Morgunblaðið - 22.05.1976, Qupperneq 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22, MAt 1976
Nokkrir kórfélaga að koma á æfingu. Sigrfður Elia er fremst til hægri.
Skólakór Menntaskólans í Kópavogi:
Söngglatt fólk þar 1 listasprang
sem allir þekkja alla 1 Eftír { V Árna Johnsen
SKÓLAKÓR Menntaskólans í
Kópavogi hefur starfað í þrjá
vetur með miklum blóma og
það söngglaða fólk sem þar er
heimsóttum við eitt kvöldið á
æfingu í Kársnesskóla, en kór-
inn var þar að æfa undir stjórn
Sigríðar Ellu Magnúsdóttir fyr-
ir skólaslit menntaskólans, sem
verða í Kópavogskirkju laugar-
daginn 22. maí kl. 14. Þar mun
kórinn syngja stúdentastöngva
og ættjarðarlög.
1 skólakór Menntaskólans í
Kópavogi eru um 30 söngvarar,
en alls eru um 260 nemendur í
menntaskólanum. Söngstjóri
fyrstu tvö árin var Ólafur Þórð-
arson, en í vetur hefur Sigriður
Ella óperusöngkona æft kórinn.
Við tókum tali nokkra af þeim
kórfélögum sem hafa verið í
kórnum frá upphafi og fer
spjallið hér á eftir.
„EITT OG ANNAÐ
UR SÖNGFLÓRUNNI“
„Ég er að klára skólann",
sagði Tryggvi Magnús Þórðar-
son nemandi í 4. bekk, „en ég
hef verið með í kórnum frá
upphafi. Gagn af því starfi hef
ég haft mikið, maður er ekki
eins feiminn að taka lagið með
þegar svo ber undir á skemmt
un eða við önnur tækifæri þeg-
ar ættjarðarlögin eru tekin af
mikilli innlifun. Maður verður
líka öruggari í öllum söng eftir
að starfa í slikum kór og að
auki er kórinn sjálfur hinn
ágætasti félagsskapur. Það er
Sigrfður Ella stjórnar með mik-
illi innlifun.
mjög góður andi í kórnum,
hæfilegt stríð á milli radda og
skemmtilegheit. Einhver rödd-
in lærir ef til vill sérlega vel
sína rödd í hvelli og gerir svo
óspart grín að hinum.
Þessu hefur verið þannig
háttað í vetur að karla- og
kvennaraddir hafa æft sér auk
þess að æfa á sameiginlegum
æfingum, en Sigríður Ella hef-
ur jafnframt kennt okkur radd-
beitingu og sitthvað annað sem
betra er að kunna skil á í sam-
bandi við þessi hljóð sem mað-
ur er að gefa frá sér. Venjulega
höfum við æft einu sinni i viku
saman auk einnar raddæfingar,
og svo hefur Iagaval okkar farið
eftir því hvernig landið hefur
legið, um jólin tókum við t.d
jólajass og svo höfum við tekið
fyrir eitt og annað úr söngflór-
unni.“
„GETUM AÐEINS STATAÐ
AF SÖNGGLEÐINNI"
Þær stöllur Guðrún E. Gunn-
arsdóttir og Sigrún Magnús-
dóttir voru að spjalla saman
þegar við tókum þær tali. Guð-
rún er í 4 E og Sigrún í 4 M og
báðar hafa verið í kórnum frá
upphafi.
,,Mér finnst gaman að
syngja," svaraði Guðrún bros-
andi, „og það er þess vegna sem
ég er að því, jöfnum höndum á
víðavangi sem í sturtu, en auð-
vitað kann maður ekkert að
syngja."
„Það kunna allir að syngja,"
skaut Sigrún inn í.
Arni Harðarson undirleikari
kórsins.
„Allavega misjafnlega mik-
ið,“ hélt Guðrún áfram.
„Félagsandinn? Hann er góð-
ur í kórnum," svaraði Sigrún,“
viö erum það fá að hann hlýtur
að vera góður, reyndar eins og
hann er í skólanum sjálfum.
Við erum ekki nema rúmlega
200 og það þekkja allir alla.“
„Við spurðum þær hvað tæki
við á námsferlinum að loknu
stúdentsprófi.
„Ég er að hugsa um að fara að
læra söng i tónlistarháskóla í
útlöndum, líklega í Austurríki
eða Þýzkalandi," svaraði Sig-
rún og Guðrún sagði: „1 háskól-
ann, líklega í læknisfræði eða
líffræði."
í rabbi um kórstarfið sögðu
þær stöllur að i fyrstu hefði
kórinn mest sungið dægurlög í
sérlega útsettum stíl, fremur
léttmeti, þjóðlög og ýmislegt,
en í vetur hefði efnisvalið verið
meira blandað. Þær nefndu að
kórstarfið í Menntaskólanum í
Kópavogi væri áhugamanna-
starf, en til dæmis væri kór-
starfið í skólakór Menntaskól-
ans í Hamrahlíð hluti af náms-
efninu og nemendur sem
syngju í kórnum fengju eink-
unn fyrir. „Við getum aðeins
státað af sönggleðinni, engum
punktum fyrir starfið," sögðu
þær stöllur og hlógu.
Að lokum. Hvað skyldu þær
stöllur ætla að vinna í sumar?
Sigrún: Við gestamóttökuna á
Hótel Garði.
Guðrún: Á hóteli á Jótlandi.
Og svo ómaði ísland ögrum
skorið á æfingunni, því það
verður að sjálfsögðu sungið við
skólaslitin í Kópavogskirkju.
Tryggvi Magnús Þórðarson.
Sigrún Magnúsdóttir og Guðrún E. Gunnarsdðttir.
Garðabær:
Selja jurtir til
að byggja sundlaug
í DAG, sunnudaginn 23. maí,
verður Kvenfélag Garðabæjar
með blóma- og flóamarkað i
Barnaskóla Garðabæjar kl. 2.00
e.h. Þarna verður ýmislegt á boð-
stólum, s.s. úrval af fjölærum
jurtum, og gefst þeim gott tæki-
faéri, sem eru að ganga frá lóðum
sínum, að koma og skoða úrvalið.
Einnig verða á boðstólum ýmsir
aðrir munir s.s. fat'naður, leikföng
o.fl. o.fl. Allur ágóðinn rennur til
sundlaugarbyggingar i Garðabæ,
en þetta er eitt brýnasta verkefni,
sem kvenfélagið vinnur að um
þéssar mundir. Sundlaugar-
sjóðurinn var stofnaður árið 1968
og hefur áhugi íbúa í Garðabæ
verið mikill fyrir þessu verkefni
og ýmis félög f byggðarlaginu
heitið að leggja málinu lið.
Skæðadrífa af nöglum og
spýtum í kirkjugarðinum
Njarðvfkum. 19. maf.
MIKILL áhugi er hér meðal Ytri-
Njarðvikinga að ljúka við sóknar-
kirkjuna, sem hefur verið i smið-
um s.l. 6 ár. Undanfarna daga og
kvöld hafa sjálfboðaliðar starfað
kröftuglega við að rífa timbur ut-
an af þeim byggingaráfanga sem
nú þegar er náð. Félagar i ný-
stofnuðu Bræðrafélagi kirkjunn-
ar voru hvatamenn að þessu
starfi, en fleiri en þeir hafa þó
sannarlega lagt lið. Fjöldi kvenna
hefur unnið við naglhreinsun og
voru þær svo aðsópsmiklar að
karlmönnum þótti vart vært i
námunda við þær. Spýtur og
naglar flugu sem skæðadrífa um
kirkjugrunninn. Einn bræðranna
fór heim og náði sér i hjálm. Börn
og unglingar hafa og sýnt undra-
verðan áhuga fyrir þessu starfi og
til marks um dugnað þeirra var
talað um það í hreinsunarhópnum
að staðarklerkur þætti tæplega
hálfdrættingur á þau minnstu.
Stefnt er að því að gera kirkjuna
fokhelda fyrir haustið og til þess
að svo megi verða hefur verið
ráðinn flokkur trésmiða, sem
hefjast mun handa við siðasta
áfanga kirkjunnar í næstu viku.
Kirkja þessi verður hið fegursta
hús og kemur til með að setja
mikinn svip á Njarðvíkurbæ,
ásamt Stapa, barnaskólanum og
íþróttahúsinu, sem eru nánast öll
á sama svæði. Áfram verður
haldið með sjálfboðaliðastarfið og
verða laugardagarnir helztu
vinnudagar.
— Páll Þórðarson.
Aðalfundur
Félags íslenzkra
rithöfunda
AÐALFUNDUR Félags fslenzkra
rithöfunda var haldinn að Hótel
Esju sl. tniðvikudagskvöld. Jenna
Jensdóttir var endurkjörin for-
maður félagsins. Ritari, GIsli J.
Ástþórsson, baðst undan endur-
kjöri, og var Indriði G. Þorsteins-
son kosinn I hans stað.
Að öðru leyti er stjórnin nú
þannig skipuð að Indriði Indriða-
son er gjaldkeri en meðstjórnend-
ur Sveinn Sæmundsson og
Ragnar Þorsteinsson og vara-
menn þeir Jón Björnsson og Þor-
steinn Thorarensen.
Jenna Jensdóttir.
Fermingar á morgun
Ferming í Gríndavfkurkirkju,
23. maf, 1976, klukkan 2 e.h.
Stúlkur:
Björk Sverrisdóttir, Heiðarhrauni 45.
Erla Bragadóttir, Staðarhrauni 6.
Ingibjörg Karen Matthíasdóttir, Borgar-
hrauni 12.
Kristfn Þorsteinsdóttir, Hvassahrauni 9.
Ólafía Kristfn Jensdóttir, Staðarhrauni 8.
Svandfs Þóra öjversdóttir, Mánagötu 15.
Vigdís Ingíbjörg Helgadóttir, Staðarvör 3.
Drengir:
Birgir Pétursson, Hvassahrauni 1.
Bragi Jónsson, Túngötu 5.
Einar Sævar Einarsson, Heiðarhrauni 49.
Jakob Einarsson, Heiðarhrauni 60.
Kristinn Þór Runólfsson, Dalbraut 3.
Ólafur Viðar Gunnarsson, Vfkurbraut 5.
Sigurður Björn Alfreðsson, Norðurvör 5.
Þórhallur Kristinsson, Sunnubraut 6.
Þór Sveinsson, Heiðarhrauni 7.
Ferming f Kálfatjarnarkirkju
sunnudaginn 23. maf, kl. 2 e.h.
Birna Rut Þorbjörnsdóttir Vogagerði 11,
Vogum.
Ragnheiður Reynisdóttir Hafnargötu 28,
Vogum
Magnea Sigrún Sfmonardóttir,
Neðri-Brunnastöðum, Vatnsle.vsustr.
Davfð Snæfell Helgason Aragerði 7, Vog-
um.
Sveinn Sfmonarson Hólabraut 14, Hafnar-
firði
Sæmundur Kristinn Egilsson, Egilsgötu 6,
Vogum.
Ferming f Landakirkju í Vest-
mannaeyjum, sunnudaginn 23.
maf, kl. 10.30 ár.
Drengir:
Adólf Adólfsson Heiðarvegi 7
Árni Guðjón Hilmarsson Wsturvegi 23B
Benóný (ifslason Faxastfg 47
Birgir Runólfur Ólafsson Fjólugötu 11.
Bjarni Ólafur Magnússon Fjólugötu 25.
Guðjón Kristinn Matthíasson Heiðarvegi
28
(iunnar Hreinsson Ásavegi 7.
Jón Hlöðver Hrafnsson Höfðavegi 11.
(Heiðartún)
Jón Freyr Jóhannsson Vestmannabraut
42.
Karl Björnsson Vallargötu 18.
Sigbjörn Þór Óskarsson Skólavegi 27.
Sigurjón Ingvarsson Brimhólabraut 9.
Stúlkur:
Anna Dóra Jóhannsdóttir Höfðavegi 34.
Bára Sveinsdóttir Brimhólabraut 17.
Bertha Sigrfður Eronsdóttir Heiðarvegi
44.
Bylgja Sigurjónsdóttir Hólagötu 4.
Guðrún Erlingsdóttir Höfðavegi 36.
Hafdfs Sigurðardóttir Heiðarvegi 58.
Júlfanna Theódórsdóttir Hólagötu 24.
Margrét Elísabet Kristjánsdóttir Skóla-
vegi 19.
Nanna Gunnarsdóttir Heiðarvegi 42.
Rósa Katrfn Gunnarsdóttir Vesturvegi 25.
Sigurlaug Grétarsdóttir Heiðarvegi 45.
Ferming kl. 2 síðd.
Drengir:
Ágúst Vilhelm Steinsson Brimhólabraut
26.
Andrés Þorsteinn Sigurðsson Bessa-
hrauni 22B
Benedikt Þór Guðnason Illugagötu 65.
Garðar Rúnar Garðarsson Illugagötu 50.
Kári Þorleifsson Hólagötu 41.
Kristinn Guðni Ragnarsson Hátúni 2.
Marteinn Unnar Heiðarsson Faxastfg 25.
Ófeigur Grétarsson Vallagötu 4.
Ólafur Óskar Stefánsson Höfðavegi 30.
Samúel Grytvik Faxastfg 78.
Sigurbjörn Arnason Sóleyjargötu 3.
Sigurður Friðrik Karlsson Strembugötu
25.
Sigurður Ómar Ólafsson Helgafellsbraut
20.
Valgeir Valgeirsson Helgafellsbraut 18.
Stúlkur:
Asdís Sævaldsdóttir Hólagötu 30.
Dagmar Óskarsdóttir Hásteinsvegi 40.
Dóra Kolbeinsdóttir Túngötu 27.
Elfsa Harpa Grytvik Faxastíg 78.
Iðunn Lárusdóttir Brimhólahraut 29.
Ingibjörg Þórhallsdóttir Illugagötu 17.
Jónfna Hallgrfmsdóttir Heiðarvegi 56.
Lilja Björk Ólafsdéttir Heiðarvegi 68.
Rut Ágústsdóttir Bröttugötu 45.
Sigrún Hjörleifsdóttir Bröttugötu 25.