Morgunblaðið - 22.05.1976, Page 8

Morgunblaðið - 22.05.1976, Page 8
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. MAÍ 1976 Hliðskjálf — sjóður til styrktar Gæzlunni HELGA Larsen á Engi og barna- barn hennar Helga Bergman eru stofnendur sjóös til styrktar Landhelgisgæzlunni erbernafnið Hliðskjálf. Stofnfé sjóðsins er þrjátiu og sex þúsund krónur. Markmið hans er að stuðla að aukinni menntun allra land- helgisgæzlumanna í gæzlu- og björgunarstörfum og stuðla að bættri aðstöðu og tækjum fyrir Landhelgisgæzluna. Stjórn sjóðsins hefur verið kosin og er formaður Selma Júlíusdóttir, varaform. Óskar Ind- riðason, ritari Sveinbjörg Guð- marsdóttir, gjaldkeri Guðmunda Helgadóttir og meðstjórnandi Bára Þórðardóttir. í skipulagsskrá sjóðsins segir að verði hann leystur upp skuli fjármunum hans varið til sjó- mannaheimilis í Reykjavík, skv. ákvörðun sjóðsstjórnar. Stjórnar- menn taka við framlögum í sjóð- inn og þeim er einnig veitt mót- taka í Sparisjóði Vélstjóra. Helga Bergman, annar stofn- andi sjóðsins, er dóttir Sigurðar Bergmans, háseta á varðskipinu Tý. Þá segir í skipulagsskrá sjóðs- ins að tekjur hans verði frjáls framlög og hafi sjóðsstjórn sam- starf um fjáröflunarleiðir hverju sinni með hjálp landsmanna. Samtök astma- og ofnæmissjúklinga: Færa Landspítalanum tölvu í fréttatilkynningu sem Mbl. hefur borist frá skrifstofu rfkis- spitalanna kemur fram að samtök astma- og ofnæmissjúklinga af- hentu Landspítalanum fyrir skömmu mjög fullkomna tölvu að gjöf. Verður tölvan notuð í rann- sóknastofu í lungnafvsiologiu og er verðmæti hennar um 500 þús- und krónur. Tölva þessi auðveldar mjög mikið útreikninga á flóknum tölu- legum formúlum í sambandi við rannsóknir sem varða nákvæma greiningu á þýðingarmiklum atriðum við ákvarðanir um heilsu- farsástand lungnasjúklinga. Magnús Konráðsson, formaður LAUFAS FASTEIGNASALA L/EKJARGATA 6B 3:15610 &25556. astma- og ofnæmissjúklinga, og stjórnarmeðlimirnir Ingihjörg Jónsdóttir, Hjördís Þorsteinsdótt- ir og Orla Nielsen afhentu gjöf- ina, en Tryggvi Ásmundsson læknir og Georg Lúðvíksson tóku við henni fyrir spítaians hönd. Kökusala í dag KÖKUSALA verður að Hall- veigarstöðum á morgun og hefst kl. 2 e.h. Það er Félag einstæðra foreldra sem að kökusölunni stendur og hefur sami háttur verið á hafður og sfðast þegar FEF hélt slíka sölu, að hópur félaga bakaði f hópvinnu kynstur af kökum af ýmsu tagi. Einnig hefur fjöldi annarra félagsmanna veitt að- stoð með framlögum sfnum. Fjáröflunarnefnd FEF hef- ur einnig byrjað á ný trefla- sölu á knattspyrnuleikjum f 1. deild tslandsmótsins eins og gert var f fyrra. Eru prjónaðir treflar í litum 1. deildar liða og að sögn forráðamanna FEF fékk þetta framtak góðar undirtektir f fyrrasumar. Slaufusala á vegum FEF verð- ur síðan laugardaginn 12. júnf n.k. Skrifstofuhusnæði óskast Höfum kaupanda að góðu skrifstofuhúsnæði sem væri helst nálægt miðbænum. Heil húseign kemur til greina. Fasteignasalan Bankastræti 6 Hús og Eignir. sími 28611 utan skrifstofutima 1 7677. Lúðvík Gizurason hrl. Sveinspróf í húsgagnasmíði Sveinspróf í húsgagnasmíði í Reykjavík 1976 verður haldið eftir miðjan júní vegna breytinga á fyrirkomulagi prófanna, verður haldinn fundur í Iðnskólanum mánudaginn 24. maí kl. 16. með væntanlegum próftökum. Eru við- komandi minntir á, að senda umsóknir um sveinspróf til undirritaðra sem fyrst. Prófnefnd. Fyrirtæki og fasteignir s.f. Fyrirtækja og fasteignasala, Skipholti 37, sími 38566. Til sölu nýlenduvöruverzlun með söluturni Til sölu ersöluturn í eigin húsnæði. Höfum kaupendur að söluturnum eða litlum veitingastofum i Reykjavík og nágrenni. Höfum til sölu 2ja og 3ja herb. íbúðir í Hraunbæ Höfum kaupendur að raðhúsum, einbýlishúsum og 2ja—4ra herb. íbúðum. Okkur vantar fyrirtækí og fasteignir á söluskrá. Höfum opið laugardag og sunnudag kl. 2—4 íslenzk nytjalist á listahátíð Þekktum finnskum hönnuðum boðið I sumar verður í fyrsta sinn á listahátíð sýning á listiðnaði. Nefnist sýningin Islenzk nytjalist og verður í Norræna húsinu. Slík nytjalist er nú mjög að hasla sér völl hér á landi, en á Norður- löndum og einkum kannski i Finnlandi hefur hún verið i hávegum höfð. Og því mun auk fslenzku þátttakendanna tveimur þekktum finnskum listhönnuðum verða boðið að taka þátt í sýningunni, hjónunum Vuokko og Antti Nurmesniemi. Að sýningunni stendur félagið Listiðn, sem fær stuðning bæði frá Felagi ísl. iðnrekenda og Útflutningsmiðstöð iðnaðarins. En Norræna húsið hefur boðið erlendu gestun- um. Jón Ólafsson húsgagnaarkitekt, sem er for- maður sýningarnefndar, sagðí fréttamanni Morgunblaðsins, að samtökin Listiðn hefðu ver- ið stofnuð 1974 og efnt til fyrstu sýningarinnar 1975. í félaginu eru skráðir 70 félagar. Það eru hönnuðir, sem starfa ýmist sjálfstætt eða hjá öðrum. Samstarf hönnuða og framleiðenda fer vaxandi um ýmisskonar verk, þó það sé ekki eins mikið og víða annars staðar. Þegar hefur félagið haldið 4 sýningar á nytjalist á 2 árum og er þetta sú fimmta. Þátttaka í sýningunni er opin þeim, sem starfa á listiðnaðarsviðinu, svo sem félögum Listiðnar, útflytjendum nytjalistar og öðrum þeim, sem flokka má undir þetta sérsvið. Sérstök matsnefnd velur sýningarmunina. I framkvæmdanefnd eru auk Jóns Hilmar Sigurðsson, teiknari FÍT, Ottó Ólafsson teiknari FÍT, Ulfur Sigurmundsson, hagfræðingur, Hrafn Gunnlaugsson, fram- kvæmdsstjóri Listahátiðar, og Þóra Kristjáns- dóttir, fulltrúi Norræna hússins. Sagði Jón að ýmisskonar listiðnaður yrði á sýningunni í Norræna húsinu, svo sem tauþrykk, keramik, silfursmíði og ýmisskonar ullariðnaður og fata- iðnaður. Og verður gaman að sjá þennan nýja þátt á Listahátíð. Finnsku gestirnir Vuokko og Antti Nurmesniemi eru kunnir listahönnuðir, bæði í heimalandi þeirra Finnlandi og erlendis og hafa hlotið margskonar viðurkenningu fyrir störf sín m.a. í fataiðnaði og fyrir keramik, húsgagna- og gleriðnað, og því mikill fengur að fá þau. Þau eru væntanleg hingað 1. júní og munu halda fyrirlestra fyrir almenning þá daga, sem þau verða við að setja upp sýninguna. 2. júní verður fyrirlestur um hönnun í finnsku atvinnulífi, samvinnu framleiðenda og hönnuða og 4. júní verður væntanlega fyrirlestur um þátt innan- hússarkitektsins í finpskum arkitektúr og sýn- .ingarhaldi, og þá sérstaklega boðið félögum í félögunum FtT, Aí og FHÍ. 5. júní opnar sýning- in. Vuokko Eskolin-Nurmesniemi er upphaflega leirkerasmiður frá listiðnaðarskólanun í Helsingfors og vann í fyrstu mest að leir- og glermunum, starfaði m.a. hjá Arabia. En nú á seinni árum hefur hún aflað sér meiri frægðar fyrir hönnun á vefnaði og tízkufatnaði. Hefur t.d. haft mikil áhrif á Marimekkofatnaðinn gegnum störf hjá PrintexOy. Glóandi litasam- setning hennar hefur haft mikil áhrif á norrænt litaskyn í listiðnaði. 1965 stofnaði hún sitt eigið Vuokko-fyrirtæki og teiknar þar bæði kjóla og efni. T.d. efni sem eru eins báðum megin. Hún hefur farið í kynningarferðir til fjöl- margra landa, svo sem Bandaríkjanna, Mexíkó, Indlands, Thailands, Egyptalands, Japans, Balieyja og Ástralíu. Maður hennar er Antti Nurmesniemi og starfa þau saman í Studio Nurmesniemi. Antti Nurmesniemi er að fagi husgagnaarkitekt frá Listiðnaðarskólanum í Helsinki. Hann hefur starfað með mörgum arkitektum i Finnlandi og Mílanó og einnig sem sjálfstæður sýningararkitekt. Að auki hefur hann unnið að hönnun á glermunum, teppum, vefnaði og emaleruðum munum og teiknað járn- brautarvagna og svifflugvél. Og sem húsgagna- arkitekt hefur hann haft mikil áhrif á nýsköpun í formum finnskra húsgagna. Lengi var hann formaður félags finnskra innanhússarkitekta. Þessi frægu finnsku hjón verða gestir á sýn- ingunni í Norræna húsinu. Vuokko Eskolin Nurmesniemi. Finnski hönnuðurinn Antti Nurmensniemi. Antti Nurmesniemi hefur m.a. hannað vagna fyrir finnsku neðanjarðarbrautina. Kjóll, teiknaður af Vuokko.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.