Morgunblaðið - 08.05.1976, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. MAÍ 1976
3
Siri Derkert. Carlo Derkert segir frá sýningunni f Norræna
húsinu með leikhúslegri innlifun. „Það var viðfangsefni Siri“,
var Carolo að segja þarna, „að fanga stemminguna, fanga taktinn
og hljómfall Iffsins f mvnd“. Ljósmynd Mbl. Friðþjófur.
„Að fanga taktinn”
Yfirlitssýning á verkum
Siri Derkert í Norræna húsinu
LAUGARDAGINN 8. maf kl.
15:00 verður opnuð f Norræna
húsinu yfirlitssýning á verkum
eftir sænsku listakonuna SIRI
DERKERT sem lézt árið 1973
85 ára að aldri.
Það er „Ritsutstailningar" í
Stokkhólmi, sem hefur sett upp
sýninguna, og veg og vanda af
því hafði Ragnar von Holten
listfræðingur, í samráði við son
listakonunnar, Carlo Derkert
listfræðing. Sýningin, sem er
farandsýning, hefur verið sett
upp í öllum helztu borgum Sví-
þjóðar og þegar henni er lokið
hér, er ráðgert að setja hana
upp vfðar á Norðurlöndum.
Carlo Derkert og Ragnar von
Holten komu báðir til landsins í
boði Norræna hússins f tilefni
sýningarinnar, og mun Carlo
halda tvo fyrirlestra um
sænska myndlist, jafnframt því
sem hann mun kynna sýning-
una og nota tímann til þess að
kynnast sjálfur íslenzku þjóð-
lffi og listalífi.
Á blaðamannafundi í Nor-
ræna húsinu kynnti Carlo sýn-
inguna fyrir blaðamönnum og
það er ekki að undra þótt Svíar
fjölmenni á sýningar þar sem
hann heldur fyrirlestra, því frá-
sögn hans og túlkun er nánast
leikhúsverk, lifandi og
skemmtileg. Hann talar sænsku
með þeim blæ að mjög auðvelt
er fyrir Islendinga að skilja
þótt þeir séu ekki vanir að
hlusta á sænska tungu.
Fyrirlestrar Carlo Derkerts
verða sem hér segir:
Þriðjudaginn 11 maí
kl. 20:00:
CARLO DEKKERT — Svensk
konst I — Matsse — elever
och kubister í svenskt máleri
(siðan kynning á S.D.-
sýningunni)
Fimmtudaginn 13. maí
kl. 20:00:
CARLO DERKERT — Svensk
konst II — X-et, Amelin och
andra beráttare, samt nyrealist-
erna pá 60-talet (sfðan kynning
á S.D.-sýningunni)
Siri Derkert er talin í röð
fremstu listamanna Svía. Hún
dvaldist á íslandi f 8 mánuði
1949—1950, ferðaðist þá víða,
kynntist mörgum og mun víða
hafa skilið eftir sig teikningar
og frumskissur. Þessi íslands-
ferð er talin hafa haft djúptæk
áhrif á list hennar, og hafa
sænsku listfræðingarnir mik-
inn áhuga á að fá að sjá eitt-
hvað af þessum myndum.
Norræna húsið fékk styrk að
upphæð 1 millj. króna, frá Lett-
erstedtska föreningen í Stokk-
hólmi, til þess að af þessari
sýningu gæti orðið.
Bjartar nætur
FERÐALEIKHUSIÐ hefur tekið
upp þá nýbreytni að halda léttar
sumarkvöldskemmtanir fyrir
Reykvfkinga að Hótel Loftleið-
um, ráðstefnusal. Á efnisskrá eru
15 stutt skemmtiatriði svo sem 2
leikþættir, þáttur úr ferðabók
Blefkens, grein úr Hádegisblað-
inu eftir Stein Steinarr, vfsur eft-
ir KN og örn Arnarson og á milli
atriða skemmtir söngtrfóið „Við
þrjú“. Jafnframt kemur á hverju
kvöldi fram sérstakur gestur f
heimsókn.
Þess misskilnings hefur gætt,
að álitið hefur verið, að sýning-
arnar fari fram á ensku, en svo er
ekki. Þessar skemmtanir eru ein-
göngu ætlaðar islendingum.
Ferðaleikhúsið setur upp sýning-
ar, sem eru allt annars efnis fyrir
erlenda ferðamenn á sumrin, þær
sýningar sem nefnast Light
Nights hefjast ekki fyrr en í júlí-
mánuði.
Næstu sýningar verða kl. 9 í
kvöld og á morgun. Myndin er af
leikkonunum Kristínu Magnús
Guðbjartsdóttur og Þórunni M.
Magnúsdóttur i hlutverkum sín-
um í gamanleikþættinum VIÐ
TJÖRNINA. Höfundur verksins
er ónafngreindur.
Yfir 300 hestar í
firmakeppni Fáks
Börn fá að
skreppa á bak
MARGIR glæsilegustu hestar
höfuðborgarsvæðisins munu taka
þátt f árlegri firmakeppni Fáks,
’sem haldin verður f dag á Vfði-
völlum svæði Fáks efst við Elliða-
árnar.
Yfir 300 fyrirtæki og stofnanir
taka þátt f keppninni, en dregið
er um það, hvaða hestur keppir
fyrir hvert fyrirtæki. Firma-
keppninni er skipt í tvennt, ung-
lingaflokk og flokk fullorðinna.
Þrjú efstu fyrirtækin í hvorum
flokki hljóta verðlaun. Efstu
fyrirtækin tvö fá til geymslu
annars vegar Sportstyttuna í ung-
lingaflokknum og bikar frá
Halldóri Sigurðssyni gullsmið í
flokki fullorðinna. Auk þess fá
Framhald á bls. 18
• Myndin er tekin af Fóstbræðrum f LlangoIIen f Wales árið 1972 er
kórinn hlaut 2. verðlaun f alþjóðlegri samkeppni karlakóra þar.
Fóstbræður
sextíu ára
KARLAKÓRINN Fóstbræður er
60 ára á þessu ári. t tilefni afmæl-
isins mun kórinn efna til vfðtæks
söngleikahalds hér f borg á næstu
dögum. Heiðursgestur kórsins
verður Erlingur Vigfússon óperu-
söngvari, sem býr og starfar f
Þýzkalandi við góðan orðstfr.
Mun marga Reykvfkinga eflaust
fýsa mjög að hlýða á söng Erlings,
sem ekki hefur sungið hér f borg f
nokkur ár. Erlingur mun koma
fram á söngskemmtunum Fóst-
bræðra, en f röðum þeirra hóf
hann söngferil sinn, og auk þess
mun hann halda sjálfstæða tón-
leika.
Afmælishátfð Karlakórsins
Fóstbræðra hefst í dag með tón-
leikum f Háskólabfói. Þar mun
kórinn syngja nokkur lög, óperu-
söngvararnir Sigríður E. Magnús-
dóttir, Erlingur Vigfússon og
Kristinn Hallsson syngja einsöng
og Erlingur og Kristinn dúetta úr
óperum. Þá kemur fram hátfða-
kór gamalla og ungra Fóstbræðra
undir stjórn fimm söngstjóra, sem
starfað hafa með kórnum undan-
farin 25 ár. Þeir eru: Jón Þórar-
insson, Ragnar Björnsson, Garðar
Cortes, Jón Ásgeirsson og Jónas
Ingimundarson. Sá söngstjóri sem
lengst hefur starfað með kórnum,
eða frá stofnun hans 1916 til árs-
ins 1950 er hins vegar Jón Hall-
dórsson. Hann er nú 87 ára að
aldri.
Framhald á bls. 18
Olífuollan í Palmolivesápunni
og hið silkimjúka löður
gefur húðinni mýkt og heldur
útliti yðar ungu og fersku.
Nyja Palmolivesápan
heldur hútinni mjúkri
og unglegri.
Pabnolivesápan meö olífuolíu heldur húð yöar ungri á eötilegan hátt.