Morgunblaðið - 08.05.1976, Side 30

Morgunblaðið - 08.05.1976, Side 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. MAÍ 1976 Söfnuðu á þriðju milljón til þjóðháttarannsókna NOKKRIR stúdentar, '-.em hyggj- ast starfa við heimildasöfnun um þjóðhætti f sumar, héldu norður f land um sfðastliðin mánaðamót og sátu fundi með fjölmörgum aðilum, sem sótt hefur verið um fjárstuðning til f þessu skyni. Undirtektir voru svo góðar, að telja má nokkurn veginn vfst, að 6 til 7 stúdentar geti unnið að þessu verkefni f 3 mánuði f sumar f Norðurlandsfjórðungi. Talið var að um 3 milljónir króna þyrfti til þessa verkefnis og liggja nú 2,4 milljónir á borðinu f loforðum og vilyrðum. Tæplega milljón hefur borizt frá öðrum landshlutum enn sem komið er. Frá þessu er skýrt í fréttatil- kynningu, sem Morgunblaðinu hefur borizt frá starfshópi stúd- enta um þjóðháttasöfnun. Þar segir að forsaga málsins sé sú að 20 nemendur, flestir í sagnfræði hafi fyrr i vetur skýrt frá því að þeir áformuðu að vinna að þessu verkefni í öllum héruðum lands- ins. Slik söfnun hefur að vísu farið fram á vegum Þjóðminja- safnsins undanfarin 15 ár, eink- um bréflega, en sú aðferð heldur hvergi nærri í við hina hrað- fleygu stund. Allan síðari hluta vetrar hafa stúdentarnir búið sig undir þetta verkefni í sagnfræðideild Háskól- ans, bæði með því að afla sér lágmarksþekkingar á viðfangs- efninu og þjálfunar í meðferð hjálpartækja svo sem myndavéla og segulbanda. Þá hafa verið út- búnar spurningaskrár til að hafa til hliðsjónar um nokkur atriði og væntanleg er skrá yfir alla Islend- inga 67 ára og eldri, sem raðað er eftir upprunahéraði og núverandi búsetu. Allt þetta starf hefur ver- ið unnið í nánu samstarfi við þjóð- háttadeild Þjóðminjasafnsins. — Smábáta- útgerð Framhald af bls. 10 um. „Nei, nei. hann fór bara nokkuS vel mefl mig, það gekk a8 visu ekki alveg nógu vel fyrst en þetta hefur veriB ágætt núna upp á slSkastið, enda betra að slga á það, það er alltaf betra svoleiðis." Sigurbjom er 7—8 tonna trilla og Ási segir að þeir tvlmenningarnir hafi verið útbúnir með vatnsknúnar handf ærarúllur. „Þetta eru mjög flnar rúllur, ág hafði að vlsu áður kynnzt rafmagnsrúllunum og þetta er eiginlega alveg það sama, nema hvað þessar eru knúnar áfram með vatnsdælu sem gengur I gegnum þær." Er Ási mikill meistari á þessar rúllur? „Maður verður að læra fljótt. þegar fiskur er I boði," svarar hann. En er hann þá jafn fiskinn núna og hér áður fyrr? „Ég veit það ekki, ég held nú að það breytist með þessum tækjum svolftið — vélin sko tekur llfsstrauminn af manninum ævinlega nema auðvitað að ég hef mikinn llfsstraum og það þarf mikla vél til aðeyðileggja hann. Vatnsdælan hef- ur ekki alveg getað yfirbugað hann, rafmagnið hefði fremur verið til þess fallið." Ási kvaðst þannig vera I sjöunda himni yfir hlutskipti slnu úti I Eyjum að þessu sinni. „Ég er ráðinn hér fram að lokum samkvæmt viðtali eða til 10. svo að maður geti fengið sér neðan I þvl þann 11. — þv! að það er alveg ákveðið mál að við Hilmar fáum okkur þá sénna saman." Hann segist ætla að sjá slðan til hvað tekur við eftir vertlðarlokin. „Ég er ævinlega með eitthvað I kollinum sem ég þarf að koma á blað — og ég kom nú hingað meðal annars til að rifja allt upp hérna, þvl að ég er alltaf með I blgerð stórverk um stað sem þennan, er búinn að vera að vinna að þvi I mörg ár. Þetta er þess vegna svona eins konar endurhæfing," sagði Ási. „Það sem upp úr þessu er að hafa peningalega er mér þannig ekki allt. þvf að þó þessi sjómennska m!n sé ekki merki- leg, þá er hún nokkuð erfið fyrir mig, þar sem ég er á trélöpp. En maður lætur sig hafa það, þvl að ég endur- nýjast allur á llkama og sál. og helzt þarf ég að komast tvisvar á ári 1 — 2 mánuði I senn I þennan hasar til að haldaáriðút." bv/Sigurgeir sumarHARtízkan í Sigtúni sunnudaginn 9. maí kl. 3. TÍZKUFATNAÐUR, KARONSAMTÖKIN Samband hárgreiðslu- og hárskerameistara + ÁGÓÐINN AF ÞESSU HAPPDRÆTTI RENNUR ÓSKIPTUR TIL RAUÐAKROSSSTARFSEMI INNANLANDS, SEM FRAM FER Á VEGUM DEILDA RK-i., UM LANO ALLT ROWENTA djúpsteikingapottar SMAMIÐAHAPPDRÆTTI FYRIR 100 KR. SKATTFRJALSIR 30 ROWENTA gufuburstar 600 MUSK jlmvatnssett 200 LAMY pennasett 45 ADLER vasatölvur SMAMIÐAHAPPDRÆTTI RAUÐA KROSSINS — Minning Rannveig Framhald af bls. 2? ættingjar. En Rannveig var ekki þeirrar gerðar að vilja vera upp á aðra komin, hvorki skylda né vandalausa, og því háði hún sitt aðdáunarverða lifsstríð. Eftir stendur óhjákvæmilega að geta áratuga sambýlis Rannveigar við Magndísi systur sína og fjöl- skyldu hennar. Magndís hafði snemma misst mann sinn voveiflega frá tveim kornungum börnum þeirra hjóna, en barizt áfram af óvenjulegum dugnaði, þrautseigju og fórnfýsi, og sjálf komið myndarlegum börnum sínum til manns á hinn lofsverð- asta hátt. Síðar munu svo barna- börnin hafa átt í henni, og eiga, óbrigðulan hauk i horni. í þessari lifsaðstöðu bjuggu þær systur saman, hvor annarri til stuðnings, deildu kjörum og létu eitt yfir báðar ganga. Var ávallt reisn og eftirtektarverður myndarbragur yfir sambýli þeirra. Mun enginn sem heimsótti þær, nokkru sinni hafa haft ástæðu til að ætla, að þær skorti neitt af neinu. En hvaða þrek- virki og manndómur lá að baki, er ékki víst, að margir hafi hugsað i't í. Aldrei munu þær systur hafa írið út i ágreining eða meting um, hvað frá hvorri kom í þeirra lífsafkomu. Mun leitun á svo óeigingjörnu og kærleiksríku samstarfi i langri og allharðri lífs- baráttu, enda vart hugsandi án mikilla mannkosta, og áttu þær ekki langt að sækja þá, slíkar önd- vegismanneskjur sem foreldrar þeirra voru. Alla tíð frá því við vinur minn Albert, bróðir þeirra systra, kynntumst sem ungir menn — fyrst í Núpsskóla og litlu siðar betur í Samvinnuskólanum, var ég tíður gestur á Sveinseyrar- heimilinu og eins hjá þeim systr- um hér syðra — að ógleymdum langdvölum í Eyrarhúsum hjá Albert sjálfum og konu hans Steinunni Finnbogadóttur. Ég hefi því margs og góðs að minnast í sambandi við þetta fólk, en finnst nú, að samverustundirnar hefðu mátt vera fleir. Það tjóar þó ekki að sýta, en ég minnist genginna gleðistunda þakklátum huga. Klassísk samlíking Séra Garðars Svavarssonar í snjallri útfararræðu yfir Rannveigu fær fullvel staðizt — um fjóluna bláu, sem fellur án fyrirgangs og hávaða, en „ilmur horfinn innir fyrst, hvers urtabyggðin hefir misst." Og sé hver sinnar gæfu smiður — þegar allt kemur til alls — efast ég ekki um hamingju Rannveigar Guðmundsdóttur að leiðariokum. Hún gekk með horskum huga sinn þyrnum stráða æviveg; allt fram að hinzta vetri. „Þú veizt, að eftir vetrar stranga hríð, fer vor í hönd með sólarblíða tíð.“ Öllum gleðilegt sumar! I lok 1. viku sumars. Baldvin Þ. Kristjánsson. — Minning Sigríður Framhald af bls. 23 slíkt að til eftirbreytni mætti verða fyrir okkur er kynntumst henni nokkuð náið. Frá henni féll aldrei styggðaryrði til nokkurs manns og þvi hlaut hún að verð- leikum traust og góðvild frá öðrum og mat hún það vissulega mikils. Guðlaug móðir hennar lést árið 1908 og bjó Jón faðir hennar eftir það með börnum sínum, en eftir að hann hætti búskap tók Hans Wium bróðir hennar við Báru- gerði og dvaldi hún hjá þeim hjónum og börnum þeirra mörg ár þar á eftir. Hún lá allan þennan tima ekki á liði sínu að heimilinu mætti vel farnast og naut hún umhyggju þeirra allra enda mátu þau störf hennar í þágu heimilisins mikils. Hún minntist oft á seinni árum veru sinnar þar og ávallt með hlýju og þakklæti til þeirra og allra sveitunganna sem hún hafði haft svo náin og góð kynni af allt frá barnæsku. Fyrir um það bil þrjátíu árum flyst hún svo til systra sinna, Jónu og Guðbjargar sem búsettar eru í Hafnarfirði og Katrínar sem búsett var í Reykjavik en nú er látin fyrir nokkrum árum. Á heimilum þeirra systra dvaldi hún upp frá því I senn þrjá mánuði hjá hverri í einu, þannig fluttist hún á milli þeirra með nokkuð jöfnu tímabili. Hún var á hverjum stað einkar kærkomin þegar hennar var von og ég fullyrði að hún undi hag sínum mjög vel enda féll henni þá sem fyrr sjaldnast verk úr hendi því hún var ávallt með prjónana og nutu börnin á heimilunum þar góðs af ásamt fleirum. Júlíana hafði siðastliðin fimm ár dvalið á Sólvangi, við sérstak- lega góða umönnun og hafði ávallt fótavist og ærið að starfa við sitt hæfi. Hún lést þann 30. apríl s.l. eftir fárra daga legu tæp- lega 91 árs að aldri. Eg kveð svo þessa trygglyndu frænku mína með söknuði og mun geyma um hana margar hugljúfar minningar. Systrum hennar og ættingjum votta ég samúð mína og bið henni velfarnaðar á nýrri vegferð. Guðlaugur B. Þórðarson. Munið uppboðs- og skifta fund Myntsafnarafélagsins í Templarahöllinni laugardaginn 8. maí kl. 2.30. Vor- kappreiðar Hinar árlegu vorkappreiðar Fáks verða haldnar sunnudaginn 16. maí og hefjast kl. 15 á skeiðvelli félagsins að Víðivöllum (við Selás) Keppt verður í eftirtöldum greinum: Skeiði 250 m. Stökki 250 m, 350 m., og 800 m. Þá verður keppt í 1 500 m stökki og 1 500 m brokki ef næg þátttaka fæst. Skráning kappreiðahesta fer fram á skrifstofu félagsins næstu daga og á firmakeppni félags- ins, laugardaginn 8 maí. Skráningu lýkur mánudaginn 1 0. maí kl. 17. Hestamannafélagið Fákur.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.