilli ná-
kvæmni um langa vegu — samkvæmt kenningunni Og þar er
kominn „dauðageislinn” úr visindaskáldsögunum Meinið var, að
tæknin var ekki lengra á veg komin en svo, að orkan, sem þurfti til
þess að skjóta dauðageisla var ekki í neinu skynsamlegu hlutfalli
við árangurinn. Gefur auga leið, að margir hernaðarspekúlantar
hafa beðið þess með óþreyju, að þessi vandi yrði leystur, svo að
þeir gætu farið að hagnýta sér lasergeislann í striði
Eins og fyrr var sagt, vinna Rússar og Bandaríkjamenn nú báðir
að smíði laservopna Þessi iðja fer náttúrulega leynt, en líklegt
þykir, að höfuðáherzla sé lögð á það að leysa vandann um
hlutfallið milli orkunnar, sem þarf til að skjóta geislunum og
árangursins af þeim Ef tekst að leysa það mál verða laserbyssur
væntanlega einhver hin ægilegustu vopn í sögunni Geislarnir úr
þeim munu eyða öllu, sem fyrir þeim verður. ískyggilegt er lika,
Framhald á bls. 38
Og þá
erpað
dauðageislinn
LASER-BYSSAN — Dýrt verkfæri . . og ennþá æðT
fyrirferðarmikið.
„FJOLMIÐLAR' I
A Italíu hefur þotið upp aragrúi
ólöglegra útvarpsstöðva á undan-
förnum mánuðum. Eru þær tald-
ar 250, eða allt að því. Þær eru
flestar i stórborgunum. Til dæmis
eru 40 í Mílanóborg einni.
Stöðvarnar eru til húsa á hinum
ólíklegustu stöðum; t.d. er vitað
um tvær í Hiltonhótelinu í
Mílanó.
Dagskrár flestra þessara út-
varpsstöðva eru helgaðar popp-
tónlist. Sumar eru þó i höndunum
á kvenréttindaflokkum eða
vinstrimönnum nema hvort
tveggja sé; þær stöðvar útvarpa
hugsjónum þeirra hreyfinga.
Þaó er við því að búast, aö ein-
hverjir árekstrar verði í loftinu,
þegar svo margar útvarpsstöðvar
senda út efni í einu. Er stutt frá
þvi, að forráðamenn útvarpsins i
Páfagarði lögðu formlega kvörtun
fyrir stjórnvöld um það, að ólög-
legar útvarpsstöðvar boðuðu sín
fagnaðarerindi á sömu bylgju-
lengd og páfi. Það er eðlilegt, að
þeir í Páfagarði vilji fá sæmilegt
hljóð, þegar þeir taka til máls. En
fyrir skömmu kom dálitið fyrir „í
ljósvakanum“, sem verður að telj-
ast alvarlegra, en truflanir á boð-
skapnum úr Páfagarði. Það kom i
ljós, að einhver ólögleg útvarps-
stöð I Róm sendi rangar lend-
ingarleiðbeiningar til flugvéla,
sem lenda áttu á Rómarflugvelli.
Sá, sem samdi þessar leiðbein-
ingar kunni góð skil á flugi og
flugstjórn. Stórslys hefðu getað
orðið af þessu, ef flugstjórar
hefðu ekki borið leiðbeiningarnar
undir flugumferðarstjóra áður en
þeir lentu vélunum. Lögreglunni
var strax sagt frá þessum hættu-
lega leik. Hún ákvað að halda
málinu leyndu fyrst um sinn, og
vænti þess, að þá yrði hægara að
hafa uppi á útvarpsstöðinni, sem
um var að ræða. Lögreglunni
hefur þó ekki orðið að þeirri von.
Það er ekki ljóst enn, hvað gert
verður við þessum ólögiegu út-
varpsstöðvum á Italiu. Ekki leik-
ur vafi á því, að þær eru ólögleg-
ar. Hæstiréttur komst að þeirri
niðurstöðu nýlega, að ítalska
rikisútvarpið hefði einkarétt á
öllu útvarpi á ltaliu. Það, sem svo
verður gert fer eftir geðþótta
póststjórnarinnar. Og hún hefur
ekkert gert enn. Ekki er þó ótrú-
legt, að hún fari að bæra á sér úr
þessu, þvi væntanlega félli ein-
hver ábyrgð á hana, ef slys hlyt-
ust af útsendingum ólöglegu
stöðvanna.