Morgunblaðið - 08.05.1976, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. MAl 1976
Islendingar hópast
til suðurlanda 1 ár
ALLAR horfur eru á því að fleiri
íslendingar muni leggja leið sfna
til Suðurlanda f sumar en f fyrra,
samkvæmt upplýsingum sem
Morgunblaðið aflaði sér hjá
ferðaskrifstofunum (Jrvali, Utsýn
og Sunnu. Hefur bæði bókast fyrr
f ferðir þeirra f sumar en f fyrra
og betur bókað f ferðirnar yfir
annatfmann en þá var.
Að því er Ingólfur Guðbrands-
son hjá Útsýn tjáði Morgunblað-
inu er allt uppselt í ítalíuferðir
skrifstofunnar allt frá byrjun og
fram í septembermánuð. Svipaða
sögu væri að segja um Spán en
þangað væri að visu meira sæta-
magn, svo að segja mætti að eigin-
lega væru allar ferðir skrifstof-
unnar suður á bóginn fullbókaðar
fram f september — aðeins sæti
og sæti á stangli i hverri ferð.
Ingólfur sagði, að Utsýn væri með
í kringum 50 leiguflugsferðir
bæði tii Spánar og Italíu í sumar,
þannig að sætaframboðið væri um
6000 sæti. Ingólfur kvað því allt
útlit fyrir gott sumar frá sjónar-
hóli ferðaskrifstofumanna, Ut-
sýnarferðir seldust á vísu alltaf
snemma en hefðu þó aldrei selst
jafnsnemma og í ár.
Pjetur Helgason hjá Úrvali tiáöi
að íslendingar væru i verulegum
ferðahug I sumar.
Jón Guðnason hjá Sunnu sagði,
að mjög gott útlit væri með ferðir
Sunnu til suðurlanda í sumar, en
skrifstofan verður alls með um 40
Framhald á bls. 18
Dúxinn var úr hópi
kvenlögregluþjóna
LÖGREGLUSKÓLANUM var slitið
f gær og þaðan brautskráðir 36
lögregluþjónar úr framhaldsdeild.
Höfðu lögregluþjónamir setið á
skólabekk i 18 vikur. í hópnum.
sem útskrifaðist í gær, voru 32
karlmenn og 4 konur og sló ein
þeirra karlmönnunum alveg við og
dúxaði. Var það Björg Jóhannes-
dóttir, sem hlaut einkunnina 9,42.
i öðru sæti varð Jónas Finnboga-
son með 9,14 og þriðji hæstur
Guðjón Einarsson með 9,12. Var
myndin tekin af Björgu eftir skóla-
slitin I gær, og með á myndinni er
faðir hennar, Jóhannes Páll Jóns-
son rannsóknarlögreglumaður I
Hafnarfirði. Móðir Bjargar er Sól-
veig Björgvinsdóttir. Björg hefur
verið lögregluþjónn í tæp 2 ár og
hefur hug á þvi að halda áfram i
starfinu. Ljósm. Friðþjófur.
Engar
skemmdir
í Lignano
MARGIR Islendingar hyggja á
ferð til Lignano I sumar og hafa
eflaust velt þvf fyrir sér hvernig
þessi ferðamannaborg hafi orðið
úti I jarðskjálftunum I norðaust-
urhéruðum ltalfu I fyrrinótt.
Morgunblaðið hafði samband við
Ingólf Guðbrandsson hjá Útsýn,
sem skipuleggur þessar Italfu-
ferðir, og spurði hann hvort hon-
um hefðu borizt nokkrar fregnir
þaðan.
Ingólfur kvaðst hafa haft sam-
band við Lignano í gærmorgun til
að spyrjast fyrir um þetta og feng-
ið þau svör, að jarðskjálftarnir
hefðu ekki valdið neinum
skemmdum þar á byggingum né
valdið neinu raski. Hann kvað
nokkuð hafa verið hringt til skrif-
stofunnar fyrripart gærdagsins af
væntanlegum Italíuförum til að
spyrjast fyrir um þetta, en það
hefði síðan alveg hætt eftir að
nánari fregnir fóru að berast.
Engir Islendingar munu nú vera í
borginni, en fyrsta ferðin þangað
á vegum Útsýnar verður 19. maí
n.k.
Akranes — 0,6% atvinnuleysi:
Landflóttafrétt Þjóð-
viljans tilbúningur
DJÚÐVIUINN
Föstudagur ;. m.l 197« — 41. árg. 9H. tbþ
Hílfeívif
ERU í MÐGERÐ
10 fjölskyldur af Akranesi
hygfíjast Jlvtja til Svíþjóðar
» Aðaláslœðan atvinnulpysi og
slæm afkoma, segir einn
þrirra sem liygf'st Jara utan
LANDFLOTTENN HAFINNI
Morgunblaðinu að mjög mikil að-
sókn væri í ferðir skrifstofunnar
suður á bóginn í sumar og útlitið
því svo gott að það hefði aldrei
verið betra. Hann sagði að yfir
háannatímann — júlí, ágúst og
september — hefði Urval aldrei
bókað jafnmikið og nú. Hann
kvað Úrval alls myndu fara 23
ferðir til Spánar í sumar oe í
hverri ferð væri rúm fyrir 126
manns. Hann kvað fyrstu ferðina
vera 14. maí og væru ekki nema
sjö sæti laus í hana og kvaðst
hann búast við að þau seldust. Þá
kvað hann geysilega eftirspurn
eftir Júgóslavíuferðum og þangað
væru þegar fullbókað í fjórar
ferðir af sex. Sömuleiðis væri
mikil sala í allar ferðir Smyrils í
sumar, og því benti flest til þess
-i- 8 stig í gær
+ 10 stig í dag
Siglufirði — 7. maf
HÉR er blíðskaparveður, og 10
stiga hiti. Fólki er því vel heitt og
kannski heitara en ella vegna
þess að hérna var 8 stiga frost í
gær og sannkallað vetrarveður.
Svona getur stundum verið stutt
milli vetrar og sumars. Fréitarítari.
mwmm== =
„Nú verður aftur hlýtt og
bjart um bæinn ..
ÞJÖÐVILJINN birti I gær frétt
með fyrirsögn yfir þvera forsíð-
una „Landflóttinn hafinn“. Sagði
í fréttinni að 10 fjölskyldur á
Akranesi séu I þann veginn að
flytja til Svfþjóðar eða séu að
fhuga flutning þangað. Sagði
blaðið að aðalástæðan væri at-
vinnuleysi og slæm afkoma.
Vegna Þjóðviljafréttarinnar
hafði Morgunblaðið í gær sam-
band við bæjarskrifstofurnar á
Akranesi og spurðist fyrir um at-
vinnuleysi á staðnum. Var því
svarað til, að á atvinnuleysisskrá
væru nú 19 manns, þar af 17
konur og 2 karlmenn og gæti
sumt af þessu fólki ekki gengið f
hvaða vinnu sem værí. Ennfrem-
ur fékk Morgunblaðið þær upp-
lýsingar að einstaklingar, sem
greiddu skatt á Akranesi væru
2200 að tölu og Ifkleg tala þeirra,
sem þægjulaun.væri um 3000. Ef
sú tala stenzt, er atvinnuleysið á
Akranesi nú um 0,6%. Þá
grennslaðist Morgunblaðið enn-
fremur fyrir um f jölskyldur, sem
talið var, að ætluðu að flytja til
Svfþjóðar. Gat blaðamaður haft
upp á fjórum fjölskyldum. Ein
þeirra reyndist ætla að flytja til
Reykjavfkur en ekki til Svfþjóð-
ar. Tvær fjölskyldur ætluðu að
Sinfónían með
barnatónleika í
Háskólabíói
I DAG kl. 13.15 efnir Sinfónfu-
hljómsveitin til barnatónleika f
Háskólabfói á vegum Fræðslu-
skrifstofu Reykjavfkur. Eru þetta
árlegir tónleikar fyrir yngstu
deildir barnaskólanna f Reykja-
vfk.
A þessum tónleikum verður
flutt hið vinsæla tónverk „Tobbi
túba", en í því verki leikur Bjarni
Guðmundsson einleik á túbu en
Guðrún Stephensen segir söguna,
leikin verða lög úr Kardimommu
bænum. Einnig koma fram tvær
litlar stúikur úr barnamúsikskól-
anum og leika á fiðlu og selló, og
síðast en ekki sizt fá tónleikagest-
ir að syngja nokkur lög með
hljómsveitinni.
flytja til Svfþjóðar f 1—2 ár og
hvorug vegna atvinnuleysis. I
öðru tilfellinu ætlaði heimilisfað-
irinn að vinna ytra. Fjórða fjöl-
skyldan var óákveðin, en fjöl-
skyldufaðirinn sagði við Mbi. að
ævintýraþrá réði mestu um að
fjölskyldan væri að hugsa um Svf-
þjóðarför og ef það yrði úr, ætl-
uðu þau sér að dvelja þar f 1—2
ár.
ERÚEKKIAÐ
FLÝJA ATVINNULEYSI
Ólafur Oddsson járniðnaðar-
maður er þegar farinn til
Svíþjóðar. Morgunblaðið ræddi í
gær við eiginkonu hans, Þórdísi
Njálsdóttur, en hún fer siðar
utan. Þórdís sagði að bæði hún og
maður hennar hefðu haft góða
vinnu á Akranesi og það væri
ekki vegna atvinnuleysis að þau
Framhald á bls. 19.
Freigátumenn sáu
undir kjölinn á Tý
„Við storkum ekki neinum, en verjum okkur,,, segir
Pétur Sigurðsson, forstjóri Landhelgisgæzlunnar
„VIÐ storkum ekki neinum, en
við verjum okkur,“ sagði Pétur
Sigurðsson, forstjóri landhelg-
isgæzlunnar fviðtali viðMbl. f
gær, er Morgunblaðið spurði
hann um frásögn Óla Tynes,
blaðamanns Vfsis, sem f fyrra-
kvöld var um borð f Falmouth
F-113, er hún réðst gegn varð-
skipinu Tý. Óli segir þar að
eitthvað hafi Guðmundur
Kjærnested verið orðinn pirr-
aður, þvf að tvisvar hafi hann
gert atlögu að freigátunni, í
annað skipti slegið til skutnum
og hitt skiptið beygt að freigát-
unni og bakkað. 1 bæði skiptin
hafi Falmouth fært sig undan.
Pétur Sigurðsson sagðist ekki
vita nákvæmlega um atburð-
arás í sambandi við þessi tvö
atvik, en hann sagðist geta full-
yrt að í slfkri orrahrfð, sem var
á miðunum þetta kvöld, gerðu
varðskipin ekki ásiglingartil-
raunir. „Hins vegar höfum við
okkar ákveðnu störfum að
gegna og ef menn geta ekki
liðið þau, verðum við að verja
okkur. Þessir menn eru ljóst og
leynt að sigla á okkur og við
verðum að verjast," sagði Pétur
Sigurðsson.
Óli Tynes blaðamaður, sem
verið hefur um nokkurt skeið
um borð I freigátunni Gurkha
R-122 en fluttist yfir í Fal-
mouth í fyrradag, skýrir frá því
að eftir þessi viðskipti, sem hér
að ofan er lýst, hafi harka færst
í viðureign Falmouth og Týs.
Hann lýsti viðureigninni:
„Skömmu siðar færðist svo
harka í leikinn. Týr var að fara
að togara og bæði skipin voru á
fullri ferð. Þegar var stutt á
milli skipanna og þau voru
bæði í beinni stefnu. Ég heyrði,
að skipherrann á Falmouth gaf
skipun um að beygja 30 gráður
á stjórnborða, sem var bein
ásiglingarstefna.
Freigátan lenti á Tý aftan til
og skipið hallaðist svo ofboðs-
lega, að ég hef aldrei séð neitt
þessu líkt. Brezkur foringi, sem
var með í brúnni hrópaði upp
yfir sig: „Guð minn góður, guð
minn góður, hann er að fara
yfirum!"
Það var allt útlit fyrir það,
þvi að mér datt ekki í hug að
skipið myndi rétta sig af eftir
þetta. En Týr snerist við stefnið
á freigátunni og rétti sig hægt
við.
Ekki virtist þetta hafa hrætt
Guðmund Kjærnested ýkja
mikið, því að hann setti á fulla
ferð og hélt aftur að togara.
Freigátan endurtók þá leikinn
og sigldi á fullri ferð á bak-
borðshlið varðskipsins, sem aft-
ur hallaðist mjög mikið yfir á
stjórnborða.
Þá var tilkynnt um hátalara-
kerfi freigátunnar: „Týr er
mikið skemmdur. Það er komið
gat á hann og hann kann að
þarfnast aðstoðar." Þá var rek-
ið upp fagnaðaróp viða um
skipið.
Skipherra Falmouth sendi út
aðvörun til Týs og sagði að
hann skyldi láta togarana vera
ef hann vildi ekki eiga á hættu
frekari alvarlegar skemmdir.
Hann spurði Tý, hvort hann
Þyrfti aðstoð, en Týr hafnaði
því og kvaðst ekkert hafa með
hans aðstoð að gera.“
Óli Tynes lýsir því einnig, að
Týr hafi hallazt um það bil um
70 gráður, en Gunnar Ólafsson,
skipherra hjá Landhelgisgæzl-
unni, sagði að Guðmundur
Kjærnested hafi skýrt frá því
að halli skipsins hafi í báðum
árekstrunum orðið um 60 gráð-
ur en nýjustu mælingar sýndu
að það var nær 75 gr. Óli kallar
ásiglingu Falmouths „hrikaleg-
ustu ásiglingu þorskastriðsins
til þessa og hafi Týr snúizt í 180
gráður, þ.e. í hálfhring. Hann
segist hafa séð skrúfu Týs
koma upp úr sjónum og skip-
verjar freigátunnar hafi horft
beint undir kjöl hans.
Þyrluskýlið hafi áreiðanlega
hálffyllzt af sjó, því að hann
hefi séð háseta um borð í Tý
ausa út úr því á eftir.