Morgunblaðið - 08.05.1976, Page 28

Morgunblaðið - 08.05.1976, Page 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. MAl 1976 Á hættu- slóðum í ísraelEWr gST Sigurður Gunnarsson þýddi rauninni hennar vegna? Já, hann vissi það ekki, — en hann fann, að hann var að því kominn af falla í öngvit. Sólin var ekki lengur björt og heit, hún var svört — kolsvört, og tungan var sár og hörð í munni hans. Var einhver að koma? „Óskar, það má ekki líða yfir þig.“ Þeir hinir voru vanir þessum mikla sólarhita og þoldu hann því betur. Þeir sáu, að enn rauk úr brunarústum húss- r —\ Það er pottþétt. Þú hefur aldrei séð myndir af svona furðuskepnu, enda ekki að undra því hún fyrirfinnst ckki. En teiknarinn bjð nú þetta dýr til og gerði það þannig að skella saman f þessari teikningu nokkrum dýra- tegundum og fuglum. Þú átt að geta sagt til um hvaða dýr og fugla um er að ræða. I * ins, sem Arabar höfðu kveikt í Líklega var ekki nema um það bil kílómetri til vina þeirra hinum megin við Jórdan, — þar lágu þeir líka vopnaðir í felum og biðu. .. Arabar höfðu náð nokkrum hluta appelssínulundanna á sitt vald og virtust ekki ætla að sleppa þeim. En hvað voru óvinirnir margir? Voru þeir tuttugu, — eða kannski tvö hundruð? Það vissi eng- inn. Og voru þeir ef til vill með fallbyss- ur? . . Það sást ekki nokkur sál á ferli á þessum tíma. Þeir gátu aðeins greint Djúpavatn. Á þeim slóðum voru gæzlumenn Samein- uðu þjóóanna, og nú höfðu þeir vafa laust sent fregn til aðalstöðvanna um það, að ófriður hefði brotizt hér út. En var hér um að ræða minni háttar árás, — eða var kannski hafin raunveruleg styrjöld? Hver gat svarað því? Stundum var sem vatnið logaói í ljósflóði sólarinn- ar. Líklega mundi Óskar aldrei koma þangað aftur. En allt í einu gerðist eitthvað fjarska undarlegt: Hendur hans urðu rauðar. Hann starói á þær og ætlaði ekki að trúa sínum eigin augum, — en þær stækkuðu og urði sífellt rauðari og rauðari, eins og... en hann heyrði aldrei neitt skot. Einhver beygði sig yfir hann,.. það var ekki Míron... það var víst... en svo varð allt svart fyrir ásjónu hans. Þegar hann vaknaði, heyröi hann, að einhver sagði: „Nú eru þeir farnir, Ósk- ar,.. þeir eru farnir. Þú fékkst bara sólsting, það varð of heitt hérna hjá okkur. Þeir eru farnir aftur. Þú þekkir okkur, Óskar, — er það ekki? Já, þeir eru farnir.. .“ „Hverjir eru farnir?“ spurði hann... „Brytinn?“ „Arabar. . . þeir hörfuðu undan. Það varð engin styrjöld að þessu sinni... Þetta var aðeins árás til aö skaprauma okkur.“ „Hvar er ég?“ spurði hann. En áóur en þeir gátu svarað, kom hann að fullu til sjálfs sín á ný. Hann var ekki lengur í skotgröfinni, heldur undir fall- egu appelsínutré. Jórdan rann fram hjá, rétt fyrir neðan, einhver strauk mjúk- lega yfir enni hans. Þaó var María. Hún var alltaf svo nærgætin og hugsunarsöm. En hvað var nú þetta? Var aftur að líða yfir hann? Var þetta ekki allt um garó gengió? MORö-dKf RAFr/Nd Afbragðs ræða hjá for- stjóranum, — leyfi ég mér að segja. Þú átt 14 daga sumarleyfi? — Já, þá er þetta platan — 14 daga plata. Eg held þú ættir að hætta dýraveiðum. Þú ert ekki lengur eins léttur á fæti. Það er með óllkindum hve mannlegir þeir eru. Fyrir nokkrum árum birtist eftirfarandi minningargrein f amerfsku blaði: — 1. desember lézt Tom Jenkins hattagerðarmeistari f hinni fullkomnu hattaverzlun sinni nr. 3 við Broadstreet. Hann var virtur vel af öllum, sem honum kynntust og verzl- uðu við hann. Hann var Ijúfur í einkalffi og duglegur og ódýr sem hattagerðarmað- ur. Panamahattarnir hans kostuðu aðeins 4 dali. Hann lætur eftir sig ekkju, sem grætur burtför hans, og fulla búð af ágætishöttum, sem sclj- ast með niðursettu verði. Hann var á bezta aldri, og rétt áður en hann lézt hafði hann keypt ósköpin öll af hattaefnum svo ódýrt, að ekkjan getur f náinni framtfð selt hatta ódýrara en nokkur annar hattasali f borg- inni. Ættingjar hans halda verzluninni áfram. X Friðrik litli: — Ef ég færi að klifra upp f tré og dytti niður, hvort væri þá betra, að ég rifi buxurnar mínar eða fót- brotnaði? Mamma: — Það væri auðvitað verra að þú fótbrotnaðir. Friðrik: — Jæja, þá var ég heppinn. Eg var nefnilega að klifra upp f tré áðan, datt niður og reif buxurnar mfnar, en ég fótbrotnaði ekki, mamma. X Dómarinn: — Hefur þér verið refsað áður? Öli: — Já, fyrir 10 árum var ég sektaður um 1000 krónur fyrir að ég fór f bað þar sem það var ekki leyfilegt. Dómarinn: — En sfðan? Öli: — Nei, ég hef ekki baðað mig sfðan. Arfurinn í Frakklandi Framhaldssaga eftir Anne Stevensor Jóhanna Kristjónsdóttir þýddi 59 aðinn þcnnan morgun eins og venjulega. Eg fór þangað á hverjum degi og daginn áður hafði ég gengið framhjá Marcel Carrier þar sem hann var á tali við þýzkan herforingja. Það var f raun ekkert við slfkt að athuga. Faðir hans hafði viðskipti við Þjóðverja og Marcel gerði mikið af þvf að Iáta svo lfta út sem hann væri f ágætum tengslum við her- námsliðið. Hann sagðist gcra það til að eiga auðveldara með að blekkja þá. Og hvers vegna ekki? Ef hann gat komizt upp með það gaf það honum aukið vald. Það jók á goðsögnina um hann að strfðinu loknu. Það eina sem var einkennilegt við þetta var kæru- leysi það sem hann sýndi þennan morgun. Annaðhvort stafaði það af einberum hroka eða vegna þess að þeir voru svo niðursokknir f samtal sitt að þeir veittu mér ekki athygli. Hvað sem þvf nú Ifður hættu þeir ekki tali sfnu þegar ég gekk hjá. Ég heyrði að vfsu aðeins brot úr samtali þeirra. Marcel sagði: „Þetta hús... loksins," og Þjóðverjinn svaraði: „Allt f lagi, en gættu þess þá að láta ekki hremma þig þar.“ — Meira að segja ég áttaði mig ekki á þessu fyrr en ég kom heim úr verzlunarleiðangri mfnum daginn eftir og heyrði þá fréttir af fyrstu handtökunum. Þá rann upp fyrir mér ljós — og reyndar fleiri en eitt. Ég skildi þá hvers vegna mörg áform Herault læknis höfðu farið út um þúfur og ég skildi lfka hvernig á þvf stóð að Þjóðverjar höfðu iðulega komizt á snoðir um aðgerðir andspyrnu- hreyfingarinnar áður en þetta kom til. Ég heyrði seinna að ástæðan fyrir þvf að fjöldahand- tökurnar voru ekki framkvæmdar fyrr en þennan morgun voru að það hefði ekki verið fyrr en skömmu áður að Herault læknir var farinn að treysta Marcel út í æsar og hafði gert hann að trún- aðarmanni sfnum f hverjum hlut. Engan skal þvf furða þó að Marc- el hafði verið svona kjarkmikill. Hann vissi að hann var á grænni grein af þvf að hann hafði gert samninga víð Þjóðverjana og hann var þeim of verðmætur til að þeir færu að skerða hár á hans höfði. Hann hafði einu sinni verið handtekinn og þá hafði hann sam- ið við þá um að miðla þeim upp- lýsingum og eftir það hafði hann svo leikið ‘tveimur skjöldum. Til að bjarga sfnu eigin skinni sveik hann alla sfna víní. — Eg hraðaði mér aftur heim f Heraulthúsið, en Þjóðverjar höfðu lokað mörgum götum og ég varð að gæta mfn mjög. Ég komst að húsinu og þegar ég var að fara inn eldhúsmegin sá ég Marcel koma þjótandi út úr húsinu. Hann var náföiur f andliti. Hann skalf og nötraði og sagði við mig: „Farðu ekki inn. Flýttu þér f burtu. Allt er um seinan.“ Og að svo mæltu hraðaði hann sér á braut eins og djöfullinn sjálfur væri á hælum hans. — Ég kom að þeim f skrifstofu læknisins. Simone hafði einnig komfzt heim en hún hafði verið f erindagjörðum fyrir lækninn og það hafði verið koma hennar sem gerði það að verkum að Marcel hætti þeirri iðju sem hann hafði verið upptekinn við — að nauðga Madeleine Herault. Lfk lan Rich- ardsson lá á gólfinu. Madeleine kraup við hliðina á honum og hélt báðum höndum utan um brjóst hans, stff og köld sem liðið Ifk. Við urðum að beita valdí til að slfta hana frá Ifkinu. — Við gáfum henni konfak og hún fór að tala — æst og f svo hræðilegu uppnámi að ég glevmi þvf aldrei. Hún hafði verið ein í húsinu og hafði verið að bíða eftír boðum. Faðir hennar, Ian og Marcel höfðu allir verið f burtu um nóttina til að bfða eftir pen- ingasendingunni sem átti að láta sfga niður f fallhlff. Þeir voru seinir að skila sér heim. Hún var farin að óttast um þá þegar Marc- el kom inn. Hann hafði lagt vöru- bflnum f hliðargötu og hann kom inn og hélt á Ian Kichardsson f fanginu. Hún sagði að hann hefði hent honum á gálfið eins og hann væri dýrshræ og sagt við hana: „Hann er dáinn. Þjóðverjarnir biðu eftir okkur.“ — Henni varð ólýsanlega mikið um. Hún henti sér yfir Ifkama ástvinar sfns og hrópaði upp yfir sig að hann væri ekki dáinn, hún myndi ekki afbera að missa hann og svo allt f einu æpti hún yfir sig, að hann væri ekki dáinn, hún fyndi hjartslátt. Það væri þá hægt að bjarga honum. ög þá — ýttf Marcel henni frá, tók byssu upp úr vasanum og skaut hann f hjart- að. Og sfðan — sagði Madeleine rólega — nauðgaði hann henni. — Við höfðum skiljanlega eng- an tfma til að sinna Madeleine á þessari örlagastundu eins og hefði þurft. Við höfðum heidur ekkert svigrúm til að hugsa um hvað við gætum gert til að koma fram hefndum á Marcel. Simone og ég vissum að það gat skipt mfnútum ef við kæmust ekki taf- arlaust á brott. Við vissum að Þjóðverjar gátu komið á hverri stundu. Við áttum ekki annarra kosta völ en skilja lan eftir á gólfinu og við ne.vddum Made- leine með hörku til að koma með okkur. Okkur tókst að brenna

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.