Morgunblaðið - 08.05.1976, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 08.05.1976, Qupperneq 32
AUGLÝSINGASÍMINN ER: 22480 2R»r0unii{«ifcit> AUGLÝSINGASÍMINN ER: 22480 LAUGARDAGUR 8. MAl 1976 Allar freigáturnar á miðunum eru laskaðar BREZKU freigáturnar héldu áfram ásiglingartilraunum sfnum á varðskip f gær, sem voru að sinna skyldustörfum sfnum á miðunum við Hvalbak. Freigátan Gurkha F-122 sigldi f gær á bak- borðshlið varðskipsins Óðins, er gerði sig Ifklegan til að klippa á togvfra togarans Ross Ramillies GY 53. Litlar skemmdir urðu á Óðni, en brúarvængur bevglaðist nokkuð. Hins vegar urðu tals- verðar skemmdir á freigátunni, þ. á m. kom gat á bóg hennar ofar- lega. Þar með eru allar freigátur brezka flotans á Islandsmiðum meira eða minna laskaðar, en Fal- mouth F-112 varð að yfirgefa miðin þegar eftir ásiglingu sfna á Tý f fyrrakvöld. Skemmdir á Tý við þá ásiglingu urðu ekki miklar, nema á bakborðsskrúfu varð- skipsins, en blöð hennar brotn- uðu af. Ásigling freigátunnar Gurkhu á Óðin varð klukkan um 17 í gær. Tvö varðskip voru að eltast við togarahópinn, sem þarna var að veiðum, 15 skip, og hifðu flestir, er þau nálguðust. Varðskipunum fylgdu tvær freigátur og þrfr dráttarbátar, Er Óðinn nálgaðist Ross Ramillies, sem var að hffa, sigldi Gurkha á bakborðshlið Óðins og beyglaðist brúarvængur hans inn. Að öðru leyti urðu litlar skemmdir á varðskipinu. Sam- kvæmt upplýsingum Gunnars Ólafssonar skipherra í stjórnstöð Landhelgisgæzlunnar virtust tals- varðar skemmdir verða á frei- gátunni, m.a. myndaðist gat ofar- lega á bógi þess. eða minna opinn, enda hún mjög djúpsigld að framan. Fór hún yfir miðlinuna milli Islands og Fær- eyja I gær um klukkan 13, en þá var freigátan Lowestoft F-103 á leið á tslandsmið til þess að leysa hina löskuðu freigátu af. Framhald á bls. 14 FALMOUTH STÓRSKEMMD Hinir hrottalegu atburðir, sem gerðust á miðunum í fyrrakvöld hafa nú að nokkru skýrzt. íslenzk- ur blaðamaður varð vitni að aðför Falmouth að Tý og er lýsing hans birt á öðrum stað í blaðinu. Fal- mouth hélt heim á leið skömmu eftir ásiglinguna og hefur frei- gáta ekki áður laskast jafn mikið I þorskastríði. Allur neðri hluti stefnis hennar er rifinn og meira „Hélt að Tý myndi hvolfa” segir Jón Steinar Ragnars- son sá eini sem meiddist — VISSULEGA vorum við allir hræddir um að Tý mundi hvolfa, en menn reyndu að leiða þá hugsun hjá sér, þvf allir vita hvað gerst hefði, ef það hefði orðið, sagði Jón Steinar Ragnarsson vikapiltur á Tý f samtali við Morgunblaðið f gær, en Jón var sá eini af skipshöfn Týs sem slasaðist f ásiglingum Falmouth. Hann kom til rannsóknar á sjúkrahús f Reykjavík f gærkvöldi. — Ég var í gættinni á þyrlu- skýlinu þegar Falmouth kom öslandi að okkur. Ég gætti ekki alveg nógu vel að mér, þar sem ég var að reyna að taka myndir, og um leið og freigátan skall á varðskipinu féll ég við og í sjó- inn, og að líkindum hefði ég lent útbyrðis ef kokkurinn hefði ekki náð í höndina á mér og dregið mig inn í þyrluskýlið, sem var hálffullt af sjó. Þar missti kokkurinn taki af mér og ég sogaðist lengra inn i skýlið, þar sem ég skall á einhverju. í fyrstu hélt ég að allt væri í lagi, en þegar ég fór niður til að skipta um föt, fékk ég miklar þrautir og um tíma gat ég ekki stigið í annan fótinn, en brátt gat ég rölt um. — Þegar ég var búinn að jafna mig tók ég til starfa við mitt starf aftur og var að færa loftskeytamanninum kaffi þeg- ar freigátan sigldi á okkur aft- ur. Kaffið fór að sjálfsögðu veg allrar veraldar. Manni fannst þetta óralöng stund, sem varð- skipið lá á hliðinni, en þrátt fyrir það voru allir rólegir og enginn er hræddur við Bretann fremur en áður. Minnstu munaði að fjórir menn hrykkju fyrir borð: „Ekkert annað skip hefði þolað þvílíkt — ÞETTA hefði enginn gert nema vitstola maður, skipherrann á Falmouth hélt áfram að keyra á fullri ferð í síðu Týs eftir að skipið var komið á hlið- ina. Ég hef lent f 16 árekstrum frá því 29. des- ember síðastliðinn, en þessi sló allt út. Ég get líka sagt það, að svona högg hefði ekkert annað skip þolað á íslandi, nema þá Ægir, sagði Guðmundur Kjærnested skipherra á Tý í samtali við blaðamann Morgunblaðsins um borð f Týr, þar sem varðskipið lá á Berufirði f gær. Þar voru skipverjar önnum kafnir við að gera við til bráða- birgða þær miklu skemmd- ir sem urðu á varðskipinu er Falmouth sigldi þrisvar á það í fyrrakvöld. — segir Guðmund- ur Kjærnested ÞESSI teikning sýnir 75 gráða | halla á skipi, en slfkan halla fékk Týr á sig f tveimur I árekstrum af þremur í fyrra- kvöld. Af teikningunni má sjá að það er ekki að undra, að menn hafi ákallað æðri máttar- völd um borð f freígátunnf. — Slagurinn f fyrrakvöld byrj- aði ekkert öðruvisi en vant er. Það var ekkert við að vera og við lónuðum á svæðinu við Hvalbak, sagði Guðmundur. — Síðan var það um kl. 17 að skipstjórarnir fengu skeyti við tilmælum sínum um aukna vernd og skaðabætur. Fyrst í stað urðu skipstjórarnir æfir. — Þetta var ekki nóg. Þeir neituðu að hefja veiðar nema fá ákveðið svar um bætur. Eftir MARGIR brezku togaraskipstjór- anna létu reka í gær að sögn Landhelgisgæzlunnar og stund- uðu alls ekki veiðar. Samkvæmt upplýsingum frá Hull, voru skip- stjórarnir í allan gærdag að bræða það með sér, hvort þeir ættu að sigla á brott. Ástæðan var sár óánægja þeirra með að brezka ríkisstjórnin svaraði alls ekki kröfum þeirra um skaðabætur fyrir aflamissi. Að öðru leyti voru en Týr nokkurt þref fór fram atkvæða- greiðsla. Sex eða átta neituðu að hefja veiðar, þrfr eða fjórir sögð- ust ætla að veiða, en þrír skip- stjórar svöruðu ekki f talstöðvun- um. Að þessu loknu ræddu nokkr- ir skipstjóranna við útgerðarfyr- irtæki sín í Bretlandi. Kom í ljós að sum útgerðarfyrirtækin ætla að tryggja sjómönnunum bætur vegna veiðitaps en önnur ekki. Framhald á bls. 14 togaraskipstjórarnir mjög ánægð- ir með hertar varnargerðir frei- gátanna og skipstjórinn á Ross Orion H-235, Alf Ostler, sagði i gær, að skipstjórarnir væru hrifn- ir af aðgerðum freigátanna í fyrrakvöld. „Þetta var einmitt það sem þurfti til þess að sýna Landhelgisgæzlunni hvað brezki flotinn getur gert,“ sagði skip- stjórinn. Ljósm. Mbl : RAX HÉR sjást þeir Guðmundur Kjærnested skipherra og Þðr Steingrfmsson 1. vélstjóri á Tý á afturþilfari varðskipsins f gær. Þá var búið að gera við skipið til bráðabirgða og standa þeir Guð- mundur og Þór á þeim stað, þar sem stærsta gatið var. Til að loka þvf, tóku vélstjórar skipsins til bragðs að taka þykka stálhurð úr vélarrúmi skipsins og sníða hana sfðan f gatið, þar sem hún var soðin kyrfilega niður. Geirfinnsmálið: Einn maður í viðbót í varðhald? SAMKVÆMT upplýsingum, sem Morgunblaðið aflaði sér f gærkvöldi, mun maður einn hafa verið handtekinn vegna Geirfinnsmálsins sfðdegis f gær. Byrjuðu rannsóknar- lögreglumenn að svipast um eftir manninum snemma f gærmorgun og höfðu upp á honum sfðdegis. Var farið með hann rakleitt f Sfðumúla- fangelsið og eftir þvf, sem Mbl. komst næst, var hann þar ennþá seint f gærkvöldi. Full- trúi sá hjá Sakadómi, sem stjórnar rannsókninni, vildi ekkert um málið segja í gær- Framhald á bls. 19. Fara þeir eða ekki?

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.