Morgunblaðið - 08.05.1976, Side 23

Morgunblaðið - 08.05.1976, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. MAÍ 1976 23 Abígael Halldórs- dóttir — Mumingarorð Fædd 15. júll 1880. Dáin 26. aprfl 1976. Utför húsmóðurinnar að Litla- bæ á Vatnsleysuströnd fer fram frá Kálfatjarnarkirkju í dag 8. maí. Abígael Jóna Kristín hét hún fullu nafni, f. 15.7. 1880 á Hóli á Hvilftarströnd í Önundarfirði. Voru foreldrar hennar hjónin á Hóli, Halldór Halldórsson og Guð- rún Jónsdóttir. Hafði Halldór ver- ið ágætur smiður, eins og fleiri !• þeirri ætt. Alveg framúrskarandi vandvirkur. Guðrún myndar hús- móðir, góðgerðarsöm, ekki sist við börn/þótt efni væru lítil. 17 börn fæddust þessum hjónum, en af þeim stóra hópi komust aðeins 7 til fullorðins ára. Teljast þau í aldursröð þessi: Friðrikka móðir Sturlu Ebenesarsonar á Flateyri; Júlíana, giftist ekki, hagleikskona mikil; Halldór, smiður á Patreks- fiirði; Guðmundur bóndi í Botni í Súgandafirði; Bessabe, móðir t Elskuleg konan min og dóttir ÍSABELLA THEODÓRSDÓTTIR, Álftamýri 22. andaðist 6 maí i Landspitalanum. Fyrir hönd aðstandenda, FriSgeir Eiriksson, Stefania Guðmundsdóttir. + Móðir okkar PÁLMÍNA GUÐMUNDSDÓTTIR frá Litla-Fjalli andaðist 6 þ m Börnin. t Móðir okkar, GUÐRUN GUÐMUNDSDÓTTIR, Bergstaðastræti 80, Reykjavlk, andaðist á Heilsuverndarstöðinni, 7. maí sl. Böm hinnar látnu t Konan min, móðir okkar, tengdamóðir og amma LILJA GUÐMUNDSDÓTTIR. Álfheimum 70 andaðist fimmtudagskvöldið 6. mai. Eirlkur E. Kristjónsson, Hervald J. Eiriksson. Kristrún Skúladóttir, Guðrún R. Eiríksdóttir, Jónas A. Aðalsteinsson, Trausti Eiríksson og bamaböm. t ANNA ÞORVALDSDÓTTIR, Miklubraut 56. Reykjavík. lézt i Borgarspitalanum hinn 23. apríl s I Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu Fjölskyldan. t Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför, JAKOBS ÓLAFS JÓHANNSSONAR, Árbæjarblett 33. Steinunn Kristjánsdóttir, Hallveig Ósk Jakobsdóttir, Anton Karl Jakobsson. Salome Kristín Jakobsdóttir, Jón Pálsson og börn. t Ástkær eiginmaður minn, faðir, stjúpfaðir, tengdafaðir og afi ÞORVALDUR JÓHANNESSON fyrrverandi starfsmaður B.S.A.B. Kóngsbakka 2 Reykjavik sem andaðist að heimili sínu þann 24. april s.l., verður jarðsunginn frá Fossvogskapellu mánudaginn 10 maí n.k. kl. 13.30 Blóm afþökkuð, en þeim sem vildu minnast hins látna er bent á að láta Hjartavernd njóta þess. Elísabet Benediktsdóttir Guðbergur Þorvaldsson Benedikt Jónsson Hildur Eggertsdóttir Jóhann Þorvaldsson Ósk Sigurðardóttir Erla Þorvaldsdóttir Þórður Kristinsson Ingibjórg Þorvaldsdóttir Bjami Sverrisson og barnabörn í.Wiá MÁlArÁK U.Wv i c.tjV' fyr, þeirra landskunnu Kirkjubóls- bræðra; Abígael, sem hér er- minnst og Guðjón járnsmiður á Suðureyri í Súgandafirði. Abígael ólst upp á Hóli. Mun síðar hafa farið í vistir í Önundar- firði og Súgandafirði. Komin hátt áftrítugsaldur leitaði hún atvinnu lengra burtu, var, að vitað er, í kaupavinnu norður í Skagafirði. Það er kunnugt, að á þessum árum, fóru ýmsir af þessu nú nefnda Stór-Reykjavíkursvæði um sumur í kaupavinnu norður í land. Þar á meðal var Ingimundur Guðmundsson á Bakka á Vatns- leij>suströnd. En hann og systkini hans Bjargmundur og Jódís — systurnar Guðrún og Margrét þá giftar og farnar að heiman — bjuggu þar með móður sinni, Guð- björgu Egilsdóttur, sem þá var fyrir löngu búin að missa mann sinn Guðmund Ingimundarson frá Reykjavöllum I Biskupstung- um. Þegar Ingimundur á Bakka er nýkominn heim úr kaupavinn- unni haustið 1910, verður þess vart að hann er nær jafnsnart horfinn að heiman aftur. Hverju sætti þetta, hvert hafði maðurinn farið, var spurt og spáð. En brátt skýrðist málið. Eftir furðu skamman tíma er Ingimundur aft- ur kominn heim, með hávaxna, gjörvulega komu sér við hlið. Að- dragandi þessa hafði ekki gerst I danssölum né á baðströnd, heldur þar sem þarfleg störf voru stund- uð til nauðsynlegrar lífsbjargar. Þau Abígael og Ingimundur eru svo gift I Kálfatjarnarkirkju 30. des. 1910. Ég sem þetta rita var ásamt foreldrum mínum og mörg- um fleirum þarna viðstaddur. Nú er um breytt þar sem ég áður verandi brúðkaupsgestur, mun í dag verða viðstaddur útför brúð- arinnar hvar hún er kvödd frá því sama altari sem hún gekk að í sitt hjónaband fyrir fullum 65 árum, þá orðin fullra 30 ára. Þau hjónin Abígael og Ingi- mundur byrjuðu búskap að Bjargi, næsta bæ við Bakka, vorið 1911 og þar fæddust þeim börnin þrjú, Guðmundur, dó nýfæddur hlaut aðeins skírn, Stefán f. 17. des. 1913, giftur Guðríði Sveins- dóttur Hábæ í Vogum og hefur rekið verslun þar, og Guðrún Halldóra f. 18. sept. 1918. Hún giftist Samúel Eyjólfssyni á Þóru- stöðum, en hann er nú látinn fyrir allmörgum árum. Á þessu tíma- bili tóku þau í fóstur tvo syni Guðrúnar systur Ingimundar, fyrst Steindór, sem dó innan við tvítugt, þá fyrir nokkru kominn til skósmlðanáms I Hafnarfirði. Hafa þau þá þegar tekið áð sér yngri bróður hins fyrri fósturson- ar, Jóhann Ólaf Jónsson, sem nú rekur, ásamt sonum sínum, véla- verkstæði I Hafnarfirði. Hefur ^iann alltaf verið fósturforeldrum sínum sem besti sonur. Um mörg ár höfðu búið að Fjósakoti, þarna skammt frá, hjónin Bjarni Jörgenson og Mar- grét Runólfsdóttir. Hafði Bjarni á miðjum aldri orðið farlama af gigt,. En svo lengi sem unnt var, börðust þau við búskapinn og reyndi þar ekki síst á dugnað Margrétar til aðdrátta og allra starfa jafnt utanbæjar sem innan. En um síðir hlaut að draga til uppgjafar. Þá tóku þau hjónin á Bjargi Bjarna að sér til góðrar ummönnunar á ævikvöldinu og hjá þeim dó hann á áttræðisaldri. Um tveggja ára skeið, eftir það að við fóreldrar minir fluttumst frá Litlabæ, nytjuðum við tún og kálgarða þar. Þar eftir seldi Helgi faðir minn Ingimundi I hendur erfðafesturéttinn á býl- inu. Og auðvitað notaði sá rétt- indahafi það siðan. Það verður svo 1934 að á sama + Útför LÁRUSAR FJELDSTED JÓSEFSSONAR. fer fram frá Fossvogskirkju mánudaginn 1 0 maí kl. 3 e.h. Erla Lðrusdóttir, Þorvaldur Lárusson. Hjördís Jósefsdóttir, Elís Hallgrlmsson, Herborg Hallgrlmsdóttir og ættingjar. 1,1 i t i ,13,1; ,U, I , stað þar sem torfbær okkar og siðar timburhús stóð, byggir Ingi- mundur steinhús. Þar með flyst fjölskyldan frá Bjargi að Litlabæ. En ekki eru búsetuflutningar Ingimundar um langa vegu, því bæirnir Bakki, Bjarg og Litlibær gátu vel staðið allir innan eins hektara. I þessu húsi sem látið er halda gamla bæjarnafninu búa svo þessi blessuð hjón til hinstu stundar. Fengu þar að sofna svefninum langa Ingimundur 27. okt. 1972 og Abigael 26. apr. 1976. Eins og hér sést hafði Abigael misst ástvininn sinn úr jarðvist- inni fyrir hálfu f jórða ári. En það sem meira og sárar tók á, var, þegar sonurinn Stefán var burt kvaddur réttum þremur mánuð- um áður en hin háaldraða móðir fékk kvaðningu til vistaskipt- anna. Enn gerðist það í Litlabæ, sem áður á Bjargi, að tekið var gamal- menni til vistar á æfikvöldinu. Margrét Magnúsdóttir hafði allt frá unglingsárunum verið á Minnivatnsleysu vinnukona hjá þeim foreldrum Aúðuns Sæ- mundssonar og síðar honum og konu hans. En þegar þau fluttust þaðan var Margréti komið að Litlabæ. Var henni þá hjáliðinn margur langur vinnudagur á margmennu heimili, aldurinn orðinn hár og kraftarnir að þverra. GVeðilegt er þegar trúi þjónninn þreyttur orðinn, kemst i góðra manna umsjá er liður að lokadegi. En svo vitum við sem til þekktum að verið hafi hj^i þeim Litlabæjarhjónum. Aldrei höfðu þau Abígael og Ingimundur stórt bú. Enda skilyrði til slíks lítil á Vatnsleysuströndinni. Þarna var löngum lifað á bjargræði úr sjó og af landi auk þess leitað atvinnu í sveit á sumrum. Það gerðu þau hjónin eitthvað fyrstu búskapar- árin. Þarna var kona sem vel kunni að beita sveiflum og átök- um hafandi í höndum orfhæla eða árarhlumm. Þó voru sist afrækt hin síþörfu innanbæjarsrörf og á seinni árum prýddu heimilið vel gerð handaverk eftir húsmóður- ina. Svo er ótalið það um Ingi- mund, frá því að ég fyrst man, að vegna þess að hann var smiður góður, var svo þráfalt til hans leitað af nágrönnum og jafnvel lengra að, til smærri eða stærri verka. Var það því að svo bóngóð- ur maður vann marga stundina utan heimilis. Að síðustu minnist ég samveru- fundar í Litlabæ með þeim nán- ustu og mörgu vinafólki hinnar látnu. Þar sem lokið var góðum umbúnaði um það forgengilega í hinsta hvílurúmi. Þarna var einkadóttirin, tengdadóttirin og móðir hennar, fóstursonurinn, kona hans og þeirra börn og margir fleiri i ættartengslum og utan þeirra. Þar er ein sem síst má gleymast, Elin Björg Gisladóttir. Hún hefur verið heimilishjálpin góða hjá þeim Litlubæjarhjónum í 36 ár. Og við þverrandi krafta þeirra annast þau sem góð dóttir til siðasta andvarps. Á þessari samverustund, þótt svona væri orðið um likama þessarar kæru burtkvöddu konu og móður. fannst mér sem sál hennar fyllti húsið og snerti okkar innri kennd- ir í hugljúfum minningum. Já, einkadótturinni og okkur öllum megi til blessunar verða þær góðu minningar. Alfaðir blessi henni ástvina- fund í eilífðarheimkynnum. Jón Helgason frá Litlabæ. Minning: Sigríður Júlí- ana Jónsdóttir Fædd 30. maf 1885. Dáin 30. aprfl 1976. í dag verður jarðsungin frá Frí- kirkjunni i Hafnarfirði Sigríður Júlíana Jónsdóttir frá Bárugerði á Miðnesi. Foreldrar hennar voru hjónin Guðlaug Jónsdóttir og Jón Magnússon er bæði voru komin af Skaftfellskum ættum. Þau eignuðust fimmtán börn, en af þeim náðu tíu fullorðins- aldri, en fimm þeirra létust í æsku. Til að koma svo stórum barnahóp á legg og framfleyta svo miklu heimili sem þetta hefur verið, hefur ótvírætt reynt á þrautseigju og dugnað jafnframt hagsýni foreldranna. Jarðir þar syðra voru ekki stór- ar og bústofninn að sjálfsögðu að sama skapi frekar lítill, lífsviður- værið þurfti því að verulegu leyti að sækja til sjávarins og hefur sú lifsbjörg vissulega verið harðsótt og oft torsótt við þær aðstæður og með þeim skipakosti sem þá tíðk- aðist og þeir sem nú eru á yngri árum, gera sér vart grein fyrir hve frumstætt það var, borið saman við þá miklu tækni og öru þróun i fiskveiðum sem rutt hefur sér til rúms á síðustu ára- tugum. Þau Bárugerðishjón voru ann- áluð fyrir dugnað og ráðdeildar- semi í hvivetna og bjargaðist þetta allt vel þrátt fyrir þennan stóra barnahóp, enda kappkostað að ávallt væri nægjanlegt til fæðis og klæðis. Júlíana ólst upp í þessum stóra systkinahóp og vandist eins og þau öll fljótlega til allra verka sem þá tiðkuðust á slíku heimili og kom það fljótlega í ljós að hún var i þeim efnum síst eftirbátur hinna hvað atorku og dugnað snerti, hefur svo verið alla hennar tið og allir sem til þekktu útfaraskreytlngar blómouol Gróðurhúsið v/Sigtun simi 36779 til þess tekið hve starfslöngunin og skylduræknin hefur verið snar þáttur i öllu hennar lífi. Þegar hún var þriggja ára veiktist hún af heilahimnubólgu og dregur það úr andlegum þroska hennar, sem hún náði ekki eftir það. Þrátt fyrir það áfall átti hún því láni að fagna að vera líkamlega hraust það sem eftir var af hennar löngu æfi, og naut hún því hins daglega starfs af sannri ánægju. Það má segja að henni félli vart starf úr hendi, þegar útistörfum var lokið var sest inn við prjónana en þá hafði hún oftast á milli handanna þegar ekki var eitthvað annað við að vera, var eftirtektarvert og raunar furðulegt hve afköstin voru mikil og þá sér í lagi þegar hún var á sinum yngri árum, enda eru þeir ótaldir bæði skyldir og vandafausir sem hafa notið skjóls í hlýjum prjónafatnaði úr hennar höndum. Ekki skal þá gleymt börnunum sem nutu í svo ríkuni mæli trygglyndis hennar og ástúð- ar enda hændust börnin ávallt að henni sökum þessara góðu eigin- leika sem hún hafði til að bera. Júlíana var gædd slíkri mildi og hlýju í viðmóti ásamt sínu góðlát- léga brosi sem varö til þess, að verma þá um hjartarætur sem voru í návist hennar. Skapið var Framhald á bls. 30 ■t I .C.l.J ( , . . I V , t • t I. ll'.Vít , |l ■. U'. i .5:11 T (, 1 ’• I. ’ 1 • v1 i/. i T’l1 Il.'l * ■ ' íil’J'llC' 'fi‘, .'Of.k j tii-lr Ú.VvU II

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.