Morgunblaðið - 22.05.1976, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. MAI 1976
5
Rússar neita
að tefla 1 Israel
Moskva21. maí Reuter.
Anthony Crosland, utanríkisráðherra Breta, á tali við Einar Ágústsson, K. B.
Andersen, utanríkisráðherra Danmerkur, og Max van der Stoel í veizlu, sem
Ólafur Noregskonungur hélt utanríkisráðherrum Atlantshafsbandalagsins á
fimmtudag.
Gefur Kennedy kost á sér?
New york 21. maí. Reuter.
ÖLDUNGARDEILDARÞING-
MAÐURINN Edward Kennedy
neitaði þvf I kvöld að nokkuð væri
hæft f þeirri frétt stórblaðsins
New Vork Daily News að hann
væri reiðubúinn að fara f fram-
boð fyrir demókrata f forseta-
kosningunum f nóvember, yrði
óskað eftir þvf. Kennedy sagði, að
afstaða sfn væri óbreytt með öllu
og fréttin hefði þar af leiðandi
ekki við rök að styðjast. Að öðru
leyti vfsaði Kennedy til yfirlýs-
ingar sem hann gat f september f
fyrra þar sem hann segir það
„endanlega og skilyrðislausa
ákvörðun að sækjast hvorki eftir
útnefningu sem forsetaefni eða
varaforsetaefni".
Engu að síður hefur frétt blaðs-
ins vakið mikið umrót í búðum
demókrata og einkum og sér í lagi
meðal frjálslyndra í þeirra röðum
um að „gulldrengurinn þeirra"
muni dragast á að taka við til-
nefningu ef samkomulag tekst
ekki á flokksþinginu i júlí.
I blaðinu The New York Daily
News var þessu slegið upp og frá-
sögnina ritaði James Weighart,
yfirmaður fréttadeildar blaðsins í
Washington. Þar segir, að
Kennedy muni nú telja sig þess
albúinn að taka útnefningu
flokks síns, svo fremi Hubert
Humphrey verði varaforsetaefni.
Hann geti sömuleiðis vel sætt sig
við að verða varaforseti ef
Humphrey gefi kost á sér á
flokksþinginu.
Fljótlega eftir að blaðið kom út
neitaði talsmaður Kennedy þessu
harðlega. Ritstjóri blaðsins kvaðst
þó mundu standa við fréttina
vegna þeirra öruggu heimilda
sem hann hefði fyrir henni. Sið-
degis kom svo neitunaryfirlýsing
frá Kennedy, en ritstjóri blaðsins
kveðst þó í engu víkja. Weighart
er vinur Kennedys og vitað er að
þeir hittust í gær.
í fréttum frá New York og
Washington segir að margir
Edward Kennedy
demókratar hafi tekið þessari
frétt fagnandi þar sem margir úr
hópi frjálslyndra telji höfuðnauð-
syn að stöðva framgang Jimmy
Carters.
Þá er og bent á, að stuðnings-
menn Humphreys hafi tilkynnt i
gær að þeir muni setja á stofn
sérstaka nefnd til að vinna að því
að Humphrey verði valinn for-
setaefni flokksins, enda þótt hann
hafi fyrir nokkru greint frá því að
hann muni ekki sækjast eftir út-
nefningu. Hins vegar muni hann
taka henni ef flokkurinn óskar
eftir því.
Sérfræðingar í New York segja,
að ekkert sé eðlilegra en að
Kennedy neiti þessari frétt i upp-
Rógi hnekkt
1 DAGBLAÐINU Tímanum síð-
astliðinn fimmtudag er látið að
því liggja og í Þjóðviljanum
fullyrt í tvo daga, að ég hafi
kosið lista Alþýðuflokks í kosn-
ingum til húsnæðismálastjórn-
ar á Sameinuðu Alþingi. Hafði
ég þó í minum þingflokki staðið
að samkomulagi um annað.
Jafnframt er látið að þvi liggja,
að hér hafi verið um atkvæða-
kaupskap að ræða milli mín og
Alþýðuflokks. Stuðningur
Alþýðuflokks við tillögur mínar
I öðrum málum þennan sama
dag átti að mati greinarhöf-
unda og heimildarmanna
þeirra að sýna fram á réttmæti
þessa álits þeirra. Skrif þessi
segja sína sögu um siðferði höf-
undanna. Af hálfu þingmanna
Sjálfstæðisflokksins fer ekki
fram slik verzlun.
Á þingflokksfundi Sjálfstæð-
ismanna var þennan dag gerð
sérstök samhljóða samþykkt
um, að allur þingflokkurinn
kysi A-lista, sameiginlegan lista
stjórnarflokka og I Sjálfstæðis-
flokknum er staðið við slíkt
samkomulag. Á fundinum var
einnig upplýst, að samstarf Sig-
urðar Guðgeirssonar og sjálf-
stæðismanna í húsnæðismála-
stjórn væri með ágætum. Mér
er ekki kunnugt um, að þing-
menn Sjálfstæðisflokksins hafi
brotið þessa samþykkt. Ég hef
vanizt því í þeim flokki, að
menn geti í hreinskilni rætt
mismunandi afstöðu sina til
manna og málefna. Hafi ég aðra
afstöðu en minn flokkur i ein-
hverju máli geta flokksmenn
mínir borið um að það fer ekki
milli mála og þeir eru látnir af
því vita. Ég uni þvi illa þeim
dylgjum, sem i nefndum grein-
arkornum felast, sérstaklega
því, sem i blaði samstarfsflokks
sjálfstæðismanna Tímanum
birtist. Hitt hvað Þjóðviljinn
skrifar og fullyrðir, má mér
fremur i léttu rúmi liggja. Það
tekur enginn heiðarlegur mað-
ur mark ^hinum rætna rógi og
persónuníði þess blaðs hvort
sem er.
21. maí 1976.
Ragnhildur Helgadóttir.
SOVÉZKIR skákmenn munu ekki
taka þátt í Ölympfumótinu í skák
né heldur sitja fund Alþjóðaskák-
sambandsins ef ákveðið verður að
velja tsrael sem mótsstað, en það
hefur verið í bígerð. Talsmaður
sovézka skáksambandsins sagði í
yfirlýsingu, að núverandi ástand í
Israel tryggði hvorki öryggi skák-
mannanna né eðlilega framvindu
mótsins og þingsins. Hvatt var til,
að Alþjóðaskáksambandið endur-
skoðaði afstöðu sfna og veldi
annan stað.
Þá var í yfirlýsingunni notað
tækifærið til að ráðast á „yfir-
gangsstefnu ísraela gegn Aröbum
og kúgun þeirra á íbúum
hernumdu svæðanna". Það bryti í
bága við hinn olympíska anda að
halda mótið i sliku andrúmslofti.
hafi, þar sem hann vilji þreifa
fyrir sér og kanna viðbrögð við
henni meðal þorra manna áður en
hann kveður upp úr með það
hvort hann býður sig fram.
Þá er og vakin athygli á að þessi
frétt komi einmitt í kjölfar þess
að Jimmy Carter hefur átt við
erfiðleika að etja i síðustu for-
kosningum, og trú ýmissa á
hugsanlegt framboð hans og síðan
sigur hefur veikzt mjög undan-
farna daga.
Carter hefur i þeim forkosning-
um sem fram hafa farið tryggt sér
stuðning um 700 fulltrúa af 1505
sem hafa seturétt á flokksþing-
inu. Sérfræðingar segja einnig að
fari svo að Kennedy og
Humphrey gefi kost á sér muni
margir snúa baki við Carter og
telja vænlegra að styðja framboð
þeirra.
Mao lifir
Peking21. maí. Reuter.
OPINBER talsmaður kínversku
stjórnarinnar sagði í dag, að frétt-
ir f erlendum fjölmiðlum þess
efnis að Mao formaður væri lát-
inn eða fárveikur væru „upp-
spuni frá rótum“.
Talsmaðurinn hafði ekkert um
þær fréttir að segja, sem ganga
fjöllum hærra í Peking að meiri-
háttar fundur kinverskra leiðtoga
sé á næsta leiti.
Blað Alþýðunnar birti nýlega
mynd af Mao hvar hann sat í stól
er hann heilsaði erlendum gest-
um sínum, en áður var Mao jafn-
an myndaður standandi er hann
þrýsti hendur gesta sinna.
Páll páfi
ræðst gegn
kommúnistum
Páfagarði 21. mai — Reuter.
PÁLL páfi sagði i dag, að það
væri óþolandi að rómversk-
kaþólskir menn styddu komm-
únista ( þingkosningunum á
ítalíu I næsta mánuði. 1 ávarpi
slnu á biskupaþingi í Páfa-
garði kvaðst páfinn staðfesta
yfirlýsingu forseta þingsins,
Antonio Poma, kardinála á
þriðjudag, sem túlkuð var sem
viðvörun til kaþólikka, sem
eru í framboði fyrir kommún-
ista um að þeir ættu á hættu
bannfæringu kaþólsku kirkj-
unnar fyrir vikið.
Síðar sögðu embættismenn i
Páfagarði, að kardínálinn
hefði átt við mildari refsingu
— ekki bannfæringu. Um 12
kunnir þakólikkar hafa til-
kynnt að þeir muni verða í
framboði fyrir kommúnistá i
kosningunum. Páfi sagði, að
marxismi, sem hann nefndi
ekki með nafni, væri þrátt fyr-
ir yfirlýsingar um hið gagn-
stæða „andtrúarleg, andklerk
leg og loks andmannleg" kenn-
ing og það væri óþolandi að
kaþólikkar styddu „einkum
opinberlega stjórnmálaskoðan
ir sem eru í grundvallaratrið-
um í andstöðu við trúarlegar
lifshugmyndir okkar“.
morgu
Brunar og slys eru of tíóir vióburóir í okkar þjóófélagi. Þegar
óhapp skeóur er hverjum manni nauósyn, aó hafa sýnt þá
fyrirhyggju, aó fjárhagslegu öryggi sé borgió.
Hagsmunir fyrirtœkja og einstaklinga eru þeir sömu.
SJÓVÁ tryggt er vel tryggt
SUÐURLANDSBRAUT 4 — SÍMI 82500