Morgunblaðið - 08.05.1976, Síða 14

Morgunblaðið - 08.05.1976, Síða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. MAl 1976 Týr á Berufírði, „Bigmouth” eftir ásiglinguna Freigátan Falmouth F-113 er nú á leið til Skotlands stórlöskuð eftir árekstur við varðskipið Tý. Skipverjar Týs hafa nú skírt freigátuna upp og kalla hana Big Mouth — eða stóri trantur, þar sem stefni hennar er allt opið. Myndin er tekin við miðlfnuna milli Færeyja og lslands, er freigátan var á heimleið. Hana tók Haraldur Friðriksson. — Ekkert annað skip en Týr . . . . Framhald af bls. 32 Þegar skipstjórarnir töluðu heim nutu þeir þjónustu íslenzkra strandstöðva, ef þeir hefðu ekki getað það, hefðu þeir ekki náð heim. Síðan leið nokkur stund, þar til fyrsti togarinn setti veiðarfæri í sjó. Statesman var látinn gæta hans, en skipstjóri togarans sagð- ist ekki vera að veiða fyrir heima- markað heldur fyrir skip flotans á fjarlægum miðum. Við létum þennan togara í friði, enda hefði ekki þýtt að koma nálægt honum. Þegar leið á kvöldið fóru fleiri að kasta og þá fórum við að hugsa okkur til hreyfings og náttúru- lega verndarskipin um leið.“ „Réðust freigáturnar strax á ykkur?“ — Það má segja það. Freigát- urnar Galathea og Falmouth voru strax komnar sín upp að hvorri hliðinni á Tý og dráttarbáturinn Lloydsman var látinn vera fyrir aftan okkur. Þegar þetta var vor- um við 6—7 mílur frá næsta tog- ara. Bráðlega ákvað skipherrann á Galatheu sem er yfirmaður hér á miðunum að fara og fylgdi Lloydsman með en Falmouth varð eftir hjá okkur. Litlu síðar snar- beygði Falmouth inn á okkur og slengdi skutnum á bakborðsbóg varðskipsins. Urðu við það nokkr- ar skemmdir m.a. kom um það bil 1 fermetra gat í bóginn. Eftir þennan árekstur fórum við að sex togurum, sem létu reka í ró og spekt. Það var farið að dimma og ég vissi um tvo togara, sem voru byrjaðir veiðar og einn- ig Ver en við komum að norðan. Lloydsman og Galathea voru nú farin að sinna Baldri og Óðni, og því var ákveðið að Týr og Ver færu að þessum togurum. Fyrst komum við að tveimur togurum, sem ekki voru að veiðum, og nálg- uðumst aðra tvo, sem við vissum ekki hvort væru að veiðum, en þeir fóru frekar hægt. — Falmouth hafði fylgt okkur eftir eins og skuggi og allt í einu vissi ég ekki fyrr en Falmouth setur á fulla ferð, u.þ.b. 35 mflur beygir snöggt í 30 gráður á okkur. Þetta gerðist svo snöggt að ég hafði ekki tíma til að hringja út. Menn voru í kojum og 1. stýrimað- ur, Ólafur Sigurðsson, sat t.d. í rólegheitum niðri á bekk hjá sér. Eins og hendi væri veifað kom Falmouth á ógnarferð og lenti á Tý aftan til við miðju síðu bak- borðsmegin. Þegar þetta gerðist vorum við á 19 sjómílna hraða. Þegar freigátan lenti á okkur reyndi ég að beygja frá, en tókst ekki. Týr snerist bókstaflega 180 gráður á stefni freigátunnar og allt þangað til hann losnaði. SJÓR INN I ÞYRLUSKÝLIÐ Okkur telst nú til að varðskipið hafði lagst í meira en 70 gráður á stjórnborða. Sjó tók inn í þyrlu- skýli, þar sem nokkrir menn voru. Þeir vissu ekkert, fyrr en þeir stóðu allt I einu í sjó upp undir brjóst. Það hefði getað faríð illa ef þessir menn hefðu ekki náð i handfestu. Kokkurinn var þarna einnig, en hann gat stungið sér upp í gúmmíbát, sem var f þyrlu- skýlinu og blotnaði minnst, en þarna gat hann siglt um eins og úti á sjó. — Hvað gerðist þegar þið losnuðuð frá stefnu Falmouth? — Um leið og við losnuðum runnum við aftur með hlið freigátunnar. Við lágum það þétt upp við hana, að ég hefði getað tekið f hönd skipherrans. Það kom í ljós, að bakborðsvél og bógskrúfa höfðu stöðvast við ásiglinguna. Sennilega hafa skrúfurnar lent í stefninu á Falmouth og við það fóru öll skrúfublöðin af skrúfhausnum þrjú að tölu. Einhver hluti skrúf- blaðanna, er sennilega enn í skrokk Falmouth á leið til Englands. Þegar ég var búinn að kanna hvort skipið væri sjóklárt eftir þetta áfall og hvort einhverjir hefðu meiðst alvarlega, en svo var ekki, þá setti ég á ferð aftur með freigátunni. Nú hafði ég aðeins stjórnborðsskrúfuna til að stjórna skipinu og þegar okkur hafði loks- ins tekist að klöngrast aftur fyrir freigátuna, sá ég hvar togarinn Carlisle GY-681 var að toga aðeins í um 100 metra fjarlægð aftan við okkur. Það stóðst líka, að þegar við vorum alveg lausir við freigát- una tókst okkur að laumast aftur fyrir togarann og klippa á báða víra hans. Annar togari var að toga þarna rétt hjá, en vegna þess hve svifaseinir við vorum, þar sem aðeins önnur vélin var I gangi, þá tókst okkur ekki að ná beygjunni að honum. — Þegar við höfðum klippt á togvíra togarans, kallaði skip- herra Falmouth á Lloydsman og bað hann aðkomasértil aðstoðar. Sjálfur ætlaði ég að forða mér sem ég mest mátti til að kanna bilanir og skemmdir. En þá kom Falmouth allt í einu aftur á sömu ferð og I fyrra skiptið. Eini munurinn var að freigátan var nú búin að missa stefnið. Freigátan kom á okkur á sama stað og áður. Eggatekki vikiðTý undan, bæði var skipið svifaseint og dráttarbátur var öðrum megin við okkur. Höggið var álíka mikið og í fyrra skiptið og hallinn á skipinu 70—80 gráður. I þessari ásiglingu festust skipin saman I bókstaf- legri merkingu, og var svo enn þegar Týr var búinn að snúast um 180 gráður. Við vorum þarna eins og hundur og tlk, þar til ég setti á fulla ferð, þá loksins losnaði varð- skipið frá freigátunni. SKIPIN FESTUST SAMAN — Hver var ástæðan fyrir þvf að skipin festust svona saman? — Stefnið á Falmouth — ef stefni skyldi kalla — beit sig ofan í þilfar Týs og gróf sig þar fast. Við hefðum ekki losnað frá, nema nota vélaraflið. — Var skipherra Falmouth ekkert að hugsa um að sigla á ykkur í fjórða sinn? — Nei, hann var alveg búinn eftir þetta og fór. Skipherra Gala- theu hvatti hins vegar Loydsman og Statesman til að fullkomna verkið. Statesman kom I veg fyrir okkur á leið í land, en með ýtrustu keyrslu tókst okkur að komast frá honum, yfirleitt voru ekki nema tvær skipslengdir á milli skipanna og það var einnig svo þegar hann sneri við. — Urðuð þið strax varir við að skrúfublöðin voru farin af? — Nei, og á leiðinni I land, þegar dráttarbátarnir áttu að ganga frá okkur, lét ég setja bak- borðsvélina I gang og sigldi um tlma á báðum vélum án þess að vita að skrúfublöðin væru farin. Ég varð hinsvegar fljótlega var við að skipið titraði mikið og missti ferðviðþað aðsiglt var á báðum vélum. Þá lét ég vél- stjórann gera það sem er kallað að fjaðra blöðin og minnkaði þá titringurinn og við náðum 17 mílna ferð á ný, en hraðar komumst við ekki á annarri vélinni. — Siasaðist enginn í þessum látum? — Það slasaðist enginn alvar- lega, en margir okkar fengu smá skrámur og sár. Menn urðu að halda sér þar sem festu var að hafa. Sá sem var við stýrið hélt t.d. í það, en fæturnir stóðu beint út i loftið á meðan skipið var á hliðinni. — Hafa freigátuskipherrarnir fengið ný fyrirmæli? — Það er enginnn vafi á því að nýju fyrirmælin eru allverulega harðari en þeir höfðu áður. Það kom vel I ljós, að skipherra Fal- mouth ætlaði að ganga frá okkur. Hann tilkynnti eftir seinni áreksturinn að Týr væri lekur, og bauð aðstoð, sem var afþökkuð. En síðar kom nú I ljós að það var hans eigið skip sem var hriplekt en ekki Týr. Þegar skipherrann hafði tilkynnt að Týr væri lekur laust hluti af áhöfn hans upp fagnaðarópi. Það hefðu engin skip önnur en Týr og Ægir þolað þessi högg. Þar sem freigátan lenti á okkur er 44 mm þykkt stál f byrðingnum. — Hvað er til ráða við þessum geðveikislegu ásiglingum Breta? — Ekkert annað en að vera fljótir að gera við varðskipin og koma þeim á miðin. Freigátunum fjölgar ekki á meðan þær fara laskaðar heim. Þ ö

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.