Morgunblaðið - 22.05.1976, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. MAl 1976
7
Enn um ný-
sköpunarstjórn
Hnotabit Tímans og
Þjóðviljans um nýja ný-
sköpunarstjórn heldur
áfram í gær. Þá segir Þór-
arinn Þórarinsson svo I
leiðara:
„Þjóðviljinn heldur
áfram vandræðalegri við-
leitni til að bera á móti
því, að ýmsir leiðtogar Al-
þýðubandalagsins hafa
undanfarið haldið uppi
samtölum við þá Björn
Jónsson og Gylfa Þ. Gísla
son um myndun stjórnar
með Sjálfstæðisflokknum,
sem leysi núverandi rikis-
stjórn af hólmi fyrir eða
eftir kosningar.
Þjóðviljinn þorir þó ekki
að bera á móti þvi að slik
stjóra geti verið meira en
hugsanleg, en segir hins
vegar, að hún komi þvi
aðeins til greina, að Sjálf-
stæðisflokkurinn fallist á,
að dregið verði úr völdum
verzlunarauðvaldsins og
verkalýðshreyfingunni
tryggð aukin völd. Þetta
stóð þó ekki i veginum,
þegar nýsköpunarstjórnin
sæla var mynduð á sinum
tima og voru foringjar Al-
þýðubandalagsins (Sósial-
istaflokksins) þá sizt óske-
leggari en núverandi for-
ingjar þess. Þvert á móti
hefur verzlunarauðvaldið
aldrei safnað meiri gróða
en á þessum árum, þegar
verið var að eyða hinum
mikilvægu gjaldeyris-
birgðum, sem höfðu safn-
azt erlendis á stríðsárun-
um.
Alþýðubandafagið
myndi ekki frekar nú en
þá, láta þetta valda
ágreiningi, ef það ætlaði
sér á annað borð að kom-
ast í stjórn, eins og það
hefur nú mikinn hug á.
Það segir líka sina
sögu, að I forystugrein
Þjóðviljans í gær er tekið
skýrt fram, að Alþýðu-
bandalagsmenn hafi ekki
neitt á móti þvi að vera i
stjórn með þeim Geir Hall-
grímssyni og Gunnari
Thoroddsen af persónu-
legum ástæðum. Og
hvergi er minnzt á það Í
forystugreininni, þótt
löng sé, að varnarmálin
geti verið þröskuldur i
vegi slíkrar stjórnar."
Sjónvarp á
sveitabæi með
aðstoð
Byggðasjóðs
Þorvaldur Garðar Krist-
jánsson og sjö aðrir þing-
menn Sjálfstæðisf lokks
ins fluttu tillögu til þings-
ályktunar á nýliðnu þingi,
þess efnis, að Rikisstjórn-
in skyldi hlutast til um, að
Ríkisútvarpið komi upp
endurvarpsstöðvum fyrir
þá sveitabæi, sem nú
njóta slæmra eða engra
sjónvarpsskilyrða. í þessu
skyni skal leita til
Byggðasjóðs um óaftur-
kræft framlag, en megin-
hlutverk þess sjóðs er að
tryggja sem jafnasta að-
stöðu fólks i landinu, án
tillits til búsetu (byggða
jafnvægi).
í augum þeirra, sem
notið hafa sjónvarps um
langt árabil, og lita á það
sem sjálfsagðan hlut, eðli-
legan frétta , fróðleiks- og
af þreyingarmiðil, skiptir
það máski litlu máli, þó
472 sveitabæir á landinu
njóti slæmra eða engra
skilyrða til móttöku á
sjónvarpsefni. Þörfin fyrir
þennan miðil er þó enn
brýnni i strjálbýli, þar sem
færri kosta er völ um tóm
stundaefni. í greinargerð
kemur fram að reisa þurfi
um 150 endurvarpsstöðv-
ar til að koma sjónvarps-
efni til þeirra, sem af-
skiptir eru, en kostnaður
við hverja endurvarpsstöð
sé að meðaltali 1 milljón
króna.
Ríkisútvarpinu er ætlað
að standa undir stofn-
kostnaði dreifikerfis sjón-
varps af tolltekjum af
sjónvarpstækjum. Þessar
tolltekjur eru áætlaðar um
20 m.kr. Á þessu ári þarf
35—40 m.kr. í afborganir
og vexti af skuldum, sem
stofnað hefur verið til,
vegna þessa dreifikerfis
(er nema rúmum 100
m.kr.) Augljóst er þvi, að
núverandi tekjustofn
nægir ekki til að koma
sjónvarpi á sveitabæi,
sem enn liggja óbættir hjá
garði í þessu efni. Ekki er
því óeðlilegt að Byggða
sjóður komi hér við sögu
með óafturkræft framlag.
Þessari þingsályktunar-
tillögu var vísað til rikis-
stjórnarinnar og fær þar
væntanlega verðuga at-
hugun.
Nýja T-bleyjan
MEÐ PLASTUNDIRLAGI FRÁ MÖLNLYCKE ER KOM-
IN AFTUR
SPARIÐ BLEYJUÞVOTTINN OG KAUPIÐ PAKKA
HEILDSÖLUBIRGÐIR:
KAUPSEL S.F..
Laugavegi 25.
SÍMI27770.
iWcáöur
á morgutt
Guðspjall dagsins: Jóh. 16,
23.—30.: Biðjið f Jesú nafni.
Litur dagsins er hvftur. Lit-
ur gleðinnar.
Bænadagurinn
„Beðið fyrir giftu og góðum
lyktum í landhelgismálinu”
DÓMKIRKJAN
Messa kl. 11 árd. Séra Óskar J.
Þorláksson dómpróf. Messa kl.
2 síðd. Séra Þórir Stephensen
prédikar, séra Hjalti Guð-
mundsson prófastur í Stykkis-
hólmi þjónar ásamt honum fyr-
ir altari. Matthías Á. Mathiesen
fjármálaráðherra flytur bæn,
en frú Helga Pálsdóttir og
cand. theol. Úlfar Kristmunds-
son verzlunarskólakennari lesa
pistil og guðspjall.
NESKIRKJA
Guðþjónusta kl. 2 síðd. Séra
Guðmundur Óskar Ólafsson.
Kvöldguðþjónusta kl. 8. Séra
Frank M. Halldórsson.
LAUGARNESKIRKJA
Messa kl. 2 síðd. Séra Garðar
Svavarsson.
FELLA- OG HÓLASÓKN
Guðþjónusta f Bústaðakirkju
kl. 11 árd. Athugið breyttan
messutíma. Séra Hreinn
Hjartarson.
ÁRBÆJARPRESTAKALL
Guðþjónusta i Árbæjarkirkju
kl. 11 árd. Séra Guðmundur
Þorsteinsson.
FRÍKIRKJAN f Reykjavfk
Messa kl. 2 siðd. Séra Þorsteinn
Björnsson.
FlLADELFlUKIRKJAN
Almenn guðþjónusta kl. 8 síðd.
Einar J. Gíslason.
KIRKJA Óháða safnaðarins.
Messa kl. 11 árd. Séra Emil
Björnsson.
BUSTAÐAKIRKJA
Guðþjónusta kl. 2 siðd. Jón
JónsSon fiskifræðingur for-
stjóri Hafrannsóknastofnunar-
innar flytur ræðu. Séra Ólafur
Skúlason.
HATEIGSKIRKJA
Lesmessa kl. 10 árd. Séra Arn-
grimur Jónsson. Messa kl. 2
siðd. Séra Jón Þorvarðsson.
HALLGRÍMSKIRKJA
Messa kl. 11 árd. Séra Ragnar
Fjalar Lárusson. Messa ki. 2
síðd. Séra Karl Sigurbjörnsson.
Lesmessa miðvikudag kl. 10.30
árd. Beðið fyrir sjúkum.
BREIÐHOLTSPRESTAKALL
Messa kl. 11 árd. í Breiðholts-
skóla. Séra Lárus Halldórsson.
ELLI- OG hjúkrunarheimilið
Grund.
Messa kl. 10 árd. Séra Magnús
Guðmundsson fyrrum prófast-
ur messar.
ASPRESTAKALL
Messa kl. 11 árd. að Norður-
brún 1. Séra Grímur Grímsson.
GRENSÁSKIRKJA
Messa kl. 11 árd. Aðalfundur
safnaðarins verður n.k. þriðju-
dagskvöld kl. 8.30 i safnaðar-
heimilinu. Messað verður í
Borgarspítalanum kl. 09.45 árd.
Séra Halldór S. Gröndal.
DÓMKIRKJA Krists Konungs
Landakoti.
Lágmessa kl. 8.30 árd. Hámessa
kl. 10.30 árd. Lágmessa kl. 2
síðd.
LANGHOLTSPRESTAKALL
Kirkjudagur safnaðarins:
Kl. 10.30 árd. barnasamkoma.
Séra Árelíus Nielsson.
Kl. 2 síðd. Guðþjónusta, báðir
prestarnir.
Kl. 3 siðd. hefst kaffisala Kven-
félagsins.
Kl. 4 síðd. Hátíðarsamkoma:
Ávarp
Kór Langholtskirkju
Ræða sra Jón Auðuns
Ljóðalestur
Helgistund sra Árelius Níels-
son.
Safnaðarstjórnin.
DIGRANESLRESTAKALL
Messa i Kópavogskirkju kl. 11
árd. Séra Þorbergur Kristjáns-
son.
KÁRSNESPRESTAKALL
Messa i Kópavogskirkju kl. 2
síðd. Séra Árni Pálsson.
HAFNARFJARÐARKIRKJA
Guðþjónusta kl. 2 síðd. Séra
Garðar Þorsteinsson.
KÁLFATJARNARKIRKJA
Guðþjónusta kl. 2 síðd. —
Ferming. Séra Bragi Friðriks-
son.
NJARÐVÍKURPRESTAKALL
Guðþjónusta i Innri-
Njarðvikurkirkju kl. 11 árd. og
í Stapa kl. 2 síðd. Séra Páll
Þórðarson.
KEFLAVlKURKIRKJA
Sunnudagsskóli kl. 11 árd. og
guðþjónusta kl. 2 siðd. Séra
Ólafur Oddur Jónsson.
HVALNESKIRKJA
Messa kl. 11 árd. Séra Guð-
mundur Guðmundsson.
UTSKALAKIRKJA
Messa kl. 2 siðd. Séra Gúð-
mundur Guðmundsson.
GRINDAVÍKURKIRKJA
Messa kl. 2 síðd. Ferming og
altarisganga. Sóknarprestur.
STOKKSEYRARKIRKJA
Guðþjónusta kl. 2 síðd. Ferm-
ing. Sóknarprestur.
EYRARBAKKAKIRKJA
Barnaguðþjónusta kl. 10.30 árd.
Kvöldbænir klukkan 9. Sóknar-
prestur.
ODDAKIRKJA
Messa kl. 11 árd. Séra Stefán
Lárusson.
REYNIVALLAPRESTAKALL
Messa í Brautarholtskirkju kl.
2 síðd., að Saurbæ kl. 4 siðd. og
að Reynivöllum kl. 9 siðd. Séra
Einar Sigurbjörnsson.
AKRANESKIRKJA
Messa kl. 10.30 árd. Þórarinn
Jónsson kennari prédikar. Séra
Björn Jónsson.
Sýning — 1976
Við sýnum:
Þýzka tjaldvagna Comptourist
Ameríska tjaldvagna Steury
Cavalier hjólhýsi
Monza hjólhýsi
JET hjólhýsi
A-Line sumarhús
Adapta verktakahús
Einnig tjöld fyrir hjólhýsi, festingar tröppur,
klósett, gaskassa og fl. og fl.
Margar gerðir af kerrum bæði fyrir fólksbíla
og Jeppa.
Hvar:
Hjá okkur í Sundaborg v.Kleppsveg
Hvenær:
Dagana 22 — 30. maí að báðum meðt.
opið alla daga virka og helga frá 2 — 7.
Gísli Jónsson & Co h.f.,
Sundaborg—Klettagörðum 11. Sími 86644.